Morgunblaðið - 09.05.1982, Blaðsíða 22
2 2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
Árlega þarf að skapa
700 ný atvinnutækifæri
Ekkert nýtt land skipulagt fyrir atvinnurekstur á kjörtímabilinu
eftir Magnús L.
Sveinsson
borgarfulltrúa
Sem betur fer hafa Reykvík-
ingar búið við næga atvinnu um
mörg undanfarin ár. Blómlegt at-
vinnulíf er auðvitað undirstaða
alls mannlífsins í borginni. Leggja
verður því höfuðáherzlu á að allar
vinnufærar hendur hafi vinnu við
sitt hæfi. Árlega þarf að mæta
þörf fyrir 500—700 ný atvinnu-
tækifæri.
Það er stefna sjálfstæðismanna,
að atvinnureksturinn sé að sem
mestu leyti í höndum einstaklinga
og samtaka þeirra. Borgin á hins
vegar að stuðla að öflugu og vax-
andi atvinnulífi með óbeinum að-
gerðum. Má þar nefna lóðaúthlut-
un, gatnagerðargjöld, sölu á raf-
magni og vatni og álagningu fast-
eigna- og aðstöðugjalda.
Stýring þessara þátta á fyrst og
fremst að miða að því, að örva og
styðja einstaklinga og samtök
þeirra til blómlegs atvinnulífs.
Allir þekkja það, að fyrirtæki í
einkarekstri greiða miklu meiri
skatta til sameiginlegra þarfa en
fyrirtæki, sem rekin eru af opin-
berum aðilum, sem greiða nánast
ekkert.
Við sjálfstæðismenn viljum
leggja sérstaka áherzlu á eftirfar-
andi atriði, sem stuðla að fram-
angreindum markmiðum í at-
vinnumálum:
1. Stjórnun
Nauðsynlegt er að greiða fyrir
auknum samskiptum stjórnenda
borgarinnar og fulltrúa atvinnu-
lífsins, í því skyni, að örva fyrir-
tæki í arðvænlegum greinum til
vaxtar og aukinna umsvifa.
2. Skipulags- og lóðamál
Nauðsynlegt er að í aðalskipu-
lagi sé jafnan leitast við að svara
þörfum atvinnulífsins, með því að
skipuleggja land fyrir atvinnu-
rekstur. Þá sorgarsögu er að segja,
að á því kjörtímabili, sem nú er að
ljúka, hefur ekkert nýtt land verið
skipulagt fyrir atvinnurekstur og
engar nýjar lóðir komið til úthlut-
unar til atvinnurekstrar. Þeir,
sem spurst hafa fyrir um atvinnu-
lóðir á þessu kjörtímabili, hafa
fengið það svar, að engar lóðir
væru til.
3. Skipaverkstöð
Eitt af stærstu verkefnum í at-
vinnumálum Reykjavíkur er, að
bæta aðstöðu til skipasmíða og
skipaviðgerða í Reykjavík. Nauð-
synlegt er að reynt verði að ná
eins víðtækri samvinnu og mögu-
legt er við þá aðila, sem þennan
atvinnurekstur stunda nú í borg-
inni.
4. Jöfn aðstaða fyrir-
tækja
Leggja verður áherzlu á, að
fyrirtæki í Reykjavík sitji jafnan
við sama borð í fjármagnsfyrir-
greiðslu úr sjóðakerfi landsins og
fyrirtæki annars staðar á landinu.
5. Orkuiðnaður
Reykjavíkurborg verður að
fylgjast vel með allri umræðu og
áformum um byggingu orkuiðnað-
ar í landinu. Borgin verður að vera
við því búin, að skapa skilyrði
fyrir orkuiðnað í Reykjavík til að
styrkja og efla atvinnulífið í borg-
inni í framtíðinni. Margskonar
smáiðnaður og heimilisiðnaður fái
aðstöðu til að eflast.
Magnús L. Sveinsson
„Þeir, sem spurst
hafa fyrir um atvinnu-
lóðir á þessu kjörtíma-
bili, hafa fengið það
svar, að engar lóðir
væru til,“ segir Magnús
L. Sveinsson, borgar-
fulitrúi, og fjórði maður
á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavík í
þessari grein.
6. Örtölvubyltingin
Á næstu árum er líklegt að mik-
il breyting verði í atvinnurekstri.
Nefna má örtölvubyltinguna, sem
breyta mun verulega uppbyggingu
í atvinnulífi. Nauðsynlegt er að
laga þá byltingu að atvinnulífinu,
þannig að hún leiði ekki til at-
vinnuleysis. Aukin tækni, í hvaða
formi sem hún er, á fyrst og síðast
að miðast við það að auka lífsham-
ingju fólks og gera manninum líf-
ið betra á morgun en það var í
dag.
T<DY©T
KYNNING' - s
BILAKYNNING
I DAG FRÁ KL. 13-18. .
Kynnum í hinu nýja 700 m2 húsnæði Varahlutadeildar
TOYOTA BÍLA ARGERÐIR 1982
TOYOTA
UMBOÐIÐ
NYBYLAVEGI 8
_ KÓPAVOGI
P. SAMÚELSSON & CO. HF. SÍMI 44144
Sr. Ólafur fulltrúi
biskups við biskups-
vígslu í Noregi
NÝLEGA var Frederik Grönning-
sæter dómkirkjuprestur í Osló vígð-
ur biskup Suður-Hálogalands, sem
er eitt nyrsta biskupsdæmi Noregs.
Aarflot Oslóarbiskup annaðist vígsl-
una, en að vanda voru biskupar frá
hinum Norðurlöndunum viðstaddir.
Biskup íslands kom þvi ekki við að
fara, en fól sr. Olafi Skúlasyni
dómprófasti að vera fulltrúi íslensku
kirkjunnar. Hafa þeir sr. Ólafur og
Grönningsæter biskup átt samstarf
til margra ára, er þeir voru formenn
prestafélaganna hvor í sínu landi.
Grönningsæter biskup hefur itrekað
heimsótt ísland.
Mikil hátíð var við biskupsvígsl-
una. Ólafur konungur og Sonja
prinsessa voru viðstödd og allir
prófastar og kirkjuráðsmenn bisk-
upsdæmisins voru boðnir til vígsl-
unnar.
Á Suður-Hálogalandi háttar á
margan veg svipað og á íslandi.
Vegalengdir eru miklar og presta-
köllin víðáttumikil og oft margar
kirkjusóknir í sama kalli svipað og
hér. Er áberandi hversu margir
ungir prestar þjóna þar, enda leita
menn gjarnan til þéttbýlli svæða,
þegar þrek minnkar og börn kom-
ast á framhaldsskólaaldur.
Biskupssetrið er í Bodö, sem er
nokkuð norðan við heimskauts-
baug.
(KréU frá Bukupwitofii)
AtKiLYSINíiASÍMINN KR:
22410
2ti*rgnn!>labib