Morgunblaðið - 12.02.1983, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1983
5
Ljósmynd Mbl. Emilfa.
Sigurður R. Helgason kosinn
formaður Stjórnunarfélagsins
Núverandi og fyrrverandi formenn Stjórnunarfélags íslands, t.h. Sig-
urður R. Helgason, sem kosinn var formaður á aðalfundi félagsins í
ga-rdag og Hörður Sigurgestsson, sem gengt hefur formannsstöðu sl.
fjögur ár. Við hlið Harðar er Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari,
sem flutti erindi á aðalfundi félagsins, sem hann nefndi „Menntun
íslendinga og sérmenntun í þágu atvinnulífs og menningar".
Flutti þrjá fyrir-
lestra á Norðurlöndum
GYLFI Þ. Gíslason hélt í síðasta mán-
uði þrjá fyrirlestra á Norðurlöndum
ura íslenzk efni, í Kaupmannahöfn,
Lundi og Málmey.
í Kaupmannahöfn talaði hann í
Norræna félaginu um íslenzku ullina
og hinn nýja ullarfatnað, sem er orð-
inn veruleg útflutningsvara. Erindi
sitt nefndi Gylfi „Gömul list — ný
tízka.“ Ólafur Haraldsson, stórkaup-
maður í Kaupmannahöfn, sem rekur
heildverzlun með ullarfatnað og
nýbúinn er að opna smásöluverslun
með íslenzkum ullarvörum í miðborg
Kaupmannahafnar, efndi á eftir til
sýningarta þessum vörum.
í Lundi talaði Gylfi á vegum
Sænsk-íslenzka féiagsins og Nor-
ræna félagsins um ísland og íslend-
inga í fortíð og nútíð. Driffjöðrin í
sænsk-íslenzku samstarfi þar er
próf. Gösta Holm, sem er einn kunn-
asti norrænufræðingur Svía og fjöl-
margir hér þekkja. Hann er ásamt
Aðalsteini Davíðssyni höfundur
hinnar miklu sænsk-íslenzku orða-
bókar, sem er nýkomin út, en hefur
verð í smíðum sl. 10—12 ár.
í Málmey talaði Gylfi um sama
efni og á vegum sömu félaga. Þar er
áhugi mikill á íslandi og fslenzkum
málefnum, sem sjá má af því. að um
200 manns sótti fundinn og um 100
manns samkomu á eftir. Helzta
driffjöðrin í sænsk-íslenzku sam-
Gylfi Þ. Gíslason
starfi í Málmey er Ólafur Sigurðs-
son, verkfræðingur, bróðir Péturs
Sigurðssonar, fv. forstjóra Land-
helgisgæzlunnar.
Bæði á fundinum í Lundi og
Málmey var að loknu erindi Gylfa
sýnd nýleg kvikmynd sem ferða-
málaráð og Flugleiðir hafa látið
taka og hefur heppnast mjög vel.
Beiðni um hækkun á vísitölubrauöum óafgreidd:
Liggur beinast við ad
draga úr eða hætta
Réttarhöld Lífs og lands á morgun um jafnan atkvæðisrétt:
Lögmenn verja og sækja málið
— leiða fram vitni og leggja málið fyrir kviðdóm
SAMTÖKIN Líf og land efna til rétt-
arhalda í Gamla bíói á morgun klukk-
an 13.15, þar sem Jón Steinar Gunn-
laugsson hrl. sækir mál fyrir hönd
þeirra er vilja að hér á landi ríki fullur
jöfnuður atkvæða án tillits til búsetu
manna. Verjandi í málinu verður Jón
E. Ragnarsson hrl. Að loknum mál-
flutningi lögmanna og vitnaleiðslum,
verður máliö lagt í tólf manna kvið-
dóm, sem kveður upp úrskurð sinn
fyrir klukkan 16.30, er réttarhöldun-
um lýkur.
Þeir Hans Kristján Árnason og
Kristinn Ragnarsson, sem undir-
búið hafa réttarhöldin fyrir hönd
Lífs og lands sögðu í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins í gær,
að þegar væri búið að velja vitni
þau er lögmennirnir kölluðu fyrir.
Þau væru Halldór Blöndal, Már
Pétursson, Sigurður Líndal, Bjarni
Einarsson, Stefán Friðfinnsson og
Jónas Elíasson. Hver lögmaður
leiddi fram þrjú vitni til spurninga,
og einnig spyrði mótaðilinn vitnin
ef hann vildi. Dómforseti verður dr.
Gunnar G. Schram, sem einnig var
dómsforseti á tveimur fyrri rétt-
arhöldum samtakanna, um hval-
veiðar og flutning Reykjavíkurflug-
vallar.
Hans Kristján sagði í gær að mál
það er hér um ræddi væri nú mjög í
sviðsljósinu vegna stjórnarskrár-
og kjördæmaumræða á Alþingi.
Margt athyglisvert kæmi í ljós ef
atkvæðisrétturinn og vægi atkvæða
hér á landi væri skoðað. Kjósendur
í Reykjavík og Reykjaneskjördæm-
um t.d. 60% allra kjósenda á land-
inu. Þeir hefðu 22% þingmanna,
með uppbótarþingmönnum, 36%
þingmanna. Landsbyggðin hefði þá
40% atkvæðanna en 64% þing-
manna.
Réttarhöldin í Gamla bíói á
morgun verða öll tekin upp á
myndband, og fulltrúum fjölmiðla
er boðið að vera viðstaddir, auk alls
almennings sem er velkominn,
sagði Kristinn Ragnarsson. Hann
vildi að lokum undirstrika að sam-
tökin væru ekki háð neinum stjórn-
málaöflum, og ekki í tengslum við
þá aðila sem nú gangast fyrir skoð-
anakönnun um kosningaréttinn og
fleira.
Lauk doktorsprófi
í læknisfræði
I JANT’AR sl. lauk Hannes Pétursson.
yfirla'knir, doktorsprófi í læknisfræði
frá Lundúnarháskóla.
n,4 Doktorsritgerðin nefnist á
ensku „Clinical and laboratory stu-
dies of withdrawal from long term
benzodiazepine treatment“, og fjall-
ar um ávana- og fíknihættu af ró-
andi og kvíðaleysandi lyfjum.
Benzodiazepine lyf, sem svo diazep-
am (valium) komu fyrst á markað-
inn fyrir tveim áratugum síðan og
fór notkun þeirra mjög ört vaxandi
þannig að almennt er talið að
10—15% af fullorðnu fólki noti ró-
andi og/ eða svefnlyf einhvern tíma
á hverju ári. Fram til þessa hefur
jafnan verið talið að hætta á ávana-
eða fíknimyndun í slík lyf sé hvorki
veruleg né útbreidd, einkum ef ekki
er farið upp fyrir venjulegar
skammtastærðir. Rannsóknir þær
sem doktorsritgerðin byggist á, svo
og aðrar nýlegar rannsóknir á sama
sviði hafa hinsvegar leitt í ljós að
langxarandi notkun benzodiazepine
lyfja getur leitt til fíknimyndunar og
fráhvarfseinkenna þegar reynt er að
stöðva lyfjagjöfina, jafnvel þó aðeins
sé neytt venjulegra skammta.
Hannes Pétursson er fæddur í
Reykjavík, árið 1947, sonur hjón-
anna Guðrúnar Árnadóttur og Pét-
urs Hannessonar, deildarstjóra.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
Hannes Pétursson
1968 og læknaprófi hjá Háskóla ís-
lands 1975.
A árunum 1976 til 1982 stundaði
hann framhaldsnám i geðlækning-
uni í Englandi við Maudsley Hospit-
al i London og lauk þaðan sérfræði-
prófi 1979. Jafnfranit vann Hannes
að rannsóknum í geðlæknisfræði við
Institute of Psychiatry. University
of London og var lektor við þá stofn-
un fram til ársins 1982.
Hannes Pétursson er yfirlæknir
geðdeildar Borgarspitalans í Reykja-
vik. Hann er kvæntur Júliönu Sig-
urðardóttur og eiga þau 3 dætur.
segir Hlööver Olason, framkvæmdastjóri
Landssambands bakarameistara
„BAKARAR eru óneitanlega mjög óánægðir með alla málsmeðferð. Við
sendum inn beiðni um 17—20% hækkun á vísitölubrauðum 14. janúar sl. í
kjölfar hráefnishækkana, gengisfellingar og almennra verðlagsbreytinga.
Síðan hefur ekkert gerst og málið verður ekki tekið fyrir verðlagsráð fyrr en
eftir hálfan mánuð", sagði Hlöðver Ólason, framkvæmdastjóri Landssam-
bands bakarameistara, í samtali við Mbl.
„Vísitölubrauðin hafa lengi ver-
ið framleidd undir kostnaðarverði
og bætir þessi seinagangur ekki úr
skák. Við lauslega athugun kemur
í ljós, að beint tap bakara vegna
Leiðrétting
I FRÉTTAVIÐTALI við séra Jón
Einarsson í Saurbæ í Hvalfjarð-
arstrandarhreppi fyrir nokkrum
dögum, misritaðist nafn Lofts
heitins Bjarnasonar, fyrrum for-
stjóra Hvals hf. Biður Morgun-
blaðið hlutaðeigandi og lesendur
sína velvirðingar á mistökunum.
seinagangs málsins er á bilinu
1,2—1,3 milljónir króna og það á
eftir að aukast.
Samkvæmt þeim upplýsingum
sem við höfum fengið, hefur málið
strandað á afstöðu fulltrúa Al-
þýðusambandsins, sem óskaði eft-
ir því að málinu yrði frestað",
sagði Hlöðver ennfremur.
Hlöðver ólason sagði ennfrem-
ur aðspurður, að auðvitað myndu
bakarar meta stöðuna á næstunni,
en það lægi beinast við að draga
verulega úr framleiðslu vísitölu-
brauða eða jafnvel hætta henni al-
veg.
Opið i dag til kl.4
SAAB- eigendur athugið,
tökum þann gamla upp í nýjan
-eöa seljum hann fyrir þig
ef þú vilt heldur. Mikil
eftirspurn tryggir hagstæð skipti.
TÖGGURHR
SAAB
UMBOÐtÐ
BÍLDSHÖFÐA 16, SÍMAR 81530-83104