Morgunblaðið - 26.02.1984, Síða 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984
Bryan Robson
Hímn var nntaftur í allítr
Hann var notaður í allar
stöður nema markvarðarstöðuna
Bryan Robson hefur verið
mikið í fréttum að undan-
förnu vegna áhuga ítalskra
knattspyrnuliða á kappan-
um en hér verður ekki leit-
að svara við þeirri spurn-
ingu hvort hann muni
keppa á Ítalíu aö ári eður ei
heldur er ætlunin að fara
nokkrum orðum um Rob-
son, en hann er bæði fyrir-
liði Manchester United og
enska landsliðsins.
Bryan Robson fæddist þann 11.
janúar árið 1957 í Chester-Ie-
Street, sem er lítið þorp skammt
fyrir sunnan Newcastle. Hann lék
knattspyrnu með þorpsliðinu og
skólaliðinu þar til West Bromwich
Albion krækti í kappann aðeins 12
ára gamlan og gerði við hann
samning sem átti að taka gildi
strax og hann hefði lokið skóla-
göngu sinni.
Uppáhaldsleikmenn hans á
yngri árum voru þeir Bobby
Moore, West Ham, og Norman
Hunter, Leeds, og er það ef til vill
ástæða þess að á þessum árum lék
Robson í stöðu „sweepers". Hann
lék sjö landsleiki með unglinga-
landsliðinu en þrátt fyrir það gekk
honum ekki nógu vel að tryggja
sér sæti í aðalliði WBA og voru
tvær meginástæður fyrir því.
Fyrri ástæðan var sú að hann
var sífellt að slasa sig. Hann var
ekki orðinn 21 árs þegar hann
hafði fótbrotnað tvívegis á sama
fæti og ökklabrotnað einu sinni á
hinum fætinum. Hin ástæðan
fyrir því að illa gekk að festa sig í
sessi var sú að á þessum tíma
störfuðu fjórir framkvæmdastjór-
ar, hver og einn í stuttan tíma, og
Robson þurfti að sannfæra hvern
þeirra um sig að hann væri full-
fær um að leika í aðalliðinu.
Einnig var það að á þessum ár-
um var hann notaður í allar stöð-
ur á vellinum, nema markvarð-
arstöðuna, og olli það honum
miklum áhyggjum því hann taldi
að verið væri að nota sig sem
hvern annan aukamann en í dag
er hann þakkiátur því þetta segir
hann að hafi aukið fjölbreytni
sína sem leikmanns. Síðastur
þessara framkvæmdastjóra var
Ron nokkur Atkinson og honum á
Robson mikið að þakka því At-
kinscn lét Robson leika á miðjunni
í aðalliði WBA og taldi honum trú
um að hann væri nógu góður leik-
maður til að leika í landsliðinu og
í febrúar 1980 lék hann í liðinu
gegn írum og stóð sig það vel að
síðan hefur hann verið fastamað-
ur þar.
Árið 1981 þegar Atkinson var
orðinn framkvæmdastjóri hjá
Manchester United vildi hann
ólmur fá Robson til liðsins og
hafði hann samband við Bill
Shankly, reyndan framkvæmda-
stjóra hjá Liverpool, til að fá hjá
honum ráðleggingar um hversu
mikið hann ætti að bjóða WBA
fyrir Robson. Svar Shankly var
stutt og laggott: „Eins mikið og þú
telur að þér sé það nauðsynlegt að
hafa hann í liði þínu.“
Það varð mikið tilstand þegar
fréttist að Atkinson ætlaði að
kaupa Robson og framkvæmda-
Bryan ásamt fjölskyldu sinni, Den-
ise og börnunum Claire, sem er
þriggja ára, og Charlotte, sem er
tveggja ára.
stjóri WBA, Ronnie Allen, sagði
að fyrr dræpist hann en að Robson
yfirgæfi WBA. Frá samningunum
var gengið 1. október 1981 og
greiddi Manchester United 1,5
milljónir punda fyrir hann sem er
hæsta verð á leikmanni í ensku
knattspyrnunni og það sem meira
var, Ronnie Allen lifði þessi kaup
af.
Þegar Atkinson var spurður að
því hvers vegna hann legði svona
geysilega mikið fé í aðeins einn
mann, svaraði hann: „Vegna þess
að hann getur allt.“ Fyrsti leikur
Bryan Robson er fyrirliði enska
landsliðsins. Hér er hann með hluta
af þeim mörgu landsliðstreyjum sem
hann hefur fengið eftir landsleiki.
Robson með United var gegn
Manchester City á Maine Road og
lauk þeirri viðureign með marka-
lausu jafntefli en þegar keppnis-
tímabilið var búið hafði hann leik-
ið 28 leiki fyrir United og þeir
höfnuðu í þriðja sæti.
Þrátt fyrir að Robson hafi verið
óheppinn í leikjum og hlotið
margvísleg meiðsl þá hefur hann
alla tíð verið áberandi leikmaður
hvort heldur er með United eða
landsliðinu og síðasta stórvirki
hans var þegar United sigraði í
bikarnum í fyrra en þá lék hann
svo vel í aukaúrslitaleiknum, sem
þeir unnu 4—0, að AC Milan vildi
fá hann til liðs við sig, sama hvað
það kostaði, en Ron Atkinson
sagði NEI og það stendur hjá hon-
um enn þann dag í dag þrátt fyrir
ævintýralegar upphæðir sem
heyrst hafa. Nýlega lét hann hafa
eftir sér að það væru ekki til nógir
peningar á Ítalíu til að kaupa
Robson þannig að Atkinson gamli
virðist ákveðnari en nokkru sinni
að láta Robson ekki til annarra
félaga.
Hér á eftir fara kaflar úr viðtali
sem nýlega birtist við Bryan
Robson í dönsku blaði. Hann var
fyrst spurður að því hvaða afleið-
ingar það hefði haft að Bobby
Robson tók við sem framkvæmda-
stjóri enska landsliðsins af Ron
Greenwood.
„Það er betri agi hjá Robson og
einnig er það kostur við hann að
hann velur liðsmenn eftir því
hvernig knattspyrnu þeir leika en
ekki eftir því hvað þeir heita.
Hann gaf bæði Kevin Keegan og
Trevor Brooking frí og hann hefur
verið ófeiminn við að gefa ungu
mönnunum möguleika á að
spreyta sig og nægir þar að nefna
hversu vel Sammy Lee hefur stað-
ið sig.“
— Nú tókst þú vid sem fyrirliði
United og landsliðsins af Ray Wilk-
ins eftir að hann brotnaði árið 1982,
og hefur síðan haldið þessum stöð-
um. Hvernig er samband þitt og
Ray?
„Gott. Við erum góðir vinir og
ég vil leggja áherslu á það ef ein-
hver skyldi halda eitthvað annað.
Þegar hann var fyrirliði studdi ég
hann sem slíkan og núna þegar ég
er fyrirliði gerir hann slíkt hið
sama. Við leikum svipaða knatt-
spyrnu og þegar hann var að ná
sér eftir meiðslin taldi ég, og
reyndar margir aðrir, að það væri
ekki pláss fyrir okkur báða í Un-
ited og þess vegna var ég hlynnt-
ari Remi Moses í liðinu hjá okkur,
en ég hafði engar óskir uppi um að
Ray yrði seldur frá félaginu og ég
er mjög feginn að hann hélt áfram
hjá liðinu. Hann er mikill vinnu-
hestur sem drífur menn áfram.“
— Nú sigruðuð þið í FA-bikarn-
um í fyrra og þú skoraðir tvö af
fjórum mörkum í 4—0 sigri yfir
Brighton. Hvernig áhrif hafði það á
þig?
„Það var án efa hápunkturinn á
ferli mínum til þessa. Þetta var
fyrsti sigur minn með United í
einhverju móti. En hvað varðar
metnaðarmál mín þá hefur mig
alltaf dreymt um að verða heims-
meistari með landsliðinu. Mig hef-
ur dreymt það alveg frá því ég var
níu ára og sá Bobby Moore taka
við bikarnum eftir að England
vann Vestur-Þjóðverja í úrslita-
leik á Wembley. Ég myndi þó
sætta mig við eitthvað minna, eins
og til dæmis að verða Evrópu-
meistari með Manchester United.
Flestir leikmenn hafa meistaratit-
ilinn í Englandi sem æðstu ósk en
ég set FA-bikarinn alveg jafn
hátt.“
— Nú var Atkinson stjóri hjá
þér þegar þú lékst með WBA og
líka núna hjá United. Hvernig
kanntu við hann?
„Alveg ágætlega. Hann hefur
lítið breyst. Hann vill sigra á öll-
um vígstöðvum og hjá United hef-
ur hann meiri möguleika en áður,
að minnsta kosti til að komast
nær því marki."
— Hvaða áhrif hafði upphæðin
sem þú varst keyptur fyrir til United
áþig?
„Hún hafði engin áhrif á mig og
hefur aldrei gert. Ef til vill vegna
þess að ég var ekki með í því að
ákveða verðið. Ég vil líka að það
komi fram hér að ég tel engan
knattspyrnumann vera svona mik-
illa peninga virði, sama hvað hann
heitir.“
Þegar hann var að lokum spurð-
ur að því hvað hann segði við
þeirri staðhæfingu fólks að hann
væri leikmaður á heimsmæli-
kvarða svaraði hann því til að fólk
væri þá að ýkja. Það væri ekki
hægt að koma með svona staðhæf-
ingar um hann þar sem hann hefði
ekki átt marga stórleiki, hvorki í
heimsmeistarakeppninni eða Evr-
ópukeppninni.
Þýtt og endursagt.