Morgunblaðið - 09.05.1982, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
33
Guömundur Hallvarðsson, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur:
Sjómenn snúi bökum saman og
komi í veg fyrir pólitísk hrossakaup
„VIÐ VERÐUM að leggja
meiri áherzlu á sölu okkar
afurða og snúa þeirri óheilla-
þróun við sem nú er, að að-
eins um 800 manns vinna við
sölu útflutningsafurða okkar,
en 8.000 manns við innflutn-
ing.“ þannig komst Guð-
mundur Hallvarðsson, for-
maður Sjómannafélags
Reykjavíkur, meöal annars
að orði í ræðu, sem hann
flutti á útifundi 1. maí í
Keflavík.
I ræðu sinni sagði Guðmundur
meðal annars:
Alvarlegt ástand hefur nú skap-
ast í íslensku efnahagslífi við hrun
loðnustofnsins, fyrir verkamenn
og fyrir sjómenn. Vissulega verður
að finna loðnufiotanum verkefni
og í sjálfu sér ekki óeðlilegt þótt
þorskveiðar hafi verið fyrsta
tímabundna lausnin sem gripið
var til í annars þegar takmörkuð-
um þorskkvóta á þau of mörgu
skip, sem fyrir voru við þessar
veiðar.
En þar við er ekki látið sitja og
enn eru flutt inn skip til þorsk-
Kvennafram-
boðin 1908—1926
Ný bók eftir Auði
Styrkársdóttur
ÍIT ER komin bókin „Kvennafram-
boðin 1908—1926“, eftir Auði Styrk-
ársdóttur, en bókin er gefin út af Fé-
lagsvísindadeild Háskóla íslands í
samvinnu við bókaútgáfu Arnar og
Örlygs. Bókin, sem er 80 blaðsíður að
stærð, er áttunda ritið i röð um ís-
lensk þjóðfélagsfræði.
Bók Auðar skiptist í fjóra megin
kafla. í 1. kafla er fjallað um þjóð-
félagsgerðina 1900 til 1930, 2. kafli
er helgaður samtökum kvenna, í 3.
kafla er framboðshreyfing kvenna
tekin fyrir, og í 4. kafla er skrifað
um forvígiskonur framboðshreyf-
ingarinnar.
I formála sínum að bókinni segir
höfundur svo meðal annars: „Rit
þetta fjallar um kvennahreyfingar
á íslandi frá árinu 1870, er fyrstu
kvenfélögin voru stofnuð, til ársins
1926, þegar siðasta kvennaframboð-
ið í kosningum kom fram. Stjórn-
málahreyfing kvenna, sem lét mikið
að sér kveða á árabilinu 1908—1926,
er tekin sérstaklega fyrir, stétt-
argrunnur hennar, hugmyndafræði,
kröfur og endalok. Reynt er að sýna
fram á þau félagslegu skilyrði sem
hreyfingin þreifst við og hvað olli
því að hún varð ekki langlífari en
raun bar vitni."
Hannes Gissurarson
fær NATO-styrk
HANNES H. Gissurarson sagnfræð-
ingur hefur hlotið styrk úr fræði-
mannasjóði Atlantshafsbandalags-
ins, til rannsókna og ritunar um efn-
ið „Viðhorf og mat á hinni sovésku
ógnun", (l'erceptions of the Soviet
Threat). Styrkurinn miðast við árin
1982 til 1983 og nemur samtals 130
þúsund belgískum frönkum, eða
rösklega 31 þúsundi íslenskra
króna.
Auk Hannesar llólmstcins fengu
fjórtán einstaklingar styrk úr sjóðn-
um að þessu sinni, fólk frá Belgíu,
Kanada, Danmörku, Frakklandi,
V-I>ýskalandi, Ítalíu, Noregi, Tyrk-
landi, Bretlandi og Bandaríkjunum.
11,68% hækkun
hafnargjalda
Samgönguráðuneytið hefur stað-
fest 11,68% hækkun á gildandi
gjaldskrám flestra hafnarsjóða um
landið og hefur hækkunin þegar tek-
ið gildi.
veiða, ný skip — gömul skip. Ekki
er óeðlilegt þótt fiskiskipaflotinn
sé endurnýjaður án stækkunar
með nýsmíði hér innanlands eða
erlendis, en kaup á gömlum ryð-
döllum erlendis frá er hreinasta
forsmán. Pólitísk hrossakaup,
blekkingar og atkvæðaveiðar eru
stundaðar við kaup þessara ryð-
dalla hingað til landsins.
Vegna vanhæfni og vanbúnaðar
þessara skipa versnar aðbúnaður
áhafnar, vinnuálagið eykst um
borð og slysatilfellum fjölgar. Ég
vona að sjómenn og samtök þeirra
fari nú að snúa bökum saman og
taki þannig á málum, að enginn
sjómaður ráði sig til starfa um
borð í þessi skip.
En talandi um stækkun fiski-
skipaflotans og minnkandi veiði-
kvóta á skip, er rétt að minna á þá
kjaraskerðingu, sem sjómenn hafa
orðið fyrir umfram aðra launþega
vegna hlutfallslega lækkandi fisk-
verðs, sem þó hefur ekki borið
mikið á tekjulega séð allt fram á
síðasta ár, vegna aflaaukningar á
skip. Nú þegar er það staðreynd að
togarasjómenn fara ekki að sama
skapi í frí og áður, menn bæta við
sig snúning, það verður lengra og
erfiðara úthald, og að lokum fara
menn að horfa til lands í atvinnu-
leit, en hvað þá með mönnum
fiskiskipaflotans og hvað þá með
undirstöðuatvinnuveg þjóðarinn-
ar?
Athyglisvert er, þegar þróun at-
vinnumála hér á landi er skoðuð
frá árinu 1963—1979 að bera sam-
an fjölda starfsmanna við fisk-
veiðar og fiskvinnslu annars vegar
og fjölda þeirra er störfuðu við
hvers konar þjónustustörf og við
banka og tryggingar.
Vinnufærir menn
i landinu
Uð fiskveiðar oj 1963 1979
fiskiðnað um 16% um 14%
Bankar og
fygRingar um 2% um 5%
hjónusla um 10% um 24%
Heldur fækkar þeim er undir-
stöðuatvinnuvegina stunda og með
ólíkindum kalla þjónustugreinar á
sífellt fleira fólk. En getur sjávar-
útvegurinn einn staðið undir meg-
inhluta gjaldeyristekna þjóðar-
innar?
Það hlýtur hverjum manni að
vera ljóst, að enn þarf að auka
frekari vinnslu sjávarafurða
innanlands, um 2.000 nýir ein-
staklingar bætast á vinnumarkað-
inn að meðaltali á ári hverju
næstu árin. Við verðum að skapa
þeim tækifæri jafnframt því, sem
við verðum að leggja meiri áherslu
á sölu okkar afurða og snúa þeirri
óheillaþróun við sem nú er, að að-
eins um 800 manns vinna við söl-
uútflutning afurða okkar, en 8.000
manns við innflutning.