Morgunblaðið - 30.11.1982, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 30.11.1982, Blaðsíða 47
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1982 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1982 25 Staðan í 1. deild Úrslit siðustu leikja í 1. deild karla í íslandsmótinu í handknattleík urðu þessi: Fram — Stjarnan 25—23 Þróttur — IR 32—21 KR — FH 21—25 Valur — Víkingur 18—18 Staðan í 1. deild karla: FH 9 7 0 2 177—171 14 KR 9 6 0 3 216—176 12 Víkingur 9 5 2 2 177—171 12 Þróttur 9 5 0 4 191—180 10 Stjarnan 9 5 0 4 186—185 10 Valur 9 3 1 5 172—178 7 Fram 9 3 1 5 200—214 7 ÍR 9 0 0 9 157—243 0 j kvöld leika í Laugardals- höllinni kl. 20.00 KR og Þróttur og á morgun, miðvikudag, leika Stjarnan og ÍR. Haukar efstir HAUKAR sigruðu ÍS 77—73 í hörkuleik í 1 deild karla á sunnudaginn. 3 mínútum fyrir leikslok hafði ÍS eins stigs forystu 70—69 en þó tók landsliöskappinn hjá Haukum, Pálmar Sigurðs- son, til sinna ráöa og skoraði sex stig í röð án svars frá ÍS. Pat Bock minnkaði síðan muninn niður í tvö stig, 75—73, en tvö vítaskot undir lokin frá Pálmari innsigluöu sigur Hauka. ÍS byrjaöi leikinn mjög vel, komst í 8—2, en Hauka- strákarnir gáfust ekki upp og náöu að komast yfir, 14—13. Síöan komust þeir í 28—21 en leikreyndir kappar ÍS-liös- ins náöu að minnka forskotiö fyrir leikhlé og staöan í hálf- leik var 39—38 fyrir Hauka. I síöari hálfleik höföu Hauk- arnir forystu þangaö til staö- an var 65—61, þá fékk Hálf- dán hjá Haukum sína 5. villu. ÍS-menn voru fljótir aö not- færa sér þaö og náöu aö komast yfir, 70—69. En þá var komið að þætti Pálmars eins og áöur er getiö og Haukarnir unnu sanngjarnan sigur, 77—73. Iljá llaukum voru |K*ir Weiwter, l'álm- ar Ojf Ilálfdán afkva rtamcsiir en í liAi ÍS var l’ai Bork hcsiur, cinnig var Arni (íuó- mundsson seigur. Leikinn dæmdu Hörður Tulinius og Gunnar B. Guö- mundsson. Staöan í 1. deild karla: Haukar 8 8—0 756—596 16 Þór 7 5—2 582—505 10 ÍS 6 4—2 563—442 8 UMFG 9 2—7 634—785 4 UMFS 8 0—8 599—856 0 Staðan í 2. deild LIÐ Gróttu er nú efst í ís- landsmótinu í handknattleik í 2. deild. Grótta er með 14 stig eftir átta leiki. Úrslit í síðustu leikjunum í 2. deild urðu þessi: KA — Breiðablik 19—19 Grótta — Ármann 22—21 Afturelding — Þór V 19—25 Haukar — Þór V 25—25 Staöan í deildinni eftir aö flest liðin hafa leikið átta leiki er þessi: (írólla X 7 III 2111 —194 14 KA 8 5 2 1 2111 — 173 12 l*ór\i'. 9 3 3 3 193—192 9 llreióahlik 8 3 2 3 158—157 8 llaukar 8 3 14 1X2—178 7 IIK 7 2 1 3 143—150 5 Ármann 8 1 3 4 167—178 5 Aftureldinx 8 1 2 5 152—175 4 Næsti leikur í 2. deíld er á morgun, miövikudag. Þá leika í Ásgarði í Garðabæ liö HK og UMFA, kl. 20.00. Framarar sáu fyrst dagsljós er Dagur tók til sinna ráða FRAM sigraöi Stjörnuna meö 25 mörkum gegn 23 í 1. deildinni í handknattleik í Laugardalshöllinni á sunnudagskvöld í ekki alltof skemmtilegum leik, ef frá er skilinn kafli um miðjan seinni hálfleik þegar mikil spenna hljóp í leikinn. Garðbæingar höföu fjögur mörk yfir í hálfleik, 15—11. Og þaö leit reyndar út fyrir aö Stjarnan færi með auðveldan og stóran sigur af hólmi í þessum leik. Frumkvæöiö var venjulega í höndum Garöbæinganna, meira bit í sóknarleik þeirra og vörnin tiltölulega þétt og flest þau skot sem fóru fram hjá henni stöövaði Brynjar markvörður. Aö vísu mátti lesa sömu tölur á markatöflunni fyrstu 20 mínúturnar eða þar til staöan var 8—8. Þá skoruðu Garöbæingar fjögur mörk á jafn mörgum mínútum og náðu drjúgu forskoti, sem þeir svo héldu þar til um miðjan seinni hálfleík. Reyndar komst Stjarnan í 17—12 og 18—13 í byrjun s.h. og stefndi allt í stórsigur þeirra. En Garöbæingarnir nýttu ekki yfir- buröi sína sem skyldi, hálfgeröur doöi hljóp í leikmenn, en á sama tíma tóku Framarar aö berjast bet- ur, og þaö sem einkum hleypti í þá eldmóöi var baráttugleöi Dags Jónassonar, sem hreinlega tók leikinn í sínar hendur fyrir Fram þegar Stjarnan virtist ætla aö stinga af. Mörg marka Dags voru hálf ótrúleg en skemmtileg. Kintzinger skoraði 57 stig fyrir Grindavík vann góöan sigur, 118—92, á Skallagrím á sunnu- daginn í Grindavík. Var þetta annar sigur liðsins í vetur og því afar kærkominn. Grindvíkingar náðu strax góöri forystu í leiknum og eftir 10 mín- útur var staðan orðin 21—15 þeim í vil, síðan juku þeir muninn í 41—21. Staöan í hálfleik var síö- an 56—37 fyrir Grindavík. í seinni hálfleik leyföi þjálfari Grindavíkur öllum leikmönnum aö spreyta sig. Viö þaö jafnaðist leik- urinn örlítiö og vann Grindavík seinni hálfleikinn meö 7 stigum. Lokatölur uröu 118—92. Douglas Kintzinger lék sinn fyrsta leik meö Grindavík og fór hann hreinlega á kostum í leiknum, skaut 28 skot utan af velli, hitti úr 20. Tók hann síöan 22 vítaskot og Grindavík hitti úr 17, alls 57 stig. Auk þess tók hann 28 fráköst í leiknum. Grindvíkingar vænta mikils af hon- um í vetur, sérstaklega í sambandi viö þjálfunárstörf. Allt annaö var aö sjá hina ungu stráka í Grindavík nú en þegar Sailes lék meö þeim, viröast þeir hafa öölast sjálfstraustiö á ný. Liö Skallagríms leikur ekki meö Kana í vetur og hafa þeir miöað viö það staöiö sig ágætlega í vetur. Stigahæstir hjá Grindavík voru Douglas Kintzinger 57, Ingvar Jó- hannesson 14, Pálmi Ingólfsson 10, Jóhannes Sveinsson 10 og Hjálmar Hallgrímsson 10. Hjá Skallagrím voru þeir stiga- hæstir Björn Axelsson 27, Sigurö- ur Jónsson 22 og Hafsteinn Þór- isson 19 stig. — IHÞ. Fram — Stjarnan 25—23 Þegar níu mínútur voru eftir haföi Stjarnan enn tveggja marka forystu, 21 —19, en þá skoruöu Framarar fjögur mörk og gerðu nánast út um leikinn, komust í 23—21. Þeir komust síöan í 25—22 þegar hálf mínúta var eftir, en Gunnar Einarsson þjálfari Stjörnunnar átti síöasta oröið, skoraöi þegar 20 sekúndur voru eftir. Gunnar kom inn á þegar aö- eins tvær mínútur voru eftir, heföi átt aö fara inn á þegar 15 mínútur voru eftir, þá heföu úrslitin kannski getaö oröiö önnur. En vangaveltur af þessu tagi duga lítt, því Framar- ar fóru meö sigur af hólmi, og þaö veröskuldaöan, þar sem þeir gáf- ust aldrei upp og þöröust allan tímann meö þaö aö leiðarljósi aö leikur væri hvorki unninn né tapaöur fyrr en hann væri flautaö- ur af. Mörk Fram: Dagur Jónasson 6, Egill Jóhannsson 6, Hermann Björnsson 3, Erlendur 1, Björn Ei- ríksson 2, Gunnar Gunnarsson 3, Siguröur Svavarsson 1, Hinrik Ólafsson 2, Jón Árni Rúnarsson 1. Mörk Stjörnunnar: Ólafur Lárus- son 5, Magnús Andrésson 4, Guö- mundur Þóröarson 4, Björgvin Elí- asson 3, Gunnlaugur Jónsson 3, Guömundur Óskarsson 2, Magnús Teitsson 1 og Gunnar Einarsson 1. Haukar misstu niður forskotið HAUKAR og Þór Vestmannaeyj- um skildu jöfn aö mörkum í frek- ar leiðinlegum og sveiflukennd- um leik er liðin mættust í annarri deild karla I Hafnarfiröinum á laugardaginn. Lokatölurnar uröu 25—25 eftir aö staöan hafði veriö 12—11 í hálfleik, Haukum í vil. Haukar heföu hæglega getaö unniö leikinn þar sem þeir voru komnir í 25—22 þegar aöeins 3 mín. voru eftir af leiknum. Þá hljóp allt í baklás hjá Haukum og þeir misstu tvo leikmenn útaf, og Þór nær aö skora tvö mörk á ör- skömmum tíma og staöan allt í einu oröin 25—24. Haukar fá þá dæmt vfti, þegar aöeins ein minúta er eftir af leikn- um, en Sigmar geröi sér lítiö fyrir og varöi, Þórsarar brunuöu upp og Lars skorar jöfnunarmarkiö, 25—25, og Eyjamenn réöu sér vart fyrir gleöi. Haukamenn byrj- uöu meö boltann en misstu hann strax, og Þór átti síöasta skotiö í leiknum er Gylfi skaut yfir úr auka- kasti er leiktímanum var lokiö. Ef stiklaö er á stóru i gangi leiksins, þá var fyrri hálfleikurinn jafn, þar sem liöin skiptust á um aö hafa forystuna, og Haukar meö eitt yfir í hálfleik. Þórsarar mættu hins vegar grimmir í seinni hálfleikinn og virtust ætla aó taka leikinn í sínar hendur og komust í 18—16 á 10. mín. seinni hálfleiks. Þá var Lars tekinn úr umferö og leikur Þórs riölaöist meö þeim afleiöing- um aö Haukar komust eins og áö- ur sagöi í þriggja marka forystu, sem þeir svo aftur glopruðu niöur á klaufalegan hátt. Um liöin er þaö aö segja aö mest bar á Þóri Gíslasyni í liöi Hauka, þó einkum í seinni hálfleik, er hann skoraöi ein 6 mörk. Hörö- ur Sigmarsson var einnig drjúgur, og markmennirnir, þeir Ólafur og Gunnar, vöröu sæmilega. Hjá Þór var Sigmar í markinu bestur, og varöi m.a. 3 víti. Útispilarar voru nokkuö jafnir aó getu sem sést best á því aö 9 leikmenn komust á markalistann. Gylfi og Lars voru einna skástir. Lars var haröur í vörninni en mætti gera meira af því aö skjóta í sókninni. Mörk Hauka: Þórir 7, Höröur 7 (2 víti), Jón S. 5 (1 víti), Ingimar og Sigurjón 2 hvor, Stefán og Guö- mundur 1 hvor. Mörk Þórs: Lars 5 (4 víti) Gylfi 5, Gestur 4, Böövar, Óskar, Ingólfur, Herbert og Sigurbjörn allir meö 2 og Páll 1 mark. — BJ. Stjörnugjöfin Þróttur: Páll Ólafsson ★ ★ Ólafur H. Jónsson ★ Lárus Lárusson ★ Einar Sveinsson ★ ÍR: Guöjón Hauksson ★ FH: Kristjén Arason ★ ★★ Þorgils Öttar ★ ★ Pélmi Jónsson ★ ★ Hans Guömundsson ★ KR: Alfreð Gíslason ★ ★★ Haukur Geirmundsson ★ ★ Gísli Felix Bjarnason ★ ★ Jóhannes Stefánsson ★ STJARNAN: Brynjar Kvaran ★ ★ Guömundur Þóröarson ★ ★ Ölafur Lárusson ★ Björgvin Elíasson ★ FRAM: Dagur Jónasson ★* Egill Jóhannsson ★* Hermann Björnsson * Gunnar Gunnarsson ★ Siguróur Þórarinsson * isiandsmðtlð 2. delld - -/ • Haukur Geirmundsson KR (t.v.) og Guömundur Magnússon FH berjast um boltann. Gífurleg barátta var í leik liöanna á laugardaginn, en í þeim leik haföi lið FH betur. Ljósm. Kristján Einarsson. Stórleikur FH er liðið sigraði KR LIÐ FH trónar nú í efsta sæti í 1. deildar-keppninni (handknattleik eftir góöan sigur á móti KR á laugardaginn í Laugardalshöllinni. FH sigraðí með 25 mörkum gegn 21 eftir hörkuleik. Orugglega þann besta í 1. deildar-keppninni í ár. Leikur liöanna var mjög jafn og spennandi og þaö var ekki fyrr en alveg undir lok leiksins aö FH-ingum tókst meö haröfylgi og baráttu að hrista KR-inga af sér. Mjög góöur handknatt- leikur var leikinn af báöum liöum. Nokkur harka var í leiknum enda varnarleikur beggja liöa sterkur og haröur. Mikill hraöi var í leiknum sem bauð uppá létt spil, hröö upphlaup, gott línuspil og laglegar leikfléttur. Haldi hiö unga lið FH stríki sínu meö svona góöum leik og baráttu veröur erfitt aö stoppa þaó af í vetur. Gífurleg barátta Strax í upphafi leiksins var um gífurlega mikla baráttu aó ræóa hjá leikmönnum beggja liöa. Ljóst var aö liöin ætluöu aö selja sig dýrt og ná i bæöi stigin. Allan fyrri hálf- leikinn var leikurinn alveg hnífjafn. Liöin skiptust á um aö hafa foryst- una í leiknum og ekki mátti á milli sjá hvort liðið heföi betur. i hálfleik hafði FH þó eins marks forystu, 10:11. Kristján Arason óstöðvandi Fram i miðjan síöari hálfleikinn var leikurinn mjög jafn og eitt mark skildi liöin oftast aö. En þá tókst FH-ingum aó ná tveggja marka forystu, 18:16. Og eftir þaö voru þeir alltaf yfir í leiknum. Þaö var stórleikur Kristjáns Arasonar sem geröi KR-ingum erfitt fyrir. Þrátt fyrir aö Kristján væri alveg tekinn úr umferö í síöari hálfleiknum tókst honum að skora 12 mörk í leiknum og þar aðeins fjögur úr vitaköst- um. Þá voru línusendingar hans mjög góöar. Þegar fimm mínútur voru til leiksloka var lið FH meö örugga forystu í leiknum, 23:19, og sigri liðsins ekki ógnaó. Leikmönnum KR vantaöi nefnilega meiri yfirveg- un og rólegheit undir lok leiksins. En þá léku þeir meir af kappi en forsjá. Létu skapiö pirra sig um of. Þaö kann ekki góöri lukku aö stýra. Liðin Þaö er alveg Ijóst aö bæöi liö KR og FH veröa meö í baráttunni um íslandsmeistaratitilinn í ár. Liö- in eru í mjög góöri æfingu og leika vel saman. KR-ingar eiga fram- undan tvo stórleiki í Evrópukeppni bikarhafa á móti sterku liöi frá Júgóslavíu og meó samskonar leik og á móti FH gætu þeir hæglega veitt hörkukeppni. Þeir Alfreö og Anders Dahl léku mjög vel á móti FH bæöi í vörn og sókn. Þá kom Haukur Geirmundsson vel frá leiknum og Jóhannes Stefánsson lék vel í vörninni. Þaö sem einna helst skortir í liö KR er meiri yfir- vegun og yfirsýn á leiknum þegar allt er í járnum. Halda boltanum og leika af skynsemi og skjóta ekki nema í upplögöum marktækifær- um. Hiö unga liö FH lék oft meistara- lega vel gegn KR. Sér í lagi var sóknarleikur liðsins skemmtilegur. Þaö hefur lengi hentað FH aö leika frjálsan handknattleik. Láta bolt- ann ganga hratt og létt og glæöa leikinn einstaklingsframtaki og eig- in fléttum. Þetta geröu hinir ungu leikmenn FH á móti KR og upp- skáru eins og þeir sáöu. Þá var baráttan og leikgleöin fyrir hendi og þá gengur dæmiö upp. Kristján Arason er yfirburðamaö- ur í íslenskum handknattleik í dag. Hann hefur allt til aó bera til aó veröa handknattleiksmaður á heimsmælikvarða. Er óhemju góö skytta. Sterkur varnarspilari, og fh~21:25 hefur gott auga fyrir öllum samleik og línuspili. Er mjög óeigingjarn og leikur jafnan drengilega. Þorgils Óttar er besti linuspilarinn í ís- lenskum handknattleik í dag. En í leiknum á móti KR geröi hann sig þó sekan um aö reyna í þrígang skot úr vonlitlum færum og eftir stuttar sóknir. Pálmi Jónsson er mjög lipur leikmaöur sem fellur vel inn í létt spil liðsins. Hans var sterkur í vörninni og er vaxandi leikmaöur. Þaö sem einna helst vantar í liö FH er meiri breidd. í stuttu máli: íslandsmótiö 1. deild, Laugardalshöll. KR — FH 21:25(10:11) Mörk KR: Alfreð Gíslason 5, Andres Dahl 5 (2v), Haukur Geir- mundsson 3, Jóhannes Stefáns- son 3, Gunnar Gíslason 2, Haukur Ottesen 2, Ragnar Hermannsson 1. Mörk FH: Kristján Arason 12 (4v), Þorgils Óttar Matthisen 6, Pálmi Jónsson 3, Hans Guö- mundsson 2, Guömundur Magn- ússon og Valgarö Valgarösson 1 mark hvor. Brottrekstur af leikvelli: Pálmi Jónsson, Kristján Arason og Þor- gils Óttar, allir í FH, í 2 mínútur hver. Sveinn Bragason FH var úti- lokaöur frá leiknum. Haukur Ottesen, KR, í 2 mínút- ur. Misheppnuö víti: Gísli Felix Bjarnason varöi víti hjá Kristjáni Arasyni á 21. mínútu leiksins. Dómarar voru þeir Ólafur Stein- grímsson og Jón Hermannsson og var dómgæsla þeirra langt frá því aö vera nægilega góö. Gætti mjög ósamræmis í dómum þeirra í leikn- um og oft höfðu þeir lítil tök á leiknum. — ÞR. 1. deild kvenna: Fram vann Hauka FRAM vann Hauka í Hafnarfiröi é laugardaginn er liðin mættust I fyrstu deild kvenna. Lokatölurnar uröu 13—11. Staöan í hálfleik var 8—4 Fram I vil. Framstelpurnar tóku leikinn strax í sínar hendur og komust í 6—1 eftir um 15 mín., og útlitiö því ekki gott hjá Hafn- firöingum. Undir lok hálfleiksins fóru Haukastelpurnar aöeins aö bragg- ast, en þó ekki svo aö Fram hólt sínu striki út hálfleikinn og staöan því 8—4. Munur þessi hélst út seinni hálfleikinn eóa þangaö til staöan var 12—8, en þá fóru Haukadömurnar aö sækja í sig veöriö meö Ragnheiöi Júl. í farar- broddi. Fram var hins vegar betri aðilinn og sigrinum varó ekki ógnaö þrátt fyrir tilraunir góóar, og sigurinn því sanngjarn. Hjá Fram bar helst á Guöríöi og Sigrúnu á línunni. Markvarslan var og ágæt, en liöiö annars nokkuö jafnt. Ragnheiöur Júlíusdóttir bar höf- uð og herðar yfir stöllur sínar hjá Haukum í þessum leik, hvort held- ur var í sókn eöa vörn, en var hins vegar full sein í gang. Elva Guð- mundsd. stóö sig einnig vel á lín- unni. Mörk Fram: Guöríöur 4, Sigrún 3, Oddný, Arna og Margrét allar með tvö mörk. Mörk Hauka: Ragnheiöur 6 (2 víti) Elva 4 og Halldóra M. 1. — Bj. Geir Hallsteinsson: „Ég get ekki komið auga á neitt sem þessar æfingar hjá landsliðinu skila“ „SVONA handknattleik víll fólk fé að sjé. Hraöan, spennandi, harö- an og í bland frjálst spil og leik- fléttur. Ég fullyröi það aö þessi leikur á milli KR og FH er besti leikur íslenskra félagsliöa hér é landi síöastliöinn 3 til 4 ár,„ sagöi Geir Hallsteinsson, þjálfari FH, eftir leik liðanna síöastliðinn laugardag. — Þaö voru sumir leikmenn sem sýndu hreina snilldartakta í leiknum, eins og til dæmis þeir Þorgils Óttar og Kristján Arason. Ég er mjög ánægöur meö sigur liðsins, viö erum búnir aö vera aö stefna aö svona handknattleik í 3 ár, og mér sýnist á öllu að nú sé þetta aö koma hjá okkur. En þaö var mjög slæmt aö missa þrjá leikmenn í æfingaprógram lands- liösins og ég hringdi í þá Jón Er- lendsson og Hilmar Björnsson og kvartaöi sáran yfir því aö geta ekki fengiö leikmenn mína á æfingu meö góóum fyrirvara fyrir svona mikilvægan leik. En skila ekki landsliðsæf- ingarnar sínu og fá leikmennirnir ekki góða undirstööu þar? — Nei, síöur en svo. Það er tóm vitleysa aö vera aö æfa tvisvar á dag. Viö erum að æfa minna og láta menn hafa gaman af þessu. Þjóófélagsaöstæöur hér bjóða ekki uppá aö leikmenn æfi tvisvar á dag og stundi fulla vinnu. Þeir verða þreyttir og þaö sást best á síöustu tveimur landsleikjum gegn Frökkum að leikgleöi var engin. Þaö eru einhverjir þeir lélegustu landsleikir sem ég hef séð. Ég get ekki komið auga á neitt sem þess- ar æfingar hjá landsliöinu hafa skilaó. Þaö virðist ekkert koma út úr þeim. Viö fengum reynslu af því aö æfa tvisvar á dag hjá Cervinski og þaö gafst ekki vel. Menn uröu dauóleiöir og þreyttir. Þaö veröur aö breyta fyrirkomulaginu ef árangur á aö nást, sagöi sá reyndi handknattleikskappi og þjálfari Geir Hallsteinsson. — ÞR. • Ragnar Hermannsson hornamaöur í liöi KR stekkur hér inn af lín- unni og vippaði laglega yfir markvörö FH, Sverri Kristinsson, sem kom engum vörnum viö þrétt fyrir góða tilburöi. Lj4«m. Kriutjén. Kizzing þjálfar KA LIÐ KA fré Akureyri, sem féll niöur í 2. deild knattspyrn- unnar í haust, hefur nú réöiö þjélfara fyrir næsta sumar. Er þaö Fritz Kizzing, sem þjélfaði lið Breiöabliks tvö síöastliöin keppnistímabil. Aö sögn Gunnars Kárasonar, formanns knattspyrnudeild- ar KA, kemur Kizzing til starfa 15. mars nk., en hann er aðeins ráðinn til félagsins fyrir eitt keppnistímabil. Elmar Geirsson mun aö öll- um líkindum leggja skóna á hilluna, og ekki er vitað hvaö Gunnar Gíslason gerir ( sumar. Flest 1. deildar liöin munu hafa sett sig í samband viö hann en þrátt fyrir það gæti svo fariö aö hann yröi áfram hjá KA. — SH. 3. deild: Fylkir hefur ekki tapað leik ennþá Liö Fylkis hefur enn ekki tapaö leik í 3. deildarkeppn- inni í handknattleik og hefur forystu í deildinni meö 12 stig eftir 6 leiki. Úrslit í síö- ustu leikjum uröu þessi: Staðan í deildinni: Fylkir — Þór A 18—17 Akranes — Týr 28—20 Ögri — Þór A 9—33 Skallagrímur — Týr 17—25 Fylkir 6 6 0 0 140—93 12 ÞórAk.8 4 2 2 195—138 10 Reynir S.6 4 1 1 135—117 9 AkranesS 3 11 126—112 7 Keflavík 7 3 1 3 147—133 7 Týr Ve. 8 3 1 4 167—150 7 Dalvík 6 2 0 4 134—132 4 Skallagr. 6 1 0 5 118—163 2 Ögri 6 0 0 6 68—191 0 Haukadömur sigruðu HAUKA-dömurnar unnu sinn fyrsta sigur í 1. deild kvenna é kostnað Njarðvíkur é sunnudaginn. Hauka-stelpurnar néöu strax undirtökunum í leikn- um og höfðu góða forystu í hélfleik, 26—19. í seinni hálfleik voru yfir- buröir Hauka nær algerir. Komust þær i 34—19 og loksins þegar 8 mínútur voru liönar af seinni hálfleik skor- aöi Njarövík sitt fyrsta stig í s.h. Leikurinn hélst síðan jafn fram á 14. mínútu, þegar staöan var 50—33 fyrir Hauka. Þá þótti Hauka- stelpunum nóg komið og skoruöu 19 stig í röö án svars frá Njarðvík. Lokatölur uröu því 69—33. I liAi llauka var Sólev fnjög góö meó :I4 slig, aörar voru jafnar. Iljá Njaróvík bar Katrín Kiríksdóllir af og svndi hún ofl ansi skemmlilega takta. Sligin fvrir llauka geróu Sóley Indrióa dóllir 34, Svanhvíi (iuólaugsdóttk 13. Kagnheióur Júlíu.sdóllir 10, Sólvcig Pálsdóllir 6, Krislín Samundsdoliir 4 oj» Klva .Sverrisdónir 2 stijj. — ||||». Staðan í 1. deild kvenna: KR 5 5—0 348—189 10 ÍR 5 4—1 236—199 8 UMFN 5 2—3 184—291 4 Haukar 6 1—5 259—300 2 ÍS 5 1—4 227—272 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.