Morgunblaðið - 09.05.1982, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
39
arlíf frá því á 19. öld og kannski
lengur. Þar höfðu orðið miklar
framfarir í búskap og byggingum.
Heimavistarskólinn á Flúðum,
sem Ingimar tók við stjórn á, var
með þeim fyrstu sinnar tegundar í
landinu. Leikstarfsemi og söng-
mennt hafði lengi staðið þar með
blóma. Á Landsmóti UMFÍ að
Laugarvatni 1965 flutti Umf.
Hrunamanna sögulegan þátt um
Áshildarmýrarsamþykktina eftir
sr. Sigurð í Holti. Sýning þessi fór
fram úti, í dýrðlegu verði, og tókst
með miklum ágætum. Þótt liðin
væru tæp 30 ár frá því Ingimar
hvarf frá Flúðum, var hann samt
fenginn til að taka að sér eitt
stærsta hlutverkið í leik þessum
og fórst það með afbrigðum vel.
Við ýmis tækifæri var Ingimar
kallaður austur að Flúðum við
gagnkvæma ánægju. Flutti þar oft
snilldarræður, lítt undirbúinn, en
yljaði fólkinu jafnan um hjarta-
rætur.
Sama gerðist á Eyrarbakka.
Hann var oft kallaður þangað við
ýmis tækifæri og jafnan mikill
aufúsugestur. Hin síðari ár kom
hann af og til á samkomur fyrir
eldri borgara. Flutti þar ýmsar
frásagnir og endurminningar, tal-
aði við gamla fólkið af mikilli
andagift og átti allan hug þess.
Lengi starfaði hann einnig í Eyr-
bekkingafélaginu í Reykjavík. Þar
kunni hann vel við sig meðal gam-
alla nemenda og vina.
Enn vil ég geta tveggja atriða,
sem bera manngildi og tryggð
Ingimars fagurt vitni. Á seinni ár-
um gerði hann mikið af því að
skrifa greinar um látna samtíð-
armenn, sem voru honum hug-
stæðir. Blaðagreinar þessar
myndu fylla stóra bók, ef þær
væru teknar saman. Þær voru
frábærlega vel og smekklega
skrifaðar og því ágætar samtíð-
arheimildir. Eru mér margar af
þessum greinum Ingimars mjög
minnisstæðar og mun svo um
ýmsa aðra. Þarna liggur eftir
hann mikið starf og vel unnið.
Þegar náinn vinur og sam-
starfsmaður Ingimars, Aðalsteinn
Sigmundsson kennari, drukknaði
16. apríl 1943, aðeins 45 ára að
aldri, og varð öllum harmdauði er
hann þekktu, stofnaði UMFÍ
minningarsjóð um Aðalstein, sem
hafði það hlutverk að styrkja efni-
lega félagsmenn til náms. Margir
gáfu í sjóð þennan í upphafi, en
verðbólgan hefur leikið hann
grátt, sem marga aðra sjóði, svo
minna hefur orðið úr störfum, en
til var ætlast. Ingimar hefur verið
formaður sjóðsstjórnar frá upp-
hafi og borið hag sjóðsins mjög
fyrir brjósti, enda var honum
minningin um Aðalstein dýrmæt
og kær. Hann hefur eflt sjóðinn
með minningargjöfum um fjölda
samferðamanna sinna og nánustu
vandamanna. Þetta ber óeigin-
girni og trygglyndi hans gott
vitni.
Eyrarbakki var fagurt nafn í
huga Ingimars og rætur hans
sterkar við þann stað. Þar hóf
hann lífsstarf sitt, í félagi við af-
burða kennara, sem lengi mun
halda nafni hans á lofti. En fyrst
og fremst var bjart um Eyrar-
bakka í huga Ingimars, því þar
kynntist hann konu sinni, Sól-
veigu Guðmundsdóttur frá Stóru-
Háeyri, glæsilegri og elskulegri
konu, sem var honum hjartfólginn
lífsförunautur í tæp 50 ár. Á Eyr-
arbakka fæðast þrjú elstu börnin
hans: Sigríður, Sólveig og Guð-
mundur og það fjórða, Ásgerður,
fyrsta veturinn hans á Flúðum.
Öll börnin hans hafa veitt honum
mikla lífshamingju, svo og börn
þeirra, sem eru 21 að tölu.
Ég hygg að við sem áttum því
láni að fagna að alast upp á Eyr-
arbakka og vera þar í barnaskóla
ekki máli, hvort hún vann fyrir
sjálfa sig eða aðra. Hún var mjög
heilsuhraust mestan hluta ævi
sinnar og þrek hennar óvenjumik-
ið, svo margir karlmenn hefðu
mátt þakka fyrir að hafa aðra eins
krafta i kögglum, eigi að síður gat
hún innt af hendi hin fíngerðustu
störf, svo sem útsaum, hekl og
prjón. Hún eignaðist prjónavél á
SÍRum fyrstu búskaparárum og
drýgði tekjur heimilisins með því
að prjóna fyrir aðra, slík atvinnu-
tæki voru sjaldgæf í þá daga.
Mikið yndi hafði hún af öllum
jarðargróðri og heimili sitt prýddi
hún með fögrum blómum. Þá átti
hún við hús sitt fallegan skrúð-
garð, sem hún hirti með ná-
kvæmni og í þessuir. garði undi
hun mörgum stundum. Þangað
flutti hún sjaldgæfar plöntur,
hlúði að þeim og kom til þroska.
Steinunn naut virðingar og
vinsemdar allra er henni kynnt-
ust. Hún reyndi eftir bestu getu að
leysa vanda þeirra er til hennar
leituðu og ekki síst barnanna. Hún
var ekki með blíðmælgi á vörum,
hafði ákveðnar skoðanir á málum
og sagði jafnan meiningu sína við
hvern sem í hlut átti. Skylduliði
sínu var hún ástrík og umhyggju-
söm og jafnan reiðubúin að rétta
hjálparhönd, ef á þurfti að halda.
Eftir að Steinunn fluttist úr
sínu eigin húsi, var hún um tíma
hjá Hrefnu, dóttur sinni, en síð-
ustu árin dvaldi hún á elliheimil-
inu á Blönduósi og var hún þá
hætt að fylgjast með umsvifum
þessa heims. Þar lést hún 6. apríl
sl. Útför hennar fór frarn frá
Hólaneskirkio. ivíargir fylgdu
her.m síðasta spölinn.
Hún trúði því, að þegar hennar
jarðneska lífi lyki myndi hún hitta
fyrir ástvini sína, sem á undan
voru farnir. Ég vil kveðja hana
með ósk um að trú hennar hafi
ræst.
Jón Benediktsson, Höfnum.
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga:
Heildarveltan 238 milljónir á
síðasta ári og jókst um rúm 60%
KAUPFÉLAG Austur-Skaftfellinga hélt aðalfund sinn sunnudaginn 2. maí
síðastliðinn. Stjórnarformaður félagsins, Birnir Bjarnason og kaupfélags-
stjórinn, Hermann Hansson, fluttu skýrslur um hag og rekstur félagsins á
síðastliðnu ári.
I máli þeirra kom fram, að
heildarvelta félagsins var á síðast-
liðnu ári 238.190.000 krónur og
hafði aukizt um rúm 60% frá ár-
inu 1980. Tekjuafgangur til ráð-
stöfunar á aðalfundi var 3.487.000
krónur, eftir afskriftir eigna krón-
ur 7.487.000, en fjármunamyndun í
rekstrinum varð 5.394.000 krónur.
Framleiðsluverðmæti sjávaraf-
urða á vegum félagsins nam 110
milljónum króna og hafði aukizt
um 66,6% frá árinu 1980. Samtals
var móttekið hráefni til fisk-
vinnslu 15.672 lestir og hefur
aldrei verið meira í sögu félagsins.
Mikil aukning varð í framleiðslu
saltfisks og skreiðar, en fram-
leiðsla frystra afurða um það bil
sú sama og árið 1980. Vörusala
verzlana félagsins nam 69 milljón-
um og jókst frá fyrra ári um 57%.
í sláturhúsum félagsins var slátr-
að 33.714 kindum og innvegið
mjólkurmagn í mjólkursamlag
þess nam tæplega 1,6 milljónum
lítra. Heildar launagreiðslur
námu 34,7 milljónum króna og að
meðaltali voru 377 manns á launa-
skrá.
Aðalfundurinn samþykkti að út-
hluta 627.000 krónum af tekjuaf-
gangi í stofnsjóð félagsmanna og
260.000 til ýmissa menningar- og
líknarmála. Tveir stjórnarmenn,
Birnir Bjarnason, Höfn, og
Þrúðmar Sigurðsson, Miðfelli,
höfðu lokið kjörtíma sínum og
voru þeir báðir endurkjörnir.
á áratugnum 1919—1929, munum
minnast kennaranna okkar með
sérstöku þakklæti og virðingu
ævina út. Og þótt hópurinn hafi
grisjast með árunum, gleymast
ekki gamlar velgjörðir. Þegar
Ingimar varð 90 ára þann 13. nóv.
sl. beitti einn af hinum trygglyndu
nemendum hans, Lárus Blöndal
bóksali í Reykjavík, sér fyrir fjár-
söfnun meðal gamalla nemenda af
Eyrarbakka, en jafnframt bættust
í hópinn margir aðrir vinir og
samferðamenn Ingimars, til
kaupa á bresku alfræðiorðabók-
inni, Encyclopædia Britannica,
handa barnaskólanum á Eyrar-
bakka í tilefni af 90 ára afmæli
Ingimars. Var vel til fundið að
slíkur minnisvarði skyldi reistur
um Ingimar á þeim stað. Var þetta
gert í fullu samráði við hann og
honum til mikillar gleði. Er það
von okkar allra, sem að þessu
stóðum, að skólanum sé að þessu
nokkur fengur.
Aldamótamenn er fagurt orð,
sem borið hefur birtu í líf síðari
kynslóða og mun gera enn um
hríð. Að lokinni útför Ingimars
hitti ég einn af aldamótamönnun-
um, merkismanninn Helga á
Hrafnkelsstöðum. Hann gaukaði
að mér þessari vísu, sam hann
sagði að Ingimar hefði fengið
senda á 80 ára afmæli sínu:
„Ævi langa Ingimar
ödrum fremur búinn var,
edliskostum í.slenskrar.
aldamotakynsloÁar."
Helgi taldi vísuna bæði vel
gerða og sannmæli. Tek ég undir
það.
Það var birta og fegurð vorsins
yfir útför Ingimars, eins og öllu
lífi hans og störfum. Sr. Eiríkur J.
Eiríksson, fyrrv. prófastur á Þing-
völlum og einn af nemendum
hans, flutti veglega minningar-
ræðu og jarðsöng. Mikið fjölmenni
mætti við útförina, svo sjaldgæft
er þegar í hlut á maður, sem kom-
inn var á þennan aldur. Sýndi það
Ijóslega, hver ítök hann átti í hug-
um samferðamanna sinna. Hygg
ég að sá mannfjöldi, ásamt mörg-
um öðrum, sem Ingimar þekktu,
taki undir með norska stórskáld-
inu og segi: „Þar sem góðir menn
fara, eru guðs vegir."
Dan. Ágústínusson
Fjáröflunar-
dagur Hraunprýði
á þriðjudag
Slysavarnadeildin „Hraun-
prýði", Hafnarfirði, heldur sinn
árlega fjáröflunardag þriðjudag-
inn 11. mai. Kaffisala verður í
húsi félagsins að Hjallahrauni 9, -
og Snekkjunni frá kl. 15.00 til
22.00.
Konur, sem hugsa sér að gefa
kökur, komi þeim í húsið fyrir há-
degi. Þá er vinnuhópum bent á að
panta fyrir hádegi.
Merki deildarinnar verða seld
að venju og fer afhending þeirra
fram í Bæjarbíói kl. 9.00.
1 Innréttíng i Ascona Berlina 2 Mœlaborð með amp-hlta eyðslu og snuningshraðamœlum 3 Ascona 4 dyra Berlina
Hafir þú aldrei sezt undir stýri d
þessum bíl, fœrð þú líklega aldrei
skilið hvaða kostir fylgja
skynsamlegri hönnun.
í Ascona erm.a.:
Glœsilegl óklœðí á sœtum og góllteppi í viðeigandi lit. 2ja hraða rúðuþurkur með biðtíma, 3ja
hraða hitablásari, teppalögð farangursgeymsla. halogen aðalljós. litað öryggisgler. kvartsklukka,
viðvörunarljós fyrir aðalljós. rúðuþurka/sprauta á afturrúðu í 5 áyra bílnum. sportfelgur. sérstaklega
styrk íjöðrun fyrir islenzka vegi o.m.fl.
^ VÉLADEILD SAMBANDSINS
Ármúla 3 Reykjavík MÚLAMEGIN) Sími38900