Morgunblaðið - 12.02.1983, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1983
33
stúlkunnar og að lokum fer allt
vel, foreldrarnir samþykkja
hjónaband og það er skálað í
hvítvíni. Litarháttur skiptir ekki
máli þegar ástin er annars veg-
ar. Spencer Tracy, Katharine
Hepburn og Sidney Poiter eru
virkilega góð í helstu hlutverk-
um eins og við er að búast af
öðru eins úrvals fólki. Ég gef
þessari mynd þrjár stjörnur.
Síðari myndin sem sýnd var á
laugardagskvöld, „If“ með Mal-
colm MacDowell í aðalhlutverki,
leikstjóri Lindsey Anderson er
fræg og á sínum tíma var hún
sýnd við metaðsókn að mig
minnir í Háskólabíói.
Myndin gerist að mestu í
breskum heimavistarskóla fyrir
drengi þar er strangur agi og allt
með fornum hefðum. í þessum
skóla er nemendum innrætt mis-
kunnarleysi, hroki og stærilæti
sem leiðir til þess að þeir taka að
líta niður á smælingja í þjóðfé-
laginu og þá sem minna mega
sín. í lok myndarinnar gera þrír
nemendur undir forystu Tavaris
(Malcolm MacDowell) uppreisn
gegn skólayfirvöldum. Þeir kom-
ast yfir vopnabúr og þegar
fyrrverandi nemendur safnast
saman í móttöku hjá skólayfir-
völdum þá herja þremenn-
ingarnir á veislugesti ofan af
húsþaki skólabyggingarinnar
með hríðskotabyssum, hand-
sprengjum, reyksprengjum og
rektor fellur fyrir byssukúlum
uppreisnarmanna. „If“ er at-
hyglisverð mynd og Malcolm
MacDowell er engum líkur.
Hann er séní.
Sunnudagur 6. febrúar:
Útvarpsmessan þennan
sunnudagsmorgun var frá Laug-
arneskirkju. Prestur séra Jón
Dalbú Hróbjartsson. Á bíblíu-
daginn minnti Jón Dalbú á mik-
ilvægi Biblíunnar og sagði frá
útbreiðslu hennar. Milljónir
manna í þriðja heiminum lesa
nú Biblíuna og þeim fjölgar á
þeim slóðum sem gerast kristnir
menn. Von heimsins er falin í
því að guðsorðið nái til sem
flestra á þeim upplausnartímum
sem ganga yfir mannkynið.
Hugvekja séra Jóns Dalbú var
góð og tímabær. 1 sjónvarpi um
kvöldið var sýnd mynd um líf og
starf meistara Pablo Picasso
eins fremsta listmálara sem
uppi hefur verið. Það var rætt
við börn hans, son og dóttur.
Gamli maðurinn byrjar daginn
að þeirra sögn á að fara á nauta-
at, og leiðin lá í hóruhús á kvöld-
in. Hann fór ungur frá Spáni til
Frakklands og var með vinnu-
stofu í París þar sem hann hefur
líklega málað mörg sín bestu
verk. Síðan var í sjónvarps-
myndinni rakið lífshlaup Pablo
Picasso.
Mánudagur 7. febrúar:
Fyrsti þáttur af sjö i breska
gamanmyndaflokknum, „Já
ráðherra" (Yes Minister) sem
sýndur var í sjónvarpinu klukk-
an rúmlega níu og stóð yfir í
tæpan hálftíma finnst mér lofa
góðu um framhaldið. Hér er á
ferðinni léttur og skemmtilegur
breskur húmor. Eftir síðari
kvöldfréttir í útvarpi var endur-
tekið útvarpserindi Sverris heit-
ins Kristjánssonar, sagnfræð-
ings, frá árinu 1972, „Fögur er
hlíðin". Megininntak erindisins
var ræktun lands og erfiðleikar í
samskiptum við náttúru lands-
ins. Sverrir ræddi um kornrækt
á íslandi, um bygg og korn,
moldina, móður jörð og ræktun
túns og akurs og um kornskurð.
Fáir menn íslenskir höfðu betra
vald á íslenskri tungu en Sverrir
Kristjánsson og hann hafði ein-
staka frásagnarhæfileika. Út-
varpið mætti gjarnan endurtaka
fleiri útvarpserindi er Sverrir
flutti.
Þriðjudagur 8. febrúar:
„Áttu barn“ heitir þáttur um
fjölskyldumál í útvarpi í umsjón
Andrésar Ragnarssonar, sál-
fræðings. Fyrsti þáttur af átta
var fluttur undir dagskrárlok og
fjallaði um fæðingarundirbún-
ing, foreldraráðgjöf og margt
fleira. Umsjónarmaður spjallar
við Maríu Heiðdal deildarstjóra
barnadeilar Heilsuverndarstöðv-
arinnar og einnig við verðandi
foreldra og allt var það fróðlegt
og þátturinn ágætur.
Síðasti liður á dagskrá út-
varps þriðjudagskvöld var þátt-
urinn „Kimi“, um götuna,
draumana og sólina. Fyrsti þátt-
ur af þrem „Medúsa". Umsjón-
armenn Guðni Rúnar og Harald-
ur Flosi. í þessum fyrsta þætti
fengu útvarpshlutsendur að
kynnast þeim merka félagsskap
„Medúsa" sem þeir Þór Eldon,
Sjón, Einar Melax, Matthías B.
Magnússon og ólafur Engil-
bertsson skipa.
Ungir menn sem iðka ýmiss
konar tilraunastarfsemi í list-
um. Flutt var af segulbandi upp-
taka frá JL-húsinu þar sem
Matthías B. Magnússon las
furðusögu fyrir börn sem þar
voru stödd í fylgd foreldra á
listahátíðinni „Gullströndin
andar“. Þór Eldon las ljóð um
kynóra og svo var leikin framúr-
stefnutónlist sem táningar um
eða eftir næstu aldamót munu
sjálfsagt dansa eftir. Sérkenni-
lega dularfullur var þessi þáttur
og mér fannst stundum eins og
um væri að ræða beina útsend-
ingu frá miðilsfundi.
Miðvikudagur 9. febrúar:
Síðdegis var þáttur Jóhönnu
Harðardóttur, „Bræðingur", á
dagskrá í útvarpi. Jóhanna fjall-
aði um það óréttlæti sem við-
gengst í þjóðfélaginu og snýr að
heimavinnandi húsmæðrum.
Hún las yfir matar- og köku-
uppskriftir og spjallaði við mann
sem gerir skattaframtöl fyrir
fólk. Víða var komið við í þessum
þætti, litið inn í Félagsmála-
stofnun og spjallað við forstöðu-
konu og Tryggingastofnun heim-
sótt. Fróðlegur þáttur og hinn
mikli listamaður John heitinn
Lennon söng lagið Imagine um
betra mannlíf.
Ólafur Ormsson
Ungur drengur á
ferð með föður
Bókmenntir
Jenna Jensdóttir
Thor Larsen:
Sumar á Svalbarða
Þorsteinn frá Hamri íslenskaði
Myndir: Höfundur og fleiri.
Iðunn Reykjavík 1982.
Þetta er sönn saga — ferðasaga
sem líffræðingurinn norski Thor
Larsen ritar um rannsóknarferð
til Svalbarða er ungur sonur hans,
Espen tók þátt í með honum. Thor
Larsen hefur oft dvalist á Sval-
barða við rannsóknir á jurtum og
dýrum, einkum ísbjörnum og lifn-
aðarháttum þeirra.
Ferðin hefst með íshafsskipinu
Pólstjörnunni að sumri og tekur
mánuð, með dvöl þeirra á Kon-
ungseyju í eyjaklasanum Karls
konungs land.
Höfundur segir söguna þannig
að hugsanir, viðbrögð og gerðir
sonar hans koma ljóst fram. Les-
andinn finnur glöggt hve mikils
virði það hefur verið Thor Larsen
að hafa son sinn með sér. Með
honum hrífst hann og sér svo ótal
margt eins og hann sé sjálfur að
sjá það í fyrsta sinni.
Sagan hefst með þessum
hversdagslegu orðum:
„Á fætur með þig Espen. Klukk-
an er orðin níu og Pólstjarnan
liggur við hafnarbakkann."
Veður eru válynd, þoka og úfinn
sjór og öldurnar brotna á þilfari
Pólstjörnunnar. Espen lærir að
bjarga sér sjálfur og fær kjarnyrt-
ar aðvaranir skipshafnar og föður
ef hann fer óvarlega.
Það er ekki einungis föður hans
og ferðafélögum þeirra, Jörn líf-
fræðistúdent og Sveini til gleði að
hafa svo ungan dreng með. öll
áhöfn Pólstjörnunnar hefur sýni-
lega notið þess og samskipti þeirra
i milli fara eftir því.
Sigling Pólstjörnunnar í ísnum
og dvölin á Kongsey er eitt óslitið
ævintýri fyrir Espen. Ævintýri
jafnt á nóttu sem edegi. Ferðalag-
ið tekur enda og þeir feðgar sitja á
þilfarinu á Pólstjörnunni á heim-
leið. „Thor hefur lagt handlegginn
yfir axlir honum. Hvorugur þeirra
segir orð. Loks rýfur Espen þögn-
ina.
„Þakka þér fyrir að þú lofaðir
mér með, pabbi."
„Þetta verður ekki eina skiptið,"
svarar Thor. „Þú hefur fengið
heimskautabakteríuna eins og ég.
Þú siglir aftur einn góðan veður-
dag.“
Skemmtilegar ljósmyndir prýða
bókina. Að lokum er lítill fræðslu-
kafli um heimskautasvæðin lengst
í norðri og kort yfir þau.
Þessi sanna frásögn hlýtur að
snerta lesendur á öllum aldri. Efni
hennar er í raun eðlilegt þar sem
tengsl mannsins við náttúruna og
stórfengleika hennar koma svo
skýrt fram.
Þýðingar Þorsteins frá Hamri
bera jafnan vitni ást hans á ís-
lenskri tungu.
Frágangur bókarinnar er sér-
lega góður.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
í tilefni af því að Innréttingahúsið hefur nú selt
um 500 HTH eldhúsinnréttingar hafa verk-
smiðjurnar ákveðið að veita sérstakan afslátt
allt að 20% á næstu 100 eldhúsinnréttingum
sem pantaðar eru hjá okkur.
Hringið og biðjið um heimsendan
j, bækling
A innréttinga-
æx TV húsið
Háteigsvegi 3 105 Reykjavík
& ái Verslun sími 27344
Laugard: Opið í dag 10-18
NOTIÐ
TÆKIFÆRIÐ