Morgunblaðið - 30.03.1982, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 30.03.1982, Qupperneq 48
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 Síminn á afgreiðslunni er 83033 ÞRIÐJUDAGUR 30. MARZ 1982 Samningaumleitanir í ríkisverksmiðjunum: Slitnaði upp úr viðræðum í gær í (i/KR slitnaði upp úr viðræðum um samninga starfsfólks í rikisverksmiðjunum á Akranesi, Gufunesi og við Mývatn. Samningar hafa verið lausir frá 15. desember og var málinu fyrir nokkrum vikum visað til sáttasemjara ríkisins i fyrsta skipti. — Kg sé ekki annað, en framundan sé verkfallsboðun og siðan verkfall ef ekki verður veruleg breyting á, sagði Halldór lljörnsson, varaformaður Dagsbrúnar og einn samningamanna verkalýðsfélaga, i gær. A fundinum í gær gerði vinnu- málanefnd ríkisins verksmiðjufólk- inu tilboð, sem Halldór Björnsson sagði, að alls ekki hefði verið neinn samningsgrundvöllur. Fulltrúar verkalýðsfélaganna tilkynntu sátta- semjara, að á næstunni yrðu haldnir fundir í verksmiðjunum og rætt um stöðuna. Aðspurður hvað það þýddi sagði Halldór, að sum félaganna hefðu þegar aflað sér verkfallsheim- ildar og hin myndu eflaust gera það á næstunni. Samkvæmt upplýsingum Mbl. var um samning til lengri tíma að ræða í tilboði ríkisins. Þegar farið var að ræða kaupliði, samningstíma og orlofsuppbót kom í ljós að langt bil var á milli aðila og upp úr viðræðum slitnaði. ASÍ setur ákveðin skil- yrði verði nýr vísitölu- grunnur tekinn í notkun KAUPLAGSNEFND vinnur nú að því að úrvinnslu á neyzlukönnun Ijúki á næstunni, þannig, að hægt verði að taka nýjan visitölugrundvöll i notkun með vorinu. Kins og fram hefur komið er neyzla á lambakjöti og ýmsum öðrum landbúnaðarvörum minni nú en er síðasta neyzlukönnun var gerð og núgildandi grundvöllur var fundinn. Forystumenn launþega hafa gert fyrirvara við nýjan grunn og hafa farið fram á ákveðnar tryggingar af hálfu stjórnvalda hvernig niður- greiðslum verður hagað vegna breyt- inga á vægi landbúnaðar. „Við höf- um frá upphafi reynt að gera stjórn- völdum ljóst, að það þarf að uppfylla ákveðin skilyrði áður en raunhæft er að tala um nýjan vísitölugrundvöli. Stærsta málið í þessu sambandi er hvernig farið verður með niður- greiðslurnar. Þetta er ekki aðeins spurning um hvaða áhrif það hefur á vísitöluna í heild sinni, heldur er þetta í hæsta máta spurning um það hvaða áhrif það hefur fyrir tekju- lægsta fólkið. Þau áhrif eru allt önn- ur og alvarlegri heldur en fyrir með- altalið", sagði Ásmundur Stefáns- son, forseti ASI í gær. Krakkarnir í Flataskóla í Garðabæ fengu fyrir nokkru lánaða litla útungunarvél hjá Jóni bónda Guðmundssyni á Reykjum í Mosfellssveit. í vélina settu þau nokkur egg og í gær var uppi fótur og fit í skólanum, þvi að ungar voru skriðnir úr eggjunum. Myndin er tekin við það tækifæri og minnir okkur á að páskahátíðin er á næsta leyti. Sprengja í netin SKIPVERJAR á Víði Trausta frá Ilauganesi í Eyjafirði fengu sprengju í netin þegar þeir voru að draga um 10 sjómílur norð- austur af Siglunesi i gær. „Sprengjan vegur um 12 kíló, er um 70 sentimetrar á lengd og 20—25 sm í þvermál. Á fram- enda hennar eru tvær blöðkur, til stýringar að því er virðist, og þrjár að aftan. Okkur dettur helst í hug að um flugskeyti sé að ræða,“ sagði Ragnar R. Jó- hannesson, skipstjóri á Viði Trausta, í samtali við Mbl. í gærkvöldi. „Sprengjan hefur greinilega verið lengi í sjó, því tæring hefur unnið á hluta hennar, en ósprungin er hún . Ég held hún hijóti að vera frá stríðsárun- um,“ sagði Ragnar. Engar áletrarnir eru á sprengjunni. Ragnar sagðist hafa verið á vertíðum í 17 ár og ekki muna verri vertíð, en um þverbak keyrði þegar sprengjur Ientu í netunum. Blönduvirkjun: Landverndarmenn minna á aðgerðirnar gegn Alta FORMAÐDR Landverndarsamtaka á vatnasvæði Blöndu og Héraðsvatna, Þórarinn Magnússon, hefur fyrir hönd samtakanna sent öllum alþingis- mönnum bréf, sem m.a. hefur að geyma ýmis gögn um Blönduvirkjun og afstöðu samtakanna til hennar, sem Mbl. hefur skýrt frá. Þá fylgir bréfinu úrklippa úr norska tímaritinu „Mlljo Magasinet", þar sem viðtal er við Sigmund Kvaloy, fyrrum prófessor, en hann er þekktur maður á sviði umræðna um umhverfismál á Norðurlöndum. Fyrirsögn viðtalsins er: „Tími til kominn að grípa til aðgerða gegn stíflum og vélum" og í undir- fyrirsögn segir: „Það, að gera véla- samstæður óskaðlegar, er siðferði- lega verjandi undir vissum kring- umstæðum. Eitthvað verður að gerast í Alta!“ í viðtalinu er m.a. fjallað um virkjunarframkvæmdir í Alta í Norður-Noregi og segir Kvaloy í því sambandi, að þrátt fyrir að hann sé gegn ofbeldi sem vopni í baráttu gegn virkjunarfram- kvæmdum, verði umhverfisvernd- armenn þó að bregðast við af meiri hörku, en verið hefur, við aukinni valdníðslu stjórnvalda. I bréfinu til þingmannanna seg- ir Þórarinn Magnússon m.a.: „Ég get ekki stillt mig um að senda ykkur ljósrit af þessu við- tali. í því felst alls engin hótun af minni hálfu. Einungis áminning um það hvert getur stefnt ef „hag- kvæmnisútreikningar" eiga að ráða ferðinni í náttúruverndar- málum en landið einskis metið. Jafnvel menn eins og Sigmund Kvaloy þreytast á því að rétta stöðugt fram hægri vangann, þeg- ar sá vinstri verður fyrir höggi." Gengisþróunin í tíð núverandi ríkisstjórnar: Dollaraverð heftir hækkað um 153,4% — Gengi krónunnar fellt formlega fimm sinnum frá febrúar í fyrra Benedikt Gröndal sendiherra í Stokkhólmi KENKDIKT Gröndal, alþingismaður og fyrrum utanríkis- og forsætisráó- herra, verður sendiherra fslands i Stokkhólmi. Síðari hluta árs eru fyrirhugaðar breytingar á skipan sendiherraemb- ætta. Hörður Helgason, ráðuneytis- stjóri í utanríkisráðuneytinu, verður sendiherra hjá Sameinuðu þjóðun- um í New York. Tómas Á. Tómasson, sendiherra í New York, flyst til Par- isar en Einar Benediktsson, sendi- hcrra þar, fer til London. Sigurður Bjarnason, sendiherra í London, kemur til starfa hér heima. Ingvi Ingvarsson, sendiherra í Stokkhólmi, verður ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins. GENGI íslenzku krónunnar hefur verið ærið óstöðugt þann tima, sem núver- andi ríkisstjórn hefur setið, eða frá því febrúar 1980. Á þessu tímabili hefur sölugengi Bandaríkjadollara hækkað um 153,3%, en það var við myndun ríkisstjórnarinnar 4,017 krónur, en sölugengi Bandaríkjadollara var skráð 10,178 krónur á hádegi í gærdag. Frá áramótum hefur sölugengi Bandaríkjadollara hækkað um 24,35%, en sölugengið var þá skráð á 8,185 krónur. Síðan heim- ilaði ríkisstjórnin formlegt geng- issig frá 4. marz sl. og hefur sölu- gengið hækkað frá þeim tíma um 3,55%. Fyrir áramótin 1980—1981 var hér mjög hratt gengissig, en ríkis- stjórnin ákvað í upphafi ársins 1981 að halda gengi krónunnar föstu og var þá miðað við Banda- ríkjadollara. Vegna efnahags- ástandsins í heiminum hækkaði Bandaríkjadollari mjög í verði á alþjóðagjaldeyrismörkuðum og varð því að breyta gengisviðmið- uninni. Þá ákvörðun tók ríkis- stjórnin i byrjun febrúar og hækk- aði verð á Bandaríkjadollara um 3,68%. Hafði þessi gengisaðlögun ýmsar breytingar í för með sér á skráðri erlendri mynt. Hinn 29. maí á síðasta ári felldu síðan ríkisstjórnin og Seðlabank- inn gengi íslenzku krónunnar að meðaltali um 3,85%. Næsta geng- isfelling átti sér svo stað 26. ágúst, þegar meðalgengi íslenzku krón- unnar gagnvart erlendri mynt var fellt um 4,76%. Síðan var gengis- felling í nóvember og nam hún 6,5%, sem hafði í för með sér um 7% hækkun á erlendum gjaldeyri. Síðasta gengisfelling var svo 14. febrúar sl. þegar meðalgengi var fellt um 12%, sem hafði m.a. í för með sér um 15,3% hækkun á sölu- gengi Bandaríkjadollara. Gengi krónunnar hefur því verið fellt fimm sinnum í tíð núverandi rík- isstjórnar, en auk þess hefur á köflum verið mikið gengissig og nú síðast formlegt sig frá 4. marz eins og áður sagði. Eins og segir að framan hefur sölugengi Bandaríkjadollara hækkað um 153,4% frá myndun núverandi ríkisstjórnar í febrúar 1980, en til samanburðar má geta þess, að lánskjaravísitala hefur hækkað um tæplega 124%, eða úr 143 stigum í 323 stig. Þá hefur vsitala byggingarkostnaðar hækk- að um liðlega 128%, eða úr 398 stigum í 909 stig, sé miðað við janúar 1980 til janúar 1982. Tíma- bilið febrúar 1980 til febrúar 1982 hefur framfærsluvísitala hækkað um liðlega 124%. Lóan er komin FUGLAVINUR heyrði til lóunnar á neðanverðri Freyjugötunni síðasta sunnudag. Vorboðann ljúfa sá hann þó hvergi og trúði því vart heyrn sinni. í gær fékk hann þó staðfestingu er hann sá lóu á vappi á gras- fletinum við vatnsgeymana í Öskjuhlíð. I gærmorgun sáu nokkrir Seltirningar lóur á Nesinu, svo því verður vart á móti mælt að lóan er komin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.