Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ1982
„Taktu -tuacr oJ~ þcss'um mc^ »r>ái-fciáum,
cn ckkí ficirí en 3o oí da^."
4SS swibfctc
Fékkstu sölumannsstarfið hjí
megninarpilluframleiðendunum?
Með
morgunkaffinu
Spaghettíið er ekki nógsamlega
soðið!
Húrra Fóstbræður
Ánægður styrktarfélagi Fóst-
bræðra skrifar:
„Velvakandi!
Ég er að detta inn úr dyrunum
eftir borgarferð á tónleika hjá
karlakórnum Fóstbræðrum í
Gamla bíói. Hæstánægð með vel
samsetta dagskrá hlamma ég mér
í stól og hripa þessar línur til að
láta í Ijós ánægju til kórfélaga og
stjórnanda. Það er ekki meiningin
að gera neina úttekt á tónleikun-
um sem slíkum, slíkt læt ég tón-
pennana um. Samt get ég ekki
stillt mig um að hrósa flutningi á
„Ólafi Tryggvasyni“, „Ástarjátn-
ingu“, og ekkólaginu sem endur-
speglaði sönggleðina, sérstaklega
þegar það var endurtekið. Og að
heyra finnska lagið „Lepo Le-
hmáni“ er eins og að hitta gamlan
kunningja sem alltaf stendur fyrir
sínu. Barbershop-kvartettinn var
vel samæfður og minnti á Amer-
íku enda stefnir kórinn þangað að
hausti. Þar ferð góð landkynning
frá íslandi. Þakka góða kvöld-
stund og góða ferð!“
Ég er
Sveitakona á Suðausturlandi
skrifar:
„Velvakandi.
Bestu þakkir fyrir pistla þína og
skemmtun í gegnum árin. Mér
datt nú svona í hug að skrifa þér
línur, þar sem ég sé að þú falast
eftir bréfum frá fólki.
En tilefnið var þó kannski frek-
ar, að ég var hér á dögunum að
blaða í fyrsta árgangi Fálkans og
rakst þar á klausu ásamt fleirum
undir fyrirsögninni: „Hjartað úr
Lenín hefur verið tætt í sundur í
31.000 hluta. Eru vísindamenn í
Moskvu nú sem stendur að rann-
saka það.“
Svo mörg voru þau orð, en það
hvarflaði svona aðeins að mér, að
hverju blessaðir mennirnir hefðu
verið að leita og skýldu þeir hafa
skilað öllum hlutunum á sinn stað
aftur. En „sínum augum lítur hver
á silfrið“, sagði gamla fólkið
stundum. Jæja, mér finnst nú, að
hefði maður verið í blóma lífsins á
þessum árum, hefði mátt orða
alveg hissa!
þessa uppákomu eitthvað á þessa
leið:
iLHjá Kominrorm ei þarf Itvarta;
þar krjíjM menn Leníns hjarta
í þrjátíu og eitt þúsund parta.
Þeir ta*ta og saxa fljótt.
Svo rembaat þeir við að rýna
og ráfta í partana nína.
Kn Ntjornur í kuldanum skína
í Síheríu um nótt.“
HÖGNI HREKKVISI
"HVAÐ,þEm ER BRtÍXLABA Oie/A ••••
HlauTab vera i "
Þessir hringdu . . .
Um íþróttahúsið
í Hveragerði
Asta Jósefsdóttir, ritari UFHÖ,
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — í grein Á.B. í dálkum þín-
um 13. maí gætir þess misskiln-
ings, að almenningur í Hveragerði
fái ekki afnot af nýja íþróttahús-
inu. Þess vegna er rétt að eftirfar-
andi komi fram: Barna- og gagn-
fræðaskóli Hveragerðis og Ölfuss,
ásamt Garðyrkjuskóla ríkisins,
hafa leikfimikennslu í húsinu. Eft-
ir kennslu er salur hússins leigður
til almenningsnota. Allur salurinn
er leigður í einu, 50 mínútur í senn,
og var gjald á hvern tíma 65 krónur
í vetur. Samkvæmt stundaskrá
íþróttahússins veturinn 1981—’82
var almenningsnotkun sem hér
segir: Mánudaga til föstudaga frá
kl. 16—22.40, laugardaga frá kl.
9.30—18; sunnudagar voru notaðir
fyrir keppnir. Ungmennafélag
Hveragerðis og ölfuss (UFHÖ)
leigði tíma í íþróttahúsinu í vetur
fyrir eftirtaldar deildir: Badmin-
tondeild 125 þátttakendur, knatt-
spyrnudeild 87 þátttakendur, blak-,
handbolta- sog körfuboltadeildir
104 þátttakendur, samtals 316
þátttakendur. Alls stunduðu 225
einstaklingar íþróttir á vegum
UFHÖ í vetur, eða 20% íbúa
Hveragerðis. Auk þess eru fleiri
aðilar með frjálsa tíma í íþrótta-
húsinu. Ef einhverjir hafa orðið að
sækja til Selfoss, gæti ástæðan ver-
ið sú að engir íþróttatímar hafi
verið lausir, því að húsið er full-
nýtt, því vona ég að Á.B. sé mér
sammála um að brýnt sé að taka
síðari áfanga íþróttahússins í
notkun sem fyrst, þar sem færri
komast að en vilja.
Orö í tíma töluð
D.K. hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Eg vil þakka Sig-
ríði Ingimarsdóttur sérstaklega
fyrir hugleiðingar hennar um
heilsuna í þættinum Morgunorð í
dag (föstud. 14. maí). Heilsu sína fá
menn sjaldan aftur, eftir að hún
hefur einu sinni brostið. Mætti
lækna og lyfja eru takmörk sett.
Þetta eru orð í tíma töluð og ættu
margir ekkert erindi í sjúkrastofn-
anir, ef þeir gerðu dálítið fyrir
heilsu sína, meðan hún er í lagi.
Morgunblaðið ætti að fá þátt Sig-
ríðar til birtingar.
Hver borgar fyrir
millis væðamótiÖ ?
Margrét Þorvaldsdóttir hringdi og
fþróttahúsió í Hveragerði