Morgunblaðið - 12.02.1983, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1983
39
fcflk í
fréttum
+ Þessar fjórar föngulegu fyrirsætur sýndu þennan fatnað nú fyrir nokkrum dög-
um á mikilli nærfatasýningu í París. Fylgdi þaö fréttinni, að svona ættu konurnar
aö klæöast á því herrans ári 1983, á stundum a.m.k., og var ekki talið líklegt, aö til
mjög alvarlegra mótmæia kæmi af þeim sökum.
Pavarotti mundi eftir
skattaskýrslunni —
og flúði land
+ Luciano Pavarotti, tekjuhæsti
óperusöngvari í heimi og kvikmynda-
leikari með meiru, hefur nú sagt farvel
frans viö heimabæ sinn, Modena, á
Ítalíu og er sestur að í Mónakó.
Ástæðan fyrir flóttanum er augnabliks
gleymska og nokkur óvarleg orð.
Pavarotti varð það á að upplýsa
hvað hann fengi fyrir að syngja í óper-
unni í Bologna. 30 milljón lírur fyrir
hvert kvöld sagði hann eða um
400.000 ís. kr. Þá varð hann hugsi og
hefur e.t.v. dottið skattaskýrslan í hug
því að hann beið ekki boðanna meö
að forða sór til Mónakó.
Hvaö höföingj-
arnir hafast aö
+ Skóverksmiöja ein í Irlandi
hefur orðiö aö fjölga starfsfólki
sínu verulega eftir aö Diana
prinsessa tók upp á því aö fara
aö ganga á skóm meö lágum
hælum. Eftirspurnin eftir slíkum
skóm er nú orðin slík og þvílík,
aö verksmiðjan hefur engan veg-
inn undan.
„Það er allt brjálaö hjá okkur
og viö höfum slegiö öll fyrri met.
Búnir að selja milljón pör í Bret-
landi,” segir framkvæmdastjóri
verksmiöjunnar.
Diana prinsessa er fremur há-
vaxin, 178 sm, og aðeins 2,5 sm
lægri en Karl maöur hennar. Á
háum hælum er hún hins vegar
hærri en hann og því hefur hún
af einskærri tillitssemi brugöiö á
þaö ráö aö ganga bara á lághæl-
uðum skóm. Þar meö var Kka
tónninn gefinn.
COSPER
— Þetta er frábær hundur. Jafnvel þótt ég þvoi mér
finnur hann lyktina af mér í kílómetra fjarlægð.
ÖUum þeim sem minntust mín 29 janúar síöastlidinn,
með skeytum, gjöfum, heimsóknunm, og viðtölum þakka
ég hjartanlega og bið þeim velfarnaðar.
Yalgeir Helgason.
Blaóburöarfólk
óskast!
Úthverfi
Hjallavegur
Austurbær
Freyjugata 28—49.
fHoirgstm
Við kveikjum
í kolunum
kl. 18.00.
Velkomin
um borð
Matseöill kvöldsins
Rjómalöguö villisveppasúpa
bætt með portvíni.
Hákarl með ákavíti Sorbet.
olkrabbi að hætti Cataloniu-
búa.
Smjördeigskollur fylltar
með kjúklingalifur
og rækjum í madeirasósu.
Léttsaltað lambalæri
gufusoðið í heyi með
rjómasoðnum kartöflum og
nýju grænmeti.
Eldsteiktar nautalærissneiðar
með champignonsósu,
grilluðum tómat, broccoli
og kartöflum dauphine.
Djúpsteiktar teosta krókettur
með rifsberjahlaupi.
Peruís með jarðaberjarrjóma.
v6IT«»GMWS1?
“xVOBDUSTÍG
StM» 10848.
3H*v$tsii(I*frifc
Gódcin daginn!