Morgunblaðið - 03.02.1983, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 03.02.1983, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1983 31 Lesendaþjónusta Morgunblaðsins: Spurt og svarað um áfeng- ismál og önnur vímuefni Eins og skýrt var frá í Morgunblaðinu, mun blaðið á næst- unni birta spurningar og svör um áfengisvaldamálið og önnur vímuefni. Lesendum Morgunblaðsins er gefinn kostur á því að hringja inn spurningar um hvað eina, sem snertir þessi málefni og mun SÁÁ hafa milligöngu um að afla svara sérfróðra aðila til þessum spurningum. I»eir, sem hafa áhuga, eru beðnir að hringja í síma 10100 frá kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og vcrða þá spurningar teknar niður. Spurningar og svör birtast síðan í Morgunblaðinu nokkrum dögum síðar. Hér fara á eftir spurningar og svör: Hringið í síma 10100 frá mánudegi til föstudags Þrjú atriöi af fjórum sýna að um alkóhól- isma er að ræða Karlmaður spyr: Hvenær þarf maður að ugga að sér gagnvart áfengi? Hvaða vís- bendingar getur maður haft um það að maður sé kominn út á hála braut? iH'gar maður lítur í kring- um sig, hefur maður tekið eftir því að viðkomandi er oft sá síðasti til að taka eftir því að hann á við áfcngisvandamál að stríöa. Inirarinn Tyrfingsson læknir svar- ar: Ég get tekið undir það, að sá sem á við áfengisvandamál að stríða, er oft sá síðasti til að taka eftir því. Auk þessa eru menn tregir til að leita ráða hjá sérfróðum um þessi mál, þó að það liggi beint við. Ýmsir spurn- ingalistar eða einkennaupptaln- ingar hafa því orðið til, svo að menn gætu pukrast við að gera sjúkdómsgreiningu sjálfir. Það er kannske að bera í bakkafullan lækinn að bæta einni við. En hér kemur þó ein, lesendum til gagns og gamans: Ef áfengisdrykkja þín hefur valdið þremur af eftirfarandi fjórum númeruðum atriðum, ertu orðinn alkóhólisti: 1. Skaðað líkamlega heilsu: Ef erfiðleikar eru á að átta sig á þessu er rétt að benda á eftir- farandi merki: Ef eftirköst eru svæsnari en venjulegir timb- urmenn, svo sem skjálfti, ofskynjanir og deleríum trem- ens, eða menn hafi orðið varir við líkamlega fylgikvilla eins og lifrarbólgu, magabólgu, bris- kirtilsbólgu eða úttaugabólgu. Minnistap hefir gert vart við sig í drykkju eða menn hafa ekki mætt til vinnu eða trassað aðrar skyldur sínar vegna eftirkasta eða ölvunar oftar en einu sinni. 2. Skaðað fjölskyidulíf: Merki um slikt eru til dæmis ef þér finnst þú drekka of mikið, fjöl- skyldan lætur í ljós óánægju með drykkju þína, þú hefir sekt- arkennd vegna drykkju eða öð- rum en vandamönnum finst þú drekka of mikið, heimsóknum vina þinna fer að fækka til dæmis. 3. Skaðlcg áhrif á mannorð og traust út á við: Maður á að láta sér detta þetta í hug, ef maður er handtekinn vegna ölvunar, lendir í umferðaróhappi eða erf- iðleikum á vinnustað vegna drykkju, slæst drukkinn. 4. Stjórnleysi í meðferð áfengis: Að setja sér ákveðnar drykkju- reglur gæti verið merki um slíkt, t.d. að drekka aðeins um helgar, drekka aðeins með öðru fólki eða drekka aðeins létt vín. Einnig gæti það komið manni á sporið ef maður drekkur að morgni, við vinnu eða dreypir á brennsluspritti eða hárolíu. Kannist þú við að eitt atriði í þremur af þessum fjórum ein- kennahópum eigi við þig, ætt- irðu að ráðfæra þig við sérfræð- ing, en gættu þess áður, að sá, sem þú talar við, drekki að minnsta kosti til muna minna en þú. Fræðsla um áfengis- vandann í fyrirtækjum Fram hefur komið í fjölmiðlum að SÁÁ veiti fræðslu um áfengis- vandamál í fyrirtækjum. í hverju er hún fólgin? Jóhann Örn Héðinsson starfsmað- ur hjá SÁÁ svarar. SÁÁ hefur frá upphafi haft það að markmiði, ásamt því að reka meðferðarstofnanir, að koma upplýsingum um áhrif áfengis á líf og heilsu manna á framfæri. í þessu skyni hefur verið farið í grunnskóla landsins með fræðslu og haldnir fundir með foreldrafélögum, líknarfé- lögum og ýmsum áhugamanna- samtökum. Starfsmannaþjón- usta SÁÁ er nýr þáttur af svip- uðum toga og er í því fólginn í fyrsta lagi, að veita stjórnend- um fyrirtækja upplýsingar um eðli áfengissýkinnar og í öðru lagi að kynna hinum almenna starfsmanni sjúkdóminn, þróun hans og áhrif á fjölskyldulíf, vinnu o.fl. Fræðsla þessi fer fram með þeim hætti að fyrst er fyrirlestur og síðan er sýnd kvikmynd og að lokum er fyrir- spurnum svarað. Það er von okkar hjá SÁÁ að með þessu skrefi höfum við enn bætt við okkur í baráttunni við áfengisvandann. Þau fyrirtæki og félagaamtök, sem hafa áhuga á að kynna sér þessa þjónustu nánar, eru hér með hvött til þess að hafa samband við okkur í Síðumúla 3—5 í síma 82399. •j§ JHH -1-...J Hentunú pamla burstauum og láttu Hiilips leysa þig af! Það eru ófáir klukkutímarnir, sem eytt er í uppvask á meðalheimili í viku hverri. Þar að auki eru jafnt rauðsokkur sem húslegustu heimilisfeður sammála um að uppvask sé með leiðinlegri húsverkum til lengdar. Uppþvottavélar eru svo sem engin nýjung, en fram til þessa hafa þær af flestum verið taldar „lúxustæki”, ef ekki hreinn og beinn óþarfi og bruðl. Nýja Philips uppþvottavélin veldur þáttaskilum í þessu efni. Hún er ekki bara tæknilega fullkomin, hljóðlát og vandvirk heldur líka ódýr! Verð frá kr. 11950,- Hafðu samband, við erum sveigjanlegir í samningum. PHILIPS fullkomin og ódýr heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655 Stórglæsileg rýmingarsala stendur yfir M M Ármúla 38

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.