Morgunblaðið - 30.11.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 1982
3
Með hæstu atkvæða-
töluna samanlagt
— segir Jóhanna Sigurðardóttir
„ÉG GET verið ánægð með þessi
úrslit. Ég kom út með hæstu
atkvæðatöluna samanlagt og eins
hæstu atkvæðatöluna í tvö efstu sæt-
in og ég vil einnig segja að það eru
ekki persónulegir sigrar eða árangur
einstaklinga í prófkjöri sem skiptir
máli, heldur framgangur jafnaðar-
stefnunnar,“ sagði Jóhanna Sigurð-
ardóttir alþingismaður i samtali við
Morgunblaðið, en hún varð önnur í
röðinni í prófkjöri Alþýðuflokksins.
Varðandi hina dræmu þátttöku
í prófkjörinu sagðist Jóhanna vera
mjög óánægð, enda hefði hún bú-
ist við meiri þátttöku. Kvaðst hún
telja að veðrið hefði skipt máli og
einnig hefðu prófkjör verið á sama
tíma og hefði það væntanlega haft
eitthvað að segja.
Spurningu um hvort niðurstaða
prófkjörsins hafi valdið henni
vonbrigðum, þar sem hún hlaut
flest atkvæði, en aðeins annað
sæti, svaraði Jóhanna þannig:
nÞað kemur prófkjör eftir þetta
prófkjör og þá mun ég stefna
ótrauð á fyrsta sætið.“
Anægður með traustið
— segir Jón Baldvin Hannibalsson
„ÞAÐ var tvennt sem greinilega dró
nokkuð úr þátttöku í prófkjörinu,
hið fyrra var vitað fyrir, hinn tak-
markaði fjöldi frambjóðenda, en
fimm frambjóðendur voru um fjögur
sæti. Hiö síðara réðum við ekki við,
það var almættið sjálft," sagði Jón
Baldvin Hannibalsson alþingismað-
ur í samtali við Morgunblaðið, en
hann varð efstur i prófkjöri Alþýðu-
flokksins sem haldiö var um helg-
ina.
Niður-
staðan góð
— segir Bjarni
Guðnason
„FRÁ persónulegu sjónarmiði þykir
mér niðurstaðan góð, ég gerði mér í
raun og veru engar vonir með að ná
nema þriðja sætinu og þaö tókst þótt
með naumindum væri,“ sagði Bjarni
Guðnason prófessor, en hann varð í
þriðja sæti í prófkjöri Alþýðuflokks-
ins.
„Aðsókn báða dagana var að
fara á skrið síðla dags. Á laugar-
daginn kom hret og það varð flug-
hálka og stórdró það úr aðsókn
síðustu klukkutímana og mann-
drápsbylur var hinn daginn og
einmitt klukkan 16 þegar aðsóknin
var í hámarki," sagði Jón Baldvin.
Jón Baldvin var spurður álits á
sinni útkomu í prófkjörinu. „Ég er
ánægður með traustið," sagði
hann. Spurningu um dræma þátt-
töku sagði Jón Baldvin að það yrði
hver að túlka fyrir sig, en kvaðst
ekki vera svartsýnn vegna þátt-
tökunnar. í prófkjöri fyrir borgar-
stjórnarkosningarnar hefðu fleiri
frambjóðendur verið, og nú eftir
þá ákvörðun Vilmundar að taka
ekki þátt, þá hefði spennan
minnkað. „Ég er búinn að vera
víða í tengslum við fólk í kringum
þetta prófkjör og ég hef engar
áhyggjur af því að takmörkuð
þátttaka boði eitthvað illt fyrir
flokkinn í kosningunum," sagði
Jón Baldvin Hannibalsson.
Frá prófkjöri Alþýðuflokksins um helgina.
Ljósm. Mbl. Kristján
Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykjavlk:
Jón Baldvin efstur, en þriðji í
röðinni hvað atkvæðamagn varðar
ÚRSLIT í prófkjöri Alþýðuflokksins sem var um helgina urðu þau að Jón
Baldvin Hannibalsson alþingismaður varð í fyrsta sæti, Jóhanna Sigurðar-
dóttir alþingismaður í öðru, Bjarni Guðnason prófessor í þriðja, Ágúst Ein-
arsson framkvæmdastjóri í fjórða og Eraanúel Morthens i flmmta sæti. 1.901
tók þátt í prófkjörinu, þar af var 151 atkvæði autt eða ógilt. Þátttaka í
prófkjörinu nú var áberandi minni en verið hefur undanfarin ár.
Jón Baldvin hlaut 863 atkvæði í
fyrsta sætið, 372 í annað, 286 í
þriðja og 75 í fjórða sæti, samtals
1.596 atkvæði. Jóhanna hlaut 579
atkvæði í fyrsta sæti, 757 í annað,
297 í þriðja og 72 í fjórða, samtals
1.687 atkvæði. Bjarni hlaut 308 at-
kvæði í fyrsta sætið, 290 í annað,
472 í þriðja og 562 í fjórða sæti,
samtals 1.632 atkvæði. Ágúst
hlaut 331 atkvæði í annað sætið,
713 í þriðja og 449 í fjórða sætið,
samtals 1.493 atkvæði. Emanúel
hlaut 592 atkvæði í fjórða sætið,
en hann bauð sig einungis fram í
það sæti.
Enginn frambjóðandinn hlaut
bindandi kosningu í sæti á fram-
boðslistanum, en til þess þurfti
1.739 atkvæði, þar sem samkvæmt
reglum Alþýðuflokksins þarf
frambjóðandi að fá 20% þeirra at-
kvæða sem flokkurinn hlaut í
kjördæminu í síðustu kosningum.
Þátttaka í prófkjörum Alþýðu-
flokksins hefur verið meiri undan-
farin ár en var nú. í prófkjörinu
fyrir alþingiskosningarnar árið
1978 tóku um 6.000 manns þátt,
fyrir alþingiskosningarnar 1979
tóku um 4.600 manns þátt og í
prófkjörinu fyrir síðustu borgar-
stjórnarkosningar greiddu tæp-
lega 2.500 manns atkvæði.
„Hins vegar get ég ekki verið
ánægður með þetta flokksins
vegna, því þátttakan var svo
dræm að bersýnilega er mikið
áhugaleysi og almenn pólitísk
þreyta í landinu. Það er almenn
pólitísk þreyta hjá íslendingum,
þegar þeir horfa upp á getuleysi
flokkanna við að ráða við þann
vanda sem hefur. steðjað að þjóð-
inni í efnahagsmálum," sagði
Bjarni Guðnason.
Eldsvoðinn á Stokkseyri:
Hæstiréttur
staðfesti
varðhalds-
úrskurð
HÆSTIRÉTTUR staðfesti
í gær gæzluvarðhaldsúr-
skurð sem kveðinn var upp
yfir eigenda verzlunarinn-
ar Allabúð á Stokkseyri.
Eigandinn var úrskurðaður
í gæzluvarðhald til 2. des-
ember næstkomandi vegna
rannsóknar á eldsvoða en
verzlunin brann til kaldra
kola í lok október. Eigand-
inn kærði úrskurðinn til
Hæstaréttar fyrir helgi.
^\,skriftar-
síminn er 830 33
Aðeins okkar í milli
segðu það engum
Allavega hafðu mig ekki fyrir því
Þeir eru vist búnir að opn
þar sem Kráin var við Hlemm,
eftir velheppnaðar breytingar.
Og
ekki franskar,
ekki
hamborgara,
sósur né steikur,
hvað þá heldur kjúklinga.
Hvað þá?
Það er fyrir þig að sjá,
en hafðu mig allavega ekki
fyrir þessu.