Morgunblaðið - 09.05.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
29
*
Utvarpsráð:
Harðar um-
ræður um
stóriðjuþátt
HARÐAR umraeAur urðu á fundi út-
varpsráðs í gær vegna sjónvarpsþátt-
ar Baldurs Hermannssonar um stór-
iðju, sem sýndur var fyrir skömmu.
Olafur R. Einarsson lagði þar fram
mjög harðorða bókun, þar sem hann
gagnrýndi þáttinn og höfund hans,
en Eiður Guðnason bókaði andmeli
gegn bókun Ólafs.
Sagði Eiður Guðnason í samtali
við Morgunblaðið, að þarna hefði
verið um mjög óvenjulegt athæfi
að ræða. Hann hefði tekið bókun-
ina sem mjög strangar vítur á
stjórnanda þáttarins og hefði því
bókað andmæli gegn henni. Sagð-
ist hann telja umrædda bókun
mjög ómaklega í garð stjórnand-
ans, Baldurs Hermannssonar.
Talsvert var rætt um málið og
sýndist sitt hverjum að sögn
formanns útvarpsráðs, Vilhjálms
Hjálmarssonar, en ekki bókað
frekar um það.
Fundu bátinn
ekki þrátt
fyrir leit
— þyrla Landhelg-
isgæslunnar fann
hann að lokum
SLYSAVARNAFÉLAGINU barst um
niiðjan dag í gær neyðarkall frá
Tjaldi frá Akranesi. Var báturinn
vélarvana og töldu skipverjar sig
vera um 14 mílur vestur af Akranesi.
Gísli Árni gaf sig strax fram til
að fara Tjaldi til hjálpar, en þegar
til átti að taka var ekki með
nokkru móti unnt að finna bátinn.
Slógust fleiri skip með í leitina, en
allt kom fyrir ekki.
Er Gísli Árni hafði samband við
Slysavarnafélagið og skýrði frá
því að ekki tækist að finna bátinn,
var leitað til Landhelgisgæslunn-
ar og þyrla send af stað. Er hún
búin góðum miðunartækjum og
tókst að finna bátinn svo að segja
strax. Var hann talsvert vestar en
skipverjar höfðu talið.
Tjaldur var ekki í neinni hættu
með að sökkva, en allt rafmagn af
skipinu og einhver sjór í vélar-
rúmi. Ekki virðast neyðarblys
hafa verið um borð því skipverjar
notuðu engin.
Sigurfari frá Akranesi tók Tjald
í tog til Akraness undir kvöldið.
Mjallhvít
skrifuð að
undirlagi
djöfulsins?
Texasborg, 8. maí. AP.
FÉLAGAR í fyrstu kirkju
Guðs ætluðu að efna til mikill-
ar brennu, en vegna votviðris
urðu þeir að láta sér nægja að
rífa í tætlur þúsundir bóka,
sem þeir töldu skrifaðar undir
áhrifum djöfulsins. Einnig
tættu þeir myndir ýmiss kon-
ar, sem taldar voru óguðlegar,
og hljómplötur með popptón-
list voru malaðar mélinu
smærra. í hópi bókanna voru
kunnir titlar, svo sem „Sagan
af Mjallhvít", og einn úr hópn-
um sagðist ekki ætla að hleypa
djöflinum inn fyrir sínar dyr
og knúsaði því plötu sína með
tónlistinni úr kvikmyndinni
„Urban Cowboy".
vernda lakkið - varna ryð
Svartir og úr stáli. Hringdu í'síma 44100.og pantáðu, þú færð þér svo
kaffi meðan við setjum þá undir.
\ Sendum einnig í póstkröfu.
ZZJblikkver
Skeljabrekka 4. 200 Kópavogur. Sími 44100
Þegar hugað er að bifreiðakaupum þá er mikilvægt að velja rétt.
BMW 315 er fyrsta skrefið inn í BMW fjölskylduna. Hann er búinn öryggi og
styrkleika stærri gerða BMW bifreiða og er það mikilvægt á okkar erfiðu vegum.
Sjálfstæð fjöðrun á hverju hjóli gerir BM W stöðugri á vegi, enda þekktur fyrir
einstaklega góða aksturseiginleika.
Endursala BMW er auðveld og hægt er að reiða sig á gott endursöluverð.
BMW er valkostur sem vert er að kanna rækilega og ekki skaðar hið
hagstæða verð sem gerir flestum mögulegt að aka um á BMW.
BMW ánægja í akstri.
KRISTINN GUÐNASON HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20 - SÍMI 86633