Morgunblaðið - 09.05.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
OPIÐ I DAG
FRÁ KL. 1—3
HAMRABORG 70 FM
Mjög rúmgóö nýleg 2ja herb.
íbúð á 3. hæð. Bílskýli.
JORVABAKKI 85RWÍ
3ja herb. íbúð á 2. hæð.
Með suður svölum. Lítið
áhvilandi. Verö 850 þús.
ÁLFHÓLSV. 82 FM
3ja herb. íbúð i 4býli. Mjög
gott útsýni. Suður svalir.
NÖKKVAVOGUR 90 FM
3ja herb. hæð ásamt ca. 30 fm
bílskúr. Nýtt eldhús, ný tæki á
baði. Ákveöin í sölu. Verð 980
þús.
GAMLI BÆRINN
3ja herb. á 3. hæð í nýlegú
húsi. Mjög góð íbúð. Verð
750 þús.
DIGRANESVEGUR KÓP.
4ra herb. jarðhæð í 3býli, allt
sér. Vönduð íbúð. Ákveðiö i
sölu. Verð 1.050 þús.
DÚFNAHÓLAR 115 FM
4ra herb. íbúð á 2. hæð.
Ákveðin sala. Verð 950 þús.
MÁVAHLÍÐ CA200FM
Efri sérhæð ásamt risi samt. 5
svefnherb. og 2 stofur. Nýlegt
gler, sér hiti, bíiskúrsréttur.
Verð 1.600 þús.
HEIÐNABERG
CA 200 FM
Parhús tilbúiö aö utan og
fokhelt að innan, þ.e.a.s.
múrað að utan með gleri og
opnanlegum fögum og full-
frágengnu þaki.
ENGJASEL 210 FM
Endaraðhús á þrem hæðum
ásamt tveim stæöum í bílskýli,
vönduð eign. Verð 1.900 þús.
GARÐABÆR 305 FM
Glæsilegt einbýlishús. Tilb.
undir tréverk, tvöfaldur
bílskúr. Stendur á góðum
stað. Fallegt útsýni.
VERSLUN
Lítil sérverslun í neðra-Breið-
holti. Gott tækifæri fyrir þann
sem vill sjálfstæöa atvinnu.
Samningaviðræður við samtök sænskra síldarinnflytjenda í næstu viku:
__ r
Tekst Islendingum að komast á
ný inn á sænska síldarmarkaðinn?
— söluverðið hækkaði um 60% síðastliðin 3 ár með þeim afleiðingum að Svíar hættu kaupum
SÖLUVERÐ á íslenzkri saltsíld til Svíþjóðar hækkaði um
25,0—30,2% í bandrískum dollurum á undanfornum
þrem árum, eða frá hausti 1978 til síðastliðinnar haust-
vertíðar 1981. Vegna mikillar gengislækkunar dollarans
hefir þetta þýtt 57,2—63,6% hækkun á innkaupsverði
fyrir kaupendur i sænskum krónum á sama tímabili.
Þessari miklu verðhækkun
hafa Svíar átt erfitt með að
kyngja og varð afleiðingin sú, að
á síðustu vertíð minnkuðu þeir
kaup sín frá Íslandi um 90%, eða
úr 50 þús tunnum í 5 þúsund
tunnur. Þetta er alvarleg þróun
fyrir okkur íslendinga, ekki sízt
þegar tillit er tekið til þess að
markaðir fyrir saltaða síld í
löndum Efnahagsbandalagsins
eru nánast lokaðir íslendingum
vegna hárra innflutningstolla.
Söltun síldar hefði því verið
hverfandi lítil á íslandi á síðustu
vertíð ef samningar hefðu ekki
tekizt um sölu á miklu magni til
Sovétríkjanna.
Þetta kom fram í viðtali er
Morgunblaðið átti í gær við
Gunnar Flóvenz, framkvæmda-
stjóra Síldarútvegsnefndar, en
hann er nú á förum til Svíþjóðar
ásamt samninganefnd, sem m.a.
er skipuð fulltrúum frá síldar-
saltendum, sjómönnum og út-
vegsmönnum. Viðræðurnar hefj-
ast í Gautaborg nk. mánudag.
Gunnar sagði, að samninga-
viðræður við Svía væru óvenju
snemma á ferðinni að þessu
sinni. Ástæðan væri sú, að sam-
tök sænskra síldarinnflytjenda
hefðu tilkynnt snemma í vor, að
ef íslendingar hefðu áhuga á að
reyna að ná aftur fyrri stöðu
sinni á sænska markaðnum, yrði
að fást úr því skorið fyrir lok
maímánaðar, hvort grundvöllur
fyndist fyrir samkomulagi, en sá
grundvöllur byggðist á því að Is-
lendingar byðu síldina á sam-
keppnisfæru verði. Annars
myndu meðlimir samtakanna,
eins og í fyrra, tryggja sér frá
öðrum löndum alla þá saltsíld,
sem þeir þurfa að semja um
kaup á á þessu ári. Ein ástæðan
fyrir þessum tímamörkum af
hálfu Svía er sú, að vertíð á
stærsta veiðisvæðinu við Kan-
ada byrjar í júní, en Svíar hófu
síldarkaup á því svæði í fyrsta
skipti í fyrra.
í tilkynningu sænsku samtak-
anna segir, að íslenzka verðið
hafi í fyrra verið 40% hærra en
þeir greiddu fyrir sambærilega
síld frá Kanada og 12—20%
hærra en á síld úr norsk-
íslenzka síldarstofninum, en sú
síld er stærri og feitari en ís-
lenzka sumargotssíldin.
Er Gunnar Flóvenz var spurð-
ur að því hvort verðkröfur ís-
lendinga hefðu ekki verið
óraunhæfar í fyrra vegna aukins
framboðs, svaraði hann þvi til,
að vegna óðaverðbólgunnar hér
heima og rangrar gengisskrán-
ingar síðari hluta ársins, hefði
enginn grundvöllur verið fyrir
samningum á því verði sem Sví-
ar voru reiðubúnir að greiða.
„Um það atriði voru allir sam-
mála, þar á meðal fulltrúar salt-
enda, sjómanna og útvegs-
manna," sagði Gunnar.
Gunnar kvaðst ekki vera
bjartsýnn á að samkomulag
næðist við sænsku samtökin.
Hann sagði, að Sviar gerðu nú
kröfur um svipað verð í Banda-
ríkjadollurum og samið var um
fyrir 2—3 árum. Það jafngildir
að vísu mikilli hækkun í sænsk-
um krónum frá þeim tíma, en
slíkt verð skapar því miður ekki
grundvöll til að gera út á annað
hundrað skip til að veiða 50 þús.
tonn af síld.
Þá sagði Gunnar, að Svíar
gerðu kröfu til þess að síldin yrði
seld i sænskum krónum, eins og
aðrar helztu útflutningsvörur,
sem seldar eru héðan til Svíþjóð-
ar. „Við höfum ekki viljað fallast
á þá kröfu, þar sem við höfum
talið dollarann sterkari gjald-
miðil en sænsku krónuna," sagði
Gunnar.
Gunnar Flóvenz sagði að lok-
um, að Svíar vildu þrátt fyrir
allt gjarnan kaupa saltaða síld
frá Islandi. Þeir viðurkenna í
orðsendingum sínum, að skipu-
lagning á söltuninni og af-
greiðsla síldarinnar sé í betra
lagi hjá Islendingum en keppi-
nautunum, en þeir tækju fram,
að það eitt réttlætti ekki hinn
gífurlega verðmun á síld frá ís-
landi og öðrum framleiðslulönd-
um.
BRÆÐRABORGARSTÍGUR
— 2ja, 3ja og 4ra herbergja
Höfum til sölu 2ja (75 fm), 3ja (96 fm) og 4ra
(114 fm) herb. íbúðir í fimm hæöa lyftuhúsi við
Bræðraborgarstíg.
íbúöirnar afhendast allar tilbúnar undir tréverk
á tímabílinu júlí-september á þessu ári og full-
frágenginni sameign veröur skilað í október i
haust.
Hér er um aö ræöa 20 ára byggingu sem verið
er aö breyta í íbúöarhúsnæöi. Husnæöismála-
stjórn kemur til meö veita hálft nýbyggingarlán
til kaupa á íbúðunum.
Teikningar og frekari upplýsingar eru til reiöu.
Þrír möguleikar koma til greina viö kaup á
þessum íbúöum:
I. VERÐTRYGGÐ KJÖR
íbúððr tilbúnar undir tréverk.
n r rari&i jlU iuii liiui IIJJL,
rrmTfn -330-^
Fmpqmmm
mpnmmæ
■ ni qu
A) Útborgun á 10 mánuðum
Teg. íb.
A 1. mánuði Utb. á 10 mán. Samt. útb.
2ja herb. 90.000 380.000 470.000
3ja herb. 100.000 485.000 585.000
4ra herb. 130.000 595.000 725.000
B) Utborgun á 15 mánuöum meö lánskjaravísitölu.
Teg. íb. Á 1. mánuði Útb. á 15 mán. Samt. útb.
2ja herb. 90.000 310.000 400.000
3ja herb. 100.000 400.000 500.000
4ra herb. 130.000 470.000 600.000
Eftirstöövar
Verötryggt skuldabréf til 10 ára, 3%
vextir, 2 afb. á ári. Fyrsta afb. ári eftir
afhendingu.
Eftirstöövar
Verötryggt skuldabréf til 10 ára, 3%
vextir, 2 afb. á ári. Fyrsta afb. ári eftir
afhendingu.
Ath. A útborgunartímabilinu í liö B, reiknast áfallin vísitala til hækkunar á greiðslum.
II. ÓVERÐTRYGGÐ KJÖR.
Útborgun á 12 mánuöum.
Teg. íb. Á 1. mánuði
2ja herb. 100.000
3ja herb. 120.000
4ra herb. 150.000
Útb. á 12 mán. Samt. útb.
490.000 590.000
610.000 730.000
755.000 905.000
Fasteignamarkaöur
Fjárfestingarfélagsins hf
SKÓLAVÖROUST1G 11 SÍMI 28466
(HÚS SPARISJÓÐS REYKJAVlKUR)
Logfræðmgur Pétur Þór Sigurösson
Eftirstöövar
Óverötryggt skuldabréf til 4 ára, 20%
vextir, 1 afb. á ári. Fyrsta afb. ári eftir
afhendingu.
Umferðin:
Fjögur bana-
slys í marz
FJÖGIIR banaslyn urðu í umfi'rðinni í
marzmánuði. í marz i fyrra varð eitt
hanaslys. Alls hafa sjö manns beðið
hana í umferðarsiysum það sem af er
árinu samanborið við þrjá sama tíma-
bil í fyrra. Þrir biðu bana í umferðar-
slysum í janúar, enginn i febrúar og
fjórir í marz.
Af hinum látnu voru tveir öku-
menn bifreiða, einn ökumaður bif-
hjóls og einn farþegi. Banaslysin
áttu sér stað í Garðabæ, S-Múla-
sýslu, Kjósarsýslu og Þingeyjar-
sýslu. Ekkert banaslys varð í
Reykjavík í marz. Alls slösuðust 53 í
umferðarslysum í marz, samanborið
við 56 í marz 1981. Af þeim hlutu 28
meiri háttar meiðsl, samanborið við
20 í fyrra og 25 minni háttar meiðsl
samanborið við 36 í fyrra.
Múrarafélag Reykjavíkur:
Fengið heimild
til verkfalls-
boðunar
í AI.MENNRI atkvæðagreiðslu innan
Múrarafclags Reykjavíkur var stjórn
félagsins og trúnaðarráði veitt heimild
til verkfallsboðunar. Kéllu atkvæði
þannig að 79 greiddu atkvæði með
verkfallsboðun, 16 voru á móti og tveir
seðlar voru auðir.
Að sögn Helga Steinars Karlsson-
ar, formanns Múrarafélagsins, verð-
ur tekin ákvörðun um fyrirkomulag
verkfallsboðunar um helgina. Lík-
legt er að boðað verði til eins dags
verkfalls fyrst í stað og til hins
fyrsta verði boðaö á mánudag, en
verkfall þarf að boða með viku
fyrirvara.