Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ1982 33 ar vegna þess að vissulega eru nú til margir karlar sem hafa áhyggj- ur af þessari þróun — kannski eru það þeir sem hafa tekið við breytt- um félagsmótunaráhrifum sbr. áðurnefndar rannsóknir Bem. En lítið fer fyrir þessum sjónarmið- um hjá valdhöfum. Á sama hátt og þeldökkir tóku upp slagorðið „black is beautiful" eru konur að vakna til vitundar um hið jákvæða í reynslu sinni, sem þær vilja fá að njóta áfram og deila með körlum og nýta m.a. við stjórnun samfélagsins. Þær eru orðnar þreyttar á því að þeirra þekking og reynsla sé vanvirt og lítils metin í karlstýrðu þjóðfélagi, sbr. upprisu fjölmargra „kvenna- stétta" hérlendis að undanförnu (hjúkrunarfræðingar, fóstrur, sjúkraliðar og ljósmæður). Við röðun í launaflokka hefur ábyrgð viðkomandi starfs verið notuð sem veigamikil viðmiðun. En allt bend- ir til að samkvæmt skilgreiningu karlaveldisins sé það minni ábyrgð að taka á móti nýfæddum börnum, ala upp forskólabörn eða hjúkra sjúkum en að passa einn peningakassa eða tvo. Kvennaframboðið í Reykjavík er tímabundin pólitísk aðgerð sem verður til vegna þess að leikreglur og forgangsverkefni stjórnmála- flokkanna henta ekki og eru frá- hrindandi fyrir stóran hóp kvenna og liklega á það sama við um vax- andi hóp karla. Það hefur samið stefnuskrá út frá sjónarhóli kvenna þar sem forgangsröðun framkvæmda og rekstrar Reykja- víkurborgar beinist að jafnstöðu kynjanna, valddreifingu til fólks- ins og bættu mannlífi ekki síst fyrir börn og gamalmenni. Þegar jafnstaða kynjanna er orðin að veruleika og hið besta úr reynslu- heimi beggja kynja mótar leik- reglur flokkanna geta konur og karlar boðið sig fram til stjórn- málastarfa á grundvelli manngild- is og stjórnmálaskoðana. Þá fyrst verða kvennaframboð tíma- skekkja. Þó að við Kvennaframboðskon- ur teljum sérframboð vera væn- legri leið nú til að heyja þessa bar- áttu, eru aðrar konur bjartsýnar á að hún sé betur háð innan flokk- anna sjálfra. Vera má að það sé einhver von svo framarlega sem þær gleyma ekki að þær eru konur og hætta að ganga gagnrýnislaust inn á leikreglur karlaveldisins og leika þykjustukarla. Fjöldi þeirra nú ætti að auka líkurnar fyrir því að þetta geti gerst. En auðvitað býst ég við jákvæðum viðbrögðum frá körlunum líka í þessari bar- áttu kvenna, sem er vonlaus án þátttöku og skilnings þeirra. Það hlýtur að vera mannbætandi fyrir þá flesta að fá að skyggnast inn í reynsluheim kvenna, sem vonandi verður kynjunum sameiginlegur fyrr en seinna. Batnandi mönnum er best að lifa segir máltækið — og út úr þessu öllu vonast ég til að sjá mannlegri borg, mannlegra þjóðfélag þar sem maðurinn stjórnar tækninni, en tæknin ekki manninum, þar sem kynferði hindrar engan í að sinna þeim störfum sem hugur stefnir til, þar sem konur og karlar geta leyft sér þann munað að vera bæði skyn- semis- og tilfinningaverur. Há*er augtvang um ^ugiýsingar AÐ VELJA SÉR MIÐIL Markmið auglýs- inga er að auka sölu á vöru eða þjónustu. Pví skiptir meginmáli að ná til þeirra sem auglýsingunni er beint að á sem lægstu verði. Hér vegur rétt val á auglýsinga miðli þyngst. VERÐ Samkvæmt niðurstöðum úr tveimur könnunum Sambands íslenskra auglýsinga- stofa er ódýrast að auglýsa í Morgunblað- inu. Þá er miðað við hvað kostar að ná til hvers lesanda. ÚTBREIÐSLA Morgunblaðið berst inná flest heimili landsins á degi hverjum. Pað hefur haldið yfirburðastöðu sinniog jafnvel aukið útbreiðsluna skv. áðurnefndum tveimur könnunum. HLUTFALL EFNIS OG AUGLÝSINGA I Morgunblaðinu er reynt að tryggja eðlilegt hlutfall milli auglýsinga og efnis sem er jafnt auglýsendum og lesendum að skapi. Ef þú vegur ofangreindar staðreyndir, er ljóst að það er engin tilviljun hve margir velja Morgunblaðið sem vettvang auglýs- inga sinna-þar eru þær lesnar af fjöldanum. •• • ® Metsölublað á hverjum degi! Rýmingarsala! Við rýmum fyrir nýjum húsgögnum Seljum næstu daga meö miklum afslætti borö og stóla, sem hægt er aö leggja saman. Hentugt í sumarbústaöinn og reyndar hvar sem er. Auk þess gefum viö 10—30% afslátt af öörum vörum verslunarinnar, meöan á rýmingarsölunni stendur. Komið og gerið góð kaup Opið mánud—fimmtud. “ föstudaga “ laugardaga frá kl. 9—6. frá kl. 9—7. frá kl. 9—4. lnís«|;i«|ii;il:iml SIÐUMULA 2 - SIMI 39555

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.