Morgunblaðið - 09.05.1982, Page 1
96 SIÐUR
99. tbl. 69. árg.
SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Glemp aðvarar
æsku Póllands
\ arsjá, 8. maí. AF.
JOZEF GLEMP erkibiskup pólsku kirkjunnar, hvatti æsku landsins til þess ad
halda sig heima við um helgina svo henni yrði ekki att út í ofbeldi á götum úti af
fólki með „steinhjörtu".
Viðvörun Glemps er birt daginn
fyrir hátíðarhöld í minningu upp-
gjafar nazista á „sigurdaginn", en
búist er við að tækifærið verði notað
til andófs gegn herstjórninni.
Jafnframt er orðrómur á kreiki
um að Samstaða minnist fimm mán-
aða herlaga á miðvikudag og
fimmtudag með mótmælasamkom-
um í Varsjá og öðrum borgum.
Óttast er að uppþot brjótist út, eins
og á mánudag, er mótmælafundi
lauk með uppþoti í Varsjá og a.m.k.
12 borgum öðrum. Einnig hefur
Billy Graham
í Moskvu:
„Guð á
að
dæma
okkur
öll“
eftir
Mo-skvu, 8. júni. AP.
Billy Graham trúboði sagði að
„Guð ætti eftir að dæma okkur öll“
ef trúarleiðtogar tækju ekki saman
höndum til að afstýra „kjarnorku-
slysi". Graham er kominn til
Moskvu til fundar trúarleiðtoga,
sem andvígir eru beitingu kjarn-
orkuvopna, og er talið að Rússar
muni notfæra sér veru hans og
annarra trúarleiðtoga í áróðurs-
skyni fyrir hervæðingarstefnu sína.
Graham átti í morgun viðræð-
ur við Georgy Arbatov, einn
helzta sérfræðing Sovétmanna í
bandarískum málefnum. Hann
fyrirhugaði einnig fundi með
leiðtogum sovézku rétttrúnað-
arkirkjunnar og heimsóknir í
kirkjur þeirra. Þá mun hann
prédika í einu kirkju baptista í
Moskvu á sunnudagsmorgun, og
að því búnu í dómkirkju rússn-
eskra rétttrúnaðarkirkjunnar.
Samstaða boðað til 15 mínútna verk-
falls í verksmiðjum 13. maí.
Kaþólskir biskupar fordæmdu
uppþotin er þeir hittust í Czestoch-
owa, en hvatningarorð Glemps nú
virðast miðuð við að róa æsku lands-
ins, sem sögð er í uppnámi eftir
linnulausar árásir í fjölmiðlum her-
stjórnarinnar. Herstjórnin hefur
hótað að brjóta öll mótmæli á bak
aftur og leysa upp mótmælasam-
komur.
Þúsundir manna yfirgáfu heimili
sín í útborginni Ursus í Varsjá í
gærkvöldi og leiddust hönd í hönd
um götur hverfisins í mótmælaskyni
við „staðreyndafölsun" og „lyga-
fréttir" í sjónvarpi. Sjónarvottar
sögðu lögreglu ekki hafa reynt að
stöðva gönguna. Eftir samskonar
mótmæli í Swidnik fyrr á árinu, var
útgöngubann sett eftir klukkan sjö á
kvöldin, en þá hefjast sjónvarps-
fréttir.
Argentínskir hermenn á flugvellinum í Port Stanley eftir loftárásir Breta. Gígar til hægri og vinstri. Myndin var birt
á föstudag í Buenos Aires, en þess var ekki getið hvenær hún var tekin. simamynd ap.
Vaxandi yangaveltur
brezka landgöngu
um
Iaondon, 8. maí. AF.
SÉRFRÆÐINGAR leiddu getum að
þvi í dag, laugardag, að brezkir her-
menn mundu ganga á land á Falk-
landseyjum eftir nokkra daga og
The Times sagði í forystugrein að
brezka ríkisstjórnin hefði veitt heim-
ild til árása á stöðvar á meginlandi
Argentinu.
Það styður þessar vangaveltur að
Bretar hafa fært stríðssvæði sitt
upp að 12 mílna landhelgi Argent-
ínu og munu efla flotalið sitt með
20 Sea Harrier-orrustuþotum, fjór-
um tundurspillum og Nimrod-
ratsjárflugvélum. Skip og flugvélar
meira en 12 mílur frá ströndum
Argentínu verða skoðuð fjandsam-
leg. Argentínumenn kalla útfærslu
Reykjarmökkur stígur upp frá flugvellinum i Port Ntanley eftir loftárás Breta.
stríðssvæðisins nýja árásaraðgerð í
mótmælum til Öryggisráðsins.
The Times segir að áfram hafi
verið unnið að undirbúningi land-
göngu meðan diplómatískar aðgerð-
ir hafi farið fram og ráðherrum
írakar reyna að stöðva
sókn Irana í Khuzistan
Beirút, 8. maí. AF.
ÍRASKAR ÞYRLUR vopnaðar eldflaugum gerðu í dag. laugardag, hverja
árásina á fætur annarri til þess að hrinda allsherjarárás Irana i olíuhéraðinu
Khuzistan og i Bagdad er sagt að íraskar hersveitir hafí „umkringt óvinaher-
mennina og útrýmt þúsundum þeirra*
Seinna sögðu Iranir að þeir
hefðu „frelsað" tvo bæi, Hamid og
Hoveizeh, og dregið fána Khomeini
trúarleiðtoga að húni. (Hoveizeh er
30 km suðvestur af samgöngumið-
stöðinni Susangered efst í Khuzist-
an, 25 km austan landamæra írak.
Bærinn er við enda 50 km vegar
sem liggur austur til höfuðborgar
Khuzistan, Ahvaz, þaðan sem íran-
ir gerðu sóknina. Hamid er 40 km
suðaustur af Ahvaz við 112 km
þjóðveg frá Ahvaz til Khorram-
shahr.)
íranir segja að herlið þeirra hafi
sótt að landamærum íraks í gær,
föstudag, í fyrsta skipti síðan
Persaflóastríðið hófst fyrir 19
mánuðum og treyst stöðu sína í
dag, laugardag, í úthverfum hafn-
arborgarinnar Khorramshahr.
Útvarpsstöðvar stríðsaðilja
segja að aðalvígstöðvarnar séu um
120 km norður af Persaflóa (640 km
suðvestur af Teheran, 580 km suð-
austur af Bagdad). Víglínan er 483
km löng og liggur frá vesturhálendi
íran í rótum Zagros-fjalla suður til
Khuzistan.
Níu dagar eru síðan íranir hófu
stórsókn sína til að ná aftur Khuz-
istan og hún hefur leitt til ein-
hverra hörðustu bardaga sem hafa
geisað síðan Persaflóastríðið
brauzt út 22. sept. 1980.
Irakar segja að íranski sóknar-
herinn hafi verið umkringdur á
suðurvígstöðvunum í dögun og
óvinunum hafi verið útrýmt þegar
íraskar fallbyssuþyrlur eyðilögðu
42 íranska skriðdreka.
íranir héldu því fram að þeir
hefðu sótt yfir allar helztu varnar-
línur íraka í Khuzistan og að
hundruð óvinahermanna hefðu gef-
izt upp þegar herlið þeirra þrengdi
að Khorramshahr við norðurenda
Shatt-al-Arab-sundsins.
íranir ætla að setjast um Khorr-
amshar og skera sundur aðflutn-
ingsleiðir íraska hersins í Khuzist-
an samkvæmt opinberum tilkynn-
ingum.
Iranir segjast hafa „frelsað" 300
ferkílómetra lands í Khuzistan í
öðrum kafla sóknarinnar til viðbót-
ar 800 km í fyrsta hluta sóknarinn-
ar. Straumhvörf hafa orðið í stríð-
inu með vorsókn írana og þeir segj-
ast alls hafa endurheimt 2.000 fer-
kílómetra lands í Khuzistan síðan í
marz.
írakar lögðu undir sig um 20.000
ferkílómetra í Khuzistan og Vest-
ur-íran á fyrstu vikum Persaflóa-
stríðsins.
hafi verið tilkynnt að yfirmaður
flota Breta við Falklandseyjar búist
við að geta sent menn úr land-
gönguliðinu á land á mánudag —
þótt þar með sé ekki sagt að land-
gangan fari fram þá.
Embættismenn í Washington
hafa látið í ljós „töluverðar áhyggj-
ur“ vegna útfærslu stríðssvæðisins
þar sem það geti haft í för með sér
nýjar hernaðaraðgerðir Breta.
Reagan forseti sagði frétta-
mönnum: „Ég er áhyggjufullur, að
sjálfsögðu. Eg vil ekki að ofbeldi
brjótist aftur út.“
Eftir útfærslu stríðssvæðisins er
það um 544 km frá næstu flota- og
flugstöð Argentínumanna og það
nær meðfram allri argentínsku
strandlengjunni, sem er 2.400 km.
Argentínska utanríkisráðuneytið
segir að Bretar hafi gert allt Suð-
ur-Atlantshaf að bannsvæði, en
heimild í ráðuneytinu sagði að þeir
þyrftu „a.m.k. þrjá flota“ til að
framfylgja banninu.
Þær 20 Sea Harrier-þotur, sem
sendar verða til stríðssvæðisins,
eru vopnaðar Sidewinder-eld-
flaugum. Tundurspillarnir fjórir,
sem verða sendir, eru búnir Sea
Wolf-gagneldflaugum, sem geta
skotið niður vopn eins og frönsku
Exocet-flaugina er grandaði Shef-
field. Nimrod-ratsjárflugvélarnar
munu hafa bækistöð á Ascension-
eyju, 5.680 km norðaustur af Falk-
landseyjum, og þeim verður breytt
þannig að þær geti tekið eldsneyti í
lofti.
Francis Pym utanríkisráðherra
sagði á föstudagskvöld að þótt frið-
artilraun Perúmanna hefði farið út
um þúfur stefndu Bretar enn að
friðsamlegri lausn deilunnar fyrir
milligöngu SÞ.
í Washington er sagt að í athug-
un sé beiðni frá brezku ríkisstjórn-
inni um bandarískar eldsneytis-
flugvélar. Á það er lögð áherzla að
engin ákvörðun hafi verið tekin og á
það bent að erfitt verði að fá þessa
beiðni samþykkta.