Morgunblaðið - 30.03.1982, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1982
47
Aðalfundur miðstjórnar Framsóknarflokksins:
Mikil óánægja
með ritstjórnar-
stefnu Tímans
„Tlminn hefur svikiö framsóknarmenn
illilega“ sagði einn miðstjórnarmanna
í UMKÆÐUM á aðallundi miðstjórnar Franisóknarflokksins, sem haldinn
var um helgina, kom fram hörð ádeila á ritstjórnarstefnu Tímans. Vegna
þessa var kjöri i blaðstjórn Tímans frestað frá laugardegi til sunnudags og í
ályktun fundarins um útgáfustarfsemi var samþykkt áskorun í níu liðum þar
sem er lögð áhersla á að blaðið verji verulegu rými til að kynna stefnu
flokksins og störf.
Hafsteinn Þorvaldsson sjúkra-
húsráðsmaður á Selfossi, sagði
m.a. í umræðum á fundinum, að sú
andlitslyfting sem ætti sér stað á
blaðinu, eins og hann orðaði það,
mætti ekki verða til þess að blaðið
færi út í að lepja slúðursögur og
fréttir. Hann sagðist vona það eitt
að Tíminn brygðist flokknum ekki.
Tíminn er í eigu og á að vera
málgagn Framsóknarflokksins,
sagði Björn Líndal lögfræðingur.
Hann sagði málefni Tímans hafa
verið til umræðu á fundi ungra
framsóknarmanna á föstudag og
þar hefði komið fram mikil
óánægja með núverandi
ritstjórnarstefnu og þess æskt að
tekið yrði meira mið af hagsmun-
um Framsóknarflokksins. Fleiri
fundarmenn tóku til máls og sagði
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir,
Hafnarfirði, m.a. að Tíminn væri
að svíkja framsóknarmenn illi-
lega.
Þórarinn Þórarinsson ritstjóri
Tímans sagði það vafalaust rétt,
að Tímanum gætu orðið á mistök,
en sagði einnig að eflaust mætti
einnig rekja þetta til þess að
framsóknarmenn hefðu ekki nægi-
legt sambandi við Tímann. Hann
sagði í lokin að ef einhver mistök
hefðu átt sér stað myndu þau ekki
endurtaka sig.
Ályktunin með áskoruninni um
málefni Tímans var samþykkt
samhljóða en þar er m.a. skorað á
Tímann að birta ætíð greinar eftir
höfunda með staðgóða þekkingu á
viðkomandi efni; að reynt verði að
koma við sérþekkingu og verka-
skiptingu blaðamanna; að Tíminn
fylgist sem best með þjóðmála-
umræðunni og leiti álits fram-
sóknarmanna á þróun mála; að
Tíminn sé ætíð virkur í sókn fyrir
baráttumálum Framsóknarflokks-
ins og samvinnuhreyfingarinnar
og annarra frjálslyndra umbóta-
afla í þjóðfélaginu; að ráðherrar,
þingmenn og aðrir flokksmenn
skrifi greinar í Tímann um stjórn-
mál og þau mál sem hæst ber.
í lok samþykktar ályktunarinn-
ar var blaðstjórn Tímans endur-
kjörin óbreytt, að undanskildu því,
að í stað Péturs Einarssonar, sem
ekki gaf kost á sér, var kjörinn
Þorsteinn Ólafsson.
Kynning á sjóskátastarfi
SJÓSKÁTAR hafa hug á því að auka
áhuga unglinga á sjóskátastarfi og
hafa ákveðið að bjóða öllum 11—12
ára unglingum á kynningarfund að
Kríkirkjuvegi 11, miðvikudaginn 31.
marz klukkan 20.
Sjóskátastarf hefur verið stund-
að á íslandi um nokkurra ára
skeið en aðallega fyrir unglinga 15
ára og eldri. Nú er sem sagt ætl-
unin að bjóða stelpum og strákum
11 og 12 ára að kynnast sjóskáta-
starfinu, siglingum og bátasmíði.
Mun kennslan m.a. miða að því að
eftir 4ra ára nám geti unglingarn-
ir stjórnað 30 tonna bátum og
minni, segir í frétt frá sjóskátum.
Fundir verða haldnir vikulega og
á sumrin eru áformaðar siglingar,
útilegur og önnur útivera.
SJÓSKÁTAPRÓF
arsson og Gunnlaugur Rögn-
valdsson á Escort 1600, eftir bar-
áttu við Birgi og Gunnar Vagns-
syni, sem óku gamalli Cortinu
2000 listavel. Sá bíll er lenti í
neðsta sæti var Camaro Halldórs
Úlfarssonar. Hafði hann verið
mjög framarlega í rallinu, þegar
bíllinn bilaði skyndilega á Reykja-
nesi. Tókst hhonum að gera við
bilunina, en tapaði það miklum
tíma, að neðsta sætið varð hans.
Alls hófu 19 bílar keppni í
Tommaralli, en 14 þeirra komust í
mark við Tommaborgara á sunnu-
dagskvöldið.
(Ljósm. Mbl. Kmilia)
í gær var verið að hreinsa Fokker-vélina, en viðgerð hefst i dag í flugskýlinu á Reykjavíkurflugvelli.
Fokkerinn kominn í skýli á Reykjavlkurflugyelli:
Viðgerð hefet í dag
verður væntanlega lokið eftir 6—8 vikur
Fokker-vél Flugleiða, sem nauð-
lenti vegna sprengingar í hreyfli á
Keflavíkurflugvelli, er nú komin
inn í flugskýlið á Reykjavíkur-
flugvelli og var byrjað að hreinsa
vélina í gær og undirbúa hana und-
ir þær viðgerðir sem munu fara
fram á næstu vikum.
Flutningafyrirtækið G.G. sá
um flutninga á vélinni frá Kefla-
vík til Reykjavíkur og sagði
Gunnar Guðmundsson i samtali
við Mbl. að flutningarnir hefðu
gengið mjög vel, vélin var dregin
á hjólunum, en þar sem átta
metrar eru milli hjólanna var
eðlilega erfiðara að aka þessa
vegi sem hingað til hafa svo til
eingöngu verið ætlaðir bílum.
Lögreglan var með í ferðinni og
vísaði ökumönnum á að fara
gamla veginn. í vélinni sjálfri
voru Flugleiðamenn til að stíga
á hemla og annað þessháttar.
Henning Finnbogason flug-
vélvirki Flugleiða sem var með í
þessum flutningum sagði að
smávandræði hafi verið vegna
hálku og dálítið hvasst á Hval-
eyrarholtinu, auk þess sem
þrengsli hafi verið milli götu-
ljósa í Garðabæ. Ferðin tók um
átta tíma og var vélin komin í
flugskýlið á Reykjavíkurflugvelli
um klukkan hálf níu á sunnu-
dagsmorgun. Vængir og stél vél-
arinnar urðu eftir í Keflavík og
verða flutt seinna.
Henning var spurður um áætl-
aðan viðgerðartíma og sagði
hann að búist væri við 6—8 vik-
um miðað við vinnu 8—10
manna. „Það þarf að skipta um
plötur í botni vélarinnar, og
skipta um mikinn part á vinstra
hjólahúsinu og hreyfilsfestingar
fyrir vinstri hreyflilinn." Búið er
að panta hluta af þeim varahlut-
um sem vantar, en aftur verður
sendur maður frá Fokker-verk-
smiðjunum þegar búið er að taka
vélina sundur og sjá hvað vantar
til viðbótar.
mm FLUGLEIÐIR
Til að auðvelda flutninga voru vængir og stél vélarinnar tekin af og verða flutt seinna frá Keflavík.
Fokkerinn á leið sinni frá Keflavík til Reykjavtkur, en ferðin tók átta tíma, og var vélin komin í skýlið á
Reykjavíkurflugvelli klukkan hálf níu á sunnudagsmorgun. (Ljósm. Sveinn imrmóómmn)