Morgunblaðið - 03.02.1983, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 03.02.1983, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. FEBRÚAR 1983 VIÐSKIPTI - EFNAHAtíSMÁL - ATHAFNALÍF Tímabilið 4. ársfjórðungur 1978 til 2. ársfjórðungs 1982: Um 12% rýrnun kaupmátt- ar elli- og örorkulífeyrls GENGISÞROUNIN VIKURNAR 17-21 OG 24 28 JANÚAR 1983 1$ 8,9. 88. 8J- 8,8. 85. i84_. I mi. þr (imtoal |k mii<t tira tíx 1C 30,8. 294. 29,0. 285. 21,0. *», * v , • mi. Qt mm. fim lim m |». miW fim.fftsl Dollarinn hækkaði um 0,37% í síðustu viku: Pundið lækkaði um tæplega 1% MISMIKLAR breytingar urðu á gengi gjaldmiðla í liðinni viku, en breytingin á Bandaríkjadollar varð þó minnst. liann hækkaði um 0,37% í verði. Solu- gengi hans var í upphafi vikunnar skráð 18,720 krónur, en sl. Tóstudag var það skráð 18,790 krónur. Frá áramótum hefur Banda- ríkjadollar hækkað um 12,85%, en í upphafi ársins var sölugengi hans skráð 16,650 krónur. Frá gengisfellingunni 5. janúar sl. hef- ur hann hins vegar hækkað um 3,41% í verði, en í kjölfar gengis- fellingarinnar var sölugengi Bandaríkjadollars skráð 18,170 krónur. Brezka pundið í liðinni viku lækkaði brezka pundið um 0,92% í verði, en í upp- hafi hennar var sölugengi punds- ins skráð 29,166 krónur, en sl. föstudag var það skráð 28,899 krónur. Pundið hefur frá áramótum hækkað um 7,71%, en í upphafi ársins var sölugengi þess skráð 26,831 króna. Frá gengisfelling- unni 5. janúar sl. hefur pundið hins vegar lækkað um 2,12%, en í kjölfar gengisfellingarinnar var sölugengi pundsins skráð 29,526 krónur. Danska krónan Danska krónan hækkaði um 2,13% í verði í síðustu viku, en sölugengi hennar var skráð 2,1498 í upphafi viku, en 2,1955 krónur sl. föstudag. Frá áramótum hefur danska krónan hækkað um 10,6% í verði, en í upphafi ársins var sölugengi hennar skráð 1,9851 króna. Frá gengisfellingunni 5. janúar sl. hef- ur danska krónan hins vegar hækkað um 0,21%, en í kjölfar gengisfellingarinnar var sölugengi hennar skráð 2,1908 krónur. Vestur-þýzka markið Vestur-þýzka markið hækkaði um 2,11% í síðustu viku, en í upp- hafi hennar var sölugengi marks- ins skráð 7,5636 krónur, en sl. föstudag hins vegar 7,7230 krónur. Frá áramótum hefur vestur- þýzka markið hins vegar hækkað um 10,26%, en í upphafi árs var það skráð 7,0046 krónur. Það hefur hins vegar nokkurn veginn staðið í stað frá gengisfellingunni 5. janú- ar sl., en í kjölfar hennar var sölu- gengi marksins skráð 7,7237 krón- ur. „Frá orðum til athafna“ Yfirskrift 5. viðskiptaþings Verzlunarráðs íslands FIMMTA viðskiptaþing Verzlunarráðs íslands, sem haldið verður að Hótel Loftleiðum 16. febrúar nk., mun fjalla um áætlun um endurreisn íslenzks efnahagslífs undir yfirskriftinni: „Frá orðum til athafna“. Efni þingsins verður tvíþætt. Annars vegar verður gerð ítarleg grein fyrir þeim ógöngum, sem efnahagslífið er komið í, og hins vegar settar fram ákveðnar tillög- ur um leiðir til lausnar. Þessi áætlun er nú í vinnslu hjá félögum og starfsmönnum Verzlunarráðs- ins. Gestur þingsins verður Harris lávarður, framkvæmdastjóri Institute of Economic Affair í London. Nánar verður gerð grein fyrir dagskrá þingsins síðar. Sömu sögu er að segja af barnalífeyri og mæðralaunum KAUPMÁTTUR elli- og örorkulíf- eyris hefur á tímabilinu 4. árs- fjórðungur 1978 til 2. ársfjórðungs 1982, miðað við vísitölu fram- færslukostnaðar, rýrnað um 12%, samkvæmt upplýsingum í frétta- bréfi Kjararannsóknarnefndar, en þar segir, að vísitala kaupmátt- ar elli- og örorkulífeyris hafi verið 115,5 á 4. arsfjórðungi 1978, en 101,7 á 2. ársfjórðungi í fyrra. Miðað er við vísitölu framfærslu- kostnaðar 100 árið 1971. í fréttabréfinu kemur enn- fremur fram, að kaupmáttur elli- og örorkulífeyris, að við- bættri tekjutryggingu, hefur á umræddu tímabili rýrnað um 4,4%, en vísitalan var á 2. árs- fjórðungi 1982 193,1, en var á 4. ársfjórðungi 1978 202,0. Barnalífeyrir hefur á um- ræddu tímabili rýrnað um 12%, en vísitala barnalífeyris var 110,2 á 2. ársfjórðungi síðasta árs, en var 125,2 á 4. ársfjórð- ungi 1978. Þá kemur fram í fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar, að mæðralaun, miðað við 3 börn og fleiri, hafa rýrnað um 12%. Vísitala mæðralauna var 101,7 á 2. ársfjórðungi 1982, en 115,5 á 4. ársfjórðungi 1978. Verðbólga í Bandaríkj- unum aðeins 3,9% 1982 Minnsta verðbólga í liðleg 12 ár VERÐBÓLGA í Bandaríkjunum var sú minnsta á síðasta ári í yfir áratug, eða aðeins um 3,9%, samkvæmt upplýsingum þarlendra stjórnvalda, sem jafn- framt tilkynntu, að framfærslukostnaður hefði lækkað um 0,3% í desember sl. Þetta er í annað sinn síðan 1965, að framfærslukostnaður lækkar í Bandaríkjunum, en í fyrra skiptið var það í marzmánuði sl., en verð- bólga hefur ekki verið lægri í Bandaríkjunum síðan árið 1972, þegar hún var 3,4%. Það árið fyrirskiptaði Nixon, þáverandi forseti Bandaríkjanna mjög strangt eftirlit með launahækkun- um. Þess má geta, að verðbólga var liðlega helmingi meiri á árinu 1981 í Bandaríkjunum, eða nærri 8,9%. Larry M. Speaks, talsmaður Reagans, Bandaríkjaforseta, sagði þessa niðurstöðu auðvitað ánægjulega. „Hún sannar að við höfum komizt verulega langt í baráttu okkar gegn verðbólgunni." Benzínverð hélt áfram að lækka á síðasta ári, en í desembermánuði sl. var lækkunin um 0,6%. Allt ár- ið 1982 lækkaði benzínverð í Bandaríkjunum um nærri 6,6%. Benzínverð hefur í raun verið á undanhaldi allt frá því í marz- mánuði 1981. Hins vegar hefur verð á jarðgasi stöðugt farið hækkandi, en heild- arhækkun þess á síðasta ári var í námunda við 25%. Almennt framleiðsluverð í Bandaríkjunum hækkaði minna á síðasta ári, en það hefur gert í liðlega ellefu ár, eða aðeins um 3,5% Bretland Frá Bretlandi berast þær frétt- ir, að verðbólga hafi komizt niður í 5,4% í lok ársins, sem er lægsta verðbólga þar í landi í yfir 12 ár, en árið 1970 var hún 5,1%. Ef litið er á síðustu tólf mánuð- ina, frá nóvember, var verðbólga um 6,3% og á árinu 1980 var verð- bólga í Bretlandi hvorki meiri né minni en 21,9%. Á árinu 1981 var verðbólga í Bretlandi um 12%. Alls 10.480 bflar tollafgreiddir á síðasta ári: Mazda er í fyrsta sæti með 1081 bíl Mest seldi einstaki bfllinn er Volvo 244 Tollafgreiddir bílar árið 1982, samtals, og bílar nýir fólks- 1. Mazda 1.081/994 10,31% 2. Volvo 1.013/813 9,67% 3. Toyota 923/662 8,81% 4. Lada 765/729 7,30% 5. Mitsubishi 658/546 6,28 6. SAAB 587/569 5,60% 7. Daihatsu 502/499 4,79% 8. BMW 475/454 4,53 9. Suzuki 469/341 4,48% 10. Subaru 459/428 4,38% ALLS VORU tollafgreiddir 10.480 bflar á síðasta ári, borið saman við 10.366 bfla á árinu 1981. Aukning- in milli ára er því liðlega 1%. Bflar með benzínvélum voru 9.534, en bílar með dísilvélum hins vegar 946. Nýir fólksbflar voru 8.574, borið sarnan við 8.509 á árinu 1981. Mazda í fyrsta sæti Mazda var í fyrsta sæti með 1.081 bíl tollafgreiddan, en það er um 10,31% af heildinni. Þar af voru tollafgreiddir 994 nýir fólksbílar. í öðru sæti var Volvo, en alis voru tollafgreiddir 1.013 Volvo-bílar á síðasta ári, sem er um 9,67% af heildinni. Nýir fólksbílar voru 813 talsins. í þriðja sæti er síðan Toyota með 923 bíla tollafgreidda, sem er um 8,81% af heildinni. Nýir fólksbíl- ar af Toyota-gerð voru 662. Fjórðu í röðinni komu Lada- bílar, en 765 slíkir voru tollaf- greiddir á síðasta ári, sem er um 7,30% af heildinni. Nýir fólksbíl- ar voru 729 talsins. í fimmta sæti var Mitsubishi með 658 bíla, sem er um 6,28% af heildinni, en nýir bílar af þeirri gerð voru 546 talsins. í sjötta sæti er SAAB með 587 bíla, sem er um 5,60% af heildinni. Nýir fólksbílar af þeirri gerð voru 569. í sjöunda sæti er Daihatsu með 502 bíla, sem er um 4,79% af heildinni, en slíkir bílar nýir voru 499 talsins. Áttundu í röð- inni voru BMW-bílar, en 475 slíkir voru tollafgreiddir á síð- asta ári, sem er um 4,53% af heildinni. Nýir fólksbílar voru 454 talsins. í níunda sæti er Suz- uki með 469 bíla tollafgreidda, sem er um 4,48% af heildinni, en nýir fólksbílar voru 341 talsins. Loks var Subaru í tíunda sæti með 459 bíla tollafgreidda, sem ■ )

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.