Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ1982 15 Ráðstefna BIL um byggðaleiksýningar f GÆR hófst ráðstefna Bandaiags islenskra leikfélaga um byggðaleik- sýningar. Ráðstefnan er i Félags- heimili Kópavogs og haldin í tengsl- um við aðalfund bandalagsins og lýkur benni i dag. Byggðaleiksýningar eru fjöl- mennar leiksýningar, oftast óti- sýningar, sem gjarnan eru byggð- ar á heimildum um sögulega at- burði og leiknar á sögustaðnum. Slíkar sýningar njóta nú sívax- andi vinsælda á Norðurlöndum og eru dæmi þess að svotil hver fjöl- skylda í heilu byggðarlagi hafi á einn eða annan hátt tekið þátt í sýningu af þessu tagi. Sums stað- ar, t.d. í Danmörku hefur verið höfð samvinna við skóla og verk- efnið þá tengt kennslu í samfé- lagsfræði, segir í frétt frá BÍL. Stjórn bandalagsins hefur boðið leikritahöfundum sérstaklega á þessa ráðstefnu, svo og safna- mönnum, en á Norðurlöndum hafa alls kyns söfn lagt mikinn skerf til byggðaleiksýninga. Aðalfundur Bandalags íslenskra leikfélaga verður svo haldinn strax og ráðstefnunni lýkur og stendur til sunnudagsins 16. maí. í stjórn bandalagsins eiga nú sæti: Einar Njálsson, Húsavík, formaður, Magnús Guðmundsson, Neskaupstað, varaformaður, Sig- ný Pálsdóttir, Stykkishólmi, rit- ari, Rúnar Lund, Dalvík, og Sig- ríður Karlsdóttir, Selfossi, en framkvæmdastjóri er Helga Hjörvar. Kirkjudagur Kefla- víkursafnaðar Á SUNNUDAG, hinum almenna bænadegi kirkiunnar, kl. 10.30 árd., vígir biskup Islands, herra Pétur Sigurgeirsson, kapellu i sjúkrahúsi Keflavíkurlæknishéraðs. Starfsfólk sjúkrahússins tekur þátt í athöfninni Kópavogun Námskeið 1 skyndihjálp DEILD Rauða krossins í Kópavogi gef- ur bæjarbúum og öðrum sem hafa áhuga kost á námskeiði í almennri skyndihjálp. Námskeiðið verður í Víghólaskóla og hefst mánudaginn 17. maí kl. 20.00. Það verður 5 kvöld, samtals 12 tímar. Þátttaka tilkynnist í síma 41382 kl. 14-18, þann 16. maí. Á námskeiðinu verður reynt að veita sem mesta verklega þjálfun með raunhæfum verkefnum. Einnig verða sýndar kvikmyndir um blást- ursaðferðina og áhrif kulda á mannslíkamann. ásamt prestum á Suðurnesjum og prófasti Kjalarnesprófastsdæmis, sr. Braga Friðrikssyni. Siguróli Geirs- son leikur á fagott og orgel við at- höfnina og kór Keflavíkurkirkju syngur. Sóknarnefnd Keflavíkurpresta- kalls býður síðan biskupshjónun- um og fleiri gestum til hádegis- verðar í safnaðarheimilinu Kirkjulundi. Hátíðarguðsþjónusta hefst í Keflavíkurkirkju kl. 14, en bæna- dagurinn er jafnframt kirkjudag- ur Keflavíkursafnaðar. Biskupinn, herra Pétur Sigurgeirsson, prédik- ar. Sverrir Guðmundsson og Steinn Erlingsson syngja ásamt kór Keflavíkurkirkju. Organisti og stjórnandi er Siguróli Geirsson. Sóknarpresturinn, sr. ólafur Oddur Jónsson, þjónar fyrir alt- ari. Að lokinni guðsþjónustunni verður kaffisala safnaðarfélagsins í Kirkjulundi. Ágóði af kaffisöl- unni rennur í líknarsjóð Keflavík- urkirkju. Allir eru hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir og eldra fólk er sérstaklega hvatt til þess að sækja guðsþjónustuna. Thermoclear plastgler kemur mörgum að notum 1) Sterkt og höggþolið, meira en 200 sinnum sterkara en gler. 2) Lótt, öruggt og auðvelt 3) Auðvelt að saga til og 4) Þykktir trá 3.5 mm—16 að meðhöndla. sníða. mm. Fullnægja marg- víslegum þörfum. 5) Frábær hitaeinangrun, orkusparandi fyrir verksmiðjuþök og gróðurhús. 6) Hefur yfirburði yfir mörg hliðstæð efni með góðum birtueigin- leikum. 7) Auðvelt að sníða til og nota við margvíslegar aðstæður. 8) Þolir sterkar hita- sveiflur. 9) Auðvelt að nota í hurðir, glugga og sól- svalir/skýli . . . .. . íbiðskýli, síma- klefa. söluskála og alla þá staði sem verða fyrir slæmum umgangi. Hentar vel í verk- smiðju- og vöru- skemmuþök og glugga. eða sem skermar á vinnu- stöðum. 12) I sundlaugarþök, bíl- skúrsglugga og ótal fleira, eftir útsjónar- semi og hugarflugi hvers og eins. er fjölhæft efni UMBOÐ KONRAÐ AXELSSON HEILDVERSLUN ÁRMÚLA 36 — SfMI 82420— REYKJAVfK SÖLUAÐILI: SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA REYKJANESBRAUT 6 — SÍMI 24366 REYKJAVÍK mognari með innbyggt útvarp og segulband j □ ^ KENWOOO árí=F •o me •* WI i TT i t i T I I I I L u u O Kr. 8.700,- ÚTVARP: FM-stereo-AM-miðbylgja+langbylgja. MAGNARI: 2X30 vatts-80hms. SEGULBAND: 2 mótorar-lagaleitari-Dolby. UMMÁL: 44 x 37.1 x 11.3cm. ^KENWQOD FÁLKINN T SÍMI85884 itim

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.