Morgunblaðið - 09.05.1982, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
ísfélag
Vestmannaeyja
80 ára
ísfélag Vestmannaeyja er 80
ára um þessar mundir. Hluta-
félagið er stofnað í desember
1901 og er, að því er forráða-
menn þess telja, elzta starf-
andi hlutafélag á landinu. ís-
félag Vestmannaeyja keypti
fyrst til landsins frystivélar,
þannig aö frystihúsið er hið
elzta sem starfrækt er á ís-
landi.
í tilefni af afmælinu efndi
stjórn ísfélagins til blaða-
mannafundar um síðustu
helgi. Að kvöldi 30. apríl var
öllu starfsfólki fyrirtækisins
boðið til kvöldverðar sem
haldin var í Bíóhöllinni.
Á blaðamannafundinum skýrði
Björn Guðmundsson, stjórnarfor-
maður ísféiags Vestmannaeyja,
frá því að í tilefni af afmælinu
gæfi fyrirtækið eftirtaldar gjafir:
10 þúsund krónur til Hjálparsveit-
ar skáta, 10 þúsund kr. til Björg-
unarfélags Vestmannaeyja, 10
þúsund kr. til minnisvarða um
Oddgeir Kristjánsson, tónskáld, 5
þúsund kr. til Vélskólans í Eyjum,
5 þúsund kr. til Stýrimannaskól-
ans, 5 þúsund kr. til verndaðs
vinnustaðar í Eyjum og 10 þúsund
kr. til Hallgrímskirkju í Reykja-
vik.
Björn Guðmundsson sagði að
einhverjum kynni að koma það
spánskt fyrir sjónir að ísfélag
Vestmannaeyja væri að gefa fé til
kirkjubyggingar í Reykjavík, en
skýringin væri sú, að stjórn Isfé-
lagsins væri þeirrar skoðunar að
Hallgrímskirkja væri þjóðartákn
og því stæði það landsmönnum
öllum jafnnærri að stuðla að því
að byggingu hennar lyki svo flótt
sem auðið væri. Þá mætti minnast
Stjórnendur ísfélags Vestmannaeyja, Björn Guðmundsson stjórnarformaður, og forstjórarnir Eyjólfur Martinsson og
Einar Sigurjónsson.
Úr frystihúsi ísfélagsins.
þess að sú kona, sem ætla mætti
að hefði ekki haft lítil áhrif á líf
og starf sálmaskáldsins, hefði ver-
ið fædd og uppalin í Vestmanna-
eyjum.
Um 200 manns starfa nú hjá ís-
félagi Vestmannaeyja. Hjá stjórn-
endum fyrirtækisins kom fram, að
í aprílmánuði hafi meðalvikukaup
á mann numið um 4.500 krónum,
en þess ber að geta, að í þeim
mánuði var unnin allmikil yfir- og
helgidagavinna. Á árinu 1981 voru
launagreiðslur fyrirtækisins á
sextándu milljón króna, en vertíð-
in J)á var bezta vertíð í tuttugu ár.
Isfélag Vestmannaeyja hefur
fest kaup á tveimur pólskum bát-
um, sem smíðaðir verða í skipa-
smíðastöðinni í Gdansk, og eru
þeir væntanlegir hingað í árslok
1983.
Á fundinum var spurt hvort það
væri rétt að rekstur tsfélagsins
bæri sig miklu betur en rekstur
annarra frystihúsa í Eyjum og ef
svo væri hvernig á því stæði.
Björn Guðmundsson sagði að
það væri rétt að lausafjárstaða ís-
félags Vestmapnaeyja væri yfir-
leitt betri en hjá sambærilegum
fyrirtækjum á staðnum og væri
skýringin án efa sú, að alltaf hefði
verið farið með löndum varðandi
1 Ji
■ -*• JM
k v j
j' í Á f Jy Á jmk/ ‘ ‘r /■ .
jp:Í >f - ^ —— - ' m