Morgunblaðið - 26.02.1984, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984
53
Athugasemd
frá
Bolungarvík
Bolungarvík, 22. febrúar.
Föstudaginn 17. febrúar sl. birt-
ist svar fréttaritara Mbl. við at-
hugasemd, sem ég gerði við frétt
hans frá 8. febrúar. Þar sem
fréttaritarinn er enn við sama
heygarðshornið er nauðsynlegt að
leiðrétta nokkur atriði í svari
hans:
1. í svari fréttaritara Mbl.
stendur: „Ég vil í því sambandi
benda á að greinargerð Kristins
var meira en ein vélrituð síða, það
geta menn kynnt sér í fundar-
gerðabók bæjarstjórnar." Fundar-
gerð er handrituð inn í fund-
argerðabók, ekki vélrituð. Grein-
argerðina á ég vélritaða og dugði
ein síða undir hana.
2. Fréttaritarinn heldur því enn
fram að tekið hafi tæpar 2 klst. að
færa greinargerðina til bókar. Það
er augljóslega rangt eins og hver
og einn getur sannfærst um.
3. Þá stendur í svarinu: „Þó er
þess ekki getið að Kristinn greiddi
þessari tillögu atkvæði sitt og
samþykkti ásamt meirihluta bæj-
arstjórnar að aðeins yrði sent út
með fundarboði það sem í gerða-
bók er skráð."
Rangt er að ég hafi greitt at-
kvæði með tillögu þessari. Ég
greiddi atkvæði gegn henni, en
hún var samþykkt 7:1. Ennfremur
er rangt „að aðeins yrði sent út
með fundarboði það sem í gerða-
bók er skráð", því tillagan fól í sér
að fellt var út megnið af því sem
þá var búið að færa til bókar. í
tillögunni stendur: „Verði ofan-
greint samþykkt skal ekki senda
út greinargerðir þær og þann hluta
breytingartillagna sem nú þegar
hafa verið færðar til bókar.“ Þessi
tillaga gekk mun lengra en hægt
er að fella sig við. Reyndar gengur
hún þvert á 5. gr. málefnasamn-
ings meirihlutans, sem kveður á
um, að koma á reglubundnu sam-
starfi stjórnenda bæjarfélagsins
og íbúanna, m.a. með bættri upp-
lýsingamiðlun.
4. Þá reynir fréttaritari Mbl. að
bera af sér þá athugasemd mína
að hann geti að engu klofnings
meirihlutans um tillögu um fækk-
un bæjarfulltrúa og telur það ekki
fréttnæmt að menn hafi sjálf-
stæðar skoðanir. í upphafi fréttar
hans frá 8. febrúar sl. segir: „Var
meðal annars efnis til seinni um-
ræðu og atkvæðagreiðslu tillaga
meirihluta bæjarstjórnar um
breytingar á bæjarmálasam-
þykkt" og síðar í sömu frétt:
„Minnihluti bæjarstjórnar, sem
skipaður er einum fulltrúa af
G-lista mótmæli þessari tillögu."
Það er berlegt að fréttaritari Mbl.
reynir að breiða yfir ágreining
innan meirihlutans um tillöguna.
Það er rangt mat hjá fréttaritara
Mbl. að ekki sé fréttnæmt að inn-
an meirihlutans hafi menn sjálf-
stæðar skoðanir.
Umburðarlyndið á þeim bæ er
ekki meira en það að á sínum tíma
var tveimur bæjarfulltrúum hótað
brottvísun úr meirihlutanum, ef
þeir styddu ekki ákveðna tillögu.
Það er því meiriháttar frétt þegar
menn rísa upp.
Ég get verið sammála fréttarit-
ara Mbl. um það að tima hans er
betur varið til að sinna frétta-
flutningi úr byggðarlaginu og ætti
hann að snúa sér að því.
Kristinn H. Gunnarsson.
Höfóar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
SUMARAÆTLUN
Majorka — Kanaríeyjar — Grikkland
Sólarlandaferðir allan ársins hring. Brottför alla föstudaga 10,17, 24, eöa 31 dags feröir
eða lengri.
2'/j dagur í London á heimleiðinni í kaupbæti án aukakostnaðar.
Majorka. Fjölsóttasta sólsklnsparadís Evrópu. Glæsilegar ibúðir og hótel á eftirsóttustu stöðunum,
Magaluf, Santa Ponsa og Arenal.
Kanaríeyjar — Tenerife. — Fögur sólskinsparadis. Glæsileg hótel og íbúðir.
Grikkland — Aþenustrendur. Hótel og íbúöir á eftirsóttustu stööunum.
Malta, sögufræg sólskinsparadís.
Athugið: Hagstæð fjölskyldukjör. Krakkarnir borga bara helming.
Pantið snemma því plássið er takmarkaö. Og þeir sem til þekkja panta snemma hjá okkur, enda veröiö
ótrúlega hagstætt, lægra en í fyrra.
Flugferðir — Sólarflug
Vesturgata 17, símar 10661, 15331 og 22100
dppkz computer
Stórkostícg verðlækkim!
Nú geta allir fengið sér alvöru tölvu
Nú hafa verið felldir niöur tollar og söluskattur af tölvubúnaði.
Þetta gerir íslendingum kleift aö tölvuvæöast í samræmi viö
kröfur nútímans. Nú átt þú næsta leik!
Nú getum viö boöiö þér vinsælustu alvöru einkatölvu í heimi,
Apple / / e, en hún hefur nú selst í 1.500.000 eintökum. Meira
en 20.000 forrit eru fáanleg á Apple / / e, en þaö er mun meira
en nokkur önnur tölva getur státaö af. Mörg íslensk forrit eru
fáanleg á vélina, t.d. fjárhagsbókhald, viöskiptamannabókhald,
lagerbókhald, launabókhald, tollvörugeymsluforrit, veröútreikn-
ingar o.fl. Mundu þaö, aö án forrita er tölva eins og bensínlaus
bíll.
Á Apple / / e er staðlað íslenskt lyklaborö, og hentar hún því
einkar vel til ritvinnslu.
Notendaminni vélarinnar er 64K, en þaö er stækkanlegt í 128K
og ætti þaö aö vera nægilegt fyrir flesta.
Apple tölvur eru notaöar hjá skólum, bönkum, opinberum
stofnunum, einkafyrirtækjum, skipafélögum, flugfélögum, verk-
fræðistofum, læknastofum, rannsóknarstofum, lögfræðistof-
um, endurskoöendum, vélsmiöjum, fataframleiöendum, ráö-
gjafarfyrirtækjum, verktökum, útgáfufyrirtækjum, prentsmiöj-
um og þannig mætti lengi telja. Fjölmargir einstaklingar nota
Apple, svo sem kennarar, rithöfundar, vísindamenn, forritarar,
rafeindavirkjar, radioamatörar, stjórnendur fyrirtækja og stofn-
ana, læknar, verkfræöingar, þýðendur og blaöamenn, og eru
þá aðeins tekin örfá dæmi.
Tilboð:
Kr. 63.990,-, nú aöeins kr. 49.990,-
Útborgun kr. 10.000,- og eftirstöðvar á 10
mánuðum!
r
Skipholti 19, sími 29800.