Morgunblaðið - 03.02.1983, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.02.1983, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1983 27 Ólafsvík: Lftill afli, lélegar gæftir Olafsvík, 2. febrúar. 8KGJA verður að verið hafi lítill vertíð- arbragur yfir sjósókninni hér frá ára- mótum. I>ví veldur að gæftir hafa verið afar erfiðar og afli lítill, enda jafnan svo þegar ekki er hægt að leggjast á fisk. Þó hefur heldur ræst úr síðustu daga. Sextán bátar eru byrjaðir róðra, og eru 11 þeirra með línu. Heildaraflinn er aðeins 865 tonn, í 194 sjóferðum. Aflahæstur línubáta er Gunnar Bjarnason með 110,5 tonn í 17 róðrum, og Steinunn með 95 tonn í 18 róðrum. Hæsti netabátur- inn er Matthildur sem hefur fengið 38,5 tonn í 11 róðrum. Ms. Hvalvík er hér í dag og skipar á land 900 til 1000 tonnum af salti. - Helgi „Dularfullur fjársjóður“ í Stjörnubíói STJÖRNUBÍÓ hefur frumsýnt banda- rísku kvikmyndina „Dularfullur fjár- sjóður" með Terence Hill og Bud Spencer í aðalhlutverkum. Myndin fjallar um leit þeirra fé-. laga að földum fjársjóði á Bongó Bongó-eyju. Drífur margt á daga þeirra félaga áður en tjaldið fellur. Morgunblaðið/ RAX Verðlaunahafarnir, frá vinstri, Dagný Hermannsdóttir, Kagnar Stein- grímsson og Edda Aradóttir. Fyrir aftan þau standa, frá vinstri talið: Sr. Sigurður 11. Guðmundsson, form. Öldrunarráðs, Kolbeinn Pálsson frá Flugleiðum og William Gunnarsson frá Heimilistækjum. C • • Ritgerðasamkeppni Oldr- unarráðs til lykta leidd HINN 31. janúar sl. voru afhent verðlaun fyrir bestu ritgerðir í samkeppni sem Öldrunarráð ís- lands efndi til. Ritgerðarefnið var: „Hvaða breytingar vilt þú gera á kjörum aldraðra á Islandi áður en þú verður 67 ára“ og var öllum mennta- og fjölbrautaskólanem- um gefinn kostur á að taka þátt í keppninni. Skólastjórnir völdu svo þrjár bestu ritgerðirnar úr hverjum skóla og sendu þær dómnefnd. Nefndina skipuðu prófessor Halldór Halldórsson, Runólfur Þórarinsson og Sigurð- ur Magnússon. Niðurstöður urðu þær, að í fyrsta sæti varð Ragnar Gautur Steingrímsson, Flensborgar- skóla, Hafnarfirði, og ■ hlaut hann vikuferð með Flugleiðum til Puerto Rico. I öðru sæti varð Edda Guð- björg Aradóttir, Menntaskólan- um á Akureyri, og hlaut hún ferðahljómflutningssamstæðu frá Philips. I þriðja sæti varð Dagný Hermannsdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík, og fékk hún Sinclair-tölvu í verð- laun. Ráðstefna í Ölfusborg- um um fræðslustarf verka- lýðshreyfingarinnar DAGANA 4. og 5. febrúar nk. verður haldin á vegum Menningar- og fræðslusambands alþýðu ráðstefna í Ölfusborgum um fræðslustarf verka- lýðshreyfingarinnar. Á ráðstefnunni verður fjallað um ýmsa þætti, sem snerta fræðslu- starfið sem fram fer á vettvangi verkalýðssamtakanna, bæði á vettvangi MFA og einstakra félaga og sambanda. Fyrri daginn mun Tryggvi Þór Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri MFA, gera grein fyrir helstu þátt- unum í starfi MFA og Lárus S. Guðjónsson fræðslufulltrúi ræðir um námsfrí launafólks, helstu leið- ir og markmið. Síðari daginn verð- ur fjallað um tvo meginþætti, ann- ars vegar viðhorf til fræðslustarfs, þar sem málshefjendur verða Grét- ar Þorsteinsson, formaður Tré- smiðafélags Reykjavíkur, Jón Agn- ar Eggertsson, formaður Vlf. Borg- arness, og Pétur A. Maack, starfs- maður Verslunarmannafélags Reykjavíkur. Hins vegar verður fjallað um helstu áhersluatriði í fræðslustarfinu á næstu árum, en málshefjendur um þann þátt verða Karl Steinar Guðnason, formaður VI. og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis, Torfi Sigtryggsson, trésmiður á Akureyri, Þóra Hjalta- dóttir, formaður Alþýðusambands Norðurlands, og Örn Friðriksson, trúnaðarmaður í álverinu í Straumsvík. Þátttakendur verða um 35 talsins víða að af landinu. Á liðnum árum hefur fræðslu- starf verkalýðshreyfingarinnar aukist að mun og má líta á ráð- stefnuna í því ljósi, en þar er gert ráð fyrir að menn skiptist á skoð- unum um það hvernig til hefur tek- ist á liðnum árum og hvað beri einkum að leggja áherslu á í næstu framtíð. Ráðstefnan getur því haft mikil áhrif á það hvernig staðið verður að fræðslustarfi verkalýðs- samtakanna, því ekki hefur áður verið efnt til ráðstefnu af þessu tagi. Ráðstefnustjóri verður Guð- mundur Hilmarsson, formaður Fé- lags bifvélavirkja og stjórnarmað- ur í MFA, en ráðstefnan hefst á föstudag, 4. febrúar, síðdegis með setningarávarpi formanns MFA, Helga Guðmundssonar. (FréUatilkynning) Kvikmyndahátíð Listahátíðar: Á níunda þúsund sýningargestir Á NIUNDA þúsund manns höfðu í gærkveldi sótt kvikmyndasýningar Kvikmyndahátíðar Listahátíðar í Reykjavík, að því er Örnólfur Arna- son, framkvæmdastjóri Listahátíðar, sagði í samtali við blaðamann Morg- unblaðsins í gærkveldi. Örnólfur sagðist vera ánægður með aðsóknina, sem væri svipuð því sem verið hefði undanfarin ár. Flestar myndanna sagði hann ekki verða sýndar hér á landi aftur, og öll þau filmueintök, sem Listahátíð hefði fengið lánuð vegna hátíðar- innar, yrðu send aftur utan þegar að hátíðinni lokinni. Að sögn Örnólfs er erfitt að segja hver myndanna hefur fengið besta aðsókn, þar sem þær eru sýndar svo sjaldan og í mismun- andi stórum sölum. „Yfirleitt er að- sókn hins vegar góð,“ sagði Örnólf- ur, „og á kvöldin er hér troðfullt út úr dyrum.“ Útsölu- markaður í Kjörgarði (kjallara) Geriö svo vel aö líta inn. í kjallara Kjörgarös. Góðar vörur á lágu verði Skartgripir í miklu úrvali Sendum í póstkröfu m 28640 Fatnaður fyrir alla fjölskylduna Barnaúlpur verö frá kr. 390. Dömuúlpur verö frá kr. 490. Herraúlpur verö frá kr. 490. Flauelsbuxur, stæöir 2—12, verö frá kr. 195. Flauelsbuxur, stæröir 26—40, kr. 295. Barnapeysur frá kr. 90. Fullorðinspeysur frá kr. 150. Vynilstígvél verö frá kr. 295. Sokkar, vettlingar, húfur og margt, margt fleira. Útsölumarkaóurinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.