Morgunblaðið - 09.05.1982, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
43
sjómaður ætlaði hann sér að
verða.
Það átti ekki fyrir Matta að
liggja að verða sjómaður, i þess
orðs merkingu, örlögin, eða hvað
maður á að kalla það, höguðu því á
annan veg.
Ævistarf Matta hefst, er hann
þrettán ára að aldri ræðst til
starfa við bakarí Garðars Flyg-
enring, sem átti að vara skamman
tíma en mánuðir liðu og urðu að
árum. Árið 1928 urðu eigenda-
skipti að bakaríinu, þegar Ás-
mundur Jónsson, bakarameistari,
keypti það. Matti starfaði hjá
Ásmundi meðan hann lifði og hjá
sonum hans til ársins 1975, þá var
heilsan farin að gefa sig og fæt-
urnir að bila, þarf engan að undra,
eftir að hafa unnið á sama stein-
gólfinu í fimmtíu og fjögur ár.
Árið 1925 lést Helgi í Bjarnabæ,
þá á besta aldri, stóð Bjarnasína
þá uppi með flest börnin í ómegð
og sjálf heilsutæp. Það féll því í
hlut elstu barnanna að sjá heimil-
inu farborða, það gerðu þau með
sóma og dugnaði. Föðurmissirinn
hefur að sjálfsögðu gert fjölskyld-
una samheldnari, eins og oft hefur
átt sér stað undir svipuðum kring-
umstæðum, elstu börnin verða
kjölfesta fjölskyldunnar.
Þau Helgi og Bjarnasína, for-
eldrar Matta, eignuðust sjö börn,
sem öll komust upp, elst þeirra
var Þórunn, sem látin er fyrir
nokkrum árum. Bræðurnir Einar
og Helgi kvæntust og stofnuðu
heimili hér í Hafnarfirði. Margrét
giftist til Keflavíkur og hefur búið
þar, hin systkinin, þau Þórunn,
Oddur Matthías, Sigríður og
Bjarni, héldu heimili með móður
sinni í Bjarnabæ þar til hún lést,
eru nú tvö þau síðasttöldu eftir
þar.
Þegar tímar liðu og hagur tók
að vænkast, gat Matti snúið sér að
öðrum hugðarefnum. Hann var
mikill dýravinur og hafði gaman
af að umgangast skepnur, vandist
því barn. Mér vitanlega eignaðist
hann reiðhest einu sinni, en Iengst
af átti hann kindur, sem hann
hafði í skúr heima hjá sér á vet-
urna, þannig gekk það meðan
heilsan leyfði og hann gat annast
hirðingu þeirra.
Á vorin eftir sauðburð og búið
var að koma fénu á sumarhagana,
var tekið til við að stinga upp og
sá í þennan stóra matjurtagarð,
sem fylgir Bjarnabæjarlóðinni. Þá
var það þó nokkur sumur að Matti
gerði út „trillu", sem hann eignað-
ist, sjómennskan var honum svo
sannarlega í blóð borin, því var
það oft eftir strangan vinnudag,
þegar vel viðraði, að Matti ýtti úr
vör og hélt á fund Ægis sæll í
sinni.
Matti lét lítið að sér kveða útá-
við, t.d. hvað félagsmál snertir,
hafði hann þó ágæta hæfileika til
þess. Meðan Bakarasveinafélagið
starfaði hér í Hafnarfirði, gegndi
hann forystustörfum þar og fórst
það vel úr hendi, enda hafði hann
glöggt auga fyrir því, sem máli
skipti, var einarður og fastur fyrir
þegar svo bar undir.
Kynni okkar Matta hófust, er ég
rétt eftir fermingu gerðist sendill
hjá Ásmundarbakaríi, hann var
þá verkstjóri í bakaríinu og sá um
allt, sem Ásmundur ætlaðist til að
unnið væri þar. Ásmundur rak þá
einnig kexverksmiðjuna Geysi.
Matti var tuttugu og þriggja ára
þegar þetta var, laglegur og vel á
sig kominn, hann var góður verk-
stjóri, traustur og ljúfur í viðmóti,
hann var mikið þrekmenni, helj-
armenni að burðum, enda maður
samanrekinn, herða- og hand-
leggsvöðvar miklir eins og margir
bakarar fengu áður en vélar komu
til sögunnar. Þann tíma, sem við
störfuðum saman, man ég ekki
eftir að hann væri frá einn einasta
dag. Þá var unnið frá kl. 7 að
morgni til kl. 6 að kveldi og aldrei
svikist um.
Hann var mikill mannvinur,
lagði ávallt gott til þar sem hann
gat því við komið, eins og systkin
hans og systkinabörn gerst
þekkja.
Ég vil að lokum þakka Matta
vini mínum liðnar samverustund-
ir, tryggð og vináttu. Eins og áður
getur fæddist Oddur Matthías 4.
janúar 1907, í Bjarnabæ, sem
hann og hans fólk er kennt við, og
þar andaðist hann 29. apríl sl. eft-
ir erfið og langvinn veikindi. Utför
hans fer fram frá Þjóðkirkjunni í
Hafnarfirði mánudaginn 10. maí.
Ég sendi systkinum Odds
Matthíasar og aðstandendum
mínar innilegustu samúðarkveðj-
ur.
Ársæll Pálsson
Þú ættir að fá þér
ON-LINE tölvukerfi
frá Rekstrartækni í
fyrirtækið til að bæta
reksturinn. Pú leigir
eða kaupir svoköUuð
jaðartæki, sem eru
tölvuskermur og
prentari og ert svo í
sambandi við fuU-
komnustu tölvu hjá
þeim.
Er fyrirtækið ekki
of lítið fyrir slíkt?
Pað virðast ekki vera
nein takmörk, breidd-
in er svo mikU.
En tölvutæknin
þróast svo ört, borgar
sig ekki að bíða og sjá
hvað kemur næst?
Pú getur beðið
endalaust. Þróunin á
næstu ámm verður í
móðurtölvunni, sem
jaðartækin taka
svo við.
En upplýsingamar,
getur ekki einhver
annar komist í þær?
Öryggiskerfið er það
fuUkomið að ekkert
lekur út, þó að fleiri en
eitt fyrirtæki séu á
sömu símalínu - það
er pottþétt.
Svo eru það þessi
prógrömm eða forrit.
Staðnar maður ekki
bara í því fyrsta sem
maður fær?
Nokkur þróun?
Þeir em með þraut-
reynd íslensk forrit og
það sem meira en
Peir em stöðugt að
endurbæta þau. Og
þú færð sko að
fylgjast með. Svo er
aUt viðhald bæði á
tækjum og fóUd fyrsta
flokks.
En við erum svo
langt í burtu frá þeim
- og skrefatalningin
komin á símann.
Fjarlægðin skiptir
ekíd máU. Skrefa-
talningin er algeriega
utan við þessar hnur.
Heyrðu, ég var að
heyra það að þeir hjá
Rekstrartækni væm
með fyrstu IBM
System 38 tölvuna
hér á landi - og
þá einu.
Pað sýnir hvað þeir
fylgjast vel með.
Pað er rétt að
koma sér í samband
við þá...
j rekstrartækni sf.
Tækniþekking og tölvuþjónusta.
Siðumúli 37, 105 Reykjavík, sími 85311
Hafnargötu 37A, 230 Keflavík, simi 92-1277