Morgunblaðið - 09.05.1982, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
41
hans njóta sín hvað best í gaman-
sömum hlutverkum. Hins vegar
sýnist mér einsætt, að Guðbjörgu
Thoroddsen láti ennþá mun betur
að túlka alvarleg hlutverk. Henni
hættir til að ofleika í skopleikjum
og sú innlifun, sem hún sýnir í
ríkum mæli, þegar kemur til al-
vörunnar, virðist fokin út í veður
og vind, eins og fram kemur í hlut-
verki Maríu Antonovnu, dóttur
borgarstjórahjónanna. Auðvitað
er til þess ætlast, að sterkt sé leik-
ið í þessu tilviki, en má alls ekki
ganga lengra en hjá öðrum á svið-
inu. Guðlaug Hermannsdóttir fer
vel með hlutverk Önnu bæjar-
stjórafrúar. Hún hefur næman
skilning á verki Gogols og svip-
undar og leikstjóra tvo nafnbóta-
lausa herra og reynir nokkuð á þá,
en hvorugum fatast á prófinu.
Sem fyrr getur hefur Ivan Török
unnið gott verk við hönnun leik-
myndar og búninga og David
Walters hefur áður á liðnum vetri
sýnt okkur og sannað, hversu
miklu listræn ljósabeiting fær
áorkað. Honum bregst ekki boga-
listin hér og er augljóst, hye stór-
an þátt hann og Török eiga í vönd-
uðum ytra búnaði sýningar og
tónlist Gunnars Reynis Sveinsson-
ar stingur þar ekki í stúf. Leik-
stjórarnir, Guðrún Ásmundsdóttir
og Ásdís Skúladóttir hafa unnið af
vandvirkni við uppsetningu þess-
arar litríku sýningar.
Maria Antovovna (Guðbjörg Thoroddsen) og Anna Andrejevna (Guðlaug
Hermannsdóttir).
brigði hennar, framsögn og lát-
bragð einkennast af agaðri ná-
kvæmni. Það sama má segja um
leik Andrésar Sigurvinssonar í
tveim hlutverkum. Hann leikur
þjón Hlestakovs, Osip, og drykk-
felldan póstmeistara og má ekki á
milli sjá hvorum hann gerir betri
skil. Þröstur Guðbjartsson, Heim-
ir Ingimarsson og Jónsteinn Aðal-
steinsson leika aðra lagsmenn
borgarstjórans og er samleikur
þeirra einkar góður. Vera má, að
meiri áherslu hefði mátt leggja á
séreinkenni hvers um sig, en sem
fyrr getur er það veigamikill þátt-
ur í skáldskap Gogols að sýna fjöl-
breyttar manngerðir. Sunna Borg
bregður sér í gerfi tveggja ólíkra
kvenna og kann sem fyrr vel til
verka. Sömu sögu er að segja um
Ingibjörgu Björnsdóttur. Þeir
Marinó Þorsteinsson og Theodór
Júlíusson leika auk leikritahöf-
Það er rússneskt ár hjá Leikfé-
lagi Akureyrar, enda af ýmsu að
taka úr þeirri átt fyrir leikhús,
sem hefur á að skipa hæfu og
áhugasömu fólki. Ljóst er, að ekki
er unnt að sniðganga Nikolaj Gog-
ol, þegar kynna á rússneskar
leikbókmenntir. Hann var þegar á
skólaárunum nefndur dularfulli
drengurinn. Og enn þann dag í dag
eru skapgerð hans og ritverk talin
ærið leyndardómsfull og ber
mönnum engan veginn saman um,
hvernig hann skal metinn. Flestir
samtímamenn hans litu á hann
sem raunsæisskáld, sem miskunn-
arlaust svipti hulunni af ástand-
inu í Rússlandi keisaratímans. Af
þeim skilningi spratt fram hið
sérstæða rússneska raunsæi. Eg
hygg að sýning sú, sem hér er um
fjallað, beri fremur svip vestræns
skilnings á skáldinu. Er annars að
vænta?
Frelsisöfl sameinast
Kawalpindi, 3. maí. Al’.
SJÖ afganskar frelsissveitir til-
kynntu í dag, að þær hefóu samein-
azt í eina breiðfylkingu er hefði það
að markmiði að koma sovézka inn-
rásarhernum burt af afgönsku landi
og að stofna islamskt lýðveldi í Afg-
anistan.
„Við munum aldrei gefast upp
fyrir Rússum," sagði Abdur Rab
Rasul Sayaf, forseti frelsisfylk-
ingarinnar, „ef þörf gerist, mun-
um við berjast til síðasta blóð-
dropa."
Afganskar frelsissveitir hafa
hingað til ekki lotið einni stjórn,
heldur verið margar misjafnlega
fjölmennar sveitir skyldmenna.
Gerðar hafa verið margar árang-
urslausar tilraunir til að sameina
frelsisöflin undir eina stjórn.
Fróðir menn spá því að þessi síð-
asta tilraun sé líklegri til að
heppnast en þær fyrri, þar sem
frelsisöflin hafa kosið sér leiðtoga.
Sayaf sagði rúmlega 200 þúsund
vopnaða uppreisnarmenn undir
sinni stjórn. Höfuðstöðvar sam-
takanna verða í Pesmawar í Pak-
istan.
Að sögn diplómata hafa átök
blossað upp að nýju eftir vetr-
arhlé. Hefði komið til átaka upp á
síðkastið í Kabúl og næsta ná-
grenni, einnig við Kandahar, sem
sögð er hafa verið jöfnuð við jörðu
að hálfu leyti. Einnig hefðu frels-
issveitir gert hverja árásina af
annarri á Bagram-flugvöllinn,
þann stærsta í Afganistan, og
eyðilagt þar að minnsta kosti 25
MiG-orrustuþotur og 13 þyrlur á
síðustu vikum.
t
Útför
OR. KRISTINS GUOMUNDSSONAR,
fyrrverandi sendíherra,
Grettisgötu 96,
fer fram frá Dómkirkjunni þriöjudaginn 11. maí kl. 15.00.
Vilhjálmur Arnarson, Brynhildur Björnsdóttir,
Anni Hedemark.
Svartlist Gunnlaugs Asgeirssonar
Myndlist
Bragi Ásgeirsson
Kornungur maður, er stundað
hefur nám í grafik-deild Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands,
Gunnlaugur Ásgeirsson að nafni,
heldur um þessar mundir sína
fyrstu sýningu, sem er til húsa í
Nýja galleriinu að Laugavegi 12.
Meginhluti myndanna á sýn-
ingunni samanstendur af krít-
arteikningum, en einnig eru þar
nokkrar málmgrafíkmyndir og
tvær myndir í lit. í myndum
Gunnlaugs kemur greinilega
fram, að hann er enn á frum-
þroskabraut í myndlist og í ljósi
þess verður að viðurkennast, að
hann er full snemma á ferðinni
með sjálfstæða sýningu. Gunn-
laugur getur teiknað laglegar
myndir og hann er ennþá mest
sannfærandi í þeim myndum er
hann teiknar blátt áfram eftir
ákveðnum fyrirmyndum eins og
t.d. í teikningunum „Agga“ (1)
og „Sjálfsmynd" (2). Einkum er
sjálfsmyndin kröftug í útfærslu.
Myndir hins frjálsa hugar-
flugs eru ennþá ekki nægilega
sannfærandi í tjákrafti sínum
jafnframt því sem að átök við
efniviðinn eru í máttlausara
lagi. Helst staðnæmist maður
við myndir svo sem „Undrun
Venusar" (10) og „I túninu
heirna" (11) en báðar eru þær
myndir ágætlega erótískar og
um leið upplifaðri í útfærslu.
Litmyndirnar „Alt for Dam-
erne“ (21) og „Alt for Herrene"
(22) minna um sumt á nýbylgj-
una í málaralist en eru ekki
nægilega sannfærandi — lausar
í sér, bæði í formi og lit.
I heild er þetta ekki frumraun
mikilla átaka en laglega farið að
hlutunum og í ljósi þess er engu
hægt að spá um framtíðina — en
hinni ungu listspíru fylgja bestu
óskir þess er hér ritar.
„piS iYÖ' alW '
ORKUBÓT
LÍKAMSRÆKT
í tilefni íslandsmeistaramótsins í vaxtarrækt, sunnudaginn 9. maí, gefst öllum tækifæri
til að kynnast líkamsrækt í ORKUBÓT. Þá verða líkamsræktarstöðvar ORKUBÓTAR aö
Brautarholti 22 og Gensásvegi 7, opnar almenningi til sýnis frá kl. 10—18.
Þar verður starfsemin kynnt og starfsmenn ORKUBOTAR svara fyrirspurnum um
líkamsrækt og það sem henni fylgir. Notið þetta gullna tækifæri að kynnast líkams-
rækt í ró og næði.
Það kostar ekkert aö koma.
BRAUTARHOLT 22
SÍMI: 15888
GRENSÁSVEGUR7
Sími: 39488