Morgunblaðið - 30.03.1982, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1982
Hvað stendur til við
Laugarnestanga?
eftir Þórarinn
Björnsson
Ég vil leyfa mér að gefnu tilefni
að leiða athygli borgarbúa að einu
vinsælasta útivistarsvæði, sem
þeir eiga og þar á ég við Laugar-
nestangann. Þetta svæði er einn af
sögufrægustu stöðum höfuðborg-
arinnar. Og er nú eitt eftir, að
Gróttu undanskilinni, sem eru
ósnortin af innreið skipulags-
valda. Og vona ég, að svo verði um
ókomin ár, að því undanskildu, að
það þyrfti að gróðursetja skjól-
belti fyrir norðannæðingnum, sem
er eina leiða áttin hér á tangan-
um. Síðan þyrfti að slétta úr upp-
úrgrónum braggagrunnum og
rækta fleiri minni skógarrunna og
blómabeð. Láta svo öll þau fáu
hús, sem eftir standa, algerlega í
friði með þeim eigendum, sem í
þeim búa. Það ér mitt hús, Laug-
arnestangi 9b., húsin númer
60—65, hús og verkstæði lista-
mannsins Sigurjóns Olafssonar
mynd’nöggvara, svo og númer 87.
Einnig bílaverkstæði Tómasar
Jónssonar, sem er snyrtilega um
gengið og hefur staðið um tugi
ára. Svo er það býlið, Laugar-
nesbúið, sem áður var. Það þyrfti
að endurbyggja. Og ætti, ef íbúar
þar vilja flytja, að hafa barna-
heimili. Það stendur á þó nokkuð
háum hól og er mjög góð skíða-
brekka fyrir börn. Ég hefi oft séð
tugi barna þar á skíðum og snjó-
sleðum á veturna. Það mætti segja
mér, að margt ungmennið hefði
fengið þar sína fyrstu þjálfun á
skíðum. Ég verð að sætta mig við
það, að Sigurður Ólafsson kunn-
Þórarinn Björnsson
„Svo ætla ég ekki að
hafa þessi varnaðarorð
fleiri um tangann að sinni,
en ég verð erfiður til flutn-
ings héðan og mun láta
mjög illa að stjórn, þegar
þar að kemur.“
ingi minn, hestamaður og ógleym-
anlegur söngvari, sé fluttur burt.
En við höfum þó eftir við húsvegg-
inn þar hina merku konu, Hall-
gerði langbrók. Mér fyndist, að
það mætti girða kringum kirkju-
garðinn þar og setja þar blóm.
Sumir vilja halda því fram, að
Hallgerður sé ekki grafin í þeim
garði, heldur í túninu stutt frá.
Þetta teljum við Sigurður ekki
rétt, þar sem Hallgerður langbrók
hafði tekið kristna trú, áður en
hún lést í Laugarnesi. Ef halda á
því fram, að ekki þrífist gróður á
tanganum, þá mótmæli ég því ein-
dregið og skal færa sönnur á mál
mitt, ef með þarf.
Það hafa komið á sumrin tugir
túrista, svo og slangur af útlend-
ingum á veturna líka. Og allir
þeir, sem eru af fjölda þjóðerna,
hafa dásamað útsýnið hér og hús-
in, sem minna á gömul sveitabýli,
að tveimur byggingum undan-
skildum, og það eru húsin númer
62, sem ég veit ekki til, að eigandi
þess hafi nokkru sinni búið í, ef
svo er hljóta að vera tugir ára síð-
an. Síðan hefur margur leigt
þennan „forskalaða” tveggja hæða
spýtnakassa. T.d. sl. ár hrundi
„forskalningin“ af þeirri hlið
hálfri, sem snýr að húsinu númer
60. Svo stóran bragga, sem Vest-
fjarðaleið hafði viðgerðir í í mörg
ár. En nú eru þeir löngu fluttir á
hraut, en skilja eftir þennan and-
skota, öllum til leiða sem augu líta
og hafa smekk fyrir fallegu um-
hverfi. Margur túristinn hafði á
orði, að þessi staður, Laugarnes-
tangi, væri með sérstöðu sem væri
jafnvel einsdæmi í heiminum, að
inni í næstum miðri höfuðborg
væri að finna kyrrlátan stað, sem
minnti mest á sveit. Ég ætla ekki
að gleyma öllum þeim Reykvíking-
um og öðru því fólki, sem kemur
hér svo mörgum tugum skiptir
ekki síður en útlendingar. Þar í
flokki eru bæði börn, unglingar og
aldrað fólk, svo og fólk af öllum
aldursflokkum. Það væru þau
mestu mistök og högg, sem hægt
væri að greiða Reykjavíkurborg,
ef farið væri að hefja hér hús-
byggingar.
Það fór að læðast að mér geigur,
eftir að hér komu fyrir stuttu
karlmaður og ung stúlka. Fóru
þau umsvifalaust að mæla hús
mitt utan, svo og lóðina, sem er
greinilega afmerkt, án þess að tala
við mig eða láta mig vita, hvað
þau væru að gera með þessu at-
hæfi. Mér þótti nóg um og fór út
að fá fréttir. Stúlkan brást vel við,
en maðurinn lét sem hann sæi mig
ekki, og saknaði ég þess ekki, þar
sem ég hafði unga, fallega konu
fyrir svörum. Hún tjáði mér, að
þau væru að gera uppdrátt af
svæðinu hér í kring. Svo mörg
voru þau orð. En nú spyr ég og
óska eftir frekari skýringum; hvað
til stendur? Á virkilega að fara að
hefja einhverjar byggingarfram-
kvæmdir hér, eða annað umrót á
tanganum? Þá skora ég á ykkur,
góðir borgarbúar, að veita okkur
stuðning, sem viljum fá að hafa
þennan eina ósnortna blett af
mannavöldum í friði, öllum borg-
arbúum sem vilja til afþreyingar
frá ys og þys borgarinnar.
Ég hefi rætt við góðan sam-
ræðukunningja minn, Guttorm
Þormar, sem er yfirverkfræðingur
umferðardeildar, um tangann í
sambandi við hraðbrautina, sem
aðskilur tangann frá næsta um-
hverfi. Við erum ekki sammála um
gatnamótin, sem liggja inn á tang-
ann. Yfir hraðbrautina þurfa bæði
ungir sem aldnir að fara til þess
að komast í kyrrðina hér. Ég fór
þess á leit við Guttorm, sem er
stór mikilsráðandi í umferðarmál-
um, að það yrði sett sebragang-
braut yfir, hjá gatnamótunum, og
gönguljós. Ég tel þetta afar nauð-
synlegt til að verja líf og limi
þeirra þúsunda sem hingað leita á
sínum gönguferðum. Við Gutt-
ormur höfum oft rætt um þær
lífshættulegu hættur, sem víða
eru því samfara að fara yfir götur
og stræti. Ég tel, að komið hafi
verið í veg fyrir margt slysið og
dauðann með fyrirbyggjandi
ráðstöfunum, svo sem gönguljós-
um og girðingum á eyjum, sem
liggja milli aðalbrauta, svo sem á
Hringbraut, Skeiðarvogi, Grens-
ásvegi og jafnvel víðar. Það er
furðulegt að horfa á fullorðið fólk
ráðast yfir og undir þessar varnir,
sem eru því sjálfu til lífs, þegar
það æðir yfir götur hvar sem er.
Ég vona, að hvorugur þeirra,
Guttormur Þormar né Óskar
Ólason yfirlögreglumaður, sem
þessi mál mæða einna mest á, láti
eftir þeim, sem vilja girðingarnar
ogjafnvel gönguljósin burt. Því að
hér er um slys, örkuml, líf og
dauða að tefla.
Ég var að tala um, að við Gutt-
ormur værum ekki sammála um
nauðsyn á sebrabraut og göngu-
ljósum, sem gerði þúsundum fólks
ferðir inn á tangann öruggari.
Hann segist eiga nóg með að verja
það sem komið sé, samanber ljós
og gangbrautir við Elliheimilið
Grund og við Elliðavog og Holta-
veg. Hins vegar hafa verið sett
upp tvö hættumerki á Sætúnið.
Tvö fyrir neðan býlið Laugarnes,
svo og fyrir sunnan gatnamótin
inn á tangann. En því miður taka
sárafáir tillit til þeirra, heldur
æða áfram sem bolar í moldar-
flagi. Enda sýnir hraðinn sig, þeg-
ar lögreglan kemur að mæla hrað-
ann. Það væri synd að segja að þá
veiddu þeir vel, því fjöldinn sem
þeir stoppa er næstum ótrúlegur.
í sambandi við það, sem ég sagði
um ánægju útlendinga við komu
þeirra hingað, þá hefi ég fengið
kort og kveðjur frá nokkrum
þeirra. T.d. fékk ég jólakort frá
tveimur konum, sem komu hér sl.
sumar. Þær vinna báðar hjá
Rauða krossi Finnlands. Þær
skildu ensku, þýsku, sænsku, en ís-
lensku skildu þær ekki, því miður.
Þær heita Eliegren og Karin
Lindström.
Svo ætla ég ekki að hafa þessi
varnaðarorð fleiri um tangann að
sinni, en ég verð erfiður til flutn-
ings héðan og mun láta mjög illa
að stjórn, þegar þar að kemur.
Laugarnestanga,
15.03. 1982.
Sveit Karls Sigurhjartarsonar með fullt hús:
Arnór Ragnarsson
llndankeppni íslandsmótsins í
bridge, sveitakeppni, lauk sl. sunnu-
dagskvöld á Hótel Loftleiðum. Spilað
var í fjórum riðlum, þremur í Keykja-
vík og einum á Akureyri, alls 24
sveitir og komust tvær efstu sveitim-
ar í hverjum riðli í 8 sveita úrslita-
keppni sem fram fer á Hótel Loftleið-
um um bænadagana.
Kftirtaldar sveitir spila í úrslitum:
Sveit Sævars Þorbjörnssonar
Sveit Eiríks Jónssonar
Sveit Stefáns Ragnarssonar
Sveit Þórarins Sigþórssonar
Sveit Karls Sigurhjartarsonar
Sveit Gests Jónssonar
Sveit Arnar Arnþórssonar
Sveit Steinbergs Kíkarðssonar
Sveit Karls Sigurhjartarsonar
hlaut fullt hús, þ.e. 100 stig í und-
ankeppninni en þeir sigruðu sem
kunnugt er á Stórmóti Flugleiða,
sem lauk fyrir nokkru, þar sem
þeir rúlluðu upp nokkrum sterk-
ustu þjóðum heims. Verður að telja
líklegt að þeir verði erfiðir í
úrslitakeppninni og fyrirfram lík-
legir til að sigra. Þá vakti það at-
h.vgli að íslandsmeistararnir frá í
fvrra, sveit Egils Guðjohnsens,
komst ekki í úrslitakeppnina.
A-riðill:
Reykjavíkurmeistararnir, sveit
Sævars Þorbjornssonar, tapaði
ekki leik í þessum riðli. Keppnin
um annað sætið var milli sveita
Eiríks Jónssonar frá Akranesi,
Erlu Sigurjónsdóttur og Ármanns
J. Lárussonar, sem oft hefir komið
skemmtilega á óvart í Islandsmót-
inu. Fyrir síðustu umferðina átti
sveit Eiríks alla möguleika til að
verða í öðru sæti. Höfðu þeir 59
stig. Erla 43 og Ármann 45. Ár-
mann spilaði gegn sveit Sævars og
varð að vinna stórt til að komast
áfram. Hann tapaði leiknum með
mínusstigi á meðan Eiríkur náði í
7 stig sem gulltryggði honum ann-
að sætið enda þótt konusveitin
ynni 20—0.
Lokastaðan í A-riðli:
Sævar Þorbjörnsson 83
Eiríkur Jónsson 66
Erla Sigurjóndóttir 63
Ármann J. Lárusson 42
Bragi Björnsson 24
Sigfús Þórðarson 10
B-riðill:
Þessi riðill var spilaður í Iðn-
skólanum á Akureyri og var hann
langskemmtilegastur. Þegar einni
umferð var ólokið gátu 5 sveitir
unnið riðilinn. Sveit Sigurðar B.
Þorsteinssonar stóð þar best að
vígi með 49 stig en átti að spila
gegn sveit Þórarins Sigþórssonar
sem hafði 42 stig. Sveit Stefáns
Ragnarssonar átti að spila gegn
sveit Jóns Stefánssonar sem var
eina sveitin sem ekki átti mögu-
leika á að vinna riðilinn. Sveit Sig-
fúsar Arnar Árnasonar og Aðal-
steins Jörgensens spiluðu saman í
síðustu umferðinni og fyrir leikinn
hafði Sigfús 39 stig en Aðalsteinn
37 stig.
Ef einhver sveit var heppin í
undankeppninni þá var það sveit
Þórarins sem vann Sigurð 14—6 og
gerði þar með draum Sigurðar að
engu, því Aðalsteinn og hans menn
unnu Sigfús „aðeins" 18—12. Stef-
án og hans menn héldu sínu striki
og unnu 20 mínus 2 og þar með
riðilinn.
Sveit Stefáns Ragnarssonar er
skipuð fimm ungum mönnum sem
spila allir gamla góða Vínarkerfið.
Það sem kannski er enn merki-
legra við spilamennskuna hjá þeim
er að annað parið notar engin köll
sveitanna voru úr Reykjavík og ein
af Reykjanesi. Sveit Arnar Arn-
þórssonar tapaði ekki leik en
keppnin um annað sæti var
skemmtileg. Fyrir síðustu umferð-
ina áttu þrjár sveitir möguleika.
Jón Þorvarðarson hafði 50 stig,
Steinberg Ríkarðsson og Egill
Guðjohnsen 47 stig. Sveit Jóns átti
að spila gegn Erni þannig að róður
hans var hvað erfiðastur. I hálfleik
var staða Egils vænlegust, þeir
höfðu yfir á meðan sveitir Jóns og
Steinbergs voru að tapa sínum
leikjum. í síðari hálfleik höfðu
Steinberg og félagar hans enda-
skipti á leiknum og unnu örugglega
19—1 og tryggðu sér annað sætið
en sveit Egils vann „aðeins" 15—5.
Lokastaðan í D-riðli:
Örn Arnþórsson 82
Steinberg Ríkarðsson 66
Egill Guðjohnsen 62
Jón Þorvarðarson 55
Guðni Þorsteinsson 23
Sigurður Steingrímsson 7
Úrslitakeppnin hefst 8. apríl á
Hótel Loftleiðum. Keppnisstjórar
voru Agnar Jörgensson og Vil-
hjálmur Sigurðsson í Rvík.
Áhorfendur voru allmargir alla
dagana í Reykjavík, en alltaf troð-
fullur salur fyrir norðan. Þar var
gífurleg spenna í keppninni ekki
hvað sízt í lokaumferðunum. Nokk-
urrar óánægju varð vart méðal
hluta sunnlenzku spilaranna sem
fóru norður, en þeir skiptust alveg
í tvo hópa að sögn tíðindamanns
þáttarins fyrir norðan, Frímanns
Frimannssonar.
en kallkerfi hinna spilaranna er
það háþróað að það dugar fyrir
bæði pörin. Sveitin varð nýlega
Akureyrarmeistari í bridge 1982.
Þá eru þeir í efsta sæti í hrað-
sveitakeppni sem nú stendur yfir
hjá Bridgefélagi Akureyrar.
Ixikastaðan í B-riðli:
Stefán Ragnarsson 63
Þórarinn Sigþórsson 56
Aðalsteinn Jörgensen 55
Sigurður B. Þorsteinsson 55
Sigfús Örn Árnason 41
Jón Stefánsson
C-riðill:
Sveit Karls Sigurhjartarsonar
spilaði i þessum riðli og eins og
áður sagði, vann hann alla sína
leiki. Reyndar þótti það góður ár-
angur að fá ekki mínusstig gegn
sveitinni. Baráttan um annað sæt-
ið var milli sveita Gests Jónssonar
og Kristjáns Kristjánssonar.
Sveitirnar mættust í síðustu um-
ferðinni en fyrir leikinn hafði
Gestur 48 stig en Kristján 46. í
hálfleik hafði sveit Gests örlítið
forskot sem hann jók svo í síðari
hálfleik og sigraði örugglega.
Lokastaðan í C-riðli:
Karl Sigurhjartarson 100
Gestur Jónsson 64
Kristján Kristjánsson 50
Jón Ágúst Guðmundsson 42
Aðalsteinn Jónsson 20
Gunnar Jóhannesson 14
D-riðill:
Almennt var talið að þessi riðill
væri sterkasti riðillinn. Fimm
Tuttugu og fjórar sveitir víðs vegar
að af landinu tóku þátt í undan-
keppni íslandsmótsins í sveita-
keppni, sem fram fór samtímis í
Reykjavík og á Akureyri um helg-
ina.
Ljósm. Arnór
Bridge
Þykir orðið góður árangur að
fá ekki mínusstig gegn þeim