Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.05.1982, Blaðsíða 1
48 SIÐUR 104. tbl. 69. árg. LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Sovézkt herskip í Eystrasalti alelda Stokkhólmi, 14. mal. AP. SOVÉZKT herskip, annað hvort beitiskip eða stór freigáta, stóð i Ijósum logum i alþjóðlegu hafsvæði undan ströndum Lettlands í Eystra- salti í dag, að sögn sænsku strand- gæzlunnar. Strandstöð á Gotlandi heyrði ófullkomið neyðarkall síðdegis og fann eftirlitsflugvél strandgæzl- unnar skipið síðar, þar sem það var statt 22 sjómílur undan hafn- arborginni Liepaja (Lipau). Að sögn strandgæzlunnar logaði í skipinu framan brúarinnar, og steig upp þykkur, kolsvartur reykjarmökkur, og því ógerlegt að sjá hversu útbreiddur eldurinn var. Svíar hófu ekki björgunarstarf, þar sem ekki barst beiðni um að- stoð, og Rússar eru kunnir fyrir að vilja aðstoða sín skip sjálfir án íhlutunar annarra. Þannig kröfðust þeir þess að fá að bjarga sjálfir kafbátnum, sem strandaði langt innan sænsku landhelginnar í október, nánast uppi í fjöru á einum hernaðarlega viðkvæmasta hluta sænsku strandlengjunnar. Mörg skip stefndu í átt til hins brennandi skips, en strandgæzlan gaf ekki upp þjóðerni þeirra. 40.000 manna^herlið í norðurhluta ísraels Tel Aviv, 14. maí. AP. RAPHAEL Eytan hershöfðingi, yfir- maður herafla Israels, staðfesti í dag, að ísraelar hefðu safnað saman miklu liði við landamæri Líbanons til hugsanlegra aðgerða gegn skæru- liðum frelsissamtaka Palestínu- manna handan landamæranna. Eytan sagði að aðgerðir gegn skæruliðum lægju ekki í loftinu, en Palestínumenn ættu að vera þess meðvitandi, að þeir myndu þurfa að gjalda stórum ef til átaka kæmi. Eytan er kunnur fyrir hörku sína í garð skæruliða PLO, og af sumum sagður leiðtogi harð- línumanna, en ágreiningurinn um það hvort ráðast skuli inn í Líban- on hefur valdið sundrungu í stjórn Begins. Að sögn ísraelskra fjölmiðla eru Begin, Ariel Sharon varnarmála- ráðherra og ýmsir ráðherrar aðrir hlynntir innrás, en þeir hafa mætt harðri andstöðu í stjórninni. Óljóst er hversu fjölmennt her- lið er nú samankomið nyrst í ísra- el, en sumar heimildir telja þar vera allt að 40 þúsund manna lið. Geysilegt magn hergagna hefur einnig verið flutt þangað. Haft var eftir Begin í dag, að ísraelsmenn hefðu gefið kristnum hægri mönnum í suðurhluta Líb- anon vopn að verðmæti eitthundr- að milljóna dollara á síðustu ár- um. Brezku kvikmyndatökukonurnar Cindy Buxton (Ijóakan) og Annie Price brosa sínu blíðasta á blaðamannafuadi eftir að þær komu til Lundúna í gær frá Suður-Georgíu, þar sem þær voru að taka náttúrulífsmyndir er Argentínu- menn gerðu innrás i eyjarnar. Þær urðu innlyksa á eyjunum eftir innrásina 3. apríl, en urðu ekki fyrir áreitni Argentínumanna. Sinumrad-AP. Margaret Thatcher um Falklandseyjadeiluna: Friðsamleg unnar ef til l/ondon, Buenos Aires, 14. msí. AP. MARGARET Thatcher, forsætisráð- herra Bretlands, varaði í kvöld við þvi, að ef til vill væri útilokað að leysa Falklandseyjadeiluna á friðsamlegan hátt „Og þá eigum við ekki nema um einn kost að velja," sagði Thatcher. Ilún sagði að hernámi Argentínu- manna „þyrfti að ljúka“, og því „yrði hrundið". Javier Perez de Cuellar, fram- kvæmdastjóri SÞ, sem reynt hefur í átta daga að leysa deiluna á frið- samlegan hátt, sagði úrslit myndu ráðast um helgina, hvort tilraunirn- ar bæru árangur eða ekki. Hann sagði bilið milli deiluaðila hafa minnkað, en viss ágreiningur væri enn óleystur. Galtieri hershöfðingi sagði í dag, að friðarviðræðurnar hefðu verið erfiðar og hægfara, en málin hefðu þokast í rétta átt. Hann er sagður hafa sýnt „nýjum hug- myndum" Bandaríkjamanna áhuga, að sögn Lundúnablaðsins Times, en blaðið heldur því fram í dag, að eng- inn árangur hafi orðið af tilraunum Perez de Cuellar. Talið er að Thatcher hafi með um- mælum sínum viljað kveða niður ótta íhaldssamra blaða og 70 þing- manna um að Francis Pym utanrík- isráðherra undirbúi „diplómatíska" lausn deil- yill útilokuð flotinn væri innlyksa í höfn eða fast við strönd Argentínu. Engin tíðindi bárust af vettvangi, en brezk blöð sögðu að herskipið sem varð fyrir árás þriggja Skyhawk-orrustuvéla á miðvikudag væri beitiskipið Glasg- ow, sem er systurskip Sheffield, sem eldflaug grandaði 4. maí sl. Press Association sagði „kraftaverk" hversu vel Glasgow slapp, því sprengja hefði komið niður á þilfar skipsins og farið niður á milli þilja án þess að springa. Engin árásar- flauganna komst undan. Rússar komu hörðum mótmælum á framfæri við brezk stjórnvöld í dag og sögðust álíta bannsvæði Breta umhverfis Falklandseyjar brjóta í bága við alþjóðalög. Tæplega 200 argentínskum her- mönnum, sem gáfust upp fyrir Bret- um á Suður-Georgíu, var fagnað sem hetjum er þeir komu til Buenos Aires í dag. Samkvæmt síðustu fregnum ákvað Sir Anthony Parsons að halda til Lundúna til viðræðna við stjórn Thatcher áður en framhald gæti orðið á friðarumleitunum framkvæmdastjóra SÞ. Talsmenn Breta neituðu að friðartilraunirnar hefðu farið í vaskinn. uppgjöf fyrir Argentínumönnum. Flest Lundúnablöðin hvöttu í dag til árásar á Falklandseyjar hið snar- asta, sögðu tíma til kominn að ráð- ast á land og endurheimta eyjarnar úr höndum Argentínumanna. John Nott varnarmálaráðherra sagði í morgun á ársfundi skozkra íhaldsmanna að stjórnin hygðist ekki svíkja Falklendinga. „Áatandið á eyjunum getum við ekki þolað öllu lengur og ásetningur okkar er skýr. Ef þörf krefur, þá beitum við valdi til að endurheimta eyjarnar." Nott viðurkenndi, að hugsanlega hefði hernámsliðinu borist vistir í skjóli myrkurs og illviðris, sem nú geisar við Falklandseyjar. Svarta- þoka er þar um slóðir, stormur og stórsjór. Hann gagði að argentínski FRA einum viðræðufundinum i Falklandaeyjadeihinni. Javier Perez de Cu- ellar, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (Lv.), ræðir við Sir Anthony Parsons, sendiherra Breta hjá SÞ. Að sögn kunnugra hefur orðið lítill sem enginn árangur af þreifingum Perez de Cuellar, og í gær komu fram nýjar tillögur Bandaríkjamanna til lausnar deilunni. .\p-mynd. Dollari styrkist London, 14. mai. AP. VERÐ á dollara hækkaði á peninga- mörkuðum í Evrópu í dag vegna spá- dóma um að bankavextir myndu ekki lækka í Bandaríkjunum á næstu vikum og vegna flugufregna um að peningamagn í umferð vestra yrði stóraukið eftir helgina. Dollar- inn stendur því styrkari nú en í viku- byrjun. Gullúnsan hækkaði um tæpa sex dollara í London og þrjá í Zú- rich, þótt lítið fjör væri í viðskipt- um. Kostaði únsan 338,12 dollara í London og 334,5 í Zúrich. Einnig hækkaði silfurverð lítillega. Staða brezka pundsins var nán- ast óbreytt við lok viðskipta i dag, miðað við stöðu þess á mánudag. Eldgosí St. Helens Vucovver, 14. maí. AP. HRAUNGOS hófst í St. Helens eldfjallinu í Washington-ríki árla í dag, og stóð gosmökkurinn eins og fjaðraskúfur sextán þús- und fet í loft upp. Flugmenn lítillar flugvélar, sem var í nánd við fjallið þegar gosið hófst, sögðu glóandi hraunskriður hafa oltið niður norðausturhlíðar fjallsins og gosaska féll í norðvesturhlíð- arnar. Skjálftavirkni var mikil í eldfjallinu í dag, og þótti hegð- an skjálftana benda til mikils hraunstreymis undir fjallinu. Bandaríska jarðfræðistofn- unin og jarðvísindadeild Washington-háskóla gáfu út tilkynningar í gær um gos- hættu í St. Helens. Spáðu stofnanirnar eldgosi innan 36 stunda. 100.000 fangar í Afghanistan Stokkhólmi, 14. mai. AP. RÚMLEGA hundrað þúsund manns, þar á meðal 2.000 konur með börn, hafa verið hneppt í varðhald síðan Rússar réðust inn i Afghanistan í desember 1979 fyrir að veita Rússahollri stjórn lands- ins andspyrnu, að því er fulltrúar afghönsku andspyrnuhreyfingar- innar héldu fram í Stokkhólmi í dag, föstudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.