Morgunblaðið - 30.03.1982, Page 37

Morgunblaðið - 30.03.1982, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1982 37 f fyrsta lagi þarf að leggja grundvöll að ákveðinni skóla- hverfaskiftingu í borginni, þannig að hægt sé að starfrækja skóla- hverfin sem sjálfstæðar rekstrar- einingar. í öðru lagi þarf að setja á lagg- irnar sérstakar skólanefndir fyrir hvert skólahverfi og efla jafn- framt áhrif og starfsaðstöðu for- eldrafélaganna í hverfunum. í þriðja lagi þarf að knýja fram lagabreytingar á ákvæðum um bekkjarstærðir, sem gera illmögu- legt að starfrækja skólana með viðunandi árangri. I fjórða lagi þarf að auka kennslu 6 ára barna og stefna að því að öil 5 og 6 ára börn verði fræðsluskyld. í fimmta lagi þarf að veita af- burða greindum börnum sérstaka aðstoð og aðstöðu til náms ekki síður en öðrum börnum með sér- þarfir. í sjötta lagi þarf að skipuleggja grunnskólann þannig að hann verði samfelldur og óslitinn vinnudagur. I sjöunda lagi þarf að taka upp skólamáltíðir í öllum grunnskól- um borgarinnar. I áttunda lagi þarf að taka til gagngerrar endurskoðunar hönn- un og byggingu skólahúsa þar sem fuilt tillit er tekið til sveigjanlegs skólastarfs (kennslustofur af mis- munandi stærð), breytinga á fjölda nemenda og ýmisskonar starfsemi sem nauðsynlegt er að koma fyrir, en vanrækt hefur ver- ið til þessa. í níunda lagi þarf að minnka stjórnunareiningar stærstu skól- anna og auka ráðgjafar- og um- sjónarþátt kennara, sérstaklega í efstu bekkjunum. í tíunda lagi þarf að stefna að því að starfsaðstaða kennara i skólunum verði þannig að hægt sé að breyta vinnutíma þeirra og þá um leið kjarasamningum, á þann hátt, að kennarar verði ráðnir til starfa fullan vinnudag, þ.e.a.s. 40 stunda vinnuviku, en að kjör þeirra miðist ekki við 30 eða 32 kennslustundir á viku eins og nú Odýrasti skóli í Evrópu Ef kostnaður við grunnskóla er borinn saman við ýmsa aðra kostnaðarliði hér á landi er óhætt að fullyrða að íslenski grunnskól- inn er ódýr skóli. Ég hef áður haldið því fram að íslenski gunnskólinn væri ódýrasti skóli í Evrópu og get bent á sterk rök fyrir þeirri staðhæfingu. En jafn- vel þótt einhvers staðar finnist land þar sem hægt er að reka ódýrari skóla en hér þekkist þá held ég samt að ástandið sé nógu uggvænlegt. Peningastefnan sem rekin hefur verið í skólamálum okkar íslend- inga er að því ieyti slæm, að hún hefur ekki leitt til sparnaðar og ekki leitt til hagræðingar. Stríðið um skólakostnað milli ríkis og sveitarfélaga hefur leitt til þess að átökin um aðgerðir i skólamálum eru orðin átök um það hvort ríkis- sjóður eða sveitarfélögin eigi að greiða tilteknar fjárhæðir. Þetta eru staðreyndir sem skólamenn og stjórnendur sveitarfélaga vita, ekki síst hér í Reykjavík, enda koma viðmiðunarreglur mennta- málaráðuneytisins hvergi eins illa við skólastarfið eins og hér í höf- uðborginni. I upphafi þessarar greinar vék ég sérstaklega að Vogaskólamál- inu. Það mál er að því leyti sér- stakt að þar togast á þau tvö grundvallarsjónarmið, sem hér hefur verið vikið að: I fyrsta lagi, peninga- og hagræðingarsjónar- mið menntamálaráðuneytisins, þar sem gert er ráð fyrir því að allir grunnskólar borgarinnar falli í einu lagi undir töfraregluna 130 plús 1,4 og öllu apparatinu sé stýrt og hagrætt frá skrifstofu fræðslustjórans í Reykjavík. Og í öðru lagi, það sjónarmið, að skifta eigi borginni upp í minni skóla- hverfi, þar sem íbúar hverfanna fá að taka virkan þátt í uppbygging- unni og skólastarfið er losað und- an þeirri yfirborðslegu skrifstofu- tækni sem embættiskerfið og Al- þingi hafa innleitt. Ég tel að umræður um þetta mál séu mjög gagnlegar. Foreldr- ar og kennarar í Vogahverfi hafa látið til sín heyra, sömuleiðis for- eldrar og kennarar í Vesturbæn- um. Nú þarf að halda áfram bar- áttunni og knýja fram stefnu- breytingu um skipulag og starf- rækslu grunnskólans. Ríkjandi peningasjónarmið verður að víkja fyrir raunsæju mati á gildi menntunar fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið í heild. ungvers Sýnilfiennslaí sfvri mataigerðarlist Anna Hirslund, sem vinnur hjá ungverska flugfélaginu MALEV, kynnir ungverska matargerð firá heimalandi sínu. Kennslan fer fram í Víkingasal 2, kl. 17.00 í dag.^ VER© VELKOMIN HÓTEL LOFTLEIÐIR LNINGAR- TILBOÐ NU geta allir farið að mála Hér kemur tilboð sem erfitt er að hafna Ef þú kaupir málningu fyrir 500 kr. eda meir færdu 5% afslátt. Ef þú kaupir málningu fyrir 1000 kr. eda meir færdu 10% afslátt. Ef þú kaupir málningu í heilum tunnum, þ.e. 100 lítra, borgarðu VERKSMIÐJUVERÐ og í kaup- bæti færðu frían heimakstur hvar sem er á Stór-Reykjavík- ursvæðinu. HVER BYÐUR BETUR! — OG ÞAR AÐ AUKI HAGSTÆÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR. OPIÐ Mánud.-miðvikud. 8--18. Föstud. 8--22. Laugard. 9—12. E3( HRINQBRAUT119. S. 10600/28600 Munid adkeyrsluna frá Framnesvegi Message rafmggns- ritvélar Litla Message 860 ST rafmagnsritvélin eralvöru ritvél. Letur- borðið er fullkomið með dálkastilli. Vélin er stöðug og traust, en tekur þó sáralítið pláss. Message 990 CR er eins byggð og 860 ST vélin en hefur leið- réttingarborða að auki. Message 860 ST eða 990 CR er tilvalin ritvél fyrir minni fyrir- tæki, í skólann eða á heimilið. Verðið er ótrúlega hagstætt. SKRIFSTi OFUVÉLAR H.F. | Hverf isgötu 33 — Sími 20560 — Pósthólf 377 Reykjavík ___________________________________ ÓSA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.