Morgunblaðið - 09.05.1982, Qupperneq 48
r
Síminn á afgreiöslunni er
83033
SUNNUDAGUR 9. MAl 1982
Ekki aðeins sundmennirnir sjálfir taka þátt í sundmótunum, greinilegt er að áhorfendur láta sitt ekki eftir liggja. Myndin er tekin þegar
fram fór sundmót fimm grunnskóla í Breiðholtinu í sundlaug Fjölbrautaskólans. Ljósm. Emiiía.
Laun þing-
manna hækka
frá 1. marz
KJARADÓMUR ákvað 5. april sl. að
þingfararkaup, laun þingmanna,
hækki um 3,1% frá 1. marz sl., þ.e. úr
18.833 kr. í 19.422. Þá var og ákveðin
hækkun á greiðslu húsnæðis-
kostnaðar þingmanna, einnig á dval-
ar- og ferðakostnaði frá og með 1.
apríl. Að sögn Friðjóns Sigurðssonar
skrifstofustjóra Alþingis hækkuðu
laun þingmanna síðast 1. desember
sl., þar áður 1. september.
Kjaradómur ákveður kaup og
kjör þingmanna. Að sögn Bene-
dikts Blöndal sem sæti á í kjara-
dómi eru laun þingmanna hækkuð í
samræmi við almennar launa-
hækkanir, eins og lög um kjaradóm
kveða á um. Greiðsla húsnæðis-
kostnaðar þingmanna er frá 1.
apríl 3.500 kr. á mánuði, dvalar-
kostnaður um þingtímann 90 kr. á
dag, en dvalarkostnaður í kjör-
dæmi 18.600 kr. miðað við árs-
greiðslu. Þá ákvað kjaradómur að
kostnaður við ferðalög í kjördæmi
verði frá 1. apríl 1.200 kr. í
Reykjavíkurkjördæmi, 2.150 kr. í
Reykjaneskjördæmi og 3.525 kr. í
öðrum kjördæmum.
Benedikt Blöndal gat þess er
Mbl. ræddi við hann, að um leið og
kjaradómur ákvað þessa hækkun
til þingmanna hefði einnig verið
tekin ákvörðun um sömu prósentu-
hækkun á laun forseta íslands, for-
sætisráðherra og ríkisstjórnar og
hæstaréttardómara.
Skortur á hjúkrunarfræðingum á Borgarspítalanum:
Yfirvinna jafngildir um 20
stöðum og 20—30 rúm auð
„ÞAÐ ER MIKILL skortur á hjúkrunarfræðingum hér, og af þeim sökum
eru milli 20 og 30 rúm á spítalanum ónotuð,“ sagði Haukur Benediktsson,
framkvæmdastjóri Borgarspítalans, í samtali við Mbl. „Þá er einnig mikil
yfir- og aukavinna hjá hjúkrunarfræðingum hér, það er rétt,“ sagði Haukur
ennfremur, „og án þess að ég hafi nákvæmt yfirlit yfir það má ætla að það
samsvari um 20 stöðum hjúkrunarfræðinga."
Eins og fram hefur komið í blað-
inu er mikill skortur á hjúkrunar-
fræðingum á landinu öllu. Telja þeir
það stafa af lágum launum og af
miklu vinnuáiagi og yfirvinnu. Til
séu um 350 lærðir hjúkrunarfræð-
ingar, sem ekki vinni þau störf er
þeir hafa lært af þessum sökum.
Haukur Benediktsson kvað það
ekki nýja bólu að mikil yfirvinna
væri í þessu starfi, og vissulega væri
það bagalegt og fældi fólk frá, eink-
um fjölskyldufólk. öll forföll og
tímabundinn skortur á hjúkrunar-
fræðingum væri því leystur með
aukavinnu, og ígildi margra staða
væru þannig til komin. Of mikið
væri þó sagt, að heilar deildir Borg-
arspítalans væru reknar á auka-
vinnu, en síðustu mánuðir hefðu ver-
ið afar erfiðir. Hann sagðist hins
vegar ekki vera viss um að allur
vandinn leystist við hærri laun. „Það
er skortur á menntuðum hjúkrunar-
fræðingum og svo hefur verið lengi,
aukningunni á sjúkrarúmum hefur
ekki verið mætt með fleiri útskrifuð-
um hjúkrunarfræðingum. Ég held
þvi að það sé vafasamt að þessi tala,
um 350 manns er fengjust til vinnu,
standist. Vissulega væri þó gleðilegt
ef svo væri, það myndi einfalda
lausn mála,“ sagði Haukur.
„Með harðsperrur eftir
dúndrandi dans í nótt“
„VIÐ SNÖRUÐUM netunum í
land og héldum slúttið í gær-
kvöldi, og það er ekki laust við
að maður sé með harðsperrur
eftir dúndrandi dans fram á
rauða nótt, og ég held bara, að
þetta sé í fyrsta skipti í vetur
sem maður hefur svitnað,“ sagði
Sigurjón Óskarsson, skipstjóri á
Þórunni Sveinsdóttur, í samtali
við Mbl. í gær, en þess má geta
að Sigurjón er stakur reglumað-
ur. í lok netavertíðar er hann
aflahæstur yfir landið með 1187
tonn.
Næsthæstur í Eyjum og sá
þriðji yfir landið er Sigurður
Georgsson á Suðurey frá Vest-
mannaeyjum með 1140 tonn, en
þeir telja þó báðir að vetrarver-
tíðarlok séu ekki fyrr en 15. maí.
Það taki því hins vegar ekki að
fara á trollið í aflaleysinu.
— segir Sigur-
jón á Þórunni
Sveinsdóttur,
aflakóngur á
netavertíð
Annar aflahæsti bátur iandsins
í lok netavertíðar er Hrungnir frá
Grindavík með 1145, tonn en skip-
stjóri er Ólafur Sigurðsson. Við
náðum ekki sambandi við hann í
gærmorgun, þar sem hann var að
gera bátinn kláran eftir úthaldið
ásamt skipshöfn sinni, en hann
hefur ekki veiðar aftur fyrr en um
20. maí, þegar netaveiði er leyfð
aftur.
Sigurjón kvaðst ætla á tveggja
báta troll um 20. maí, tilrauna-
veiðar með botntroll með bobb-
ingum á móti Matthíasi, bróður
sínum, en þeir verða með troll
sem er ámóta og togaratroll og
helmingi stærra en venjulegt
bátatroll. Kvað Sigurjón hlerun-
um sleppt með þessu fyrirkomu-
lagi og toga þá báðir bátarnir með
ákveðinni fjarlægð á milli sín.
Kvað Sigurjón þetta spara mikla
olíu og hefði þetta fyrirkomuiag
gefist vel í Færeyjum. Sigurjón
kvað þessa vetrarvertíð hafa fjar-
að út með litlum glæsibrag og
kvaðst í rauninni hafa lent í
tveggja mánaða reiðileysi þegar
hann beið eftir þorskinum sem
aldrei kom, en í fyrra var hann
með 1250 tonn af þorski af liðlega
1500 tonnum sem var þá mesti afli
yfir landið 15. maí.
Sigurður Georgsson á Suðurey
kvaðst ekki ætla á troll fyrr en
eftir vertíðarlok. „Ég nenni ekki
að vera að standa í neinum bar-
Hrafnsungar i hreiðri.
Varp hefur misfar-
ist og fuglar drepist
hann þó vitað í hve miklum mæli
fuglar hefðu orðið að láta í minni
pokann fyrir harðindunum, en það
væru helst lóur og aðrar tegundir
sem lifðu á skordýrum. Þeir er lifa á
jurtafæðu hefðu betri möguleika á
að lifa af, sagði Ævar.
Lóurnar hafa átt erfitt að und-
anförnu, og sagði Ævar að komið
hefði verið með fugla til hans, ým-
ist dauða eða nær dauða en lífi, og
hefðu þeir oft vegið minna en
helming þess sem eðlilegt væri á
þessum árstíma, svo mjög hefði
verið af þeim dregið.
Um varp fugla sagði Ævar lítið
vitað enn, en hætt væri þó við að
varp hjá þeim er búnir voru að
verpa fyrir harðindin, hefði gengið
illa. Þegar væri vitað um að varp
hrafna hefði misfarist í nokkrum
mæli, en minna væri vitað um aðr-
ar tegundir sem verpa snemma,
svo sem skarf, fálka og haförn.
„Það fer mest eftir því hvort þeir
eru búnir að verpa og teknir að
liggja á hvernig fer," sagði Ævar,
„séu þeir aðeins byrjaðir að leggja
í hreiðrin en ekki teknir að liggja
á, getur illa farið. Ernir og fálkar
fara þó að liggja á áður en fullorp-
ið er, svo þeir ættu að hafa bjarg-
ast.“ Hrafninn sagði hann getá
orpið aftur þó misfærist í fyrsta
sinn, og aðrar tegundir eins og
skógarþrestir, sem vitað var að
byrjaðir voru fyrir 10. apríl í vor,
koma oft upp þremur ungahópum
sama sumarið.
TALSVKRT hefur drepist af farfugl-
um, sem komnir voru til landsins, i
hretinu síðustu daga, að því er Ævar
Petersen hjá Náttúrufræði-
stofnuninni sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær. Ekki sagði
Sigurjón Óskarsson
daga, þetta er enginn afli nú,“
sagði hann, en aðspurður kvað
hann vertíðina hafa verið feiki-
lega erfiða hvað tíðarfar snertir,
„það var óvenju mikill ruddi í haf-
inu, hreint djöfullegt stundum og
ég man aðeins eftir tveimur dög-
um þar sem ekki var bræluskít-
ur.“ Hann var að búa sig undir
lokagildið um kvöldið.
Njörður frá Stokkseyri var með
1069.6 tonn, Vörður ÞH fékk
1068.6 tonn og Álfsey var með
1040 tonn.