Morgunblaðið - 09.05.1982, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. MAÍ1982
47
þegar hann verður viðstaddur
einhverja tónleikana eða horfir
á balletsýningu á skjánum.
Úr mörgu að velja
Þótt fjárhagsáætlunin sé enn
ókunn, það sanna er að kostnað-
ur mun fara yfir 600 milljón pæs-
eta. Hvað sem því líður er hug-
mynd Saporta sú að fjár verði
aflað með sölu aðgöngumiða og
sölu sýningarréttar til að sjón-
varpa tónleikum og öðrum sýn-
ingaratriðum.
í hverri borg þar sem keppni
mun fara fram (14 talsins) verða
listaatriði á dagskrá. Erlendir
listamenn munu koma fram í
Madrid og Barcelona og verður
öllu efni sjónvarpað.
Meðal þátttakenda skal nefna
Klassíska þjóðarballet Antonios,
Klassíska balletinn V. Ullate,
Sinfóníuhljómsveit Spánar,
Filharmóníuhljómsveitina í Len-
ingrad, spænskar óperettur,
óperuna Porgy and Bess, Kon-
unglegu Filharmóníuhljómsveit
Lundúnaborgar, óperuna Sam-
son og Dalila, The Rolling Ston-
es, Julio Iglesias o.fl. o.fl. o.fl.
Helstu íþróttaviðburðir (fyrir
utan knattspyrnu auðvitað)
verða keppni í tennis milli Borg
og Connors, frjálsar íþróttir,
veðreiðar, mótorhjólakeppni,
körfuboltaleikur milli Spánar og
Bandaríkjanna og kapparnir
Severiano Ballesteros og Jack
Nicklaus munu mæta með kylfur
sínar á golfvellinum. Glæsileg
dagskrá, ekki satt? Það er varla
hægt að ætlast til meira. Þetta
átti nú fyrst og fremst að vera
heimsmeistarakeppni í knatt-
spyrnu ...
Kolfinna
Framboðs-
listi sjálf-
stæðismanna
í Ólafsvík
FRAMBOÐSLISTI Sjálf-
stæðisflokksins til sveitar-
stjórnarkosninga í Ólafsvík:
1. Kristófer Þorleifsson, hér-
aðslæknir, 2. Helgi Kristjáns-
son, skrifstofumaður, 3. Kol-
finna Haraldsdóttir, húsmóðir,
4. Björn Arnaldsson, sjómaður,
5. Óttar Guðlaugsson, skip-
stjóri, 6. Halla Eyjólfsdóttir,
húsmóðir, 7. Sigurður Haralds-
son, útgerðarmaður, 8. Jónas
Kristófersson, smiður, 9. ívar
Baldvinsson, framkvæmda-
stjóri, 10. Snorri Böðvarsson,
rafveitustjóri, 11. Karl V.
Karlsson, matsmaður, 12.
Hjálmtýr Ágústsson, verk-
smiðjustjóri, 13. Margrét
Vigfúsdóttir, húsmóðir, 14.
Bjarni Ólafsson, símstöðv-
arstjóri. Til sýslunefndar: 1.
Ólafur Kristjánsson, yfirverk-
stjóri, 2. Soffía Þorgrímsdóttir,
kennari.
Kvikmyndaklúbbur Alliance Francaise:
„Sagan af Adele H.“
— Sönn mynd um sögu annarrar dóttur Victor
Hugos, sem hljópst á brott með enskum lautinanti
Kvikmyndaklúbbur Alliance
Francaise sýnir kvikmyndina „Sag-
an af Adele H.“ eftir Francois Truff-
aut í Regnboganum, sal E, miðviku-
daginn 12. mai og miðvikudaginn 19.
maí. Myndin er með enskum texta
og er aðgangur ókeypis, en sýn-
ingarnar hefjast kl. 20.30 biða dag-
ana.
„Sagan af Adele H.“ fjallar á
sannsögulegan hátt um sam-
nefnda dóttur Victors Hugo, sem
varð ástfanginn af enskum lautin-
ant þegar Hugo-fjölskyldan bjó í
útlegð í Guernsey í Ermarsund-
inu. Þegar að því kom að lautin-
antinn hafði lokið þjónustuskyldu
sinni í eynni, hljópst Adele á brott
með honum og fór hún huldu höfði
í níu ár. Þegar fjölskyldan loks
hafði upp á henni var hún brjáluð.
Með hlutverk Adele fer Isabelle
Adjani, en í virðingarskyni við
Hitchcock hinn sáluga birtist
Truffaut lítillega í myndinni.
Kvikmyndin er að sögn listræn,
rómantísk en átakanleg ástarsaga.
Isabelle Adjani lifir sig inn í hlut-
verkið og túlkar Adele Hugo á eft-
irminnilegan hátt.
Úr kvikmyndinni „Sagan af Adele H.“, sem á sannsögulegan hitt fjallar um
samnefnda dóttur Victor Hugo. Dóttirin hljópst á brott með enskum lautin-
ant þegar fjölskyldan var í útlegð í Guernsey. Með aðalhlutverkið í mynd-
inni, hlutverk Adele, fer Isabelle Adjani.
V j>»:
i ' Yy.
: 1
• •
« > :
sS*!r, .
ævintýraferð
til Norður-Ameríku
flokks langferðarbifreið
AÐEINS
3 FERÐIR
4. júní,
9. júlí og
6. ágúst.
• V%»*fV •
\
. &•&*•
•ty.~ :
. 4 :
> ••
Við heimsækjum:
16 fylki í Bandaríkjunum
2 fylki í Kanada
10 stórborgir
Heimssýninguna 1982 íTennessee.
Við sjáum:
Stórskipasiglingar á St. Lawrence-fljóti
Tóbaksekrur Suöurríkjanna
Sólbakaða Atlantshafsströndina
Hjólabátana á Mississippi-fljóti
Við förum:
í frægustu háhýsi í heimi:
Sears-bygginguna í Chicago
CN-turninn í Toronto
World Trade Center í New York
Við skoðum fræg söfn:
Smithsonian-safniö í Washington
Metropolitan-safniö í New York
Museum of Industrial Science í Chicago
Ford-bílasafniö í Detroit
Indíánasafnið í Cherokee, N-Carolina
Sérlega vel skipulögö hringferð,
en ekki of erfið.
íslenzkur fararstjóri
allan tímann.
.sr?i •*.•.• v •í-.v.*
&"* * 4.V iv.*
«!J •>£.•• «•
:M
\V v»* ‘ :••.*.
SSÍ- • .f.v
»••.*
#:;'v I
iMf*-;
• ••* Tí *
: N :
. - :
; :
•'
: f
Ferðaskrifstofan
Reykjavík:
Austurstræti 17.
Sími 26611.
Akureyri:
Kaupvangsstræti 4. $$
Sími 22911. :4UV