Morgunblaðið - 12.02.1983, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1983
Lokaprófs-
tónleikar á
Kjarvalsstöðum
NK. ÞRIÐJUDAG, 15. febrúar,
þreytir Geröur Gunnarssdóttir loka-
prófstónleika frá Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar.
Gerður hóf nám í Tónskólanum
5 ára gömul, en byrjaði að læra á
fiðlu 7 ára hjá Jakobi Hallgríms-
syni. Kennarar hennar síðar voru
Sigursveinn D. Kristinsson, Sól-
rún Garðarsdóttir, Victor Pechar,
Anna Rögnvaldsdóttir og nú
Michael Shelton. Hún hefur tekið
þátt í námskeiðum bæði hér
heima og erlendis, þ.á m. Ungl-
ingahljómsveitinni í Lundi, Int-
ernationale Musikwoche Luxem-
burg, SVA Music Festival Verm-
ont, Ung Nordisk Musikfestival
Reykjavík og námskeiðum undir
stjórn George Hadjinikos og Paul
Zukovskys.
Á efnisskrá tónleikanna verða
verk eftir J.S. Bach, Karol Szym-
anowski og L.V. Beethoven. Píanó-
leikari er Snorri Sigfús Birgisson.
Tónleikarnir verða á Kjarvals-
stöðum og hefjast kl. 20.30. Að-
gangur er ókeypis og allir vel-
komnir.
Hafnarfjarðarbíó:
Síðustu sýn-
ingar á „Dýra-
garðsbörnum“
HAFNARFJARÐARBÍÓ hefur und-
anfarna daga sýnt myndina Dýra-
garðsbörnin (Christiana F.), en hún
fjallar um eiturlyfjaneyzlu í Vestur-
Þýzkalandi og reynslu ungrar stúlku
í þeim efnum. Út hefur komið sam-
nefnd bók á íslenzku.
Hafnarfjarðarbíó mun sýna mynd-
ina þessa helgi og verður síðasta
sýningin á mánudagskvöldið.
VEITINGAHUSIÐ
Opiö til kl. 3.
Hljómsveitin Glæsir
Diskótek
Rúllugjald kr. 75.
Snyrtilegur klæðnaöur.
Borðapantanir
í símum 86220 og 85660.
Breski töframaðurinn
og eldgleyparinn Nicky
Vaughan skemmtir í
kvöld.
Hádegisjazz íBlómasalnum
Hótel Loftleiðir fara nú af stað með skemmtilega skammdegis
skemmtun fyrir alla fjölskylduna. Sambland af morgun- og
hádegisverði með léttri og lifandi tónlist.
„JAZZ FYRIR ÞÁ SEM EKKERT GAMAN HAFA AF JAZZ!“
Þeir sem koma og leika í sunnudagshádeginu að þessu sinni:
TRÍÓ - Steina Steingríms
SÉRSTAKUR HÁDEGISGESTUR:
BJÖRN R. EINARSSON
Hressið upp á sunnudagstilveruna
með léttum jazz og Ijúffengum réttum í Blómasalnum.
Við byrjum kl. 12 á hádegi.
Verð kr. 220,-
Borðapantanir ( símum 22321 og 22322.
Verið velkomin
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Sunnududags
dögurour
í Grillinu
Þú ættir aö líta við í Crillinu á morgun og þiggja nýju máltíöina
okkar; döguröinn, en þetta gamla og góöa íslenska orö notum
viö um það sem þeirensku kalla „þrunch", millistig morgun- og
hádegisveröar.
Á vel úti látnu hlaðborði bjóöum viö þannig eggjarétti, margs
konar pylsur, mjólkurvörur, skinku og bacon, ávexti, niðursneitt
kjöt, salöt og fjölmargt annað góömeti sem kitlar bragðlaukana.
Viö tökum á móti þér milli kl. 11.00 og 14.00 og auðvitað tekur
þú fjölskylduna meö.
verð aðeins kr. 220.-
Gefðu sunnudeginum nýjan lit
með hádegisheimsókn í Grillið.
Hinn sprenghlægilegi gamanleikur
KAIUII í KASSAIUM
Vegna mikillar aösóknar verða sýningar á sunnu-
dag kl. 21.00. Ath. breyttan sýningartíma.
Og þriöjudag kl. 20.30.
Miðasala opin frá kl. 17.00—19.00.
Sýningardaga frá kl. 17.00.
Miðapantanir í síma 16444.
SÍÐAST SELDIST UPP.