Morgunblaðið - 09.05.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ 1982
7
HUGVEKJA
eftir séra Ólaf Skúlason dómprófast
Þeir voru fljótir að búa til
nýtt leiktæki, þar sem skipin
á skerminum voru nefnd eftir
argentínskum og breskum
herskipum. Og vitanlega var
leikurinn í því fólginn að
skjóta niður óvinaskipin og
koma sínum heilum heim.
Átök hervelda lita jafnvel
leikina, svo að stríðsleikir
ungra sem eldri fá sterkari
viðmiðun í því, að það er verið
að skjóta ákveðin skip niður.
Þetta gerir „leikinn" mark-
vissari og ættjarðarástina þá
um leið heitari, skyldi maður
ætla.
En leikurinn fékk allt í einu
á sig yfirbragð alvörunnar.
Það var ekki lengur á skermi,
sem skipin hétu ákveðnum
nöfnum og þátttakendur æptu
upp í trylltri gleði, þegar
„óvina“skip hvarf fyrir skeyti,
sem hæfði það. Allt í einu
voru það alvöru skot, sem
hæfðu raunveruleg skip, og í
köldum sjónum veltust tugir,
ef ekki hundruð manna. Og
þegar þetta er fest á blað, hef-
ur ekki verið gefin upp nein
tala um fjölda þeirra, sem
komast ekki heim aftur. Og
lega, þegar styrjöldinni lyki.
En ég hefði getað sparað mér
þær hugsanir. Það er enn ver-
ið að segja frá ófriði, það er
enn verið að tíunda fjölda
fallinna. Það má enn líta
sundurskotin hús og sökkv-
andi skip eða logandi flugvél-
ar.
Er það nokkur furða, þó að
Jesús hafi tekið skýrt fram,
að höfðingi þessa heims ætti
ekkert í sér, og að hann væri
þegar dæmdur? En hversu
langt skyldi verða að líða þar
til augu okkar lúkast upp
fyrir þeirri staðreynd, að
höfðingi heimsins á ekki held-
ur að eiga neitt í okkur, og að
sá er líka dæmdur, sem lætur
hann segja sér fyrir verkum?
Og þó er búið að boða Krist
í nærfellt tvö þúsund ár. Mað-
ur eftir mann hefur sagt sög-
ur hans, þar sem samúðin er
boðuð, kynslóð eftir kynslóð
hefur lært orð hans um það að
snúa frekar að óvildarmanni
hinni kinninni eftir löðrung
en slá í móti. Og þó er glaðzt
yfir því í dag, ef hægt er að
sýna þjóðarstolt í háreistum
herskipum og þjappa öllum
En nú væri það vitanlega
einföldun, ef við létum við það
eitt sitja að telja upp allt það,
sem aflaga fer í hinum stóra
heimi og venjulegast er langt
frá okkur, nema þegar stríðið,
sem var kennt við þorsk, var
háð við landsteinana. Átökin
eiga sér vitanlega stað hér hjá
okkur, þótt ekki birtist þau í
styrjaldarátökum og lífláti.
Hið góða og hið illa eiga sér
líka orustuvöll hér, þar sem
það stríð er háð í hverjum
einasta mannshuga, sem er
jafnframt sá orustuvöllur,
sem er tekizt á um. Hér er
líka saga skráð, sem á sér
nákvæmlega sömu formerkin
og hörmungarfregnirnar af
vígvöllum heimsins. Við erum
þar þátttakendur alveg eins
og um okkur er barizt.
En við stöndum sem betur
fer ekki ein uppi í þeim mikla
hildarleik. Jesús sagðist gefa
okkur anda sinn, sem ætíð
væri hjá okkur og með okkur í
verki. Vegna hans var hægt að
segja, að það væri okkur til
góðs, þegar við heimfærum
ummæli Jesú við lærisveinana
upp á okkur sjálf, að Jesús
Herra heims
voru þó margir í þeim hópi,
sem gátu ekki einu sinni
kvatt, áður en þeir héldu til
átaka um landsvæði, sem þeir
höfðu fæstir haft nokkur
kynni af, gott ef þeir þekktu
nafnið.
En við þekkjum Falklands-
eyjarnar núna og vitum meira
um þær en flest önnur land-
svæði. Það gerir stríðið, átök-
in, deilurnar. Landsvæði, sem
fram að þessu hafði veitt
fáum hundruðum atvinnu við
kindur og ullariðnað, var á
forsíðum allra blaða, og sjón-
varpið sýndi okkur vindbarið
þorp og harðgert fólk.
Áherzluatriði heimsins fær-
ast fljótt til. Og sorglega oft
eru það áhrifavaldar, sem
kenna má við deilur, jafnvel
við styrjaldir, sem koma því
til leiðar, að landafræðiþekk-
ingin vex og nöfn gerast
heimagangar, þótt framand-
lega hljómi í fyrstu.
Og þegar litið er til baka
yfir stóru nöfnin á síðustu
áratugum, þá er með fáum
undantekningum hægt að
tengja þau þeirra ófriði, sem
hæst ber í minningunni, af því
að þau hafa verið lengst á for-
síðum blaða og í kvöldfréttun-
um. En skyldi ég vera sá eini,
sem oft velti því fyrir mér,
hvað sé að gerast á þessum
slóðum eftir að skothríðinni
linnir. En þá er þar ekki leng-
ur neitt fréttnæmt. Sá sem
sleikir sár og bíður þess, að
það grói, er ekki efni í sögu
samanborið við hinn, sem
miðar byssu sinni og býr sig
undir að hleypa af, eða er að
verða fyrir skoti. Ég man eftir
því, þegar ég hlustaði á fréttir
útvarpsins á dögum síðari
heimsstyrjaldarinnar, að ég
var að velta því fyrir mér, um
hvað fréttirnar yrðu eigin-
saman um þann leiðtoga, sem
neitar að gefa þumlung eftir.
En stríð orðanna, sem á sér
fulltjngi í siglandi byssufer-
líki og gleðiópi mannfjöldans,
sem hlustar á þann, sem seg-
ist aldrei gefast upp, tekur á
sig annað yfirbragð, þegar
sannleikurinn opinberast, að
„drengirnir okkar" lenda lika
í köldum sæ fjarri heima-
ströndum, og geta aldrei
framar heilsað ástvinum inn-
an veggja heimilisins, þótt
ekki hafi gefizt tóm til að
kveðja þá, áður en haldið var
burt til að verja „heiður“
lands síns og leiðtoga. Og þá
eru tárin allt í einu orðin jafn
sölt og særinn, sem lýkst aft-
ur yfir höfði þess, sem varla
hefur fyllilega skilið, hvers
vegna hann var ekki heima
frekar en á svo fjarlægum
slóðum.
Stríðið, sem háð er, er ekki
milli þjóða, þegar grennst er
eftir skoðað. Það er heldur
ekki milli leiðtoga, sem njóta
þess sem fæðu að vera hylltir
af fjöldanum og nota stóru
orðin. Stríðið er enn sem fyrr
milli hans, sem birtist, af því
að Guð elskar heim sinn, og
þess höfðingja, sem kenndur
er við heiminn en elur af sér
hatur, tortryggni, úlfúð og
brenndar borgir. Það er stríð
milli áhrifa kærleikans, sem
litur náungann sem bróður,
og illskunnar, sem miðar allt
við sjálfan sig og því hvern
þann óvin, sem beygir sig ekki
fúslega fyrir því sjónarmiði.
Með öðrum orðum: Það er
kærleikurinn og syndin. Synd-
in krefst herravalds og sá,
sem lýtur henni, miðar allt
við sjálfan sig. Höfðingi
heimsins notar syndina,
Drottinn Jesús miðlar kær-
leikanum.
færi burt. Og vegna nálægðar
andans eigum við von, þótt
höfðingi heimsins sé sterkur.
Við skiljum ekki alltaf
ástæðurnar fyrir því, að það
er tekizt á um margt úti í
heimi og blóði úthellt. En við
finnum það, að við erum að
vinna þarft verk og Guði
þóknanlegt, þegar við biðjum
um það, að friður megi ríkja
en hatrið víkja, og bræðra-
band megi styrkjast en úlfúð
þverra, að hvorki „okkar
drengir" né „þeirra hermenn"
þurfi að velkjast í köldum
sænum, eftir að búið er að
skjóta á skip þeirra, já, að
barnabörn okkar þurfi ekki að
endurtaka eftir okkur von-
brigðin yfir því, að enn hafi
hálf öld liðið, án þess að orð
Jesú verði það máttug í lífi
einstaklingsins, að þjóðir
hætti að berast á banaspjót-
um.
En meira er af okkur kraf-
izt en þess eins að hrista yfir
því höfuð, að átök blossa upp.
Það er engin afsökun, að við
erum fá, af því að það er um
hvern einstakan að ræða. Og
sá sem ætlar að sigra heim-
inn, byrjar á sjálfum sér. Við
þrífum ekki byssu og kaupum
ekki vopn, heldur biðjum um
það og leggjum fram okkar
skerf, til þess að enginn þurfi
á slíku að halda. Það gerist
með því að láta vilja Jesú ráða
í jarðheimi en herravald
heimsins höfðingja þverra.
Bænin borin uppi af heitri trú
er betri hverju vopni og áhrif
hennar farsæl. Andi hins upp-
risna er með okkur og hollust-
an við hann færir heimi bless-
un. Sá er boðskapurinn, sem
einnig við getum flutt og til
þess erum við kölluð. Slíkt er
enginn leikur, heldur köllun
lífsins.
Þakkir tjái ég hrœrðum huga vinum og velunnurum,
ármönnum fagurra lista, fjölmiðlum, mosfellíngum
nágrönnum mínum, svo og ríkisstjóminni sem hafði
boð inni, og tóku allir höndum saman um að gera mér
dagamun með fagnaðaryndi á afmæli mínu 23ja apríl
1982.
Halldór Laxness
Veröbréfamarkaöur
Fjárfestingarfélagsins
GENGI VERÐBRÉFA 9. MAI 1982
VERÐTRYGGÐ
SPARISKÍRTEINI
RÍKISSJÓÐS:
1970 1. flokkur
1970 2. flokkur
1971 1. flokkur
1972 1 flokkur
1972 2 fíokkur
1973 1 flokkur A
1973 2. flokkur
1974 1. flokkur
1975 1. flokkur
1975 2. flokkur
1976 1. flokkur
1976 2. flokkur
1977 1. flokkur
1977 2. flokkur
1978 1. flokkur
1978 2. flokkur
1979 1. flokkur
1979 2. flokkur
1980 1.
1980 2.
1981 1.
1981 2.
flokkur
flokkur
flokkur
flokkur
Meðalávöxtun otangreindra
fram verötryggingu er 3,7—5%.
VEÐSKULDABRÉF
ÓVEROTRYGGO:
Sölugengi m.v. nafnvexti
Sölugengi
pr. kr. 100.-
8.504,62
6.860.54
6.076.33
5 265,85
4.466.55
3 260,27
3003.09
2.073,16
1.700,59
1.280,97
1.213,34
973,32
902,86
753.99
612,14
481.72
406.04
313,88
234,78
184.52
158.53
117.73
flokka um-
VEÐSKULDABREF
MEO LANSKJARAVÍSITÖLU:
Sölugengi nafn- Ávöxtun
m.v. vextir umfram
2 afb./éri (HLV) verötr.
1 ár 96,49 2%5 7%
2 ár 94,28 2% 7%
3 ár 92,96 2'/2% 7%
4 ár 91,14 2V4% 7%
5 ár 90,59 3% 7%
6 ár 88,50 3% 7'/4%
7 ár 87,01 3% 7'/4%
8 ár 84,85 3% 7%%
9 ár 83,43 3% 7 Va%
10 ár 80,40 3% 8%
15 ár 74,05 3% 8%
VERÐTRYGGÐ
HAPPDRÆTTISLÁN ,
_ i Solugengi
RIKISSJOÐS
B — 1973
C — 1973
D — 1974
E — 1974
F — 1974
G — 1975
H — 1976
I — 1976
12% 14% 16% 18% 20% (HLV) j _ 1977 40% 1.fl. — 1981
1 ár 68 69 70 72 73 82
2 ár 57 59 60 62 63 77
3 ár 49 51 53 54 56 73
4 ár 43 45 47 49 51 71
5 ár 38 40 42 44 46 68
TÖKUM OFANSKRÁÐ VEROBRÉF í UMBOÐSSÖLU
pr. kr. 100.-
2,419,77
2.057,88
1.744,97
1.193,71
1.193,71
791,83
754.48
574,05
534,19
106,01
(j^/flg) Veröbréfamarkaður
Fjárfestingarfélagsins
Lækjargötu12 101 Reykjavík
Iðnaöarbankahúsinu Simi 28566
73íHamatl:a?utinn
s^-ia.ttisqótu 12-18
SÝNISH0RN
ÚR SÖLUSKRÁ:
Audi 80 GLS 1979
Grænsanseraöur, ekinn 35 þús. Út-
varp, segulband, snjó- og sumar-
dekk. Verð 105 þús.
AMC Concord 1981
Grásanseraöur, ekinn 20 þus.
Sjálfskiptur, aflstýri. Verð 210 þús.
Fiat Ritmo 1981
Ljósbrúnn, ekinn 8 þús. Verö 95
þús.
Mazda 626 2000 1980
Grár, ekinn 15 þús. Utvarp. segul-
band, snjó- og sumardekk. Verö
110 þús.
Citroén GS 1979
Blásanseraöur, ekinn 57 þús. Snjó-
og sumardekk. Verö 85 þús.
Mazda 929 Hartopp 1980
Grænsanseraöur, ekinn 35 þús.
Sjálfskiptur, aflstýri, útvarp, snjó-
og sumardekk. Rafmagn i rúöum.
Verð 120 þús.
Datsun Bluebird 1981
Brúnn, ekinn 15 þús. 5 gira, útvarp.
Skipti a ódyrari. Verö 136 þus.
dbll i
Colt GL 1980
Blár, ekinn 46 þus. Utvarp og
segulband. Verö 80 þús.
Volvo 244 DL 1978
Blár, ekinn 59 þús. Útvarp, segul-
band. Verð 118 þús.