Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ1982 5 Birgir fsl. Gunnarsson Albert Guðmundsson Davíð Oddsson Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík: Útifundur á Lækjartorgi miðvikudaginn 19. maí nk. SjálfstKðisfélögin í Reykjavík gangast fyrir útifundi á Lækjartorgi miðvikudaginn 19. maí næstkom- andi í tilefni borgarstjórnarkosn- inganna og hefst fundurinn klukk- an 17.15. Fundurinn hefst með setning- arávarpi Birgis ísl. Gunnarsson- ar fyrrverandi borgarstjóra í Reykjavík. Þá flytja ávörp Albert Guðmundsson, Davíð Oddsson, Ingibjörg Rafnar og Katrín Fjeldsted, en Katrín skipar 11. sæti framboðslista Sjálfstæðis- flokksins. Á milli atriða leikur tríó Magn- úsar Kjartanssonar nokkur þekkt Reykjavíkurlög eftir ýmsa kunna höfunda. Áður en fundurinn hefst, frá kl. 16.45., leikur hljómsveit Tónlistarskóla FÍH nokkur lög. Hljómsveitina skipa tuttugu menn, en stjórnandi er Reynir Sigurðsson. Kynnar á fundinum verða Hulda Valtýsdóttir og Markús Örn Antonsson. Ingibjörg Rafnar Hulda Valtýsdóttir Katrín Fjeldsted Markús Örn Antonsson FÍB 50 ára: Hátíðarfundur í Þjóðleikhúsinu FÉLAG íslenskra bifreiðaeigenda efnir til hátíðarfundar í Þjóðleik- húsinu laugardaginn 15. maí kl. 14.00 í tilefni 50 ára afmælis fé- lagsins en það var stofnað í maí 1932. Hátíðarfundurinn er opinn öllum félagsmönnum FÍB á meðan húsrúm leyfir en nauðsynlegt er að sýna boðskort eða félagakort við innganginn. Fundurinn verður tek- inn á myndband. Dagskrá fundarins verður í að- alatriðum þessi: Kynnir: Hafsteinn Vilhelms- son, frkv.stj. FÍB. Strengjakvart- ett Laufeyjar Sigurðardóttur leikur. Hátíðin sett, Arinbjörn Kolbeinsson, stjórnarformaður FÍB. Ávarp samgönguráðherra, Steingríms Hermannssonar. Ávörp gesta. Kveðjur til félags- ins. Minni félagsins, flutt af stjórnarformanni FÍB. Strengja- kvartett leikur. Kaffihlé frá kl. 15.30-16.00. Eftir kaffi verða flutt þrjú 15—20 mín. erindi: öryggismál umferðarinnar, Óli H. Þórðar- son, frkv.stj. Umferðarráðs. Far- aldsfræði umferðarslysa, Bjarni Torfason, læknir. Vegir í 50 ár, Indriði G. Þorsteinsson, rithöf- undur, formaður veganefndar FÍB. Fundi slitið, Hafsteinn Vilhelmsson. Tveir seldu ytra SKUTTOGARINN Engey seldi 185,8 tonn af fiski í Cuxhaven i fyrradag fyrir 1.697,7 þúsund krón- ur og var meðalverð á kíló krónur 9,13. Megnið af afla Engeyjar var grálúða. Þá seldi Gissur hvíti frá Hornafirði 45,9 tonn í Grimsby í fyrradag fyrir 455,2 þúsund kjrónur. Meðalverð á kíló var krónur 9,85.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.