Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ1982 25 fWnrgmi Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 110 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 7 kr. eintakið. Framsóknarflokkurinn og hláturtaugarnar Hvað svo sem segja má um frammistöðu frambóðenda Framsóknar- flokksins til borgarstjórnarkosninga í Reykjavík, verður hitt ekki af þeim skafið, að þeir hafa kitlað hláturtaugar háttvirtra kjósenda öðrum fremur! Þeir hafa ár hvert, allt líðandi kjörtímabil, samþykkt hærri útsvör, hærri fasteignaskatta og hærri aðstöðugjöld í Reykjavík en í nágranna- byggðum — og varið þessa skattheimtu í borgarstjórn baki brotnu í hvert sinn sem fjárhagsáætlun borgarinnar hefur verið til umfjöllunar. Síðan koma þeir fram fyrir kjósendur, fáum dögum fyrir kosningar, og segjast talsmenn lækkunar fasteignagjalda og aðstöðugjaida í borginni! Pólitískur húsbóndi þeirra í vinstra samstarfinu, Sigurjón Pétursson, gerir góðlátlegt grín að þessu sjónarspili samstarfsaðilans og kallar lýðskrum, en merkingu þess orðs skilja Alþýðubandalagsmenn öðrum betur. Ritstjóri Tímans forðast það eins og heitan eldinn að tíunda ágæti og afrek frambjóðenda Framsóknarflokksins. Hann lítillækkar þá þvert á móti með því að skáskjóta einstaklingi, sem hvorki er í flokknum né í framboði fyrir hann, Agli Skúla Ingibergssyni, fram fyrir þá, sem helztu tálbeitu framboðsins! Það skiptir Tímaritstjórann ekki máli að Egill Skúli er ekki í kjöri við þessar kosningar. Fram hjá því er og litið, að hann hafði engin pólitísk völd á líðandi kjörtímabili, gegndi aðeins starfi embættismanns í skugga hins pólitíska „yfirborgarstjóra", Sigur- jóns Péturssonar. Þriðja kosningatromp Framsóknarflokksins er að færa ríkisvaldinu Borgarspítalann að gjöf — á silfurfati — og glata þann veg forræði Reykvíkinga á þessum vettvangi. Hvað hefur „Grimsby-lýðurinn" líka að gera með eigið sjúkrahús (?), en svo kölluðu Framsóknarmenn Reyk- víkinga á sokkabandsárum sínum. Það er sumsé ekki að ástæðulausu sem Davíð Oddsson segir frambjóð- endur Framsóknarflokksins hafa gert sjálfa sig að almennu athlægi í kosningabaráttunni. Kjarabarátta — kosn- ingar — og uppsagnir í heilbrigöiskerfinu Hjúkrunarfræðingar gengu út af ríkisspítölum á miðnætti sl. Þar verður aðeins um neyðarþjónustu að ræða. Sjúklingar, sem þarfn- ast sjúkrahússvistar, eru hópum saman sendir heim. Það ástand er að skapazt, sem ekkert fordæmi er fyrir í sögu íslenzkrar heilbrigðisþjón- ustu. Skrifstofustjóri fjármálaráðuneytisins sagði í viðtali við Mbl. í gær, að engin ákvörðun hafi verið tekin af hálfu ráðuneytisins vegna þessa mikla vanda. Hvar eru fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra, Ragnar Arnalds og Svavar Gestsson, þessir stefnuvitar Alþýðubandalagsins og „fram- verðir kjarabaráttupnar" að eigin sögn? Ekki leysti fjármálaráðherrann þennan vanda meðan hann var utan landsteina, en ráðherrar virðast kunna með afbrigðum illa við sig á ættjörðinni, ef marka má tíðan „landflótta" þeirra — á kostnað skattborgara. Enda var hann að taka eitt stórlánið enn hjá útlendum, sem skattborgarar verða að axla inn í óráðna framtíð. Og heilbrigðisráðherrann virðist hafa nóg að gera við áróðursskrif í Þjóðviljann, þar sem hann heldur því að launafólki, m.a. heilbrigðisstéttum, að „kosningar séu kjarabarátta" — og að Alþýðu- bandalagið fari síður en svo óhófshendi fjármálaráðherrans og skatt- heimtunnar um launaumslög almennings! Heilbrigðisstéttir segja upp störfum. Sjúklingar eru settir á guð og gaddinn. Fjármálaráðherrann heldur sig utan landsteina í vellystingum praktuglega og slær erlenda peningafursta um lán á lán ofan. Og heil- brigðisráðherrann hamast við að böggla saman „kjarabaráttu“-hvatn- ingum í Þjóðviljann. Gegnsærri marglyttu en Alþýðubandalagið getur ekki líta í gjörvallri heimspólitíkinni! Fjórfótur í stað þrífótar Efstu menn á framboðslistum þríflokkanna, sem nú standa undir borgarstjórnarforystu Alþýðubandalagsins, hafa ekki farið dult með það að þeir stefni í áframhaldandi vinstri meirihluta. Enginn hefur þó verið ákafari né stóryrtari um nauðsyn slíkrar vinstri samsuðu en Sigurður E. Guðmundsson, efsti maður á framboðslista Alþýðuflokks- ins, sem skákar jafnvel Sigurjóni Péturssyni í vinstra trúboðinu. Sjálfir segja talsmenn Alþýðubandalagsins frambjóðendur og stefnumið „kvennaframboðsins" sótt í eigin herbúðir, svo ekki efast þeir um „eign- arrétt" sinn á útkomunni. Það er því Iaukrétt sem Davíð Oddsson, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn, sagði á beinni línu útvarpsins í fyrrakvöld. Kjósendur hafa tvo valkosti — og aðeins tvo — í komandi borgarstjórnarkosning- um. Annarsvegar fjögur vinstri framboð, sem stefna að sama marki: áframhaldandi vinstri meirihluta í borgarstjórn undir forystu Alþýðu- bandalagsins. Nú er þrífótur vinstri-hyggjunnar orðinn að fjórfóti. Það er eini munurinn. Hinn valkosturinn er framboð Sjálfstæðisflokksins, sem stefnir að meirihluta í borgarstjórn, og leitar stuðnings borgarbúa til þess að ná því marki. Valið er því auðvelt. Hvort vilja Reykvíkingar borgarstjórnarforystu sjálfstæðismanna eða kommúnista? Það er sú höfuðspurning, sem hlýtur svar á kjörseðlum Reykvíkinga 22. maí nk. MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1982 Vinnustaðarfundur í íbúðum aldraðra við Dalbraut: Undirtektir gamla fólksins voru góðar — segir Hulda Valtýsdóttir „VIÐ fórum í heimsókn í íbúðir aldraðra inn við Dalbraut og rædd- um við gamla fólkið og voru undir- tektir góðar,“ sagði Hulda Valtýs- dóttir í samtali við Morgunblaðið, en auk hennar talaði á fundinum Katr- ín Fjeldsted. „Við settumst hjá fólkinu og spjölluðum við það þar sem það Hulda Valtýsdóttir og Katrín Fjeldsted raeða við aldraða. Ljósm. Mbl. Kmilía. sat yfir kaffibolla í setustofunni. Við ræddum við fólkið um málefni borgarinnar vítt og breitt. Þarna ríkir skemmtilegur og góður andi, hjá því fólki sem þarna dvelst, en við ræddum við fólk sem er þarna í dagvist, það kemur að morgni og fer síðdegis," sagði Hulda. Hulda sagði að borgarmálin hefðu verið rædd vítt og breitt og ýmsar spurningar fram bornar og hefðu undirtektir fundarmanna verið jákvæðar. KappræÖufundur á Lækjartorgi: Styrk stjórn sjálfstæðismanna, eða stöðnun undir vinstri stjórn Áheyrendur á kappræðufundinum á Lækjartorgi. Lj*sm. Mbi. ('n.k.m. — það eru val- kostirnir, sagði Davíð Oddsson „KOSTIRNIR í þessum kosningum er skýrir, valið stendur annars vegar um styrka stjórn Sjálfstæðisflokks- ins, en hins vegar um samstjórn fjög- urra vinstri flokka. Þetta eru kostirn- ir sem liggja fyrir og þessar kosn- ingar munu skipta sköpum fyrir Reykvíkinga,** sagði Davíð Oddsson, efsti maður á Iista Sjálfstæðisflokks- ins í Reykjavík, á kappræðufundi sem haldinn var á Lækjartorgi í gær að tilhlutan framkvæmdastjóra Pylsuvagnsins, Ásgeirs Hannesar Eirikssonar. Á fundinum mættu full- trúar allra þeirra flokka sem bjóða fram við kosningarnar í Reykjavík. í ræðu sinni sagði Davíð m.a. að borgarbúar myndu í kosningunum velja um hvort borgin ætti að styrkjast undir stjórn sjálfstæð- ismanna eða staðna undir vinstri stjórn. Sjálfstæðismenn legðu til að næst yrði byggt á besta byggingar- landi borgarinnar, en vinstri meiri- hlutinn vildi byggja á hinu svo til óbyggilega og gegnumsprungna Rauðavatnssvæði. „Það er óskiljan- legt að meirihluti borgarstjórnar skuli vilja beina Reykvíkingum framtíðarinnar upp á þessar gegn- umsprungnu heiðar við Rauðavatn," sagði Davíð. Davíð minnti á að ágreiningur væri í borgarstjórn um það, með hvaða hætti tryggja ætti borginni tekjur, sjálfstæðismenn vildu hag borgarbúa sem mestan en vinstri meirihlutinn hefði á kjörtímabilinu seilst æ dýpra ofan í vasa skatt- borgaranna. Benti Davíð á að skattaálögur á Reykvíkinga hefðu stórhækkað á hverju ári á þessu kjörtímabili og nefndi hann fast- eignagjöld, aðstöðugjöld, útsvar og gatnagerðargjöld í því sambandi. Hann sagði ennfremur að borgar- sjóður hefði tekið 40 milljóna króna lán til að koma síðustu fjárhags- áætlun saman, en þrátt fyrir það segðu fulltrúar vinstri meirihlutans að fjárhagur borgarinnar hefði aldrei verið betri! Davíð gagnrýndi þann málflutn- ing vinstri meirihlutans, að fyrir- tæki hefðu laðast að borginni undir þeirra stjórn. Hið rétta væri að gjöld hefðu verið stórhækkuð á fyrirtækin og ekki hefði nema ein lóð til atvinnustarfsemi verið aug- lýst til úthlutunar á þessu kjörtíma- bili. Bragi Jósepsson, frambjóðandi Alþýðuflokksins, sagði m.a. að hlut- verk Kvennaframboðsins væri það að tína upp atkvæði þeirra sem gef- ist hefðu upp á að kjósa Alþýðu- bandalagið og hann bætti við að Al- þýðubandalagið væri íhalds- og kerfisflokkur af verstu tegund. Kvennaframboðið væri björgunar- báturinn af hinu sökkvandi skipi Alþýðubandalagsins. Guðrún Helgadóttir, Alþýðu- bandalagi, sagði að Sjálfstæðis- flokkurinn væri „þversprunginn eins og Rauðavatnssvæðið" og sagði hún að enginn vildi „búa á virku sprungusvæði". Þá spáði Guðrún því að ríkisstjómin myndi falla, ynni Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík á ný. Sigurjón Pétursson, efsti maður á lista Alþýðubandalagsins, sagði að fólk vildi búa í Reykjavík undir vinstri stjórn og að fyrirtæki hefðu flúið úr borginni undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. Guðrún Þorsteinsdóttir, fram- bjóðandi Alþýðuflokksins, sagði að vinstra samstarfið í Reykjavík hefði gengið vel og fjármálastjórn borg- arinnar hefði aldrei verið betri. Rikka Mýrdal á laadakart Magdalena Siguióardóttlr (tk.) og Aua Kyjólfsdóttir í gamla hluta Landspítalans. Sveinbjörg Einarsdóttir og Svanhildur Sigurðardóttir á Landspítalanum. Mbi. Cu«jóa. Landakot og Landspítalinn: Auðar stofur og helmingur sjúklinganna sendur heim ÞAÐ VAR tómlegt um að litast á Landakots- og Landspítalanum er blm. Morgunblaðsins var þar á ferð seint í gærdag. Varla sást nokkur á ferli á göngum húsanna. Sjúkrastofur stóðu viða auðar, rúmin umbúin og stór hluti sjúklinganna a bak og burt í allan gærdag og undanfarna daga hefur verið unnið að því að flytja alla þá sjúklinga, sem hugsanlega geta dvalið í heimahúsum um skemmri tíma, af sjúkrahúsunum. Ástandið á Landakoti var ekki líkt því sem venjulega gerist á sjúkrahúsi er við komum þar inn. Öllum sjúklingum hafði verið kom- ið fyrir á fyrstu hæð hússins, en efri hæðirnar tvær voru mannlaus- ar, utan hvað nokkrir hjúkrunar- fræðingar gegndu skyldustörfum. „Það fóru 15—16 sjúklingar af deildinni hjá okkur í dag,“ sagði Rikka Mýrdal hjúkrunarfræðingur er rætt var við hana. „Hér er nú bara fyrsta hæðin í notkun. Ég gæti trúað að um 60 manns hefðu verið fluttir út hjá okkur í dag og undanfarna daga. Varla áttum við von á að svona færi þegar við fórum að þrýsta á kröfur okkar. Þetta virðist hins vegar vera eina leiðin. Eftir fund- inn, sem haldinn var í gær, var ljóst að ekki yrði samið við okkur. Eðlilega segir það sig sjálft, að þetta ástand getur ekki varað lengi. Margt af því fólki, sem tók við sjúklingum, er hreint ekki í stakk búið til að mæta þeim vanda,“ sagði Rikka. Svipað ástand var á Landspítal- anum. Við hittum fyrir Svanhildi Sigurðardóttur og Sveinbjörgu Einarsdóttur. Töldu þær að um 230 þeirra 420 sjúklinga, sem hefðu verið á Landspítalanum, hefðu ver- ið færðir í heimahús. „Við sendum hins vegar engan heim, sem ekki er fær um að vera heima. Vissulega vorum við búnar að búa okkur undir að svona færi,“ sagði Sveinbjörg. „Við höfum dreg- ið mjög úr innlögnum og all&r stærri aðgerðir, sem hugsanlega hafa getað beðið, hafa beðið undan- farna viku. Kröfur okkar eru alls ekki ósanngjarnar. Okkar starf hefur ekki verið metið sem skyldi. Okkur er lögð þung ábyrgð á herð- ar og umfang starfsins hefur auk- ist með ári hverju. Eldra fólk kem- ur í aðgerðir og það þarf lengri og meiri hjúkrun. Þetta ástand getur ekki varað lengi, tæpast meira en viku,“ sögðu þær stöllur, Sigríður og Sveinbjörg. í gamla hluta sjúkrahússins hitt- um við fyrir þær Magdalenu Sig- urðardóttur og Önnu Eyjólfsdótt- ur. Þær sátu i mestu makindum við pappírsvinnu. „Það er nú eiginlega svo rólegt hérna hjá okkur að við kunnum ekki almennilega við okkur. Venjulega er hér allt yfir- fullt þannig að viðbrigðin eru mik- il. Það er erfitt að segja til um hversu lengi þetta ástand kann að vara. Slíkt hefur ekki gerst áður, en iengi getur þetta aldrei gengið.“ Sólrún Bragadóttir nýtur hér tihagnar Mignmndar Arnar Arngrímssonar aóstoðarleikstjóra. Ljóxm. kök. Rætt viö Sólrúnu Bragadóttur, hina kornungu söngkonu, sem fara mun með hlutverk Hönnu í Meyjaskemmunni næstu þrjár sýningar MEYJASKEMMAN hefur nú verið sýnd um skeið við dágóðar undirtektir í Þjóðleikhúsinu. í þessari léttu og skemmtilegu óperu kemur meðal ann- ars fram fjöldinn allur af ungu fólki, sem er að heyja frumraun sína á þessu sviði. Ein þeirra er Sólrún Bragadóttir, 22 ára gömul reykvísk stúlka. f kvöld mun hún í fyrsta skipti fara með hlut- verk Hönnu í Meyjaskemmunni, einn- ig mun hún syngja á tveim næstu sýn- ingum. Hanna, sem Sólrún syngur, er yngst af meyjunum þremur, aðeins 18 ára snót, gáskafull og elskuleg en svolitið barnaleg. Það er Katrín Sig- urðardóttir, sem farið hefur með þetta „Ætlum að demba okkur í söngnám til útlanda“ hlutverk frá upphafi sýninga, en þetta er annað stærsta hlutverkið í óperunni og mæðir því mikið á því. Við hringdum í Sólrúnu og spurð- um hana að því, hvernig kvöldið legðist í hana? „Bara vel, annars er ég búin að vera með magapínu undanfarna daga. En ég tel mig hafa lært mikið á að hafa fylgst með tilurð sýn- ingarinnar frá upphafi. Ég hef líka verið þjálfuð í sviðsframkomu og leik og hefur aðstoðarleikstjórinn, Sigmundur Örn Arngrímsson, ekki síst reynst mér góður leiðbeinandi." Hver er aðdragandinn að því að þú syngur þetta hlutverk nú? „Hann er sá að hringt var til mín síðastliöinn nóvember og var ég beðin að koma niður í Þjóðleikhús og syngja þar. Fleiri söngkonur voru einnig prófaðar. Það var ekki fyrr en í febrúar, sem við fengum að vita, hver hefði verið valin í hlut- verk Hönnu, það var Katrín Sigurð- ardóttir, en ákveðið var að ég syngi á þremur sýningum." Hvernig finnst þér svo hlutverk- ið? „Það er fyrst og fremst létt og skemmtilegt og ég hef kunnað að meta það betur eftir því sem ég hef kynnst því nánar." Syngur eiginmaður þinn, Bergþór Pálsson, ekki líka í Meyjaskemm- unni? „Jú hann syngur hlutverk eins vinar Schuberts, en sá heitir Moritz Von Schwind. Þetta hlutverk er frumraun hans á þessu sviði, en hann er að læra að verða tón- menntakennari við Tón- listarskólann í Reykjavík, auk þess sem hann stundar söngnám hjá Elísabetu Erlingsdóttur." Er þá ekki mikið sungið á ykkar heimili? „Jú það má segja að þar sé bæði sungið og spilað, því við leikum bæði á píanó. Sem betur fer eigum við skilningsríka nágranna, svo við þurfum ekki að hafa áhyggjur af að við séum að angra einhverja með hljóðunum í okkur.“ Nú ert þú í Tónlistarskólanum í Reykjavík við söng- og píanónám, hvort heillar þig meira? „Ég hef stundað píanóið í um 10 ár og er nú í læri hjá Halldóri Haraldssyni. En þrátt fyrir að ég hafi fengist við píanóið nokkuð lengi, þá er það söngurinn, sem orð- ið hefur ofan á. Ég hef verið í söng- tímum hjá Elísabetu Erlingsdóttur, fyrst í Tónlistarskóla Kópavogs og síðan í Tónlistarskólanum í Reykja- vík og nú er svo komið að við Berg- J)ór ætlum að demba okkur í söng- nám til útlanda á næstunni og auð- vitað verður í för með okkur eins árs gamall sonur okkar." HE. Fundur með íbúum í Vesturbæ BORtíARRÁÐSFULLTRIJARNIR Albert Guðmundsson og Sigurjón Pétursson mættu í gær á fund með íbúum við Seljaveg og fulltrúum Ibúasamtaka Vesturbæjar. Vesturbæingarnir ítrekuðu þar mótmæli sín vegna efnaiðnaðar í íbúðahverfi og lögðu áherzlu á snyrtilegt útlit á húsnæði og svæðum atvinnufyrirtækja við Seljaveg. íbúarnir vilja að Efnaverkstniðjunni Eimi verði fundinu annar og heppilegri staður. Þeir Albert og Sigurjón ræddu þessi mál á fundinum, sem haldinn var við Seljaveg og kváðust myndu fylgjast með þróun þessa máls (Íns Og hægt væri. (Ijósm. OUfur K. Mn}>núsNfin.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.