Morgunblaðið - 09.05.1982, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
Lokahítíð ferðaskrifstofunnar Útaýnar i liðnum vetri var haldin í veitingahésinu Broadway á föstudagskvöldið.
Þar fór fram val á ungfrú Útsýn 1982 og var Elísabet Björnsdóttir fyrir valinu. Þi voru valdar stúlkur hinna
ýmsu dvalarstaða Útsýnar. Á mynd Emilíu eru verðlaunastúlkur Útsýnar isamt Ingólfi Guðbrandssyni, forstjóra
Útsýnar. Aftari röð fri vinstri: Anna Karen Sverrisdóttir, Ragnhildur Ragnarsdóttir, Jónína Kristjinsdóttir,
Ingólfur Guðbrandsson, Þuríður Steinarsdóttir, Bergljót Ylva Hjaltested, Jóhanna Guðmundsdóttir, Sigríður
Þóra Magnúsdóttir. Fremri röð: María Sigurðardóttir, Elísabet Björnsdóttir, Inga Bryndís Jónsdóttir, ungfrú
Útsýn 1981, Hendrikka Waage og Hildur Hauksdóttir.
Aðalfundur ISNO:
Laxarækt í Lónum
í Kelduhverfi aukin
— Rætt um byggingu 8 þúsund tonna
laxeldisstöövar á Reykjanesi
HELSTU forustumenn AS Mowi í
Bergen, sem er samstarfsaðili
Tungulax hf. i fiskirækt í hlutafélag-
inu ISNO, sem i fiskeldisstöðina að
Öxnalæk i Ölfusi og hefur rekið til-
raunastarfsemi í Lónum í Keldu-
hverfi, voru hérlendis í liðinni viku.
Aðalfundur ÍSNO hf. var haldinn
síðastliðinn fimmtudag, en AS
Mowi, sem er að meirihluta til í eigu
Norsk Hydro, á 45% í íslenzka fyrir-
tækinu en Tungulax hf. 55%.
Á fundinum var ákveðið að auka
reksturinn í Lónum umfram það
sem fyrirhugað hafði verið og
verða nú sett í kvíaeldi 50 þúsund
laxaseiði og í sumar verður 20 þús-
und seiðum sleppt til hafbeitar,
eins og gert var á síðastliðnu ári.
Jafnframt verða verulegar fram-
kvæmdir við hafnargerð, byggingu
aðstöðuhúss og íbúðarhúss og
gerðar víðtækar ráðstafanir til að
ráða við ísrek, en á liðnum vetri
urðu miklir erfiðleikar vegna ís-
Opinber gjöld til bæjarfélagsins:
Mun ódýrara að búa á Sel-
tjarnarnesi en í Kópavogi
fBÚAR Kópavogs greiða verulega
hærri upphæðir í útsvar og fasteigna-
Attu fótum
fjör að launa
ALVAKLEGT umferðarslys varð á
Akranesi laust eftir klukkan 2 aðfara-
nótt laugardagsins. Bifreið var ekið upp
á Akratorg á mikillí ferð og hafnaði á
minnisvarða um drukknaða sjómenn,
sem stendur á miklu bjargi.
Tveir menn sátu á bekk á Akra-
torgi þegar þeir sáu bifreiðina stefna
á sig á mikilli ferð. Enginn var sjáan-
legur undir stýri bifreiðarinnar og
greinilegt að ökumaður hafði enga
stjórn á henni. Mennirnir gátu forð-
að sér, en bifreiðin kastaðist upp á
torgið og hafnaði á minnisvarðanum.
Maður, sem í bifreiðinni var, slas-
aðist alvarlega
gjöld en íbúar Seltjarnarneskaup-
staðar. Þessi mismunur getur numið
um 8500 krónum skv. því sem kem-
ur fram í „Seltirningi“, blaði sjálf-
stæðLsmanna á Seltjarnarnesi. Á Sel-
tjarnarnesi er meirihlutastjórn sjálf-
stæðismanna i bæjarmálum en í
Kópavogi er vinstri stjórn.
„Seltirningur" tekur dæmi um
hjón, sem höfðu í árstekjur á sl.
ári um 360 þúsund krónur, sem
samkvæmt upplýsingum endur-
skoðenda munu vera góðar meðal-
tekjur, þegar bæði hjón vinna úti.
Þessi hjón búa í einbýlishúsi, sem
að fasteignamati er metið á kr.
900.000. Þau borga í útsvar á Sel-
tjarnarnesi kr. 36.200 en í Kópa-
vogi 42.380. í fasteignagjöld borga
þau á Seltjarnarnesi kr. 3.280 en í
Kópavogi kr. 5.595. Samtals greiða
hjónin í opinber gjöld til bæjarfé-
lagsins á Seltjarnarnesi kr. 39.540
en í Kópavogi kr. 47.975. Þetta
þýðir, að hjón með sömu tekjur,
sem búa í sams konar húsnæði
greiða kr. 8.435 meira í opinber
gjöld í Kópavogi en á Seltjarnar-
nesi.
Á Seltjarnarnesi er útsvar
10,5% og fasteignagjöld 0,41%. í
Kópavogi er útsvar 12,1% og fast-
eignagjöld 0,55%. „Seltirningur"
segir, að útreikningur þessi sé
gerður af löggiltum endurskoð-
anda.
Jón Helgason, formaður Einingar,
um niðurgreiðslur ríkisstjórnarinnar:
„Vísitöluleikur fyr-
ir þá er sízt skyldi“
„ÞESSAR niðurgreiðslur eru vísi-
töluleikur og ég er ekki hrifinn af
svona skyndiaðgerðum, enda hefur
það sýnt sig að þetta er gert fyrir þá
sem sizt skyldi," sagði Jón Helga-
son, formaður Einingar á Akureyri, í
samtali við Morgunblaðið um niður-
greiðslur ríkisstjórnarinnar á land-
búnaðarafurðum.
reks. Menn gera sér vonir um að
framleiðsla á laxi verði allt að 150
tonn að tveimur árum liðnum auk
endurheimtu á hafbeitarlaxi.
Þá var enn rætt um hugsanlega
byggingu laxeldisstöðvar á
Reykjanesi og í stað þess að miða
framleiðslu þar við þúsund tonn á
ári, sem áður var áformað og
áætlanir gerðar um, er rætt um
þann möguleika að framleiða þar
allt að 8 þúsund tonn af laxi á ári
og hagnýta jarðhita til þess að
hita sjó. Það mál er þó á algjöru
byrjunarstigi.
Lesendaþjónusta
Morgunblaðsins:
Davíð Oddsson
svarar spurn-
ingum um
málefni
Reykjavíkur
MORGUNBLAÐIÐ mun fram að
kjördegi, 22. maí næstkomandi,
veita lesendum sinum þá þjónustu
að koma spurningum þeirra um
málefni Reykjavíkur og átakamál-
in í borgarstjómarkosningunum á
framfæri við Davíð Oddsson, efsta
mann á framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins í Keykjavík, en hann er
jafnframt borgarstjóraefni sjálf-
stæðismanna.
Lesendur geta hringt til rit-
stjórnar Morgunblaðsins í síma
10100 milli klukkan 10 og 12 ár-
degis, mánudag til föstudags, og
verða svör Davíðs Oddssonar við
spurningum þeirra birt skömmu
eftir að þær berast. Þá má einn-
ig senda spurningar í bréfi til
ritstjórnar blaðsins. Utan á bréf
skal rita: Spurt og svarað um
borgarmál, ritstjórn Morgun-
blaðsins, pósthólf 200, 121
Reykjavík. Nauðsynlegt er að
nafn og heimilisfang spyrjanda
komi fram.
Akranes:
Geir og Friðrik
ræða stjórn-
málaviðhorfin
Ríkisstjórnin beiti sér þeg-
ar fyrir viðræðum við Rússa
— segir Matthías Bjarnason um karfaveiöar rússneska flotans
MATTHÍAS Bjarnason alþingismað-
ur gerði karfaveiðar rússneskra
verksmiðjuskipa að umtalsefni á Al-
þingi síðustu daga þingsins. Hann
lýsti þeim ugg sem komið hefur fram
meðal fiskifræðinga og almennings
Spurt og
svarað um
garðyrkju
Athygli er vakin á því, að
lesendur geta haft samband
við ritstjórn Morgunblaðsins í
síma 10100 á milli kl. 11 og 12
á morgnana og komið á fram-
færi fyrirspurnum um garð-
yrkjumál.
Morgunblaðið hefur fengið
Hafliða Jónsson, garðyrkju-
stjóra, til að svara spurning-
um lesenda.
vegna þessara veiða og skoraði á rík-
isstjórnina að beita sér fyrir viðræð-
um við Rússa af þessu tilefni. Mbl.
ræddi við Matthías vegna málsins
og fer viðtalið við hann hér á eftir:
Matthías sagði í upphafi að við
landið væru þrír karfastofnar.
Tveir þeirra væru veiddir af ís-
lendingum. Hann sagði annan
þeirra djúpsjávarkarfa, sem fiski-
fræðingar teldu að færi út á djúp
til að gjóta. Sá þriðji héldi sig á
mjög miklu dýpi. Þá sagði hann:
„Aðrar þjóðir hafa veitt mikið af
karfa utan 200 mílnanna og veiðar
sovéska verksmiðjuflotans síðustu
daga hafa vakið mikinn ugg, en
okkur er ekki kunnugt um hvaða
stofn þeir eru að veiða. Rannsókn-
ir standa nú yfir á því, en við eig-
um mjög góða vísindamenn á
þessu sviði og vil ég þar sérstak-
lega nefna dr. Jakob Magnússon
sem allra manna mest veit um
karfann.
I þessu sambandi hef ég bent á
að í ársbyrjun 1978 var gerður
samningur milli Sovétríkjanna og
íslands um stofnun samstarfs-
nefndar um rannsóknir og nýtingu
fiskistofnanna utan fiskveiðilög-
sógunnar. Vitaskuld ráðum við
nýtingunni innan 200 mílnanna og
við höfum gengið allra þjóða
lengst í fiskvernd og ætlumst því
til að aðrar þjóðir í kringum okkur
gæti fiskverndarsjónarmiða. Það
er mín skoðun að ríkisstjórnin eigi
þegar í stað að óska eftir fundi í
þessari nefnd og þar eigi að reyna
að fá skynsamlega samvinnu við
fulltrúa þessarar þjóðar sem og
annarra um veiðar á þessum slóð-
um. Það má ekki ganga lengra en
gert hefur verið."
Laugar-
nessókn
LAUGARNENKIRKJA: Guðsþjón-
usta í dag sunnudag kl. 14. Altaris-
ganga. Að lokinni guðsþjónustu er
svo kirkjukaffi á vegum Kvenfélags
Laugarnessóknar.
„Þeir sem hafa peningana," hélt
Jón áfram, „geta fyllt frystikist-
urnar, en stórum hluta launafólks
kemur þetta ekki til góða, því það
fólk hefur ekki peninga til að
kaupa inn umfram nauðþurftir.
Það virðist vera anzi mikil til-
hneiging í þá átt að ríkisvaldið
hafi áhrif á kaupgjaldið og fer lít-
ið fyrir niðurtalningunni á öðrum
leiðum, svo sem nauðsynjavörum
almennt."
GEIR Hallgrímsson og Friðrik Soph-
usson munu ræða stjórnmálaviðhorf-
ið í þinglok á fundi fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna á Akranesi á
sunnudag.
Fundurinn er öllum opinn og
verða þar einnig almennar um-
ræður. Hann verður í Sjálfstæð-
ishúsinu við Heiðargerði 20 og
hefst klukkan 14.30. Er þessi fund-
ur þáttur í miklu vetrarstarfi
sjálfstæðisfélaganna, sem nú er að
Ijúka.
Afmælis-
klipping
PÁLL Sigurðsson, hárskerameist-
ari, klippir Nóbelskáldið fyrir átt-
ræðisafmælið á rakarastofu Sig-
urðar Ólafssonar i Eimskipafélags-
húsinu, en sú gamalkunna rakara-
stofa átti 75 ára afmæli fyrr á
þessu ári. Páll hefur klippt Halldór
Laxness síðustu fjörutíu árin og að
jafnaði þrisvar í mánuði þegar
skáldið hefur verið á landinu. Páll
kveðst ekki hafa klippt nokkurn
mann eins oft og Halldór og að
samskipti þeirra hafi ævinlega ver-
ið hin Ijúfustu ...
(MorxuiibUS>H>/KÖE)