Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 48
' Síminn á afgreiöslunni er 83033 jlfarcatittMiifrft LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1982 Um 370 hjúkrunarfræðingar létu af störfum á miðnætti: Reynt að koma sjúkling- um í sjúkrahús úti á landi Hjúkrunarfræðingar ganga út úr Landspítalanum undir miðnætti í nótt. Sjá miðopnu: Auðar stofur og helmingur sjúklinganna sendur heim. Ljósm. MbL: RAX. Á MIÐNÆTTI tóku uppsagnir um 370 hjúkrunarfrsóinga gildi. Hjúkrunar- fræðingar gengu út af ríkisspítölunum (Landspítalanum, Kleppsspítala og Vírilsstaðaspítala), Landakotsspítala og á sjúkrahúsunum á Selfossi og í Vestmannaeyjum og St. Jósefsspítala í Hafnarfirði. Eftirvinnubann gekk í gildi á Borgarspítalanum. Á miðnætti taka uppsagnir hjúkrunarfræðinga á sjúkrahúsunum á Akranesi og í Keflavík gildi. „Það horfir auðvitað til stórvandræða með sama áframhaldi. Haft hefur verið samband við sjúkrahús úti á landi og það gefur okkur einhverja möguleika á sjúkrarými, en eðlilega takmarkaða,“ sagði Ólafur Ólafsson, landlæknir, er Mbl. ræddi við hann í gærkvöldi. Nýjar tillögur um síldveiðar í haust: helmingur flot- leyfi til veiða Hjúkrunarfræðingar hafa sett neyðarþjónustu á laggirnar. Neyð- arráð hefur verið myndað á Land- spítalanum. Hlutverk þess verður að meta þörf á neyðarhjálp frá þeim hjúkrunarfræðingum, sem nú hafa hætt störfum. Á ríkisspítölunum eru um 900 rúm, en nú eru sjúklingar í 370 rúm- um. Af 430 hjúkrunarfræðingum hafa 250 nú látið af störfum. Á Landakoti eru 57 af 176 rúmum í notkun. Um 100 hjúkrunarfræð- ingar starfa að jafnaði á spítalanum og hafa 89 hætt vinnu. Áhrifa eftir- Þjónar boða verkfall FÉLAG framreiðslumanna hefur boðað verkfall annars vegar 22. maí nk. og hins vegar 28.-29. maí nk. Ólafur Sveinsson sem sæti á í samninganefnd félagsins sagði ennfremur, að um væri að ræða 125 félaga á Stór-Reykjavíkur- svæðinu og á Akureyri. Eins og skýrt hefur verið frá hefur starfsfólk í veitingahúsum ennfremur boðað verkfall, fyrst 21.—23. maí nk. og annað 28.-29. maí nk. hafi samningar ekki náðst. Sigurður Guðmundsson, formaður félagsins, sagði í sam- tali við Mbl., að um 700 félags- menn væru í Félagi starfsfólks á veitingastöðum. Kjarasamningar flestra verka- lýðsfélaga og vinnuveitenda renna út á miðnætti nk. og enn hillir ekki undir nýja samninga. Fundir voru með samninganefndum ASÍ og VSÍ í gærdag hjá ríkissátta- semjara, en árangur varð lítill. MIKILL samdráttur hefur orðið í gerð íþróttamannvirkja á kjörtímabili vinstri meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur. Sést það best, ef borin eru saman fjárframlög til íþrótta- framkvæmda til dæmis 1977, sem var síðasta heila árið, er meirihluti sjálf- stæðismanna fór með stjórn i höfuð- borginni, og 1980. Miðað við verðlag í desember 1981 var á árinu 1977 varið 618 milljónum gkr. til íþróttamann- virkja en aðeins 10,5 milljónum gkr. 1980. vinnubanns hjúkrunarfræðinga á Borgarspítalanum fer að gæta í næstu viku, en þar taka uppsagnir hjúkrunarfræðinga gildi eftir hálf- an mánuð. „Stjórnvöld ætluðu að láta reyna á það, hvort við gerðum alvöru úr því að ganga út. Það höfum við nú gert, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Ég vona, að yfirvöld sýni vilja til þess að leysa þessa deilu í þeim viðræöum sem framundan eru, en svo hefur ekki verið. Það sést best á orðum Þrastar Ólafssonar, aðstoðarmanns fjármálaráðherra, þegar hann sagðist vilja sjá framan í það þegar við gengjum út, rétt eins og það væri okkar aðaláhugamál," sagði Svanlaug Árnadóttir, formað- ur Hjúkrunarfélags íslands, í sam- tali við Mbl. „Því hefur verið veifað framan í okkur, að samvisku okkar vegna gætum við ekki gert annað en hjúkra fólki, hvort sem við fengjum mannsæmandi laun eða ekki. Við unum ekki lengur þeim lélegu kjör- um, sem okkur eru boðin. Þessir menn virðast ekki skilja neitt annað en reglulega andstyggileg vinnu- brögð. Ég harma það, en vona að fólk, sem vegna sjúkleika þarf að dvelja á sjúkrahúsum, fái umönnun sem fyrst, en það láta þessir herrar sér i léttu rúmi liggja," sagði Svan- laug. „Samningar hafa tekist við Verkakvennafélagið Sókn og þar var um að ræða venjulega kjaradeilu, sem fylgdi þeim leikreglum, sem samið hefur verið um og lög gera ráð fyrir. Deilan við hjúkrunarfræð- inga er annars eðlis. Þeir hafa þegar fengið almenna grunnkaupshækkun og auk þess tveggja launaflokka hækkun. Ég er ekki að halda því fram, að hjúkrunarfræðingar séu ofsælir af launum sínum, en vinnu- brögð þeirra samrýmast engan veg- inn því, sem samkomulag um samn- ingsrétt opinberra starfsmanna ger- ir ráð fyrir og lög ætlast til,“ sagði Ragnar Arnalds, fjármálaráðherra, í samtali við Mbl. Vinstri meirihlutinn hófst fyrst á árinu 1981 handa við framkvæmdir við smíði nýrra búningsklefa i sundlaugunum í Laugardal, en í meirihlutatíð sjálfstæðismanna hafði sú framkvæmd verið undir- búin. Ekki eru hafnar framkvæmdir við nýja skautahöll í Laugardalnum, en fyrir kosningarnar gáfu vinstri flokkarnir og ekki síst Alþýðu- bandalagið loforð um, að smíði hennar yrði lokið á því kjörtímabili. sem nú er að ljúka. Teikningar Aðeins ans fái „VIÐ erum að kynna mönnum þær hugmyndir, sem fram hafa komið um fyrirkomulag síld- veiða á komandi hausti. I þeim tillögum sem nú er rætt um er gert ráð fyrir að loðnuskipin fái heimild til síldveiða, þannig að mikið fjölgar í síldveiði- flotanum. Gert er ráð fyrir að aðeins helmingur flotans fái leyfi til síldveiða árlega og hafa þessar tillögur fengið misjafnan hljómgrunn,“ sagði Ingólfur liggja fyrir að skautahöllinni og í ár var veitt fé til að vinna að hönnun hennar, en allt er í óvissu um fram- haldið. Það eru framsóknarmenn, sem verið hafa í formennsku fyrir íþróttaráði Reykjavíkur. Frá 1979 hefur með löngum hléum verið unnið að endurnýjun í Sund- höll Reykjavíkur. Þær framkvæmd- ir hafa sætt gagnrýni fyrir, hve kostnaður við þær hefur verið mik- ill, en nú er talið að um 6 milljónum Falsson forseti Farmanna- og fískimannasambands íslands í samtali við Morgunblaðið. Á miðvikudag voru hugmyndirnar um tillhögun síldveiða kynntar á fundi í Reykjavík og í dag verða þær kynntar á fundum í Vest- mannaeyjum og Höfn í Horna- firði. Farmanna- og fiskimannasam- bandið og Sjómannasamband ís- lands standa meðal annars að þes- sum hugmyndum, en sjávarút- króna (600 millj. gkr.) hafi verið varið til jæirra, mun meira en áætl- að var. I fyrra var tveimur nýjum pottum komið fyrir í Sundhöllinni og er það eina nýjungin, sem í þess- ari upphæð felst. Endurnýjun á Sundhöllinni er ekki lokið og ekki er gert ráð fyrir því, að henni ljúki í ár. Teikning að skíðaskála í Bláfjöll- um lá fyrir, er vinstri meirihlutinn settist að völdum. Að smíði hans hefur verið unnið í samvinnu við önnur sveitarfélög á höfuðborgar- svæðinu og var henni lokið nú fyrir fáeinum dögum. vegsráðherra skipaði nefnd í vetur til að gera tillögur um fyrirkomu- lag síldveiðanna í haust. „Róttækustu breytingarnar í tillögunum eru að gert er ráð fyrir að aðeins helmingur flotans stundi síldveiðar á ári, þannig að skipin fái veiðiheimild annaðhvert ár. Samkvæmt þeim tillögum, sem fram hafa komið, er gert ráð fyrir að 75 bátar geti fengið leyfi til nótaveiða. í fyrra fengu 99 bátar leyfi, 84 nýttu sér það. Loðnuski- pin eru 52 talsins og ef gert er ráð fyrir að 45 þeirra nýti sér síld- veiðileyfi, þá gætu það orðið 150 skip, sem sæktu um síldveiðileyfi fyrir hringnót. Ef svo verður að helmingur þessa flota fengi síld- veiðileyfi á ári hverju, þá má reikna með að 65—70 skip stundi síldveiðar með nót, en hér er þá reiknað með þeim skipum, sem nýttu leyfin í fyrra. Miðað við 65 skip, kæmu 570 lestir i hlut hvers skips. Hvað varðar reknetin, þá voru gefin út 66 leyfi á siðastliðnu hausti, en 51 bátur nýtti leyfin. Ef við gefum okkur það að 26 bátar yrðu á síldveiðum með reknet í haust, þá fengu þeir 520 lestir til jafnaðar, en þess ber að geta að aðeins er hámarkskvóti á rekne- taveiðunum, en ekki kvóti á skip. Gert er ráð fyrir, að 35 þúsund tonn verði veidd í nót, 13.500 tonn í síldarnet 1, það er venjuleg rek- net, og 1.500 tonn í síldarnet 2, það er lagnet," sagði Ingólfur Falsson. Mikill samdráttur í íþrótta- framkvæmdum í Reykjavík Kostnaður við viðgerð á Sundhöllinni fer langt fram úr áætlun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.