Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ1982
11
Myndabók Paul Gaimard
komin út hjá Menningarsjóði
UM þessar mundir er að koma út
hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs
Ferðabók sú sem kennd er við Paul
Gaimard með myndum landa hans,
Mayers, úr íslandsleiðangrinum árið
1836.
í ræðu sem Einar Laxness for-
maður Menntamálaráðs hélt í til-
efni af styrkveitingu Menning-
arsjóðs gat hann þessa merka
viðburðar, en bókaútgáfa á vegum
Menningarsjóðs hefur leitast við
að sinna sértækum og oft viða-
miklum verkefnum, sem telja má
veigamikið framlag til íslenskrar
menningar, en oft tormerki á, að
önnur forlög geti sinnt af ýmsum
ástæðum.
Nefndi Einar nokkur önnur
verkefni í bókaútgáfu, sem unnið
er að eða hafa þegar komið út í
heild eða að hluta: Unnið er að
endurskoðun á íslenskri orðabók,
sem kom út árið 1963 og hefur æ
síðan verið endurútgefin óbreytt í
nær tvo áratugi, en er nú alveg
uppseld. Búist er við að verkinu
ljúki á þessu ári. Haustið 1980
kom út 1. bindi ritverks dr. Lúð-
víks Kristjánssonar íslenskra sjáv-
arhátta og gert er ráð fyrir útkomu
11. bindis á þessu ári. Kortasaga
fslands í tveimur stórum bindum,
eftir dr. Harald Sigurðsson hefur
verið gefin út. Fyrra bindið sem
Aukaþjón-
usta við Dóm-
kirkjuna
SR. AGNES Sigurðardóttir ssku-
lýðsfulltrúi hefur verið ráðin til
starfa við Dómkirkjuna. Mun
hún messa þar einu sinni í mán-
uði og annast barnastarf safnað-
arins. Hún prédikar fyrsta sinni á
morgun, sunnudag.
Þeir prestar, sem vígðir hafa
verið til sérþjónustu ýmissar, hafa
nú, að ráði biskups, tengst starfi
ákveðinna kirkna hér í borginni.
Hefur verið ákveðið, að æskulýðs-
fulltrúinn tengist starfi Dóm-
kirkjunnar.
Sr. Agnes Sigurðardóttir, sem
nú gegnir þessu starfi, mun því
messa þar mánaðarlega og fá þar í
staðinn aðstöðu fyrir þær kirkju-
legu athafnir, sem hún þarf að
framkvæma. Þar að auki hefur
sóknarnefnd Dómkirkjunnar ráðið
hana til að annast barnastarf
safnaðarins í samráði við dóm-
kirkjuprestana.
Sr. Agnes verður boðin velkom-
in til starfa í messu á morgun,
sunnudag 16. mai, kl. 11 árdegis.
Þá er hinn almenni bænadagur
þjóðkirkjunnar og flytur sr. Agnes
prédikun dagsins, en dómkirkju-
prestarnir þjóna fyrir altari.
Fréiutillt/M>in( frí nómkirkjnnni.
* * í
Aldrei höfum viö boöiö eins glæsilegt úrval og núna af notuöum
Mazda bílum í 1. flokks ástandi og meö 6 mánaöa ábyrgó.
Nú þurfiö þiö ekki iengur aö vera sérfræöingar í þvi aö velja og
kaupa notaöan bíl, því aö þiö athugiö útllt bílsins, ástand hjólbaröa
og annars sem sést og viö ábyrgjumst þaö sem ekki sést.
Athugiö sérstaklega aö verö notaöra bíla hefur lækkaö eins og
nýrra.
Komiö því á sýninguna í dag og tryggiö ykkur úrvals Mazda bíl fyrir
sumarió, meóan lága veröió helst.
BÍLABORG HF
Smiöshöfða 23, sími 812 99.
kom út árið 1971 var uppselt, en úr
því hefur verið bætt með endur'-
prentun þess, svo að bæði bindin
eru nú til. Kortasaga íslands leiðir
skilmerkilega í ljós, hversu menn
fá smám saman skaplegar hug-
myndir um lögun og legu landsins,
en undirstaða fæst fyrir raunhæf-
ari kort og gleggri vitneskja kem-
ur til sögunnar. í ritröðinni Al-
fræði Menningarsjóðs eru nú þegar
komin út 12 bindi. Á þessu ári eru
tvö ný í undirbúningi, Lyfjafræði,
eftir dr. Vilhjálm G. Skúlason, og
Dýrafræði eftir örnólf Thorlacius,
svo og endurskoðuð útgáfa á 1.
bindi í þessum flokki, Stjörnufræði
og rímfræði eftir dr. Þorstein
Sæmundsson. í tilefni hálfrar ald-
ar afmælis Menningarsjóðs 1978
samþykkti Menntamálaráð útgáfu
rits um þjóðgarða íslands, fólkvanga
og friðlýst svæði. Hefur verið unnið
að þessu riti æ síðan. Á síðast-
liðnu ári urðu ritstjóraskipti á rit-
inu og var Sigurður Blöndal skóg-
ræktarstjóri ráðinn til ritstjórnar
í stað Gísla Jónssonar, mennta-
skólakennara, sem baðst undan
starfinu. Standa vonir til að þetta
rit sjái dagsins ljós áður en langt
um líður.
Um þessar mundir er að koma út hjá Bókaútgáfu Menningarsjóðs
Ferðabók Paul Gaimard. Fyrra bindi Kortasögu íslands eftir dr.
Harald Sigurðsson, sem uppselt var, er nú komið út endurprentað.
VORSOLUSYNING
á notuóum
laugardag frá kl.10-5
bflum