Morgunblaðið - 26.02.1984, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1984
73
Stalín á líkbörunum. Dauði hans bjargaði sumum, en útskúfaði öðrum. Frá vinstri: Molotov, Voroshilov, Bería og Malénkoff. Frá hægri: Mikojan, Kaganovitsj, Krúsjeff og Bulganin.
og með deginum í dag.
Miðstjórninni og ríkisstjórn-
inni, öllum flokki okkar og allri
sovétþjóðinni er Ijóst, hve mik-
ið skarð verður fyrir skildi, ef
félagi Stalín verður að láta af
störfum í þágu flokks og
stjórnar um skemmri eða
lengri tíma. í fullu trausti
þess, að flokkurinn og sovét-
þjóðin muni á þessum erfiðu
dögum sýna jafnvel enn meiri
samheldni, einbeittari vilja og
árvekni, þá skal skorað á hana
að leggja enn harðar að sér við
uppbyggingu kommúnismans
og þjappa sér enn fastar um
miðstjórn Kommúnistaflokks-
ins og ríkisstjórnina.
Þjóðviljinn birti einnig í heild
fyrstu læknaskýrsluna um líðan
einvaldsins. Var þar greint ná-
kvæmlega frá hjartslætti hans og
andardrætti. í lok skýrslunnar
sagði:
Sjúklingurinn hefur 38,2°C
hita. Blætt hefur meira inn á
heilann og sjúklingurinn þjáist
af súrefnisskorti. Allar ráð-
stafanir hafa verið gerðar til
að gefa sjúklingnum heilsuna
aftur.
Þessi lokaorð skýrslunnar,
ásamt vitneskjunni um að sjúkl-
ingurinn væri „undir eftirliti mið-
stjórnar Kommúnistaflokks Sov-
étríkjanna og ríkisstjórnarinnar"
hljóta að hafa verið lesendum
Þjóðviljans nokkur léttir eftir
frásagnir blaðsins um „lækna-
samsærið" mikla. Síðar urðu þessi
einkennilegu ummæli reyndar til
þess að auka á grunsemdir manna
um, að Stalín hefði verið ráðinn af
dögum af samstarfsmönnum sín-
um.
Góður vilji lækna og eftirlit
miðstjórnar megnuðu ekki að gefa
Stalín aftur heilsuna. Næsta dag
sagði Þjóðviljinn í forsíðufrétt:
„Stalín þyngir ískyggilega. Alvar-
leg truflun á starfsemi hjartans
bætist við afleiðingar heilablæð-
ingarinnar". Birtar voru í heild
tvær tilkynningar frá líflæknum
Stalíns, og kom þar m.a. fram, að í
þvagi einvaldsins hefði orðið „vart
eggjahvítu og rauðra blóðkorna en
eðlisþungi þess var eðlilegur". í
fréttum blaðsins frá Moskvu
sagði, að mikið fjölmenni væri í
öllum kirkjum, fólk bæði fyrir
heilsu Stalíns og kveikti til þess á
kertum fyrir dýrlingamyndum.
í annarri forsíðufrétt sagði, að
Menningartengsl íslands og Ráð-
stjórnarríkjanna (MÍR) ætluðu að
efna til kvikmyndasýningar þenn-
an sama dag til að sýna Reykvík-
ingum, „hvað fólkið austan járn-
tjaldsins aðhefst meðan vestan-
tjaldsmenn reyna að egna til at-
lögu við það“. Myndin var helguð
hinum mikla sigri Stalíns í land-
búnaðarmálum, en sá „sigur hefði
aldrei unnist, ef ekki hefði verið
beitt aðferðum sósíalismans í stað
þeirrar hangandi handar, sem ein-
kennir öll vinnubrögð hins opin-
bera vestan tjalds við ræktunar-
framkvæmdir".
„Friðarsóknin", sem Stalín
hafði byrjað fyrir einhliða afvopn-
un Vesturlanda, var einnig kynnt
Reykvíkingum þessa daga. Menn-
ingar- og friðarsamtök íslenskra
kvenna boðuðu til almenns fund-
ar, og þrír prestar Þjóðkirkjunnar
voru meðal framsögumanna.
„Dáinn, horfinn! -
Harmafregn!“
En nú dró endanlega fyrir sólu
hjá liði Stalíns á íslandi. Þjóðvilj-
inn flutti harmafregnina á forsíðu
7. mars 1953: „Jósef Stalín látinn.
Milljón manna hefur streymt
fram hjá líkbörum hans“. Fleiri
vildu komast að, sagði blaðið,
sextán kílómetra löng röð manna
biði á snæviþöktum götum
Moskvu til að votta minningu hins
látna dýrðarmanns virðingu. Líkið
hvíldi í opinni kistu í höll verka-
lýðsfélaganna, uppljómað af kast-
ljósum og umkringt blómum.
Heiðursvörður hermanna hefði
vaktaskipti á fimm mínútna fresti
við kistuna og lúðrasveitir léku
sorgarlög án afláts.
í annarri frétt sagði, að mið-
stjórn Sósíalistaflokksins íslenska
hefði þegar í stað vottað rússn-
eska sendiherranum í Reykjavík
samúð sína og einnig sent samúð-
arkveðjur til Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna. íslenskir félagar
Stalíns voru harmi slegnir, í röð-
um þeirra vætti söknuður „nálega
hverja brá“ eins og einn forystu-
manna þeirra komst að orði í Nýja
stúdentablaðinu. Einar Olgeirs-
son, formaður Sósíalistaflokksins,
minntist látins leiðtoga síns í for-
ystugrein Þjóðviljans, sem bar
heitið „Stalín" og var í svörtum
sorgarramma. Þar sagði Einar:
Stalín er látinn. Með honum
hafa allir hinir fjórir miklu
brautryðjendur og lærifeður
sósíalismans: Marx, Engels,
Lenín, Stalín, kvatt oss. Ein-
hverri stórbrotnustu ævi, sem
lifað hefur verið, er lokið.
Með klökkum hug og djúpri I
virðingu hugsa allir þeir, sem \
berjast fyrir sósíalisma á jörð-
inni, til hins ógleymanlega,
látna leiðtoga.
Vér minnumst hins unga
eldhuga, sem vakti undirokaða
þjóð sír.a til baráttu fyrir frelsi
og tendraði neista sósíalism-
ans í brjósti kúgaðs verka-
lýðs...
Vér minnumst hugsuðarins,
sem sjálfur fæddur af smárri
þjóð, auðgaði sósíalismann
með kenningunni um óafsal-
anlegan rétt þjóðanna til
sjálfstæðis...
Vér minnumst hetjunnar, er
stóð mitt meðal blæðandi þjóð-
ar sinnar á grafhýsi Leníns í
Moskvu 7. nóvember 1941, elsk-
aður og dáður af öllum frelsis-
unnandi mönnum heims...
Vér minnumst þess að fram
á siðustu stund hélt hann
áfram að vísa veginn — þjóð-
um sínum brautina til komm-
únismans, mannkyninu öllu
leiðina til friðar.
Vér minnumst mannsins
Stalíns, sem hefur verið elsk-
aður og dáður meir en flestir
menn í mannkynssögunni áður
og naut slíks trúnaðartrausts
sem fáir menn nokkru sinni
hafa notið — en lét sér aldrei
stíga þá ást og aðdáun til höf-
uðs, heldur var til síðustu
stundar sami góði félaginn,
sem mat manngildið ofar öllu
öðru eins og þá er hann fyrst
hóf starf sitt.
Gagnvart mannlegum mik-
illeik þessa látna baráttufélaga
drúpum við höfði, — í þökk
fyrir allt, sem hann vann fyrir
verkalýðshreyfinguna og sósí-
alismann, — / djúpri samúð við
flokk hans og alþýðu Sovétríkj-
anna.
Meðan íslenskir sósíalistar treg-
uðu goð sitt, sagði Þjóðviljinn nýj-
ustu tíðindi frá Moskvu: „Lík Stal-
íns verður smurt og lagt til hinstu
• hvíldar við hlið Leníns í grafhýs-
inu undir Kremlarmúrnum". Þar
sem smyrðlingarnir voru nú orðn-
ir tveir í ríki hinnar sögulegu efn-
ishyggju, hafði verið ákveðið að
reisa nýtt og rúmbetra grafhýsi
eins og Þjóðviljinn skýrði frá.
Blaðið sagði ennfremur, að enda-
laus fólksstraumur héldi áfram að
votta Stalín virðingu sína. Haft
var eftir Prövdu, að málstaður
hans væri nú „í tryggum og styrk-
um höndum lærisveina hans og
samstarfsmanna" og starfsmenn
sovésku utanríkisþjónustunnar
hefðu strengt þess heit að sækja
ávallt „þrótt í fordæmi hins mikla
Stalíns". Formaður útfararnefnd-
ar var sagður félagi Nikíta Krús-
jeff.
Þegar hér var komið, höfðu sósí-
alistar tekið það ráð að efna til
kveðjuathafnar um Stalín í
Reykjavík, þótt þeim væri tregt
tungu að hræra. Athöfnin var
auglýst á forsíðu Þjóðviljans:
Menningartengsl íslands og
Ráðstjórnarríkjanna boða til
minningarfundar um Jósef
Stalín í Austurbæjarbíói nk.
þriðjudagskvöld kl. 9.30 e.h.
Fundaratridi verða þessi:
Hljómsreit leikur sorgarlag.
Þórbergur Þórdarson flytur
ávarp.
Kristinn E. Andrésson flytur
minningarrædu.
Guðmundur Jónsson óperu-
söngvari syngur einsöng.
Sverrir Kristjinsson flytur erindi
um Stalín.
Ottó N. Þorláksson flytur stutt
ávarp.
Þorsteinn Ö. Stephensen flytur
ávarp.
Söngkór verkalýðsfélaganna í
Reykjavík syngur undir stjórn
Sigursveins D. Kristinssonar.
Kynnir verður Jón Múli Árna-
son.
Öllum er heimill aðgangur á
minningarfundinn og verða að-
göngumiðar til eftir hádegi i
morgun í Bókabúð Máls og
menningar, Bókabúð KRON og í
skrifstofu MÍR kl. 5—7.
Mánudaginn 10. mars 1953 var
Stalín „lagður til hinstu hvílu við
hlið Leníns" eins og sagði í for-
síðufrétt Þjóðviljans. „Vertu sæll
kennari okkar og leiðtogi, kæri
vinur og góði félagi!" voru loka-
orðin í minningarræðu Malén-
koffs, eftirmanns Stalíns sem for-
sætisráðherra. Þau orð voru birt í
undirfyrirsögn á forsíðu Þjóðvilj-
ans, enda túlkuðu þau einkar vel
tilfinningar ritstjórnarinnar.
Blaðið birti einnig í heild líkræðu
þess mæta alþýðuleiðtoga Lavr-
entis Bería. Hann lagði eins og fé-
lagi Malénkoff aðaláhersluna á
hlutverk Stalíns sem friðflytj-
anda. Bería sagði líka, að þeir
óvildarmenn verkalýðsríkisins,
sem vonuðust til að dauði Stalíns
ylli sundrungu, mundu verða fyrir
sárum vonbrigðum. „Það væru
biindir menn sem sæju ekki, að
allar þjóðir Sovétríkjanna þjöpp-
uðu sér í einingu og bróðerni um-
hverfis sovétstjórnina... í sæti
Stalíns hefði sest lærisveinn Len-
íns og náinn samverkamaður Stal-
íns.“
Sósíalistar
kvedja goðið
Og nú var komið að „minn-
ingarfundi reykvískrar alþýðu um
Stalín, hinn mikla forustumann
Sovétþjóðanna og leiðtoga hinnar
sósíalistísku verkalýðsshreyfingar
um allan heirn" eins og það var
orðað í Þjóðviljanum. „Fundurinn
allur var mótaður af virðuleik og
djúpri alvöru." Þegar útvarps-
hljómsveitin hafði leikið Largo
eftir Hándel, flutti Þórbergur
Þórðarson, varaforseti MÍR, ávarp
„og minntist Stalíns sem eins
mesta mikilmennis í sögu mann-
kynsins". Síðan flutti Kristinn E.
Andrésson, forvígismaður MÍR og
framkvæmdastjóri Máls og menn-
ingar, minningarorð sín og mælt-
ist m.a. svo:
Við andlát Stalíns hefur í
svip siegið þögn á heiminn, og
það er sem allir finni Ijóst eða
leynt, hve hann er fátækari
eftir... í Stalín rætist draum-
ur fólksins um gleði og fegurð,
kvað skáldið Dsjambúl. Frá
þessu fólki, þessu þjóðfélagi
fékk Stalín vald sitt. Hann var
líf af lífi þess. Hann átti trún-
að þess allan vegna þess að
SJÁ NÆSTU SÍÐU.
Lofað sé hans nafn!
íslenskir sósíalistar völdu leiðtoga sínum, Jósef Stalín, mörg fögur nöfn. Hér skulu
nokkur þeirra talin, en tekið fram, að listinn er hvergi nærri tæmandi, því að flest eru
heitin úr tveimur tölublöðum Þjóðviljans og einu tölublaði MÍR og Nýja stúdentablaðsins
1953.
Tvímælalaust ástsælasti foringi rússnesku byltingarinnar.
Lærifaðir sósíalismans.
Ógleymanlegur leiðtogi.
Eldhugi.
Hugsuður.
Elskuð og dáð hetja.
Góður félagi.
Baráttufélagi.
Hinn mikli forystumaður Sovétþjóðanna.
Leiðtogi hinnar sósíalísku verkalýðshreyfingar um allan heim.
Eitt mesta mikilmenni í sögu mannkynsins.
Draumur fólksins um gleði og fegurð.
Líf af lífi fólksins.
Foringi fólksins.
Foringi sovétalþýðunnar.
Viti verkalýðshreyfingarinnar í heiminum.
Vörður um líf alþýðumannsins, sósíalismans og friðarins.
Hinn mikli foringi Stalín.
Hinn mikli leiðtogi og lærimeistari.
Hinn elskaði leiðtogi alþýðu Sovétríkjanna.
Einhver göfugasti hugsjónamaður og mannvinur nútímans.