Morgunblaðið - 30.03.1982, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 30.03.1982, Blaðsíða 39
Helgi Filippusson náði ekki há- um aldri en ég held mig geta full- yrt, að hann hafi verið mikill hamingjumaður. Hann sá hug- sjónir sínar rætast hverja af ann- arri og það sem gefur hvað mesta fyllingu, hann átti stóran þátt i að svo varð. Flugið varð annar aðalþáttur samgangna á íslandi og við um- heiminn. Svifflugsíþróttin sem hann unni og dáði varð stór þáttur í frístundaafþreyingu og íþróttum landsmanna og átti snaran þátt í uppeldi fjölda atvinnuflugmanna íslenskra. Ennfremur lifði hann það að sjá flugmodelíþróttina verða þróttmikið almennings- sport. Öllum þessum málum hafði hann fórnað mörgum starfsárum sínum við litlar efnislegar eftir- tekjur. En það sem mest er um vert, Helgi varð mikill gæfumaður í einkalífi sínu. Hann kvæntist hinni mestu kostakonu, Sigríði Einarsdóttur, sem stóð við hlið hans frá fyrstu kynnum þeirra, hvatti hann og tók beinan þátt í öllum hans störfum. Þau eignuð- ust þrjár mannvænlegar dætur, sem allar eru vel giftar og hafa fært foreldrum sínum gleði, ekki síst með barnabörnunum. Mér og mínum hefur verið það mikil ánægja að sjá hve stórvel Sigríði og Helga gekk að byggja upp og reka fyrirtæki sitt sem þau stofnuðu til árið 1957, eftir að Helgi hætti að stunda svifflugs- kennslu sem aðalstarf. Kom þarna enn í ljós hve mikils alheilt sam- starf samstæðrar fjölskyldu má sín. Við hjónin sendum Sigríði, dætrum þeirra, tengdasonum og barnabörnum, sem öll hafa misst svo mikið, okkar dýpstu samúð- arkveðjur og biðjum þess að sorg þeirra breytist í gleði yfir því sem þau öll fengu notið saman. Ásbjörn Magnússon MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1982 39 HAFA Classic Baðinn- réttingar Útsölustaðir: Atlabúöin, Akureyri. Málningarþjónustan, Akranesi. Ljónið, ísafirði. Valberg, Ólafsfiröi. Húsið, Stykkishólmi. Har. Johansen, Seyðisfiröi. Brimnes, Vestmannaeyjum. Sambandið byggingar- vörudeild Reykjavík. Kaupfél. Borgfirðinga, Borgarnesi. Kaupfél. Þingeyinga, Húsavík. Kask, Hornafirði. Kaupfél. Fram, Neskaupstað. Kaupfél. Skagfirðinga, Sauðárkróki. VALD. POULSEN f SUÐURLANDSBRAUT 10 sími 86499 15°/i 0 afsláttur ÞURÆÐUR FEK5INNI! Allar feröir verða ánægjulegri sé hægt að haga þeim eftir eigin höfði. Dvelja t.d. í orlofshúsi í fögru umhverfi og skjót- ast í göngu- eða ökgferðir. Við bjóðum marga slíka kosti víða um Evrópu. Þið veljið lönd og leið. Við leiðbeinum um akstursleiðir og útvegum flug, bíla- leigubíla eða flutning á eigin bíl og leigu á orlofshúsi eða íbúð. Þau eru af ýmsum stærðum og gerðum, búin eldhúsáhöld- um, borðbúnaði, rúmfatnaði og víða eru svalir, sólstétt og fagurt útsýni. Húsin leigjast í eina viku eða lengur og hefst leigutímabil alltaf á laugardögum. Verðið er hagkvæmt vegna samstarfs okkar við félög bifreiðaeigenda erlendis. Alls staðar er stutt í þjónustu og verslun. Víðast hvar eru fjölbreyttir möguleikar til tómstunda- iðkana allt frá sundi, siglingum og golfi til veiða og skíðaiðkana. í vestur-Þýskalandi er framboðið fjöl- breyttast en einnig er um margt að velja í Noregi og Danmörku, Frakklandi, Austur- ríki, Sviss og jafnvel allt suður til Ítalíu. Biðjið um ferðabækling okkar: „Þú ræður ferðinni". SÉRSTÖK KJÖR FYRIR FÉLAGA í FÍB. FERDASKRIFSTOFA FIB NOATUN117 SIMI: 29999

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.