Morgunblaðið - 09.05.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
5
I>ankar á sunnudagskvöldi kl. 19.25:
„Að breyta sverðum í plóga“
— Um friðarskilning, friðarumræður og friðarstarf
Á dagskrá hljóðvarps kl. 19.25
er þátturinn Þankar á sunnu-
dagskvöldi. Umsjón: Önundur
Björnsson og Gunnar Krist-
jánsson. „Að breyta sverðum í
plóga". í þessum síðasta þætti er
rætt við herra Pétur Sigurgeirs-
son biskup og séra Auði Eir
Vilhjálmsdóttur.
Gunnar Kristjánsson sagði: —
Við munum segja frá þeirri frið-
arumræðu sem fer fram innan
kirknanna víðs vegar um heim-
inn, innan alþjóðlegra kirkju-
samtaka, bæði á Vesturlöndum
og í austantjaldslöndum, og
þeirri viðleitni sem kirkjan hef-
ur í frammi til að flytja boðskap
friðar. Titillinn á þessum þætti,
„Að breyta sverðum í plóga", er
tekinn úr Jesaja-bók Gamla
testamentisins. Við veltum að-
eins fyrir okkur friðarskilningi
spámannanna og friðarskilningi
Nýja testamentisins. Þá ræðum
við við biskup íslands, herra Pét-
Herra Pétur Sigurgeirsson
ur Sigurgeirsson, og hann segir
okkur frá því hvað er á döfinni
hjá íslensku kirkjunni og einnig
í samstarfi við Norðurlanda-
kirkjurnar. Loks verður rætt við
formann utanríkisnefndar kirkj-
Séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir
unnar, séra Auði Eir Vil-
hjálmsdóttur og hún segir frá
því samstarfi sem íslenska kirkj-
an hefur við kirkjur víðs vegar
um heiminn gegnum þátttöku í
alþjóðlegum kirkjusamtökum.
Utvarpsgudsþjónusta kl. 11.00:
Pólskur prestur pred-
ikar í Grensáskirkju
Á DAGSKRÁ hljóðvarps kl. 11.00 er
útvarpsmessa í Safnaðarheimili
Grensássóknar. Dr. Zdizslaw Pawlik,
framkvæmdastjóri Samkirkjuráðs
mótmælendakirkna í Póllandi (Pol-
ish Eeumenical Council), predikar.
Séra I lalldór Gröndal þjónar fyrir
altari og túlkar ræðuna. Organisti er
Ámi Arinbjarnarson.
Sr. Pawlik hefur verið aðaltengi-
liður Hjálparstofnunar kirkjunn-
ar, Alþýðusambands Islands og
kaþólsku kirkjunnar á íslandi
varðandi dreifingu á íslenzku
hjálpargögnunum í Póllandi.
Sr. Zdizlaw Pawlik
Á dagskrá sjónvarps kl. 20.45 er ný heimildarmynd
og heitir hún Á sjúkrahúsi. Umsjónarmaöur og stjórn-
andi er Maríanna Friðjónsdóttir. Þessi mynd er tekin á
Landspítalanum sem er einhver fjölmennasti vinnu-
staður landsins. Fylgst er með sjúklingi frá því að hann
veikist og þar til meðferð lýkur og má segja, að þar með
séu flestir þættir starfseminnar skoðaðir.
Skipulag dreifingarinnar hefur
verið í hans höndum. Hann hefur
látið þau orð falla við fulltrúa ís-
lendinga, sem fóru til Póllands, að
íslenzka aðstoðin skipti afar miklu
máli og einnig væri mikils metinn
sá hugur sem að baki byggi.
Samkirkjuráðið pólska hefur ná-
ið samstarf við aðra hjálparaðila í
Póllandi og fer það starf fyrst og
fremst fram í samræmingar- og
skipulagsnefnd. Sr. Pawlik er full-
trúi Samkirkjuráðsins í nefndinni.
I þessari nefnd er hjálparstarfið
skipulagt með það fyrir augum að
hjálpin dreifist jafnt um landið og
berist þangað sem neyðin er
stærst.
Kl. 22.35 leikur og syngur í
sjónvarpssal hljómsveit frá
Kanaríeyjum, Mary Sanch-
es y Los Bandama.
Hljómsveitin flytur lög frá
átthögum sínum.
Kl. 14.00
hefst í hljóð-
varpi þátturinn
Dagskrárstjóri
í klukkustund
og er það Björg
Einarsdóttir
sem að þessu
sinni heldur
um stjórnvöl-
inn og ræður
dagskránni.
Hefurðu heyrt um
Noröurlanda
þær eru svo sannarlega
T/ll ■ ■■*>■■ allrarathygliverðar!
Já, það hefur verið ósvikin
stemmning í rútuferðunum okkar
um Norðurlöndin síðustu árin og í
sumar aukum við enn á fjöl-
breytnina og efnum til þriggja bráð-
óddyrra leiguflugsferða á Þránd-
heim, Bergen og Tromsö.
Um leið getum við boðið upp á hag-
stætt verð fyrir rútuferðir um
Noreg, Svíþjóð og Finnland og rétt
er að minna einnig á þá fjölmörgu
möguleika sem bjóðast t.d. á sjálf-
stæðri leigu sumarhúsa og annars
sliks á kyrrlátum og fallegum
stöðum. Heimsóknir til vina og
kunningja eru tilvaldar og gagn-
kvæma leiguflugið opnar stórkost-
lega ódýra leið til skemmtilegra
ferða til frændþjóðanna.
Þrándheimur
17. júní - 27. júní - örfá sæti laus
9. júlí - 25. júlí - örfá sæti laus
Verð frá kr. 2.420
Rútuferð 9.-25. júlí
kr. 9.700
Innifalið í rútuferð: Flug, rútuferð,
gisting m/morgunverði í Noregi og
Svíþjóð, gisting m/1/2 fæði í
Finnlandi, akstur til og frá flugveUi
erlendis og íslensk fararstjórn. M.a.
er komið til höfuðborganna þriggja
Osló, Stokkhólms, Helsinki og víðar.
Kynnt
u
t>érþ
>st^ega
stórlro
Yerðtilb
Unarflu
etta
Verð fy
Troni
kr. 7
30 ar t.d
785
gta
Bergen
23.-30. júlí
Verð frá kf. 2.420
Tromsö
26. júní -11. júlí
6 sæti laus
Verð frá kf. 2.420
Verð miðað við flug og gengi 18. jan. ‘82
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899