Morgunblaðið - 30.03.1982, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1982
Milljónatjón í
flóðum í Noregi
Ostó, 29. marz. Frá Jan Krik Ijiure
frélUriUra VI bl.
Skyndilcgur hlyindakafli og mikil úr-
koma i vikulokin hafa leitt til mikilla
flóða í Noregi, svo segja má að landið
hafi skipst í tvennt í Þrændalögum.
Talið er að tjónið af völdum flóðanna
skipti milljónum króna.
Allar samgöngur á landi milli
norðurhluta Noregs og suðurhlutans
lögðust niður vegna vatnavaxtanna,
og uröu menn að fara loftleiöis eða
sjóleiðina, þyrftu menn að reka er-
indi handan flóðasvaeðanna.
Ýmsar ár í Norður-Þrændalögum
flæddu yfir bakka sína og ruddu
með sér ís út yfir akra og inn í þorp.
Varð fólk að yfirgefa mörg hús og
bændur ýmsir urðu að flýja jarðirn-
ar með búfénað sinn. Sjötnuðu flóð-
in þegar leið á sunnudaginn og gátu
ýmsir horfið aftur til húsa sinna,
sem mörg hver voru þó afar illa út-
leikin. Eftir liggja ísklumpar á víð
og dreif, sumir það þykkir að það
líða vikur áður en þeir bráðna að
fullu.
Óttast ekki lengur
hótanir Carlosar
l’arís, 29. mars. Al*.
FRÖNSK stjórnvöld telja að þeim
stafi ekki lengur hætta af hótunum
skæruliðans ( 'arlosar, sem sendi þeim
hótunarbréf þann I. mars sl. Gaf
hann stjórnvöldum mánaðar frest til
að leysa tvo fanga úr haldi, ellegar
hljóta verra af. Hótaði hann að láta til
skarar skríða gegn ráðherrum stjórn-
arinnar ■ eigin persónu ef ekki yrði
farið að kröfum hans.
Innanríkisráðherra Frakklands,
Gaston Defferre, sagði í útvarpsvið-
tali í Marseilles á laugardag, að
ekki stafaði lengur nein hætta af
hótun Carlosar. Gaf ráðherrann
gngar frekari skýringar á hvað það
var sem leiddi til þessarar ályktun-
ar.
Föngunum, sem Carlos krafðist
að yrðu látnir lausir, hefur ekki
verið sleppt, og að sögn ráðherrans
gerði hann „sérstakar ráðstafanir"
eins og hann orðaði það sjálfur
strax eftir að hótunarbréfið barst.
Hins vegar fór hann ekki út í frek-
ari útskýringar á því í hverju þær
fólust.
Ókyrrð áfram á
V es turbakkanum
Tel A»i», 29. marz. Al*.
Israelskur innflytjandi hóf skothríð á
hóp arahískra unglinga, sem reistu
vegartálma á götu á Vesturbakkanum
og brutu rúður i bíl hans með grjót-
kasti. Ilnglingarnir stukku á flótta,
en að sögn hersins hafa einhverjir
þeirra trúlega særst, þar sem blóð-
blettir fundust á |>eim stað þar sem
ráðist var á bifreiðina.
Atburðurinn átti sér stað við
þorpið Khadr, sem er skammt frá
Jerúsalem. Leigubíistjóra tókst að
aka í gegnum vegartálma og sleppa
úr grjótkasti unglinganna. Á 11
róstursömum dögum hefur einn
ísraelskur innflytjandi skotið arab-
ískt ungmenni til bana. Innflytj-
endurnir hafa leyfi ísraelshers til
að bera vopn til notkunar í sjálfs-
vörn.
Handteknir hafa verið 25 ungl-
ingar í þorpinu Beit Sahour, sem
grunaðir voru um aðild að uppþot-
um á sunnudag. Þá var upplag
tveggja arabískra blaða, sem gefin
eru út í austurhluta Jerúsalem,
gert upptækt í dag, fjórða daginn í
röð, til þess að koma í veg fyrir að
þeim yrði dreift á Vesturbakkanum
og Gaza-svæðinu. Jafnframt var
útgöngubann látið áfram gilda í
Rafah á Gaza.
Brezkur þingmaður sagði í dag,
að hann og tugur annarra brezkra
þingmanna, hefðu sloppið naum-
lega er þeir lentu í skotbardaga á
Vesturbakkanum á föstudagskvöld.
Þeir voru að kynna sér ástandið á
Vesturbakkanum í boði PLO, er
arabískir unglingar gerðu árás á
bilalest, sem þeir voru í.
Stjórn Begins samþykkti á
sunnudag hertar aðgerðir til þess
að bæla niður uppþot Palestínu-
manna á Vesturbakkanum. Þrír
arabar særðust í skotbardaga á
sunnudag og ísraelskur embættis-
maður slasaðist er hann var grýtt-
ur á þorpinu Jaabed. Yfir helgina
kom til átaka ísraelshers og
mótmælaseggja víðs vegar á her-
numdu svæðunum, og um 20.000
ísraelar í Tel Aviv mótmæltu.
Danuta Walesa með yngstu déttur þeirra hjóna, Maríu Viktoríu.
Líf án Walesa að
verða óbærilegt
London, 29. marz. AP.
DANUTA Walesa, eiginkona Lech Walesa, leiðtoga óháðu verkalýðs-
samtakanna pólsku, sagði i viðtali, sem Sunday Times birti á sunnudag,
að hún hefði aðeins fengið að hitta mann sinn þrisvar frá því hann var
settur í stofufangelsi þegar gripið var til herlaga í Póllandi 13. desem-
ber sl. í viðtalinu sagði Danuta að lífið væri að verða óbærilegt, þar sem
byrðar fjölskyldunnar hvíldu allar á hennar herðum, en þeim hjónum
hefur orðið sjö barna auðið.
,Með sjö börn á einum herðum
getur þetta ekki gengið til lengd-
ar,“ sagði frú Walesa. Hún fékk,
ásamt tveimur börnum þeirra
hjóna, að dveljast með manni sín-
um í átta „ógleymanlega daga“
frá 8. febrúar, „en það var þó ekki
hin venjulega fjölskyldustemmn-
ing, sem þá ríkti". Áður fékk
Danuta að heimsækja Walesa 16.
desember og á aðfangadagskvöld.
Hún sagði mann sinn safna
skeggi í fangelsinu.
Jafnframt segist frú Walesa
hafa átt erfitt með að laga sig að
þeim vinsældum sem eiginmaður
hennar hefði unnið sér á Vestur-
löndum, sem baráttumaður fyrir
lýðréttindum. „Ég er rólegheita-
kona og lítt fyrir athygli og eftir-
tekt. Þetta hefur bakað mér ýms
vandræði," sagði frúin. Hún sagði
mann sinn í haldi á sveitasetri í
Konstantin, skammt fyrir utan
Varsjá, í skógi, sem herinn hefur
á valdi sínu. Hann er fluttur til
sveitaseturs í Otwock, sem er í 50
kílómetra fjarlægð, til allra
funda, hvort sem þeir eru við fjöl-
skyldumeðlimi, fulltrúa kirkj-
unnar eða pólska embættismenn.
Frú Walesa sagði tiltölulega
vel með mann sinn farið, og hann
léki jafnvel borðtennis við verði
sína. Hann hefði margsinnis ver-
ið beðinn um að koma fram í
sjónvarpi og hvetja þjóðina til að
sýna þolinmæði, en jafnan neitað.
„Hann er orðinn svolitið tauga-
veiklaðri, en hann mun ekki láta
bugast," sagði frú Walesa.
Gin- og klaufaveiki:
Svíar
setja
höft
Stolckbólmi. 29. marz. AP.
SÆNSK yfirvöld hafa hert
allt eftirlit meö ferðum og
vörusendingum til og frá
landinu í því markmiði að
koma í veg fyrir að gin- og
klaufaveiki berist til Svíþjóö-
ar frá Austur-I’ýzkalandi eða
Danmörku.
Jafnframt eru í undirbúningi
ýmsar nýjar ráðstafanir og
herma fregnir að í undirbúningi
sé að stöðva allar ferjusiglingar
milli Svíþjóðar og Austur-
Þýzkalands, þar sem A-Þjóð-
verjar hafi ekki brugðizt við
veikinni eins og Danir og fellt og
grafið sýkt dýr, að sögn yfir-
dýralaeknisins í Málmey.
Irar mesta
tedrykkju-
þjóð heims
Itondon, 29. mara. AP.
HVER Breti drekkur að meðaltali
1650 bolla af tei á árí, eða sem svarar
4’/i bolla á dag. Þó eru þeir ekki mesta
tedrykkjuþjóð heims.
Nágrannar þeirra, írar, hirða þá
nafnbót. Þar í landi notar hver mað-
ur að meðaltali 3,70 kíló af tei á ári
hverju. Bretar nota að meðaltali
3,55 kíló.
Næstir í röðinni á eftir þessum
teþömburum koma Nýsjálendingar
með 2,4 kg á mann, írakar með 2,05
kg og Ástralir með 1,95 kg á hvert
mannsbarn.
Þótt einungis um 1,5% jarðarbúa
búi á Bretlandseyjum fer 30% af
teframleiðslu heimsins til neyslu og
endurvinnslu þar.
Handtökur í
Bangladesh
Einn hátksettasti maður lögreglunnar í Guatemala og aðstoðarmaður hans féllu
i árás vinstrí sinnaðra skæruliða á bíl þeirra 60 kílómetra suðvestur af höfuð-
borginni. Skýrt var frá árásinni á sunnudag, en atvikið átti sér stað á föstudag.
Búist hafði verið við því að nýja herstjórnin í Guatemala setti lögrcglufulltrú-
ann af. Strangur hervörður er hvarvetna í Guatemala, en meðfylgjandi mynd er
af öryggisverði við höll Lucas Garcia, fyrrum forseta.
Darra, 29. marz. AP.
FYRRVERANDI varaforsætLsráA
herra og borgarstjórinn í llacca voru
teknir fastir i dag, en handtökurnar
eru liður i herferð nýju valdhafanna
gegn spillingu í Bangladesh.
Ymsum öðrum háttsettum
mönnum úr stjórn Abdusar Sattar
fyrrum forseta var jafnframt
veittur þriggja sólarhringa frest-
Áfengisskömmtun á Grænlandi hætt
Nuuk, 29. marz. Al*.
LANDSSTJÓRNIN grænlenzka
hefur ákveðið að hætta áfengis-
skömmtuninni, sem sett var á fyrir
þremur árum, frá og með 1. apríl
næstkomandi. Að sögn yfirvalda
hefur skömmtunin leitt af sér fleiri
vandamál en hún hefur leyst.
Látið var í veðri vaka, að
áfengisskömmtunin hefði verið
ákveðin t tilraunaskyni, en
ofdrykkja og óhófleg neyzla
áfengis hefur verið landlægt böl
á Grænlandi um árabil.
Sumir óttast, að Grænlend-
ingar fagni afnámi skömmtun-
arinnar með einu allsherjar fyll-
eríi, en landsstjórnin hefur dreg-
ið úr þeirri hættu með stór-
hækkuðum söluskatti á áfengi og
bjór.
Ékki munu allir fagna afnámi
skömmtunarinnar jafnvel, t.d.
ekki sprúttsalar, sem fjárfest
hafa stórum í heimabruggverk-
smiðjum. Einnig hefur afnámið í
för með sér gífurlega kjara-
skerðingu hjá þeim, sem haft
hafa allt að 14.500 skattfrjálsar
danskar krónur á ári með því að
selja skömmtunarseðla sína á
svörtu.
Flestir munu þó fagna afnám-
inu. Eflaust verður í þeim hópi
veiðimaðurinn í norðlægu þorpi,
sem fyrir skömmu sendi frá sér
flöskuskeyti, með þessum skila-
boðum til finnandans: „Bróðir,
geturðu ekki séð af miða? Ég er
þyrstur, ári þyrstur".
Talið er að Grænlendingar
hafi verið mestu drykkjumenn
heims fyrir skömmtunina, því
hvert mannsbarn þar í landi
neytti að jafnaði 19 lítra af
hreinum vínanda á ári, sem er
um helmingi meiri neyzla en í
flestum ríkjum hins vestræna
heims.
Samkvæmt skömmtunar-
ákvæðunum, sem þóttu í frjáls-
lyndara lagi, mátti hver fullorð-
inn maður kaupa 72 bjórflöskur
á mánuði, eða 244 flöskur af
borðvínum, eða þrjá pela af
sterku áfengi.
Embættismenn sögðu hina
óeðlilega háu tíðni glæpa,
morða, sjálfsmorða,'slysa og al-
menna eymd og heilsuleysi, svo
og mikla fjarveru Grænlendinga
frá vinnu, eiga rætur að rekja í
ofdrykkjunni. Skömmu eftir að
skömmtunin tók gildi, varð
hlutfallsleg fækkun glæpa og
slysa, en á síðasta ári var
ástandið að komast aftur í „eðli-
legt“ horf.
ur til að gefa sig fram við yfirvöld,
þ.á m. varaforsætisráðherranum.
Þeir gætu allir átt yfir höfði sér
dauðadóma.
Óljóst er hversu margir hátt-
settir embættismenn hafa verið
settir á bak við lás og slá frá því
stjórninni var bylt í Bangaladesh
á miðvikudag, en talið að þeir séu
um 200. Hafa þeir verið sakaðir
um spillingu, eða misnotkun
valdastöðu sinnar á einn eða ann-
an hátt. Eiga þeir yfir höfði sér
dauðarefsingu. I þessum hópi eru
Abdul Mannan forstjóri hins
ríkisrekna flugfélags, Bangladesh
Biman og Abdus Samad fram-
kvæmdastjóra þróunarstofnunar
landbúnaðarins.
Sigur Korchnois
dugði ekki til
Lurerue, S*wh. 29. uim. AP.
ÞRÁTT fyrir sigur Viktors Korchnois á
fyrsta borði tókst Svisslendingum ekki
aó vinna sigur á ísraelum í undanriðli
Kvrópukeppni landsliða í skák um
hclgina.
Korchnoi vann Grunfeld, en ís-
raelar unnu með 4 ‘Æ vinningi gegn
314. Var það einkum á lægri borðun-
um, sem Israelar voru sterkari.