Morgunblaðið - 09.05.1982, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
21
í sjöunda himni yfir að
komast í Skagafjörðinn
Hestar eru áhugamál hennar númer 1, 2 og 3.
21 árs sænsk stúlka
hefur starfað við
tamningu og hirðingu
hesta að Melstað í vet-
ur en byrjar háskóla-
nám næsta haust
„ÉG HEF áhuga á ad ferðast og
kynnast fleiru heldur en lifinu
heima i Svíþjóð og þess vegna sótti
ég um vinnu á íslandi. í upphafi stóð
til, að ég fengi vinnu á kúabúi á
Suðurlandi, en svo varð það úr, að
ég færi hingað að Melstað. Ég var í
sjöunda himni með að komast í
Skagafjörðinn því ég hef mikinn
áhuga á hestum og ég fékk kjörið
Uekifæri til að læra meðferö og
tamningu íslenzka hestsins.“
Það er Camilla Linder, 21 árs
gömul stúlka frá Skövde í Svíþjóð,
sem hefur orðið. Hún kom að
Melstað í Skagafirði 20. janúar og
hefur síðan unnið við tamningu og
hirðingu hesta á bænum, auk ann-
ars sem til hefur fallið. Hún lætur
vel af dvölinni á Islandi, finnst að
vísu kalt og hugsar með söknuði
til vorsins í Svíþjóð, en samt; það
er gott að vera á íslandi. Það sem
skiptir hana mestu máli er að hún
hefur kynnzt fólki á framandi
slóðum og fengið að starfa við sitt
helzta áhugamál, tamningu hesta,
í þeirri miklu sveit hesta og hesta-
manna, Skagafirði.
„Sumt fannst mér með eindæm-
um skrýtið hérna í sveitinni. Að
hugsa sér, það geta allir hlustað á
símtöl nágrannanna og er víst
óspart gert. Svo fannst mér líka
skrýtið þegar síminn hringdi
hérna, tvær stuttar og ein löng.
Pósturinn kemur sjaldan finnst
mér, en það venst. Hér hef ég bara
kynnzt góðu fólki og landið er fal-
legt, þó það sé gjörólíkt því sem er
heima. Það versta við veðrið
finnst mér þetta eilífa rok.“
Camilla Linder skilur orðið
talsvert í íslenzku ef talað er hægt
og sérstaklega ef rætt er um
hesta, þar er hún heima. Hún seg-
ist hafa lært mikið um íslenzka
hestinn og gæti vel hugsað sér að
eignast einn slíkan þegar hún hef-
ur lokið námi, en hún hyggst hefja
nám í samfélagsfræði, ensku og
sálfræði í haust.
Og hvað ætlar hún að dvelja
iengi á íslandi að þessu sinni:
„Fram yfir landsmótið í sumar að
minnsta kosti."
Það er segin saga
aö Mallorka er sá sumarleyfisdvalarstaöur sem ís-
lendingar kunna hvaö best viö sig á. Maliorka er
. auövitað eyja og eyjabúum semur ávallt vel, hvar
sem þeir koma.
Nýtt og stórglæsilegt
Nú bjóöum viö nystárlega gistiaöstööu á Mallorka
sem er tvimælalaust meö því besta sem þar þekkist.
Þetta er fjöldi smáhýsa (bungalows), íbúöa og hótela
sem heita einu nafni Mini-Folies og standa rétt viö
undurfagurt þorp, Puerto de Andraitx, skammt vest-
an viö Magalufströndina.
Komiö og sjáiö myndband (videó) á skrifstotu okkar.
29. mai örfá sæti laus.
15. júní laus s»ti.
6. júli laus sasti.
27. júlí uppselt.
17. ágúst uppselt.
17. sept. laus saeti.
28. sept. laus sœti.
Góö greióslukjör. Bein leiguftug.
FERDASKRIFSTOFA, LAUGAVEGI 66, 101 REYKJAVÍK, SÍMI 28633.