Morgunblaðið - 03.02.1983, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.02.1983, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1983 Yfirlit Seðlabanka íslands um stöðu efnahagsmála í upphafi árs: Rjúfa verður þann vítahring verð bólgu, sem þjóðin er fjötruð í Morgunblaðinu hefur borizt eftirfarandi yfirlit Seðlabanka íslands um stöðu efnahagsmála í upphafi árs. Auk þess hefur Mbl. borizt „Bráðabirgðayfirlit um þróun peningamála 1982“ og „Bráðabyrgðayfirlit um þróun greiðslujafnaðar og gjaldeyrisstöðu á árinu 1982“, sem verða birt síðar. Seðlabankinn hefur í dag sent frá sér tvö yfirlit, annað um greiðslu- jöfnuð og gjaldeyrismá), en hitt um þróun peningamála á árinu 1982. Þótt hér sé að nokkru um bráða- birgðaupplýsingar að ræða, sem auk þess taka aðeins til hluta af þjóðarbúskapnum, sýna þau ljós- lega hinar ískyggilegu breytingar, sem áttu sér stað í efnahagsþróun og stöðu þjóðarbúsins á árinu 1982. Við þann verðbólguvanda, sem áður var við að glíma í efnahagsmálum, bættist nú stóraukinn viðskipta- halli og samdráttur þjóðarfram- leiðslu, sem stefnir stöðu þjóðar- búsins út á við í mikinn háska. Rætur þessarar þróunar má að verulegu leyti rekja til mjög versn- andi ytri aðstæðna á síðastliðnu ári, einkum minnkandi sjávarafla og söluerfiðleika á erlendum mörk- uðum. Jafnframt kom nú enn í ljós bæði hve fljótt hið lögboðna vísi- tölukerfi magnar áhrif utanaðkom- andi örðugleika og hversu varhuga- verð öll frestun nauðsynlegra gagn- ráðstafana er fyrir efnahagslegt jafnvægi. Þær ráðstafanir, sem gerðar voru á síðasta ári til að ráða bót á vax- andi þjóðhagslegum halla, komu ekki nógu tímanlega til að hafa veruleg áhrif á þjóðarútgjöld á ár- inu, en auk þess ríkti á köflum óvissuástand, á meðan beðið var eftir ákvörðunum í efnahagsmál- um. Niðurstaðan virðist í aðalatrið- um hafa orðið sú, að þjóðarútgjöld og innflutningur vöru og þjónustu hafi hvort tveggja haldizt svo til óbreytt frá árinu á undan, þrátt fyrir mikla lækkun þjóðartekna og útflutnings. Minnkandi tekjur þjóð- arbúsins og birgðasöfnun komu því með fullum þunga fram í auknum viðskiptahalla við útlönd, sem virð- ist skv. bráðabirgðatölum hafa far- ið upp í um 11% af þjóðarfram- leiðslu á árinu. Leiddi þessi mikli viðskiptahalli til þess, að hlutfall erlendra skulda til langs tíma af þjóðarframleiðslu jókst úr rúmum 37% í nálægt 47,5% á árinu, en jafnframt lækkaði nettó-gjaldeyris- eign bankanna um helming. Er hér um afar viðsjárverða þróun að ræða fyrir efnahagslegt öryggi þjóðar- innar, ekki sízt þegar litið er til óvissu og erfiðleika á erlendum lánamörkuðum. Mikil breyting varð í þróun geng- ismála á árinu 1982. Vegna versn- andi stöðu útflutningsatvinnuveg- anna var framkvæmd veruleg geng- islækkun í upphafi ársins og um leið horfið frá þeirri aðhaldsstefnu í gengismálum, sem fylgt hafði ver- ið árið áður. Önnur meiri háttar gengisbreyting reyndist nauðsynleg í ágústmánuði, einkum vegna áhrifa aflabrests á afkomu þjóðar- búsins. Þriðja breytingin átti sér svo stað nú í byrjun þessa árs, en milli þessara þriggja gengisbreyt- inga var gengi krónunnar látið síga með hiiðsjón af þróun hér og er- lendis. Alls lækkaði vegið meðal- gengi krónunnar um rúm 47% frá upphafi árs til ársloka, sem sam- svarar tæplega 90% meðalhækkun á verði erlends gjaldeyris. Þessi mikla breyting gengisins umfram innlendar verðlagshækkanir, en þær námu rúmlega 60% á árinu, virtust á hverjum tíma nauðsynleg- ar til þess að tryggja viðunandi samkeppnisaðstöðu atvinnuveg- anna við versnandi ytri aðstæður. Hitt var jafnframt óumflýjanlegt, að hraðari gengisbreytingar hefðu að öðru óbreyttu í för með sér vax- andi verðbólgu, nema gerðar væru ráðstafanir til þess að taka áhrif þeirra út úr vísitölukerfi verðlags og launa. Þetta var að hluta gert með 8% skerðingu verðlagsbóta 1. desember sl. En þrátt fyrir áhrif þeirrar ráðstöfunar átti gengis- þróunin mikinn þátt í því að auka verðbólguna úr rúmum 40% í byrj- un ársins í yfir 60% í árslok. Engar ráðstafanir hafa enn verið gerðar til þess að eyða verðbólguáhrifum þeirrar gengisbreytingar, sem ákveðin var í byrjun þessa mánað- ar, enda stefnir verðbólgan að öllu óbreyttu yfir 70% þegar á allra næstu mánuðum. Þróun peningamála var mjög óhagstæð á árinu 1982, verulega dró úr aukningu innlána, en útlán inn- lánsstofnana urðu langt umfram ráðstöfunarfé, svo að lausafjár- staða þeirra þrengdist mjög. Mörg öfl voru hér að verki. Sökum vax- andi verðbólgu urðu ávöxtunarkjör fjármagns óhagstæðari, eftir því sem á árið leið, en jafnframt kynti efnahagsleg óvissa undir lánaeft- irspurn og dró úr sparnaði. Nauð- synleg vaxtaaðlögun dróst fram á síðasta ársfjórðung, en síðan hefur verðbólgan enn vaxið. Fjárhags- staða sjávarútvegsins, sem átti við mikinn hallarekstur að stríða, eink- um á fyrra helmingi ársins, auk mikillar birgðasöfnunar, versnaði mjög á árinu, og jók hann stórlega skuldir sínar við bankakerfið og viðskiptaaðila. Hafði þetta í för með sér mikla útlánaaukningu af hálfu Seðlabankans og viðskipta- banka, bæði vegna reglubundinna afurðalána og sérstakrar fyrir- greiðslu vegna fjárhagserfiðleika fyrirtækja. Hefur þessi þróun þegar gengið mjög nærri fjárhagsstöðu bankakerfisins. Hefur það komið fram í vaxandi skuldasöfnunum bankanna gagnvart Seðlabankan- um, sem svo aftur hefur haft í för með sér minnkandi gjaldeyriseign hans erlendis. Þegar litið er yfir þróunina að undanförnu og stöðu þjóðarbúskap- arins í dag, er ljóst, að þrátt fyrir aðgerðir stjórnvalda til þessa vant- ar mikið á, að efnahagsvandinn, sem magnaðist svo mjög á síðast- liðnu ári, hafi enn verið leystur. Fari fram sem horfir, verður mjög mikill halli á viðskiptajöfnuði einn- ig á þessu ári, og skuldastaðan við útlönd mun komast á enn hættu- legra stig. Jafnframt heldur verð- bólga áfram að magnast og grafa undan fjárhagslegu trausti og sparifjármyndun, en háu atvinnu- stigi haldið uppi með erlendri skuldasöfnun og verðbólgumynd- andi útlánum innanlands. Við þess- um vanda verður að bregðast hið allra fyrsta, því hver mánuður er dýr í vaxandi erlendum skuldum, sem langan tíma tekur að greiða niður. Meginmarkmiðið í efna- hagsmálum hlýtur því, eins og nú er komið, að vera að draga úr og eyða sem fyrst viðskiptahallanum við út- lönd, sem ógnar efnahagslegu ör- yggi landsmanna. Gengisskráningin er eitt mikil- vægasta tækið, sem hægt er að beita til þess að örva útflutnings- framleiðslu og draga úr innflutn- ingi. Vandinn liggur þó ekki í því, að gengið hafi ekki verið lækkað nægilega að undanförnu, heldur í hinu, að ekki hafa samtímis verið gerðar ráðstafanir, er tryggðu, að breytingar gengisins hefðu varan- leg áhrif, en eyddust ekki á skömm- um tíma af völdum víxlhækkana og leiddu þannig fyrst og fremst til aukinnar verðbólgu. Ef breytingar gengisins að undanförnu eiga að hafa tilætluð áhrif verður því að koma í veg fyrir, að þær renni óheftar út í framleiðslukostnað og verðlag. Er reyndar ljóst, að lengra þarf að ganga og stefna verður sem fyrst að gagngerri endurskoðun hins lögboðna vísitölukerfis verð- lags og launa, ef komast á út úr þeim ógöngum, sem íslenzk efna- hagsmál eru nú komin í. Erlendar lántökur hafa á undan- förnum árum ekki aðeins verið af- leiðing umframeyðslu þjóðarbúsins, heldur hefur óhófleg notkun er- lends lánsfjár haft í för með sér eftirspurnar- og peningaþenslu, sem ýtt hefur undir verðbólgu og viðskiptahalla. Mikilvægt er, að sem fyrst sé gengið frá lánsfjár- áætlun fyrir árið 1983, þar sem stefnt sé að um þriðjupgs lækkun á erlendum lántökum frá því, sem var á síðastliðnu ári, sem samsvarar að erlendar lántökur verði um 3.500 millj. kr. á núgildandi gengi. Síðan verður að takmarka lánsfjármagn- aðar opinberar framkvæmdir og út- lán fjárfestingarlánasjóða við það svigrúm, sem þá er fyrir hendi. í peningamálum verður að setja það markmið, að útlánaaukning verði innan við það ráðstöfunarfé, sem bankakerfið fær af auknum innlánum, svo að lausafjárstaða innlánsstofnana geti batnað að nýju. Á sama hátt verður að tak- marka lánafyrirgreiðslu Seðla- bankans við aukningu ráðstöfunar- fjár hans, svo að ekki verði frekar gengið á gjaldeyrissjóði þjóðarinn- ar, sem nú eru að komast niður fyrir öryggismörk. Mikilvægasta forsenda jafnvægis á lánamarkaði er sú, að ávöxtunarkjör fjármagns séu í samræmi við verðlagsþróun. Er því afar brýnt að draga úr verð- bólgu á næstunni, svo að auðið verði að komast hjá hækkun fjármagns- kostnaðar. Að lokum er rétt að benda á nokkur atriði, er varða samhengi þeirra þátta efnahagsmála, sem hér hafa verið gerðir að umtalsefni, og þess markmiðs að halda uppi nægi- legri atvinnu við þjóðnýt störf. Enginn vafi er á því, að háu at- vinnustigi hefur verið haldið uppi nú um nokkurt skeið fyrst og fremst með miklum erlendum lán- tökum til framkvæmda og rekstrar, en hins vegar með peningaþenslu, en hvort tveggja hefur stuðlað að verðbólgu og viðskiptahalla. Skuldasöfnun Islendinga gagnvart umheiminum er nú hins vegar orðin svo mikil, að háskalegt væri að halda lengra áfram á þeirri braut. Háu atvinnustigi verður því ekki enn haldið uppi með þessum ráðum nema um skamman tíma. Eigi að tryggja sæmilegt öryggi í atvinnu- málum framvegis, verður það að hvíla á traustari stoðum, svo sem sterkri samkeppnisaðstöðu og góð- um rekstrarskilyrðum atvinnuveg- anna og auknum innlendum sparn- aði, en forsenda fyrir þessu hvoru tveggja er, að rofinn verði sá víta- hringur verðbólgu, sem þjóðin er fjötruð við. Naustið stækkar MorKunblaðið/KÖE. Veitingahúsiö Naust í Reykjavík hefur verið stækkað um helming með húsnæði Geirsbúðar, sem hefur vcrið innréttað á sama hátt og sá veitingasalur, sem fyrir var. Með þessum breytingum hefur dansgólf hússins stækkað. Einnig segir í frétt frá veitingahúsinu, að aðrar endurbætur hafi verið gerðar, m.a. hefur norðurgafl hússins verið einangraður og loftið og á þá að vera úr sögunni, að fullkalt sé í veitingahúsinu í norðanveðrum. Á myndinni eru Ómar Hallsson og Rut Ragnarsdóttir, veitingamenn Naustsins, og á bak við þau sér inn í Geirsbúðarviðbótina. HRINGIÐ OG VIÐ KOMUM OG HÖNNUM. OPIÐ LAUGARDAGA kl. 9—4. Armúla 20, sími 84630 og 84635. • FÖST VERÐTILBOÐ MEÐ UPPSETNINGUM • Margra ára reynsla, og afgreiðslufrestur 4—5 viktír. • Lituð eik eða Ijós fura. • Greiðslufrestur allt að 7 mánuðir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.