Morgunblaðið - 30.03.1982, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.03.1982, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1982 Southampton á toppinn á ný eftir sigur gegn Stoke SOUTHAMPTON náöi aftur forystunni í 1. deildar keppninni ensku í knattspyrnu á laugardaginn, er liðið sigraði Stoke 4—3 á heimavelli sínum í æsispennandi og fjörugum leik. Southampton náði þriggja marka forystu í leiknum, Stoke jafnaði þótt ótrúlegt sé, en ungur nýliði hjá Southampton, Mark Whitlock, skoraöi sigurmark liðsins rétt fyrir leikslok, skallaöi knött- inn í netið eftir snjallan undirbúning Nick Holmes. Southampton náði þriggja marka forystu í fyrri hálfleik, Malcolm Waldron, David Armstrong og Mick ('hannon skoruðu, en í síðari hálfleik fóru leikmenn Stoke að vakna til lífsins. Alan Biley, lánsmaður frá Everton, skoraöi á 49. mínútu og Dave Watson bætti öðru marki við með þrumuskoti af 25 metra færi á 64. mínútu. Aöeins nokkrum mínútum síðar jafnaði svo Sammy Mcllroy fyrir Stoke, en þremur mínútum fyrir leikslok kom svo sigurmarkið frá hinum unga Mark Whitlock. Úrslit leikja urðu annars sem hér segir: Arsenal — Aston Villa 4—2 Birmingham — Brighton 0—0 Coventry — Wolves 0—0 Everton — Liverpool 1—3 Man. Utd. — Sunderland 0—0 Middlsbrough — Man. City 0—V Notts County — Leeds 2—1 Southampton — Stoke 4—3 Swansea — Ipswich 1—2 W. Bromwich — Tottenham 1—0 West Ham — Nott. Forest 0—1 Haráttan harðnar Baráttan á toppnum harðnar með hverri vikunni sem líður, en tvö af hinum mörgu liðum sem eru kölluð áttust við innbyrðis á laug- ardaginn. Ipswich sótti Swansea heim og sigraði 2—1 í fremur slök- um leik. Það var Eric Gates sem skoraði sigurmark Ipswich aðeins tveimur mínútum fyrir leikslok, þrumuskot hans frá vítateig fór í stöngina og inn. Alan Brazil skor- aði annars fyrra mark Ipswich á 10. mínútu leiksins, en Robbie James jafnaði með marki úr vita- spyrnu tíu mínútum síðar. Þetta var fyrsti ósigur Swansea í háa herrans tíð. Liverpool vann góðan sigur í hörkuleik gegn nágrannaliðinu Everton og er staða Liverpool í deildinni nú hin sterkasta. Ronnie Whelan náði forystunni fyrir Liv- erpool á 21. mínútu, en hann naut dyggrar aðstoðar varnarmanna Everton, en einn þeirra setti fót- inn fyrir skot Whelans og breytti stefnu knattarins þannig að markvörðurinn náði ekki að verja. Everton jafnaði aðeins fjórum mínútum síðar, Graeme Sharp skallaði í netið eftir hornspyrnu. Snemma í síðari hálfleiknum náði 1. DEILD Southamptun 33 17 7 9 59 48 58 Swansca (íty 31 17 5 9 45 36 56 IJvfrpool 29 16 6 7 55 25 54 Manrh. I td. 30 15 9 6 43 22 54 Ipswirh 29 17 3 9 53 40 54 Arscnal 31 15 8 8 29 24 53 Tottcnh. 27 15 3 7 45 26 50 Manrh. (ity 32 13 1! H 44 33 50 Notth. forent 31 12 II H 33 34 47 Hriiíhton 31 11 12 H 34 31 45 Weath. lid. 10 12 H 49 40 42 Kvcrton 3! 10 II 10 38 38 41 Notis ( ounty 31 H 7 13 48 48 40 Aston \ íila 31 9 10 12 39 14 37 West Bromw. 2* 8 I i 9 34 33 35 Stoke (ity 32 9 6 17 35 50 33 Birminiíham 30 7 II 12 40 44 32 (’oventry 32 H H 16 38 52 32 liWtls l'td. 29 7 15 23 43 28 Wolverhamp. 32 7 7 18 19 49 28 Sunderiand 30 5 H 17 20 42 23 Middlexh. 30 3 H 16 21 42 20 2. DEILD Watford 32 18 8 6 58 33 62 Luton Town 30 17 9 4 59 32 60 Shcffield 33 16 8 9 45 37 56 Kothorham 33 17 4 12 49 36 55 Blarkburn 33 15 9 9 40 28 54 Newraatle 1 td. 31 15 6 10 39 29 51 Leiee«ter (’ity 30 14 8 8 43 32 50 KarnsJev 32 14 7 11 46 34 49 QPK 31 14 5 12 40 31 47 Oldham Athi. 33 12 11 1« 39 39 47 Norwich City 32 14 5 13 42 43 47 ( harlton Athl. 33 12 10 11 45 48 46 C hcl.se a 31 12 6 13 42 44 42 (’ambridge Ctd. 31 10 6 15 35 40 36 Ih-rby ('ounty 32 9 8 15 41 57 35 Shrewsbury Town 30 8 10 12 27 40 34 Cryntal Palaee 2» 9 6 14 23 31 33 Bolton W anderer.s33 9 5 19 27 46 32 Wrexham 30 8 7 15 27 39 31 (Hient 29 8 6 15 25 40 30 ( ardiffCily 31 8 5 18 31 47 29 (irinwby Town 29 5 1! 13 30 47 26 Graeme Souness forystunni fyrir Liverpool á nýjan leik og Craig Johnstone innsiglaði sigurinn með glæsilegu marki rétt fyrir leiks- lok. Johnstone lék í aðalliðinu í fyrsta skipti í langan tíma og átti stórleik, hyggur greinilega á að halda sætinu, því auk þess sem hann skoraði þriðja markið, var hann maðurinn á bak við hin mörkin tvö sem Liverpool skoraði. Cirel Regis skoraði 22. mark sitt á þessu keppnistímabili gegn Tott- enham á laugardaginn og reyndist það vera sigurmarkið. Er lið Tott- enham farið að gefa verulega eftir og þetta var einn lakasti leikur liðsins í vetur. Aðeins tvívegis komst liðið nálægt því að jafna, er langskot Ricardo Villa smugu naumlega fram hjá. Ahorfendur á Highbury, leik- velli Arsenal, hafa ekki fengið aðra eins markahátíð og var á boðstólum á laugardaginn í háa herrans tíð. Aston Villa kom í heimsókn og skoraði Arsenal eigi færri en 4 mörk gegn þremur. Arsenal náði tvívegis forystu í fyrri hálfleik, fyrst skoraði Alan Sunderland á 2. mínútu og síðan Graham Rix á 24. mínútu. Garry Shaw jafnaði fyrst og síðan Tony Morley. I síðari hálfleik komst Arsenal síðan í 4—2 með mörkum Graham Rix og Raphael Meade, en Pat Heard átti síðasta orðið er hann skoraði þriðja mark Villa rétt fyrir leikslok. AArir leikir Middlesbrough og Sunderland gerðu Manchester-risunum lífið leitt, Boro og City skildu jöfn á Ayrsome Park og United og Sund- Cirel Regis skoraði sigurmark WBA gegn Tottenham. erland sömuleiðis á Old Trafford. City varð fyrir því áfalli, að hinn ungi og efnilegi framherji liðsins Garry Jackson fótbrotnaði. United var heppið að tapa ekki heima gegn Sunderland. Sóknirnar buldu á vörn Sunderland, en liðið varðist vel og átti síðan góðar skyndisókn- ir. Undir lokin varði Garry Bailey t.d. tvívegis snilldarlega frá Nick Pickering. Birmingham nældi sér í þrjú dýrmæt stig í fallbaráttunni gegn jafntefliskóngunum frá Brighton. Það stefndi allt í markalaust jafn- tefli, en rétt fyrir leikslok skoraði Mick Harford eina mark leiksins fyrir Birmingham. West Ham var betri aðilinn framan af gegn Forest, en eftir að mistök Alvin Martins á 30. mínútu færðu Ian Wallace auðvelt mark, Tony Morlev t.h. á fullri ferð með knöttinn gegn Tottenham. Morley skoraði fyrir Aston Villa á laugardaginn gegn Arsenal, en Villa tapaði leiknum eigi að síður. Tottenham varö einnig að sætta sig við tap á laugardaginn. snérist leikurihn Forest í hag. Hafði liðið all mikla yfirburði allt til leiksloka og var sigurinn í minnsta lagi er upp var staðið. Notts County heldur áfram að spjara sig, en Leeds spjarar sig hins vegar engan veginn. County vann Leeds verðskuldað á Meadow Lane, að vísu náði Leeds foryst- unni á 30. mínútu með marki Frank Worthington, en Rachid Harkouk jafnaði á 68. mínútu. Tíu mínútum síðar skoraði varamað- urinn David Hunt sigurmarkið með skalla eftir hornspyrnu. 2.deild: Derby 0 — Luton 0 Blackburn 1 (Bell) — Cr. Palace 0 Grimsby 1 (Kilmore) — Wrexham 1 (Fox) Leicester 3 (Young 2, McDonald) — Charlton 1 (Hales) Newcastle 1 (Waddle) — Chelsea 0 Norwich 2 (Jack, Bertchin) — Cardiff 1 (Gilbert) Oldham 1 (Heaton) — Barnsley 1 (Galvin) Rotherham 1 (Seasman) — QPR 0 Sheffield W. 2 (Taylor, Megson) — Orient 0 Shrewsbury 1 (Atkins) — Cam- bridge 0 Watford 3 (Lohman, Blissett 2) — Bolton 0 Markahæstu leikmenn ÞEIR Kevin Keegan Southampton og lan Rush hjá Liverpool eru nú markhæstir í 1. deild, báðir hafa skorað 24 mörk, en hvorugur sko- raði þó um helgina. Cirel Regis WBA hefur skorað 22 mörk og siðan kemur Keith Cassels hjá Southamp- ton með 21 mark. Piltur þessi er hins vegar nýkominn til Dýrling- anna, skoraði öll mörk sín fyrir Ox- ford. Alan Brazil hjá Ipswich hefur skorað 20 mörk. í 2. deild er Simon Stainrod hjá QPR markhæstur með 19 mörk. Keith Houchen hjá Orient hefur skorað 19 mörk, en skoraði öll fy- rir Hartlepool. Garry Bannister hjá Sheffield Wedensday og Ron- nie Moore hjá Rotherham hafa skorað 18 mörk. Knatt- spyrnu- úrslit Frakkland Karl Þórðarson og félagar hans hjá Laval í frönsku knatlspyrn- unni gerðu það gott um helg- ina, sigruöu Bastia 2—0 á hcimavelli. Teitur og félagar hjá Lens eru eitthvað að dala á nýjan leik, náðu þó jafntefli heima gegn Valenciennes og eru þremur stigum fyrir ofan fallsætið sem liðið virtist ætla að hreiðra um sig í framan af vetri. Úrslit leikja urðu annars sem hér segir: Monaro — Montpellicr 1—0 St. Etienne — Bordeaux 5—0 Sochaux — Lyon 3—1 Paris St. G. — Nice 1 — 1 Lens — Valenciennes I —1 Brest — Nancy 0—1 Auxerre — Nantes 0— I Laval — Bastia 2—0 Metz — Tours 4—2 Strasbourg — Lille 3—0 Monaco hefur 45 stig í efsta sætinu, en St. Etienne skaust upp í 2. sætið með stórsigrinum gegn Bordeaux, sem er í þriðja sæti með 44 stig. Souchaux er í fjórða sæti með 40 stig og síðan koma Laval og Paris St. Ger- main með 39 stig hvort. Eru þessi sex efstu lið nokkuö sér á báti í deildinni, því Nantes, sem er í 7. sætí, hefur aðeins 33 stig. England, 3. deild Bristol ('. — Brentford 0—1 Chester — Preston 0—1 Fulham — Carlisle 4—1 Gillingh. — Bristol R. 2—0 Huddersf. — Doncaster 1—2 Lincoln — Southend 1—1 Newport — Walsall 2—2 Oxford — Chesterf. 1 — 1 Portsmouth — Plymouthl— 0 Keading — Exeter 4—0 England, 4. deild Blackpool — Peterbr. 2—2 Bury — Aldershot 1 — 1 Colchester — Hull 2—0 Crewe -r Northampton 2—2 Hartlepool — Bradford 0—2 Hereford — Wigan 3—0 Mansfield — Halifax 3—2 Port Vale — Bournem. 1—1 Stockport — Darlington 1—0 Tranm. — Sheffield Utd. 2—2 York — Scunthorpe 3—1 Skotland Celtic — Aberdeen 0—1 Híbernian — Rangers 0—0 Dundee Utds. — Morton 5—0 St. Mirren — Airdrie 3—0 Partick Th. — Dundee 0—2 Forysta Celtic er nú aðeins fjögur stig, liðið hefur 37 stig, en Aberdeen er í 2. sæti með 33 stig. Rangers hefur 32 stig. Ilolland. A7, ’67 — Haariem 0—1 Deventer — Willem 2. 1—1 Nac Breda — Tvente 0—0 Den Haag — Maastricht 0—0 Roda JC — NEC Nijm. 4-1 Utrecht. — Feyenoord 2—1 Sparta — De Graafchap 4—0 Groningen — Ajax 1—3 PSV - PEC Zwolle 1-1 Ajax náði forystunni í deildinni með sigri sínum gegn Groningen, liðið hefur nú 39 stig og margfalt betri markatölu heldur en PSV sem hefur einnig 39 stig. Markatala Ajax er 90—36, en markatala PSV 60—24.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.