Morgunblaðið - 09.05.1982, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Auglýsingastjóri
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson,
Björn Jóhannsson.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson.
Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö-
alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift-
argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. I lausasölu 7 kr. eintakiö.
að fór allt í bál og
brand í þingliði Al-
þýðubandalagsins á enda-
spretti þingsins ...“ Þannig
hófst lýsing blaðamanna
Morgunblaðsins, sem staddir
voru í Alþingishúsinu á föstu-
daginn og urðu vitni að svo
hávaðasömum samtölum þing-
manna kommúnista á göngum
þinghússins, að ekki fór fram
hjá neinum, sem þar áttu leið
um. Helstu deilumálin snertu
þau frumvörp, sem alþýðu-
bandalagsmaðurinn Hjörleif-
ur Guttormsson hafði lagt
fram og undirbúin hafa verið
undir hans stjórn í iðnaðar-
ráðuneytinu. Málsmeðferð
iðnaðarráðherra gagnvart eig-
in flokksmönnum er hin sama
og gagnvart ráðherrum í ál-
málinu, þegar hann tekur sér
það bessaleyfi að leggja fram
„miðlunartillögu" í viðræðum
við Alusuisse án þess að hafa
til þess umboð frá ríkisstjórn-
inni eða sérstakri ráðherra-
nefnd, þar sem sjálfur forsæt-
isráðherra Gunnar Thorodd-
sen og formaður Framsókn-
arflokksins, Steingrímur Her-
mannsson, eiga sæti, nefnd,
sem hafði það hlutverk að
samræma viðhorf innan rík-
isstjórnarinnar í álmálinu.
Augljóst er, að kommúnist-
ar hafa tekið þá stefnu innan
núverandi ríkisstjórnar að
hafa allar venjulegar starfsað-
ferðir í ríkisstjórn og gagn-
vart þingflokkum ríkisstjórn-
arinnar að engu. Þeir sigla
áfram með mál, sem þeim eru
kærust, án þess að spyrja kóng
eða prest og láta svo slag
standa, þegar á hólminn er
komið. Fjármálaráðherra
Ragnar Arnalds, lagði fram
frumvarp um skyldusparnað,
sem þingmenn stöðvuðu. Mátti
þó skilja, þegar það var lagt
fram, að um stjórnarfrumvarp
væri að ræða. Venja hefur ver-
ið að slík frumvörp séu ekki
lögð fram nema fyrir liggi
bæði samþykki meðráðherra
og þeirra þingflokka, sem rík-
isstjórn styðja. Örlög frum-
varpsins um skyldusparnað
sýna, að hafi ráðherrar Fram-
sóknar og úr liði sjálfstæð-
ismanna verið búnir að sam-
þykkja hinar nýju skattaálög-
ur, þá höfðu þeir ekki tryggt
framgang þeirra í eigin þing-
liði. Sömu sögu er að segja um
þau þrjú mál, sem iðnaðar-
ráðherra voru kærust: Blöndu-
virkjun, steinullarverksmiðju
og kísilmálmverksmiðju á
Reyðarfirði. Að þeim öllum
var staðið með þeim hætti, að
til ákafra deilna kom á Al-
þingi.
Innan Alþýðubandalagsins
hafa löngum togast á sjón-
armið þeirra, sem stefna að
því að þetta mesta niðurrifsafl
í íslenskum stjórnmálum sé
„stjórnhæft“, það er að segja
virði þá almennu, lýðræðislegu
stjórnarhætti, sem gera
stjórnmálaflokka hæfa til
þátttöku í ríkisstjórn, og
hinna, sem vilja að flokkurinn
„leiki lausum hala“, taki
ábyrgðarlausa afstöðu til allra
mála, stundi yfirboð og lýð-
skrum. Hinar óvenjulegu og
háværu deilur á göngum Al-
þingishússins á föstudaginn
sýna, að átökin milli þessara
hópa er ekki lengur unnt að
hemja innan dyra í þing-
flokksherbergi kommúnista.
Jafnvel formaður þingflokks-
ins stendur í háværu rifrildi
við flokksbróður sinn, fjár-
málaráðherrann, á göngum úti
og fjármálaráðherra hrópar
að þingflokksformanninum, að
hann hagi sér með ósæmi-
legum hætti í atkvæða-
greiðslu.
Á flestu öðru er nú þörf í
Ileiðara Tímans á föstudag-
inn gerir Þórarinn Þórar-
insson, ritstjóri, grein fyrir
því með hvaða hugarfari hann
les dagblöðin. Hann metur
efni greina eftir því, hvar þær
birtast. Mest finnst honum til
þess efnis koma, sem birtist
við hlið leiðara í blöðunum og
tekur Dagblaðið & Vísir sem
dæmi. Þórarinn segir: „Und-
antekningarlaust birtir blaðið
það efni, sem því berst frá
virðingarmönnum, á áberandi
stað hjá forustugrein blaðs-
ins.“ Þórarni Þórarinssyni
finnst minnst koma til les-
endasíðu dagblaðanna, þar
sem birt eru bréf frá hinum
almenna borgara um þau mál,
sem mönnum eru efst í huga
hverju sinni. Finnst Þórarni,
að ekki þurfi að taka sjónar-
mið lesenda „of hátíðlega" og
hann fellir þann dóm, að
„spaug og slúður“ birtist á les-
endasíðum DV.
Það er óneitanlega fróðlegt
að kynnast viðhorfum Þórar-
íslensku þjóðlífi, þegar illa
horfir um útflutning mikil-
vægra afurða, aflabrögð eru
slæm, viðskiptahalli vex og
erlend skuldabyrði eykst, en
rifrildissegir og niðurrifs-
menn hafi ráðin í sinni hendi.
I sveitarstjórnakosningunum
eftir tæpar tvær vikur gefst
kjósen^um færi á því að veita
kommúnistum ráðningu. Utan
ríkisstjórnar er þeim tamt að
tala um „Alþingi götunnar",
nú eru þeir sjálfir komnir með
eigin deilur út á þinghúsgang-
anna — þaðan er ekki langt út
á götuna.
ins Þórarinssonar til þess,
hvernig flokka á efni dag-
blaða, eftir því á hvaða blað-
síðu það birtist. Sumir telja
sig geta ráðið gátur valdabar-
áttunnar innan Kremlarkast-
ala með því að skoða myndir
af sovéskum tignarmönnum á
grafhýsi Leníns. Þórarinn
Þórarinsson hefur verið rit-
stjóri Tímans í meira en 40 ár
og skrifað þar ótaldar greinar
um alþjóðamál. Um langan
aldur birtust þær á „áberandi
stað hjá forustugrein blaðs-
ins“. Fyrir nokkrum misserum
voru nýir menn ráðnir til að
bjarga Tímanum úr örbirgð og
útbreiðsluleysi. Hvað var hið
fyrsta sem þeir gerðu? Jú, þeir
fluttu hið „erlenda yfirlit"
Þórarins Þórarinssonar frá
hinum áberandi stað virð-
ingarmanna. Fróðlegt væri, að
hinn gamalreyndi ritstjóri
Tímans skilgreindi efnisröðun
í eigin blaði og legði út af
henni til að auka skilning
manna á hinum „dýpri rökurn"
stjórnmálanna.
Upplausn og rifrildi
í Alþýðubandalaginu
Þ.Þ. les blöðin
| Reykjavíkurbréf
Laugardagur 8. maí
Baráttu-
adferdir
kommúnista
Nýlega var skýrt frá því í frétt-
um, að tugir þúsunda Víetnama
hefðu verið fluttir til Sovétríkj-
anna til að vinna þar upp í
stríðsskuldir. Þetta nýjasta dæmi
um þrælkunarvinnu í nafni
kommúnismans hlýtur að vekja
óhug um heim alian, eins og einnig
er raunin. Besta staðfestingin á
því er klausa í einu af fréttabréf-
um áróðursskrifstofu sovéska
sendiráðsins í Reykjavík nú í vik-
unni. Þar segir, að þessar fréttir
um Víetnamana séu „uppspuni
heimsvaldaáróðurs" því að „dvöl
víetnamskra borgara í Sovétríkj-
unum“ megi rekja til milliríkja-
samnings frá því í apríl 1981 og
síðan segir orðrétt: „Samkvæmt
þessum samningi eru víetnömsk-
um borgurum tryggð réttindi og
frelsi (!) samkvæmt sovéskum lög-
um (!!). Þetta fólk starfar og fær
þjálfun í þeim héruðum, sem
henta því best, hvað loftslag og
aðstæður varðar, en ekki í fjar-
lægum héruðum Síberíu."
Við því er ekki að búast, að þau
félög, sem stofnuð hafa verið hér á
landi i nafni vináttu við Víetnam,
láti til sín heyra út af þessum
nauðungarflutningum frá Víet-
nam til Sovétríkjanna. Margir af
þessum „vinum" Víetnam eru
nefnilega meiri vinir Sovétríkj-
anna.
Því er þetta rifjað upp hér og
nú, þegar aðeins tvær vikur eru til
sveitarstjórnarkosninga, að atriði
eins og þetta þurfa menn að hafa í
huga, þegar þeir ganga að kjör-
borðinu í kosningunum 22. mai,
þótt það sýnist fjarlægt í fljótu
bragði. Það er erfitt fyrir hinn
venjulega blaðalesanda, að henda
reiður á öllu því, sem að honum er
haldið nú fyrir kosningarnar.
Margt togast á, þegar tekin er
ákvörðun um meðferð þess mesta
valds, sem einstaklingar hafa um
stjórn sinna eigin mála og samfé-
lagsins í lýðfrjálsum þjóðfélögum,
valdsins, sem kjörseðillinn veitir.
Nokkrar meginforsendur eru þó
skýrar, meðal þeirra sú, að komm-
únistar eru mestu vinir „þjóðfrels-
is“, „lýðræðis" og „alþýðunnar“ á
meðan þeir telja sér þá vináttu til
framdráttar. Nái þeir völdum
stjórna þeir hins vegar með harðri
hendi og án tillits til vilja almenn-
ings. Spyrjum Pólverja, ef okkur
finnst Víetnam of fjarlægt.
Staða
Alþýðu-
bandalagsins
Hinni nýju stétt í Alþýðubanda-
laginu hefur verið það sérstakt
kappsmál að telja kjósendum trú
um, að hún sé: 1) Baráttusveit
fyrir „þjóðfrelsi“ — í því efni seg-
ist hún fyigja stefnu, sem gæti
verið samin af hugmyndafræðing-
um Kremlverja undir kjörorðinu:
ísland úr NATO! Herinn burt! 2)
Sérstakur verndari lýðræðis —
átökin í sveitarstjórnarkosningum
eru á milli „flokksræðis og lýðræð-
is“ segja Svavar Gestsson og Þjóð-
viljinn. Og 3) Pólitísk forystusveit
alþýðunnar — fýlgið okkur og
kaupið mun hækka og hagurinn
vænkast, kosningar eru kjarabar-
átta, hrópar Svavar Gestsson.
Fyrir utan þessi þrjú grund-
vallaratriði streitast fulltrúar Al-
þýðubandalagsins í borgarstjórn
svo við að tíunda öll „afrekin",
sem ýmist eru stolnar fjaðrir eða
ósýnilegar, svo að vitnað sé til
orða Davíðs Oddssonar á borgar-
stjórnarfundi fyrir nokkrum vik-
um, þegar hann leiddi í ljós
ósannsögli alþýðubandalags-
manna um skólamáltíðirnar.
En hvað um þessi þrjú baráttu-
mál, sem hin nýja stétt Alþýðu-
bandalagsins segir að sér séu efst
í huga nú sem endranær, þegar
dregur að kosningum. Að þessu
sinni verður látið hjá líða að ræða
um „þjóðfrelsisbaráttu” Alþýðu-
bandalagsins, næg tilefni gefast
til þess fyrir næstu alþingiskosn-
ingar. En hvað um „flokksræðið og
lýðræðið"? Sé tekið mið af
starfsháttum kommúnista í borg-
arstjórn Reykjavíkur, er ekkert að
marka heitstrengingar þeirra um
samráð við borgarbúa eða tillit til
sjónarmiða þeirra. Stjórnartíð
vinstri meirihlutans hefur þvert á
móti einkennst af þeim valdhroka,
sem setur svip sinn á alþýðbanda-
lagsmenn alls staðar, þar sem þeir
hafa komist til opinberra áhrifa.
Þeir stjórna í krafti hins opinbera
Þung byrði
-----aukin
Fasteignaskattur af
húsnæði, sem svarar
til einnar hæfilegrar
íbúðar á fjölskyldu
verði ekki gerður að
frekari tekjulind
borgarinnar en nú
er.
Alþýðuflokkurinn
bendir á, að fast-
eignagjöldin eru orð-
in mjög þung byrði á
öldruðum, sem ekki
hafa neinar sérstak-
ar, miklar tekjur. Al-
þýðuflokkurinn telur
því sanngjarnt að
þessi gjöld væru felld
niður af öldruðum
enda hafa þeir lagt
nægilega rnikið til
þjóðarbúsins.
Vinsíri menn lofuðu að fella niður fasteigna-
gjöld af íbúðum aldraðra. Aldraðir vita best aö i
þessu hefur ekkert veriö gert umfram það sem
áður þekktist Þá átti llka að gæta þess að fast-
eignagjöld af hæfilegum fjölskyldufbúðum
yröu ekki gerð að frekari tekjulind fyrir borgar-
sjóð en var 1978 Allir vita hversu mjög fast-
eignagjöldin hafa hækkað umfram verðbólg-
una og hversu mikil tekjulind þau eru nú oröm
fyrir borgarsjóð Tillögur sjálfstæðismanna um
verulega lækkun þeirra hafa veriö kolfelldar
Skref í
budduna
Samgönguráðherra ákvaö að láta Reykvlk-
inga borga skrefagjald af símtölum sínum
Sjálfstæðismenn i borgarstjórn mótmæltu
þessu og töldu vegið að hagsmunum Reyk-
vikinga Þeir fluttu tillögu um að gjaldið yrði
fellt niður. Vinstri menn felldu tillöguna og
töldu enga ástæöu til að vernda hagsmuni
Reykvfkinga í þessu máli.
Hm ■**4MMÉ|i|if dnMiMm lyrtr
Sfmanotkun f borginni óhóflpga
mikil, fólk talar of mikið f sfma
(Atþýöubl 24/5 1978)
Dngir sjálfsta'Aismcnn í Reykjavík hafa gefið út bækling, sem heitir „Þcgar
cvintýrunum lýkur ...“ og vísar heitið til þessara einkunnaroröa bæklings-
ins: „Þegar ævintýrunum lýkur stcndur eftir nakinn raunveruleikinn. llm
hann á að kjósa og ekkert annað.“ Var þetta haft eftir Sigurjóni Péturssyni,
borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins og oddvita meirihluta vinstri manna í
borgarstjórn Reykjavíkur, i Þjóðviljanum 17. mai 1978. Hér er birt ein siða
úr þessum bæklingi.