Morgunblaðið - 26.02.1984, Qupperneq 20
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984
Calvin
Klein
fatahönnuður
Þaö er liðin tíö aö litiö var
á bandarískan fatnaö sem
lítið annaö en skræpóttar
sólskyrtur, Bermuda-stutt-
buxur og „crimplene“-flíkur.
Margir bandarískir fatahönn-
uðir hafa unniö sér nafn í
hinum stóra tískuheimi og
flíkur þeirra seldar í glæsi-
verslunum víöa um heim.
Einn hinna þekktari tísku-
hönnuða Bandaríkjanna er
Calvin Klein, rúmlega fertug-
ur maöur, innfæddur New
York-búi, fæddur og uppal-
inn í Bronx-hverfinu. Þaö
hverfi hefur reyndar aliö af
sér annan tískufrömuö, Ralp
Laurent, sem einnig ólst upp
í Bronx en er örlítið eldri.
Calvin Klein fékk snemma
áhuga fyrir litum og línum.
Hann fór því strax út í nám á
listasviðinu í gagnfræðaskóla og
hélt síðan áfram námi í New
York Fashion Institute of
Technology. Að námi loknu hóf
hann hönnunarstörf hjá öðrum,
en gerði sér fljótt ljóst, að það
væri ekki vænlegt til lengdar,
hann hafði hug á að halda sjálf-
ur um stjórnvölinn.
Þegar hann var 26 ára gamall,
hófusl þeir handa, hann og besti
vinur hans, Barry Schwartz, við
eigin framleiðslu. Barry vann
við stórmarkaði föður síns og
tókst að útvega peninga svo
hægt væri að kaupa efni til að
skapa „módel“ eftir forskrift
Calvin Klein, sem hann vann við
á kvöldin og um helgar. Þegar
búið var að sauma dálítið af
fatnaði sagði Calvin Klein upp
vinnunni og þeir félagar tóku á
leigu herbergi á hóteli, þar sem
innkaupastjórar utan af landi
vöndu komur sínar. Þeir hringdu
í alla innkaupastjóra, sem þeir
vissu einhver deili á, og buðu
þeim að koma og skoða. Nokkrir
þeirra komu til að iíta á, en eng-
inn þeirra gerði pöntun. Það var
svo dag nokkurn, að innkaupa-
stjóri Bonwit Teller (sem er
þekkt og dýr verslun) í New
York, fór af misgáningi út úr
lyftunni á þeirri hæð sem þeir
félagar voru með sýningarher-
bergi. Sú heimsókn endaði með
því að þeir félagar fengu í hend-
ur pöntun á kápum fyrir 50 þús-
und dollara.
Þá var að hefjast handa við
framleiðsluna og til þess skorti
fé. Calvin Klein, sem þá var
klæddur gallabuxum og með hár
ofan á herðar, fór til stærsta
fyrirtækis í fataefnum, skýrði
frá pöntuninni frá Bonwit Teller
og fór fram á greiðslufrest vegna
efniskaupa, svo hægt væri að
hefja framleiðsluna.
Forstjóra fyrirtækisins fannst
víst ekki mikið til þessarar fata-
framleiðslu koma, því hann
svaraði: „Ef menn ætla sér að
kaupa eitt pund af nöglum, fara
þeir í venjulega járnvöruverzlun,
þeir snúa sér ekki til U.S. Steel.
Farðu og kauptu efni hjá kaup-
mönnunum við Sjöunda stræti,
sem selja efnin okkar."
Ári síðar falaðist þetta sama
fyrirtæki eftir viðskiptum við
Calvin Klein.
Ágóðinn af fyrsta árinu með
eigin framleiðslu nam einni
milljón dollara, eftir það var
leiðin greið.
Calvin Klein hafði tekist að
sýna fram á og sanna, að það
þurfti ekki að fara til Parísar til
að kaupa þar „módel“-flíkur til
að framleiða svo eftir fyrir
bandarískar konur. Hönnuðinum
hafði tekist að framleiða fatnað
sem hentaði nútímakonum í
Bandaríkjunum og bætti síðar
um betur, hóf framleiðslu á
karlmannafatnaði, gallabuxum á
alla aldursflokka, skartgripum,
snyrtivörum og skóm. Calvin
Klein-fatnaður er nú seldur víða
um heim, fyrsta verslunin með
föt hans utan Bandaríkjanna var
opnuð í London.
Hönnuðurinn lítur svo á, að
fatnaður eigi að vera einfaldur
og samspil sé á milli efnis, lita
og sniðs, taka þurfi mið af því að
venjulegt fólk eigi að klæðast
honum. Hann sér sjálfur um alla
þætti framleiðslunnar, er þar
ekkert óviðkomandi.
Hönnuðurinn Calvin Klein er
nú kominn á fimmtugsaldur.
Hann er freknóttur í andliti, hár
og grannur, þykir vera sérlega
vel á sig kominn að sögn, og lítur
út fyrir að vera tíu árum yngri
en hann er. Að loknum vinnu-
degi tekur hann til við líkamsæf-
ingar í 1 'k klst. í æfingasal, sem
búið er að koma upp á vinnustað.
Hann er ákafur heilsuræktar-
maður, neytir aðeins heilsusam-
legs fæðis, þó ekki hafi hann
sinnt þeim málum á yngri árum,
þá kveðst hann aðallega hafa lif-
að á svokölluðum rusl-mat eða
„junk food“. Hann hefur þó ekki
getað gefið reykingar upp á bát-
inn og kveðst skammast sín
fyrir.
Calvin Klein á eitt hjónaband
að baki. Það kveður hann hafa
farið út um þúfur vegna þess að
þau voru bæði of ung. Dóttirin
Marci er á seytjánda ári og býr
hjá móður sinni í íbúð á Man-
hattan. Samkomulag og um-
gangur er allur f mikilli vin-
semd. Þegar hún var telpa var
gerð tilraun til að ræna henni og
átti að kúga út fé í skiptum fyrir
hana. Hönnuðurinn telur það
einhvern skelfilegasta atburð,
sem hann getur hugsað sér.
Honum hefur búnast vel pilt-
inum unga úr Bronx-hverfinu,
sem lagði út á braut fatahönn-
unar þar sem samkeppni er hörð,
margir eru þar kallaðir en fáir
útvaldir. Hann á fullbúin heimili
á þrem stöðum, eitt í New York,
eitt á Fire Island og eitt í Conn-
ecticut, hann er orðinn stórauð-
ugur. Velgengni Calvin Klein í
starfi sýnir, svo ekki verður um
villst, að enn gerast ævintýrin í
henni Ameríku. Hann taldi
óplægðan þann akur, þar sem
hugsað var fyrir fatnaði fyrir
venjulegt fólk á viðráðanlegu
verði.
Viðtökurnar sýna að ungi
maðurinn hafði rétt fyrir sér.
Sjálfur segist hann mundu una
við þau eftirmæli að hann hafi
lagt sitt af mörkum til að bæta
fatahönnun í Bandarikjunum.
B.I.
Þýtt og endursagt.