Morgunblaðið - 09.05.1982, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
„Mig langar ad reyna
fyrir mér erlendis“
Rætt við Agúst Baldursson sem stundar
nám í kvikmyndagerð í Bandaríkjunum
Ágúst Baldursson heitir ungur maöur sem nú stundar nám í kvik-
myndagerð í Bandaríkjunum. Hann kom hingað heim fyrir nokkru í frí,
en heldur utan að nýju er líður á sumarið. Blm. ræddi við Ágúst á
dögunum og spurði hann fyrst hvert upphafið hefði verið að áhuga hans
á þessu sviði.
Ég ætlaði mér alltaf að verða arkítekt
eða verkfræðingur og eyddi miklum tíma
í að teikna hús í gegnum árin, en var þess
utan haldinn mikiili bíódellu. Svo var
það í mái 1978 að hingað kom kvik-
myndagerðarfólk frá BBC til að taka upp
þættina „Ut í óvissuna" þar sem Ragn-
heiður Steindórsdóttir fór með eitt af að-
alhlutverkunum. Ég fékk dálítið starf
hjá Bretunum og þvældist með þeim um
allt land þetta vor og fékk geysilegan
áhuga á kvikmyndagerð og Englend-
ingarnir gáfu mér upp nöfn á skólum í
Englandi og ég var harðákveðinn í að
fara þangað eftir stúdentspróf frá
Versló.
Svo gerðist það árið 1980 að hingað til
lands kemur fólk frá 20th Century Fox-
kvikmyndafélaginu bandaríska og
hyggst taka hér myndina „Quest for
Fire“ (Leitin að eldinum) og ég fékk starf
í sambandi við undirbúning þess í gegn-
um Gísla Gestsson í nokkrar vikur, en
svo fór það fyrir lítið vegna leikaraverk-
falls í Bandaríkjunum. En áður en svo
fór hafði ég þó náð að ræða nokkuð við
kvikmyndagerðarmennina um nám á því
sviði og ákvað í framhaldi af því að halda
til Bandaríkjanna til að iæra þar og sótti
um skólavist og aflaði mér upplýsinga.
Sigurjón Sighvatsson, sem nemur
kvikmyndagerð í Kaliforníu, benti mér
fljótlega á Rochester Institute of
Technology og ég sótti um þar m.a.“
Otrúlega hröð þróun
„Það var hins vegar ekki fyrr en seint
og um síðir sem svör bárust frá skólun-
um og þannig var að daginn áður en ég
hélt utan til náms við University of Col-
umbia sl. haust, þá kom loks jákvætt
svar frá Rochester-skóianum, svo ég hélt
þangað, þar eð sá skóli er talinn standa
mjög framarlega hvað varðar tæknilega
hlið kvikmyndagerðar. Þar að auki er
einnig við þann skóla fjallað töluvert um
myndbandatækni hvers konar og gerð
sjónvarpsefnis auk kvikmynda."
— Hefurðu fengist mikið við kvik-
myndagerð sjálfur?
„Ég eignaðist átta millimetra kvik-
myndatökuvél haustið 1978 og var dálítið
að fást við að búa til myndir, en það gekk
aldrei almennilega upp hjá mér. Ég var
með alltof stórar hugmyndir fyrir þessa
vél. Þá vann ég við að taka upp efni á
myndbönd um eins árs skeið. Það var góð
reynsla.
Myndbandatæknin hefur ýmsa kosti
fram yfir kvikmyndina, en þó held ég
ekki að hún muni taka við af henni alfar-
ið, heldur verði fremur um að ræða ein-
hvers konar samþættingu þessara að-
ferða. Þannig eru til dæmis í notkun
núna vestra kvikmyndatökuvélar sem
taka líka upp á myndband, til að unnt sé
að sjá strax árangur tökunnar, en þurfa
ekki að bíða lengi eftir framköllun á
filmunni. En vissulega eru líka gerðar
góðar myndir einvörðungu á myndbönd.
Þróunin á þessu sviði er ótrúlega hröð.
Kennarar mínir ytra tala um að það sem
við séum að læra í dag geti orðið úrelt
þegar við útskrifumst, ef ekki löngu
fyrr.“
Fimm ára nám
— Hvað er þetta langt nám?
„Þetta eru svona um það bil fimm ár.
Ef allt gengur að óskum fæ ég BA-próf
eftir tvö ár og síðan ætti ég að öðlast
MA-gráðu eftir tvö ár þar á eftir. Það
sem gerir þetta dálítið strembið, er hvað
þetta er dýrt nám. Ég hef sótt um náms-
lán og það mun geta numið mest 3000
dollurum á ári, en skólavistin þarna úti
kostar nærri 10.000 dollara á ári. Það er
því eins gott að halda vel á spöðunum."
— Hvernig fer kennslan fram?
„Námið er tvíþætt. Annars vegar er
Ágúst Baldursson á gangi í Miðbænum.
(Ljósm. Mhl. KAX)
horft á kvikmyndir frá ýmsum tímum og
af ólíkum gerðum og síðan fjallað um
þær, oft í smáatriðum, en hins vegar
gera nemendur svo myndir einir eða með
öðrum. Það eru þá 8 og 16 mm myndir
eða myndabútar. Til dæmis um fyrr-
nefnda þáttinn get ég nefnt að ég skrif-
aði einu sinni tólf blaðsíðna ritgerð um
tveggja mínútna langan kafla í Hitch-
cock-myndinni „Psycho". Þetta voru tvö
morðatriði.
Hvað varðar sjálfa kvikmyndagerðina
þá verður maður sjálfur að kosta slíkt og
það er töluvert dýrt. Kostar allt að 300
dollara að gera eina mynd. En aðstaða er
góð og ókeypis sem og tækjakosturinn.
Kennaraliðið í Rochester er líka mjög
gott. Sem dæmi um tækjakost skólans
get ég nefnt að hann rekur eigin sjón-
varpsstöð."
Læra sem allra mest
— Hvert stefnirðu í framtíðinni?
„Ég hef takmarkaðan áhuga á að
starfa hér á landi, fyrst um sinn alla-
vega. Mig langar meira að reyna fyrir
mér erlendis. En auðvitað kemur maður
hingað fyrr eða síðar. Það er jú mikil
gróska í kvikmyndagerð hér núna og hún
á eflaust eftir að verða enn meiri. Hvað
sem öðru líður vil ég byrja á því að læra
sem allra mest.“
— Er llollywood ennþá miðstöð kvik-
myndaiðnaðarins í sama mæli og áður var?
„Nei, ekki er það nú alveg. Kvikmynda-
gerðin í Bandaríkjunum hefur verið að
færast mikið yfir á austurströndina, til
New York, á síðustu árum. Fólk er orðið
dálítið leitt á þessum eilífu Kaliforníu-
pálmum. Fyrir nokkrum árum var það
talið til tíðinda að meiriháttar kvik-
myndir væru teknar í New York. í því
sambandi má geta þess að Woody Allen
tekur til dæmis allar sínar myndir í New
York.“
— Hefurðu séð einhverjar góðar kvik-
myndir nýlega?
„Já, ég sá einhverja bestu mynd sem ég
hef séð skömmu áður en ég kom heim
núna. Það er vestur-þýska myndin „Das
Boot“, sem lýsir lífinu um borð í þýskum
kafbáti í síðari heimsstyrjöldinni. Þetta
er stórbrotin og áhrifamikil mynd, öld-
ungis frábærlega vel gerð. Þá get ég
nefnt áströlsku myndina „Gallipoli" og
svo „Quest for Fire“ sem átti að taka hér.
Hún er mjög góð.“
— Hvaða álit hefur þú á hingaðkomu
erlendra kvikmyndagerðarmanna?
„Ég tel hana jákvæða, en þó finnst mér
ekki að við eigum að selja landið okkar
sem ódýrt leiksvið fyrir hvern sem er.
Það á að taka gjald af þessum útlending-
um og láta féð renna í sjóð til styrktar
íslenskri kvikmyndagerð. Við verðum að
hlúa að henni meira en nú er gert. Hún á
mikla framtíð fyrir sér.“ SIB
Þakka hjartanlega öllum þeim er minntust mín á sjötugsafmœli mínu þann 16. apríl sl.
I Stórkostleg verðlækkun Ásdís Káradóttir
Farið á heimsmeistarakeppnina í knattspyrnu á Spáni
á japönskum þorsknetum
frá Momoi fishing net Mfg. Ca. í staö áður kynntrar 5% verölækk- unar <í nýútsendum verölista) lækkar veröiö á Momoi-netum
I um C3. 18%. Danske Sportsrejser mun í samvinnu viö Tjæreborg hefja 14 daga feröir til Costa del Sol í júní. Verö D.Kr. 4.735. — Allt innifaliö. Fariö frá Kastrup/Kaupmannahöfn. Dvaliö á 1. flokks hótelum á ströndinni. Fullt fæöi. 3 leikir á íþrótta- leikvanginum í Málaga innifaliö. Biöjiö um upplýsingar hjá: Danske Sportsrejser,
MARCO „r
Mýrargötu 26, | síma 13480 — 15953. Broder Poulsen, Eli Christensensvej 6, DK-7430 Ikast. Sími 07-151760 og 06-962212.