Morgunblaðið - 12.02.1983, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. FEBRÚAR 1983
47
Heimsbikarkeppnin á skíðum:
Ingemar Stenmark sigraði með
yfirburðum í svigkeppninni
• Saenski skídakóngurinn Stenmark vann yfirburðasigur í svigkeppni
heimsbikarsins í gærdag í Frakklandi. Hann fór erfiða braut sem var
ísilögð á mikilli ferð og þótti sýna mikla færni í brautinni.
Phil Mahre
íslandsmótið 2. deild:
aftur efstur
RÖD efstu manna í stigakeppn-
inni um heimsbikarinn breytist
nú næstum við hverja keppni.
Eftir svigkeppnina í gærdag var
röð efstu manna þessi:
Phil Mahre US 186
Peter Luescher Sviss 160
Pirmin Zurbriggen Sviss 150
Ingemar Stenmark Svíþj. 132
Peter Meuller Sviss 123
Andreas Wenzel Licht.st. 123
Marc Girardelli Lúxemb. 107
Harty Weirather Austurr. 100
URS Raeber Sviss 99
Steve Mahre US 95
• Hvert sem Stenmark fer til keppni fer unnusta hans, Ann Uvhagen,
með. Margir hafa viljað halda því fram að hún spilli fyrir einbeitingu
Stenmarks í keppnum. En hann segir að það sé slúður.
Stórt tap hjá Gróttu
AFTURELDING vann stórsigur á
Gróttu í gærkvöldi, 32—23, er lið-
in léku að Varmá í Mosfellssveit.
Lið Aftureldingar náði forystu í
upphafi leiksíns, 3—0, og hélt
• Þeir eru ekki allir jafn stálheiö-
arlegir þessir fótboltamenn. Pet-
er Storey, 36 ára gamall, hefur
verið dæmdur í sex mánaöa fang-
elsi fyrir bílþjófnað og peninga-
fölsun. Storey spilaði 19 lands-
leiki fyrir England á árunum í
kríngum 1970 og spilaöi þá meö
Arsenal.
henni til loka leiksins. Liðiö lék
allan tímann mikið betur en lið
Gróttu sem nú viröist vera á
niðurleið eftir allgóða byrjun í
vetur í 2. deildinni.
Staðan í hálfleik í gær var 13—8
fyrir UMFA og í síðari hálfleiknum
náði Afturelding alveg tökum á
leiknum og áttu leikmenn Gróttu
aldrei neina sigurvon.
Bestu menn í liði UMFA voru
Steinar, Sigurjón og Magnús. En í
heild lék liöiö nokkuð vel. Bestur í
liöi Gróttu var Ragnar markvörður
og Sverrir Sverrisson.
Markstein, Frakklandi, 18. febrúar. AP.
„Ég er mjög ánægður með
þennan sigur minn. Svigbrautin
var vel undirbúin og mér tókst að
fara hana svo til alveg vinnulaust
í gegn,“ sagði Svíinn Ingemar
Stenmark viö fréttamenn AP í
gærdag eftir að hann hafði sigraö
í svigi í heimsbikarkeppninni á
skíðum en keppnin í gær fór fram
í Markstein í Frakklandi.
Stenmark var með langbestan
tíma eftir fyrri umferðina, 52,92
sek. og náöi næstbesta tímanum í
síðari umferðinni, 51,62. Saman-
lagður tími Stenmarks var sá lang-
besti sem náöist, 1:44,54 mín. Ital-
inn Paolo De Chiesa varð annar á
1:45,04.
Bandaríkjamaöurinn Phil Mahre
varð svo í þriöja sæti í svigakeppn-
inni í gærdag og nægði það hon-
um til þess aö komst aftur upp í
efsta sætiö í stigakeppni heimsbik-
arsins.
Úrslitin í svigkeppninni í gærdag
varð þessi:
1. Ingemar Stenmark saml. tími 1:44,54 52,92 51,62
2. Paolo De Chiesa 1:45,04 53,21 51,83
3. Phil Mahre 1:45,23 53,64 51,59
4. Andreas Wenzel 1:45,38 53,38 52,00
5. Marc Girardelli 1:45,52 53,01 52,51
6. Jacques Luethy 1:45,86 53,01 52,51
7. Franz Gruber 1:45,94 53,96 51,98
8. Bengt Fjaellberg 1:46,00 54,41 51,59
9. Paul Frommelt 1:46,13 53,85 52,28
10. Bojan Krizaj 1:48,15 53,79 52,36
11. Steve Mahre 1:46,19 54,33 51,86
12. Klaus Heidegger 1:46,34 54,43 51,91
13. Stig Strand 1:46,53 53,99 52,54
14. Alex Giorgi 1:46,69 54,37 52,32
15. Joze Kuralt 1:46,75 54,29 52,46
I dag veröur keppt í stórsvigi.
John Nolan
opnar golfskólann
JOHN Nolan golfkennari hefur
opnað golfskóla í Skeifunni 17,
húsi Sveins Egilssonar, 3. hæð.
Skólinn er opinn klukkan
15.30— 20.30 mánudaga, þriöju-
daga, fimmtudaga og föstudaga. Á
laugardögum er opið kl.
10.30— 16.30. Á miðvikudögum
geta hópar í fyrirtækjum fengið til-
sogn.
John Nolan sagði aö hann
kenndi bæði byrjendum og þeim
sem eru lengra komnir í íþróttinni.
Hann kvaöst nota myndband við
kennsluna. Loks sagöi Nolan aö
hann hyggðist veita unglingum
ókeypis hópkennslu og eru ungl-
ingar beönir aö snúa sér til hans.
Mörk UMFA: Sigurjón 7, Steinar
7, Magnús 6, Lárus 3, Jón 3, Ingv-
ar 2, Björn 2, Sigurjón K. 1, Lárus
S. 1.
Mörk Gróttu: Sverrir 5, Jóhann
4, Gunnar 3, Axel 2, Kristján 2,
Siguröur 2, Svavar 1, Hjörtur 1,
Jóhannes 1, Jón 1, Ragnar mark-
vöröur 1.
— ÞR/ÍBEN.
Sigurganga KR
heldur áfram
EKKERT viröist geta stöðvað sig-
urgöngu KR-stelpnanna í 1. deild
kvenna í körfubolta. Halda þær
merki félagsins hátt á lofti, á
meðan karlmennirnir í félaginu
berjast á botninum í úrvalsdeild-
inni. Á fimmtudagskvöldiö bættu
þær enn einum sigri viö í safnið
og urðu Njarðvíkur-dömurnar aö
þessu sinni fyrir barðinu á KR.
UMFN byrjaði leikinn að vísu vel,
komst í 11—5. KR náði síðan að
jafna 21—21 og eftir það gat ekk-
ert stöðvað KR vélina. Seinni
hálfleikur var síðan nær alger
einstefna á körfu UMFN og loka-
tölur urðu 69—38.
Hjá KR voru þær bestar Emilía
og Linda en einnig kom Björg
Kristjánsdóttir skemmtilega á
óvart. í liði UMFN var Katrín lang-
best en einnig var Hulda seig.
Stigin fyrir KR skoruöu, Linda
Jónsdóttir 19, Emilía Siguröardótt-
ir 17, Kristjana Hrafnkelsdóttir 14,
Björg Kristjánsdóttir 8, Erna
Jónsdóttir 6 og Gunnhildur 2 stig.
UMFN: Katrín Eiriksdóttir 18,
Hulda Lárusdóttir 7, Helga Friö-
riksdóttir 7 og Sigriður Guðjóns-
dóttir 6 stig. I.H.Þ.
• Bandaríkjamaöurinn Phil
Mahre hefur aftur tekið forystuna
í stigakeppninni. Hann er mjög
fjölhæfur skíðamaður.
Leikir helgarinnar
UM helgina fara fram þrfr leikir i
1. deild kvenna í handknattleik.
Tveir leikir fara fram í 2. deild
karla en þar er keppnin mjög
hörð. Leikir helgarinnar eru þess-
ir:
Laugardagur 12. febr.
Laugardalshöll
Kl. 14.00 2. d. ka.
Ármann — Haukar.
Kl. 15.15 3. d. ka.
Fylkir — Skallagr.
Kl. 16.30 1. d. kv.
Víkingur — KR.
Kl. 17.30 1. fl. ka. Valur — UMFA.
Hafnarfjörður
Kl. 14.00 1. d. kv. Haukar — ÍR.
Kl. 15.00 1. fl. ka. Haukar — HK.
Akureyri
Kl. 14.00 3. d. ka. Dalvík — Ögri.
Ásgarður
Kl. 14.00 2. d. ka. HK — UBK.
Kl. 15.15 2. d. ka. HK — Þróttur.
Kl. 16.15 1. fl. ka. Stjarnan — KR.
Vestmannaeyjar
Kl. 13.30 2 d. ka. Þór Ve. — KA.
Selfoss
Kl. 14.00 — 2. d. kv.
Selfoss — Stjarnan.
Keflavík
Kl. 14.00 2. d. kv. ÍBK — ÍBV.
Sunnudagur 13. febr.
Hafnarfjörður
Kl. 14.00 1. d. kv. FH — Fram.
Kl. 15.00 1. fl. ka. FH — Ármann.
— O —
• ítalska liöið Avellino keypti í
fyrra tvo útlenda leikmenn, Dan-
ann Seren Skov og Juan Barba-
dillo, er lék áður með Leon í Mex-
íkó. Þar með er liöið komið með
þrjá erlenda leikmenn, en sá
þriðji, Brasilíumaðurinn Jorge
Juary dos Santos, vill fara frá lið-
inu þar sem áhorfendur hafa ver-
ið að hrella hann á leikjum liðs-
ins.
• Hér má sjá golfkennarann John Nolan leiöbeina einum nemandan-
um í golfskólanum. Nolan veitir unglingum ókeypis hópkennslu. Eru
unglingar hvattir til þess að snúa sér til Nolans og fá leiðbeiningu í
iþróttinni.