Morgunblaðið - 09.05.1982, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
Hugsjónamaður
horfist í augu
við veruleikann
I»egar Grikkir leiddu Andreas Papandreu upp í
forsætisráðherrastólinn í októbermánuði síóast-
liönum, héldu margir utan Grikklands niðri í sér
andanum. Sú utanríkisstefna, sem Papandreu
boðaði óspart í kosningabaráttunni, þó einkum og
sér í lagi framan af, að hann ætlaði að fara með
Grikki úr Atlantshafsbandalaginu og Efnahags-
bandalagi Evrópu, vakti víða ugg og kvíða. Innan
Grikklands gegndi öðru máli. ímargar vikur voru
menn í einhvers konar upphöfnu sæluástandi og
PASOK-menn, jafnt sem hófsamir stuðningsmenn
Nýdemókrataflokksins, fögnuöu svo ákaft, að
ýmsir álitu að Grikkland stefndi í áttina til eins
flokks stjórnar um langa framtíð, eða jafnvel eins
manns stjórnar. Töluverð ástæða var fyrir þessum
hugrenningum, ekki sízt má rekja þær til fram-
komu Papandreus í margmenni, hann hefur til að
bera persónutöfra og sannfæringarkraft í mál-
flutningi, sem fáir stjórnmálamenn í Evrópu eru
gæddir í jafn ríkum mæli. En þó að Papandreu sé
fjálgur og mælskur hugsjónamaður, er hann líka
yfirvegaður menntamaður með mikla yfirsýn yfir
málefni Grikklands og hann hefur ágæta skipu-
lagsgáfu. Og það hefur einnig komið á óvart, að
hann hefur ekki haldið aftur af þeim ráðherrum og
áhrifamönnum PASOKS sem hafa látið að sér
kveða, til að vera einn í sviðsljósinu, eins og marg-
ir spáðu.
texti:
JÓHANNA
KRISTJÓNSDÓTTIK
Þegar að kosningunum kom,
þóttust sérfræðingar merkja á
ýmsu, að Papandreu væri að draga
í land varðandi aðildina að Atl-
antshafsbandalaginu og Efna-
hagsbandalagi Evrópu. Enda voru
það ekki þessi mál, sem landar
hans hlustuðu mest eftir og hann
var áreiðanlega ekki kjörinn með
þeim glæsibrag sem atkvæðatöiur
sýndu, vegna þess að hann lofaði
Grikkjum að fara úr þessum
bandalögum. Það eru önnur og
nærtækari og áþreifanlegri mál,
sem brenna á löndum hans. Vegna
dugleysis eða getuleysis stjórnar
Nýdemókrata undir forystu
Georges Rallis var brýnna en orð
fá lýst, að úrbætur yrðu gerðar í
skóla-, heilbrigðis- og atvinnumál-
um og gert átak í umfepðar- og
mengunarmálum stórborga, eink-
um þó Aþenu. Papandreu lofaði
hreytingu og það slagorð féll í frjó-
an jarðveg. Þegar ég var í Grikk-
landi rétt fyrir kosningarnar í
haust, kom það einnig berlega
fram í samtölum við fólk, að það
hafði mestan áhuga á umbótum í
þessum málefnum. Þegar spurt
var um Atiantshafsbandalagið eða
Efnahagsbandalagið, ypptu menn
öxlum og gáfu lítið út á það. Pap-
andreu ræddi þau mál meira við
erlenda blaðamenn en á kosninga-
ferðalögum og við gríska frétta-
menn.
Nú að iiðnu tæplega hálfu ári af
stjórnartíma Papandreus er fróð-
legt að skyggnast um og íhuga,
hvort einhver teikn eru á lofti,
sem benda til breytinga.
Erlendir hlaðamenn eru hrifnir
af dugnaði og útsjónarsemi þeirra
manna, sem Papandreu hefur val-
ið sér til liðs og einkum og sér í
lagi hefur Apostolos Lazaris, ráð-
herra samræmingar (efnahags og
stjórnunar) vakið athygli. Hann
hefur skörulega framkomu og
þykir fljótur að sjá kjarna máls í
hverjum hlut. Fjármálaráðherr-
ann Manolis Drettakis hefur einn-
ig vakið tiltrú fólks og talað tæpi-
tungulaust og það hefur mælzt vel
fyrir eftir hina losaralegu stjórn
undanfarinna ára. Síðan Pap-
andreu komst til valda, hefur
verðlagseftirlit verið hert mjög,
svo og sett á eftirlit með flutn-
ingafyrirtækjum, skipasmíða-
stöðvum og peningastofnunum, án
þess þó að um þjóðnýtingu sé
þarna að ræða. í fyrsta fjárlaga-
frumvarpi stjórnarinnar kom
fram, að tekjuskattur láglauna-
fólks verður lækkaður, en aftur á
móti verður skattstiga breytt, m.a.
til að koma í veg fyrir skattaíviln-
anir sem stórfyrirtæki hafa notið.
Þó svo að veruleg skattalækkun
verði á tekjum láglaunafólks.
munu þessar skattstigabreytingar
hafa í för með sér að tekjur ríkis-
ins af sköttum aukast um alit að
46,1%. Til varnarmála hafa runn-
ið 22 prósent og hækkar sú tala í
27 nú. I fjárlögum kom einnig
fram, að Grikkland fékk 145 millj-
ónir dollara úr sjóðum Efnahags-
bandalags Evrópu á árinu 1981 og
sú áherzla sem lögð er á það atriði
bendir ekki til þess að stefnt sé að
skjótri brottför úr bandalaginu. í
viðtali við Financial Times fyrir
nokkru var Papandreu spurður
þessarar spurningar beint og hann
svaraði meðal annars því til, að
með samningaviðræðum við for-
svarsmenn Efnahagsbandalagsins
síðustu mánuði hefði komið fram,
að þeir skildu sérvandamál
Grikklands og virtust tilbúnir að
koma til móts við þessar sérþarfir
Grikkja. Það gerði aftur að verk-
um, að „við munum geta lifað af
innan Efnahagsbandalagsins".
Sannarlega má af þessu ráða, að
Papandreu uni því bara ljómandi
vel að vera kyrr. Hann bætti því
við, að það yrði auk þess mjög
flókið og kostnaðarsamt, ef ætti
að taka upp viðræður um að
endurskoða aðild Grikkja að EBE
og sér væri til efs, að það væri
mest aðkallandi verkefni nú.
Svo aftur sé vikið að fjárlögum
Grikkja, má benda á, að til félags-
mála verður varið 107,4 milljörð-
um drakma, sem eru 17,2 prósent
heildargjalda og til fræðsiu- og
menntamála hækka framlög um
tuttugu prósent frá fyrra ári.
Verðbólga í Grikklandi er nú um
25 prósent og þar er verulegt at-
vinnuleysi. Auk þessara vanda-
mála kemur og til annað sem
skiptir marga sköpum, en það er
hallarekstur smáfyrirtækja og eru
skiptar skoðanir um hversu miklu
skuli varið til að hlúa að þeim.
Og á meðan hinn gríski borgari
bíður átekta og er reiðubúinn að
taka þátt í að efla hag Grikklands,
velta erlendir stjórnmálafræð-
ingar fyrir sér, hvernig Papandreu
ætli að snúa sér í málefnum Atl-
antshafsbandalagsins, eftir stór-
yrðin áður og fyrrum. Hafi nokkur
velkzt í vafa, mun sá sami þó
vær.tanlega hafa séð eftir að við-
talið bi*tist við hann í Financial
Times, og áður er nefnt, að það
verður líklega meiri bið á því að
Grikkir fari úr NATO en að breyt-
ingar verði í innanlandsmálunum.
Blaðamaður Financial Times
minnti Papandreu í þessu viðtali á
að fyrir fjórum árum hefði hann
fullyrt, að hann myndi umsvifa-
laust draga Grikki úr NATO, þeg-
ar og ef hann kæmist i valdastól.
Hvað hygðist hann nú gera í mál-
inu? Papandreu sagði þá m.a.: „Ég
geri mjög afdráttarlausan grein-
armun milli þeirra grundvallar-
hugmynda, sem PASOK-hreyfing-
in byggir á og ég er í forsvari
fyrir, og fyrirliggjandi stefnu sem
ríkisstjórnin fylgir og hefur
ákveðið raunsæi að leiðarljósi.
Sem sósíalísk hreyfing hneigist
PASOK að détente og afvopnun og
við erum ekki reiðubúin að sam-
þykkja sem óumbreytanlega fram-
tíðarsýn, að tvö hernaðarbanda-
lög, Varsjárbandalagið og Atl-
antshafsbandalagið skipti milli
sín heiminum. En kjarni málsins
alls eru hagsmunir grísku þjóðar-
heildarinnar. Þá munum við setja
ofar hagsmunum Atlantshafs-
bandalagins, ef til kemur. Við
verðum því að leggja fyrir okkur
þá spurningu og svara henni síð-
an, hvort Atlantshafsbandalagið
dugi til að tryggja öryggi okkar.
Grikkir hafa ekki orðið varir við
neina ógnun úr norðurátt, nema
síður sé. Samskipti okkar við Atl-
antshafsbandalagið verða því
Frá Syntagma
Margaret Pap-
andreu forsætisráð-
herrafrú er vinsæl
með Grikkjum og
hefur komið víða
fram síðan maður
hennar tók við for-
sætisráðherrastarf.
Hér skemmta þær
sér dátt saman, hún
og menntamálaráð-
herrann Melina
Mercouri.
Lazaris hefur sagt, að þau fyrir-
tæki, sem þurfa aðeins á nýjum
tækjabúnaði að halda til að geta
fleytt sér áfram, skuli styrkt, þ.e.
með hagstæðum lánum og fleiru,
en hann telur ýmis vandkvæði á
að öll litlu og miðlungsstóru fjöl-
skyldufyrirtækin verði reist við.
En Grikkir bíða nú sæmilega
rólegir eftir því að sjá, hvernig
stjórninni verður ágengt í þeim
umbótum innanlands, sem var
heitið í kosningabaráttunni. Þó
svo að þolinmæði og umburðar-
lyndi sé ekki beinlínis þjóðarein-
kenni þar um slóðir, gera menn
sér grein fyrir því, að ekki verður
breyting á öllu í einu vetfangi. En
meðan Papandreu nýtur áfram
jafn mikilla persónuvinsælda og
óskoraðs trausts, svo og þeir menn
sem hann hefur í kringum sig,
sýnir hinn almenni Grikki biðlund
enn um hríð.
ákveðin með hliðsjón af því, hvað
þjónar hagsmunum grísku þjóðar-
innar. Ég fæ ekki séð, hvernig það
getur verið okkur til hagsbóta að
Atlantshafsbandalagið búi Tyrki
vopnum, þvi að það hlýtur að
grafa undan stöðugleika og auka
hættu á átökum."
„Þýðir þetta, að áframhaldandi
aðild Grikkja að Atlantshafs-
bandalaginu sé undir því komin,
hvernig bandalagið leysir þetta
vandamál?" spurði blaðamaðurinn
og fékk svarið: „Ég ímynda mér
það.“ „Þýðir þetta já eða nei,“
spurði blaðamaðurinn og svarið
var: „Ég ímynda mér það.“
Það mætti kannski ætla, að
Papandreu hefði verið nýkominn
frá Delfi, þegar hann veitti viðtal-
ið. En kannski er ástæðan ein-
faldlega sú, að hugsjónamaðurinn
Papandreu er farinn að horfast í
augu við veruleikann.