Morgunblaðið - 09.05.1982, Side 26
AUGLÝSINGASTOFA KRISTÍNAR HF.
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
Á ÞÝSKRI VIKU
Á þýsku vikunni, sem stendur yfir á Hótel Loftleiðum
6. —12. maí, sýnum viö í anddyri hótelsins
CiOLF og JETTA bifreiöar frá Volkswagen.
BÍLALEIGA LOFTLEIÐA
notar
GOLF og JETTA
Búumst við erfiðleik-
um í 3—5 ár í viðbót
— segir pólski presturinn Zdzislaw Pawlik
um ástandið í heimalandi sínu
%
„ÉG VIL KOMA á framfæri þakklæti frá Pólverjum fyrir þaó mikla örlæti
sem íslendingar hafa sýnt með gjöfum sinum síðustu mánuði, en hér safnað-
ist mun meira fé miðaö við höfðatölu en í nokkru öðru landi. Við þökkum
ekki aðeins fyrir gjafir heldur ekki síöur fyrir þann hlýhug og þann andlega
styrk sem við finnum í þeirri samstöðu sem íslenska þjóðin sýnir okkur,"
sagði Zdzislaw Pawlik, pólskur mótmælendaprestur, á fundi með frétta-
mönnum, en hann er hér staddur um þessar mundir í boði þeirra er stóðu um
áramótin fyrir landssöfnun m.a. til styrktar pólsku þjóðinni, ASÍ, Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar og Kaþólsku kirkjunnar á íslandi.
Pawlik er hingað kominn til að
greina frá því hvernig sú hjálp
sem héðan kom hefur komist til
skila og sagði hann alla aðstoð,
sem borist hefði frá erlendum að-
ilum, hafa dreifst til mótmælenda,
kaþólskra og Pólverja af öðrum
trúarbrögðum, sem þyrftu hjálp-
arinnar við. Pawlik á sæti í sér-
stakri samstarfsnefnd ríkisstjórn-
arinnar sem hefur yfirumsjón
með hjálparstarfinu og hann er
formaður samkirkjuráðsins í Pól-
landi, sem einnig kemur við sögu
skipulagningar hjálparstarfsins.
„Við búumst við því að erfiðleik-
ar okkar muni enn standa í 3 til 5
ár, því það tekur mjög langan
tíma að rétta við matvælafram-
leiðslu okkar," segir Pawlik.
„Fyrst með haustinu tekur erfið-
leikunum eitthvað að linna þegar
uppskeran skilar sér, en samt
verður ekki allt búið þá. Skuldir
okkar eru miklar, öll verslun á í
erfiðleikum, landbúnaðurinn á
erfitt með að útvega sér áburð,
varahluti og annað sem þarf til
framleiðslunnar og þess vegna er
ljóst að langan tíma tekur að rétta
við.
í hjálparstarfinu höfum við lagt
áherslu á að börn, barnmargar
fjölskyldur, sjúklingar, aldraðir
og þeir sem á einhvern hátt minna
mega sín í þjóðfélaginu fái aðstoð
öðrum fremur, en það eru þessir
hópar sem verst hafa orðið úti í
vöruskortinum. Fulltrúar Islend-
inga, sem komu til Póllands á dög-
unum, sáu hvernig aðstoð frá Is-
landi komst til fólksins. Við höld-
um nánu sambandi við þá sem
styðja okkur og sjáum til þess að
öll hjálp komist til skila. Kirkjan
hefur allan tímann fengið að
starfa og nefna má að frá því í
janúar sl. fá mótmælendakirkjur
nú að flytja messu í ríkisútvarp-
inu, en áður var það aðeins leyft
kaþólsku kirkjunni.
Aðspurður um refsiaðgerðir
Bandaríkjamanna vegna setninga
herlaga í Póllandi sagðist Pawlik
ekki telja það réttu leiðina að ein
þjóð notfærði sér þannig ástand
annarrar í matvælaskorti hennar
til að beita pólitískum þrýstingi.
(áöur Uröur)
---- Glœsilegur sumaríatnaöur fyrir dömur -
s.S: jakkar, buxur, bolir og blússur.
----------- Veriö velkomin. ---------------
TÍSKUVERSLUN
HAMRABORG 6 KÓPAVOGI
SÍMI43711
Sprengjureki 1
Rauðasandshreppi:
Heimamenn
voru heppnir
að tapa ekki
lífi eða limum
Látrum í apríl.
ÞAÐ VAR seinni part vetrar, að
bóndinn á Melanesi í Kauða-
sandshreppi, Skúli Kjartansson,
fann á fjöru sinni sivalning úr áli,
um 60 sm langan, um 10 sm i þver-
mál. Smellt lok var á öðrum endan-
um, en hinn á annan hátt útbúinn.
Þegar Skúli ætlaði að taka hlutinn
upp og halda heim með hann, fékk
hann allt i einu hugboð um að láta
hlutinn vera. Smalahundurinn var
greinilega sammála bónda, og lét
það óspart í Ijós, með þvi að reyna að
lokka húsbónda sinn frá þessum
hlut.
Liðu svo margir dagar að bóndi
og hundur áttu leið fram hjá grip
þessum, en hundurinn tók alítaf
stóran sveig framhjá honum, og
reyndi að fá húsbónda sinn til að
gera slíkt hið sama. Ef bóndi
hreyfði við þessum sívalningi leið
hundinum illa, svo að hann lét það
vera.
En þetta fréttist, fleiri komu til,
og ekki er að orðlengja það, sívaln-
ingurinn var tekinn til skoðunar,
annar endinn tekinn úr og kom þá
í Ijós flókinn útbúnaður og
sprengjuhleðsla. Sprengjuefnið
var í nokkuð föstu formi. Það var
skafið, plokkað og kroppað í
hleðsluna, en þá var hundinum
nóg boðið, og hafði sig burt lúpu-
legur. Mannskapnum fannst líka
nóg um sitt athæfi og hætti rann-
sóknum, en taldi að búnaðurinn
væri of vandaður til að vera frá
Rússum, og var ákveðið að láta
Landhelgisgæsluna vita.
Tveir menn frá Gæslunni komu
á staðinn og sögðu heimamönnum
eftir að hafa skoðað sprengjuna,