Morgunblaðið - 09.05.1982, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
Erlendur Eysteinsson, bóndi að Stóru-Giljá, og Kristin Holt-
an, vetrarmaður frá Noregi, gefa á garðann.
Vetrarmaðurinn að Stóru-
Giljá hyggur á búskap á
gömlu, norsku heiðarbýli
„ÉG HEF ALLTAF haft mikinn áhuga á íslandi, bókmenntunum og sögunni ykkar, og lít nánast á íslendinga og
Norðmenn sem eina þjóð. Ég vona, að ég móðgi engan. I»að var síðan í gegnum Káðningaþjónustu landbúnaðarins, að
ég var ráðinn sem vetrarmaður hér að Stóru-Giljá.“
Kristin Holtan frá Sandefjord í Noregi hefur undan-
farnar vikur dvalið að Stóru-Giljá í Torfalækjarhreppi
í A-Húnavatnssýslu, einu stærsta fjárbúi hérlendis, en
þar eru um 900 fjár. Kristin er 21 árs eins og Camilla
Linder frá Svíþjóð, en hefur, öndvert við Camillu, mun
meiri áhuga á sauðfé heldur en hestum.
„í framtíðinni gæti ég vel hugsað mér að hefja
sauðfjárbúskap heima í Noregi, þó ekki í sama mæli og
hér að Giljá. Ég bý ásamt foreldrum mínum og systkin-
um í Sandefjord, en fjölskyldan á gamalt býli uppi í
fjöllum í Valdres. Elztu húsin þar eru 500 ára gömul,
þau yngstu um 100 ára og öll eru þau friðuð. Það kostar
mikið að gera húsin upp, en mig dreymir um að hefja
búskap þar þegar ég er búin að læra og byggja upp í
rólegheitum. Ég gæti annað hvort stundað kennslu eða
komið á fót einhverjum heimilisiðnaði meðan verið er
að koma lagi á hlutina, en með tímanum væri hægt að
hafa þarna allt að 200 ám og kannski eins og tvo ís-
lenzka hesta."
Kristin verður að Stóru-Giljá til 7. júní, en þá heldur
hún á ný heim til Sandefjord. í haust tekur hún að nýju
til við námið, annað hvort í kennaraskóla eða við há-
skólann í Osló.
„Mér finnst sko alls ekkert rólegt hérna í sveitinni
eða lítið um að vera. Þvert á móti finnst mér fólkið
óhemju lifandi. Það er allt mögulegt að gerast hérna,
árshátíðir, dansleikir, leiksýningar, ýmiss kona- sam-
komur, sýningar og ég veit ekki hvað. Þrátt fyrir fá-
mennið þarf ekki að kvarta yfir deyfð í félagslífinu."
Sjálf hefur Kristin tekið þátt í félagslífi sveitarinnar
og þá ekki aðeins sem þiggjandi. Hún hefur komið fram
á samkomum, m.a. á Blönduósi, og sungið norskar þjóð-
vísur og slagara og spilað undir á gítar við góðar undir-
tektir.
Sauðburður er að hefjast og því er sjálfsagt Eftir kennaranám stendur hugurinn til
í nógu að snúast þessa dagana. búskapar í Noregi.
Er þér annt um úthaldið
3.
Þetta eru viökvæm
svæöi, sem
newbalance é?
hugsar um.
Þá eru newbakmce iB
jogging skór í sérflokki.
Mjúkir og sterkir.
5 stjörnu skór.
Hæst skrifuöu joggingskór í USA.
ÚTILÍF
Glæsibæ, sími 82922.
CACNVARIN
VATNS
KLÆDNINC
Ein sú besta utanhússklæðning
sem völ er á.
Fallegt útlit, góð ending,
vægt verð.
Allar nánari upplýsingar
veittar á staðnum og í símum
11333 og 11420.
TIMBURVERZLUN
ÁRNA JÓNSSONAR & CO. H/F
LAUGAVEGI 148